Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2002, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2002, Blaðsíða 35
I_A.UGA.RDA.GUR 22. J Ú N f 2002 H e Iq a rb la c) JOV 39 ætlaði mér aldrei að koma með það en vissi ekki fyrr en ég sat í flugvélinni og bakpokinn minn var niðri í lest- inni. Mér var alveg sama þótt ég færi í fangelsi." Pétur fór á Staðarfell i meðferð en fjórum klukku- stundum eftir að hann kom aftur til Reykjavíkur var hann fallinn. Neyslan hélt áfram þar til hann var stadd- ur á hótelherbergi í Reykjavík. Hann var einn með efn- ið sitt. Hafði tekið til í herberginu og raðað efnunum snyrtilega upp þegar hann tók of stóran skammt og hjarta hans hætti að slá. „Ég man eftir því hvernig lífið fjaraði út. Ég man mjög vel eftir þvi, man eftir krampan- um og því hvernig slokknaði á mér. Ég hugsaði mikið um dóttur mína, kallaði á hana. Ég vissi að ég var að deyja,“ segir Pétur. „Það er erfitt að lýsa þessu. Það varð mér til lífs að það var stúlka frammi á ganginum með handklæðavagn. Ég henti mér fram á gang; mig langaði ekki að deyja. Það varð mér til lifs.“ Áltvað að hreinsa til Þá kom Pétur í Byrgið. „Ég hafði ekki trú á því að ég myndi verða edrú. Ég vissi ekki hvað ég var að gera hér. Ég var hræddur," segir Pétur. „Þegar rann af mér var ég undir góðu eftirliti. Með sjálfum mér gerði ég upp við fíkniefnin. Þau eru öll horfín og hluta af þeim lét ég eyða. Það dót sem ég hafði fengið sem greiðslu fyrir fíkniefni tók ég, gekk með það út á Reykjanesið og henti því í sjóinn. Ég ákvað að hreinsa til í lífi mínu.“ Pétur tekur upp Biblíuna. „Ég upplifði mikla sorg vegna dóttur minnar. Ég leitaði til prests, ráðgjafa og víkingagrúppu en ég gat ekki talað um þetta. Ekki fyrr en fólkið í Byrginu útskýrði þetta fyrir mér.“ Pétur les úr biblíunni kaflann sem breytti honum: „Áður en ég myndaði þig í móðurlífi, útvaldi ég þig, og áður en þú komst af móðurkviði, helgaði ég þig.“ Hann útskýrir fyr- ir mér að lífið sé fyrir fram ákveðið. „Þessa leið átti ég að fara til að uppgötva Jesúm Krist. Ég er kallaður hing- að sem einn af þjónum hans. í dag get ég hjálpað dóttur minni. Við biðjum fyrir henni á hverjum degi. Ég trúi því að hún eigi eftir að læknast. Hún á engan sinn líka. Ég var leiddur hingað tO að hjálpa fólki. Ég fékk köll- un um að henda öllu frá mér, vinna með fólki og gefa af mér. Ég er að endurfæðast i orðsins fyllstu merkingu. Líf mitt er kvíðalaust. Ég missi ekki stjórn á skapi mínu og maðurinn sem áður gekk í gegnum veggi og hurðir og gekk í skrokk á mönnum talar núna yfirvegað. Þegar eitthvað angrar mig ræði ég við Drottin og svörin eru hér í Biblíunni. Það nær enginn tökum á lífi sínu sem lentur er í svona ógöngum nema með blindri trú á Orð- ið. Um það getur fólkið í Byrginu borið vitni.“ Núna vinnur Pétur í sjálfboðastarfi við að byggja upp forvarnar- og fjölskyldudeild. „í haust getum við tekið aðstandendur í þriggja mánaða meðferð," segir Pétur. „Ég þekki þörfina fyrir slíka deild. Móðir mín var ánægðust þegar ég var í fangelsi eða í meðferð. Oft eru aðstandendurnir mjög veikir, stundum veikari en sjálf- ur neytandinn: fjölskyldan er ekki í vímu, hún þjáist." Fjölslíylda mín er í sárum Það er mikið lagt á þína nánustu svo þú getir þroskast, segi ég við Pétur. „Ég lít öðruvísi á þetta. Ég lít á sögu mína sem varnaðarorð," segir Pétur. „Konan mín er ofsalega reið og ég skil það vel. Ég brást henni. Fjölskyldan min stendur fullkomlega við bakið á mér. Ég ætla mér ásamt fleirum að uppræta óhikað þau mál sem menn hafa ekki þorað að snerta við. Ég segi þessa sögu til að sýna að það er von um líf, það er hægt að ná sér. Fyrir þá sem eru langt leiddir er Byrgið góður staður því ef maður leitar á Vog eða á Staðarfell er maður kom- inn út eftir mánuð í sama umhverfi og maður var að flýja. Hér í Byrginu er tólf til 36 mánaða meðferð sem virkar. Þetta er eins og lítið og samheldið bæjarfélag. Margir þeirra sem leita hingað eiga ekki fatnað. Við lát- um þá fá fót og fullbúin herbergi sem verður þeirra heimili. Eftir vissan tíma fær fólk bæjarleyfi og smám saman er það stutt út í þjóðfélagið." En samviskan? „Auðvitað líður mér ekki vel. Það er sárt að koma svona fram við fólk. Fjölskylda mín er í sárum. Þegar ég yfirgaf konu m.ína og veikt barn vissi enginn hvað var að gerast. Auðvitað er fólk reitt við mig. Ég bið fyrir þessu fólki á hverjum degi. Ég hef hins vegar engar áhyggjur af þvi að reita fólk í undirheimunum til reiði. Það vilja allir komast út úr honum en komast ekki.“ Eru undirheimarnir jafn skipulagðir og margir vilja meina? spyr ég Pétur. „Skipulagðari. Þar er starfsemin mjög vel skipulögð og samkeppnin gríðarleg. Nú eru líka erlendir aðilar að koma inn á markaðinn og leiðirnar í innflutningi orðn- ar skotheldari. Ný kynslóð neytenda er líka að verða til, ecstasy-kynslóðin. “ Pétur segir að síðasta árið hafi hann fjármagnað inn- flutninginn með peningum úr fyrirtækinu sínu en áður fyrr hafi hann gert það með innbrotum. Innflytjendur fíkniefna eru fyrirlitlegir en mörgum þykir sýnu verri þeir menn sem ekki hafa flækst inn í eiturlyfjainnflutning í gegnum eigin eiturfíkn heldur af einskærri gróðafikn. „Já,“ segir Pétur, „og þannig er því oft farið. Oft á tíðum eru þetta fjölskyldumenn eða menn sem láta mikið fyrir sér fara í þjóðfélaginu." Einhverjir sem þú vilt tala um? „Nei, ekki enn.“ Heldurðu að þú munir snúa aftur til fyrra lífs? „Ég er búinn að fyrirgera því og ég myndi aldrei fara fram á það. Ég lifi ekkert i heiminum í dag,“ segir Pét- ur en honum er eins og öðrum ibúum Byrgisins tamt að tala um „heiminn" eins og hann nái aðeins að gaddavírs- girðingunni sem umkringir þetta litla þorp. Ég hef misst allt Dóttir Péturs verður fjögurra ára í nóvember. Honum þykir sárt að standa utan uppeldis hennar. „Það er mjög erfitt. Ég leita mikið í bænina og bið mig frá vanlíðan. Bænin hjálpar mér ótrúlega mikið. Hún hefur einu sinni komið hingað í heimsókn. Ég talaði við hana um Jesúm. Það er lika gaman að tala við hana í síma. Hún segir að Jesús sé hjá sér og passi hana. Ég trúi á kraftaverk. Ég hef ætlað að fara norður að hitta hana en það hef- ur alltaf frestast. Ég hitti dóttur mína þegar mér er ætl- að það. Guð sendir mig þegar ég er tilbúinn til þess, þeg- ar ég verð sterkari og get gefið meira af mér. Það tekur tíma að byggja upp traust að nýju. Fólk lítur á mig sem útlending núna, segist ekki þekkja mig lengur. Mér finnst það jákvætt því þá veit ég að ég er að ganga rétt- an veg.“ Það verður erfitt fyrir fólk að treysta þér aftur, segi ég. „Fólk þarf þess ekki. Ég veit hvar ég þarf traust og ég treysti Guði fyrir lífi mínu. Og hann er réttlátur. Mig langar til að geta náð mér. Og ég veit núna að ég get stutt dóttur mina í veikindum hennar. Ég hef brugð- ist fólki, ég hef alltaf klikkað. Aldrei kafað djúpt og sagt sögu mina fyrr en nú. Ég vil stimpla mig út úr heimi fikninnar. Ég hef horft á félaga mína deyja í hrönnum og hef sjálfur dáið. Ég er búinn að átta mig á stöðu minni og veit núna hvað ég vil fá út úr lífinu. Ég hef misst allt. Ég hef misst fjölskylduna og fyrirtækið. Ég á ekki aftur- kvæmt nema í Jesú Kristi. Hann sest við hliðina á þeim sem minna mega sín og eru í sárum. Hann lyftir þeim upp og gerir að sínum." -sm
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.