Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2002, Blaðsíða 36
H í> l c) o rb / a c) JÖV LAUGARDAGUR 22. JÚNf 2002
Frekar
líf en form
Ekki eru allir spámenn ísínu föðurlandi en
stundum taka borgir eða héruð miklu
ástfóstri við sína eigin listamenn og hampa
þeim umfram aðra. Silja Aðalsteinsdóttir
rakst á skemmtilegt dæmi um slíkt á ferð
sinni í Uppsala íSvíþjóð.
ÞEGAR MAÐUR GENGUR ÚT ÚR lestarstöðinni í
Uppsölum í Svíþjóð tekur óvenjulega lifandi, djarft og
heitt listaverk á móti manni. Þetta er stórgerð högg-
mynd í svörtu, gulu og grænu, umlukin vatni, og sýn-
ir nakinn svartan spilamann með grænt hár og gyllta
fiðlu innan um stórvaxin gullin sólblóm og efst uppi
á þeim par í fjörugum dansi.
Myndin er eftir héraðslistamanninn Bror Hjorth,
og þeir sem leggja leið sína til Uppsala í sumar ættu
ekki að missa af safninu sem hefur verið í húsi hans
í vesturhluta borgarinnar síðan 1977. Sjálfur hafði
Bror Hjorth legið í gröf sinni í tæpan áratug þegar
húsið var gert að safni, hann fæddist 1894 og dó 1968,
einmitt þegar smekkurinn óx til muna fyrir alþýð-
legri list eins og hans.
Skemmtileg óreiða
Arkitektinn Sten Hummel-Gumaelius teiknaði hús-
ið handa listamanninum í hefðbundnum byggingar-
stíl héraðsins og það er rautt eins og hefðin býður.
Það var tilbúið fyrir Bror Hjorth og fjölskyldu hans
1943. Þótt hann hefði átt erfitt uppdráttar vegna þess
hvað list hans þótti prímitív og jafnvel dónaleg þá var
hann orðinn þekktur listamaður í heimalandinu og
1948 varð hann prófessor i teikningu á sænsku Kon-
stakademíunni.
Safnið ber enn sterkan svip af heimili og vinnu-
stofu lifandi listamanns; þar er skemmtileg óreiða,
einkum í vinnustofunni, þannig að gestur sem dvelur
um stund og gægist inn á milli muna og bak við þá
getur lengi átt von á að finna hluti sem hann hefur
ekki tekið eftir áður. Þar eru listaverk á öllum stig-
Ef hún er rangeygð þá er hún rangeygð. Bror Hjorth:
Lítil stúlka (1923).
Verður þú
heppinn
áskrifandi ?
Fímmtudaginn 27.júní
mun EINN heppinn DV-áskrifandi vinna
4 Packard Bell - Easy one fartölvu.
Að auki munu tveir heppnir áskrifendur vinna
> pizzaveislu fgrir 8 manns á Pizza Hut.
BRÆÐURNIR
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
www.ormsson.is
3áskrift
J - borgar sig