Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2002, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2002, Blaðsíða 25
25 ...vandámál vikunnár Þú rekst á gamla vinkonu sem þú hefur ekki séð lengi. Þér sýnist hún vera ófrísk en kannski hún hafi bara fitnað, LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 Helgarbloö JOV Kjúklingasalat með gráðaosti §rœnt salat • eldaður kjúklingur • perur • vatnsmelóna gráðaostur • ristaðar furuhnetur • grœn 6lífuolía balsamikedik • salt • pipar hvað segirðu við hana? gleðitíðindunum „Ég held ég hafi lent í verstu mögulegu að- stöðu í sambandi við svona mál. Hitti gamla magaþykka vinkonu sem hafði lengi þráð að eignast barn, og áður en ég vissi af var munnur- inn á mér búinn að blaðra út hamingjuóskum yfir óléttunni. Hún varð hins vegar hreint ekki eins glöð og ég átti von á, frekar pirruð bara og sagðist hafa fitnað svolítið. Það sem verra var að þetta var manneskja sem var frekar viðkvæm fyrir útliti sínu. Ég bað hana innilega afsökunar, en síðar kom í ljós að hún var í raunveruleikan- um ófrísk! Hún bara vissi ekki af því sjálf á þessu augnabliki. Ég myndi hins vegar ekki ráðleggja neinum að giska á hvort um fitu eða fóstur er að ræða þegar vinkonurnar þykkna undir belti, heldur steinhalda kjafti þangað til manni eru færð gleðitíðindin á því augnabliki sem vinkonunni þykir best.“ Brynja Þorgeirsdóttir, fréttamaður á Stöð 2 Best að bíða eftir Læt flakka ef tilfinningin er sterk „Ég myndi byrja á að spyrja hvað væri að frétta af henni. Ég myndi eflaust reyna að lesa í orð hennar og yfirbragð á meðan hún segði mér frá sér. Ef ég fengi mjög sterka tilfinningu fyrir þessu, hún væri í föstu sambandi, með glampa í augunum og dálítið dularfull í frásögn, þá myndi ég láta flakka. Ef hún væri laus og liðug og ég fyndi ekki fyrir neinu öðruvísi við hana myndi ég láta kyrrt liggja og treysta því að ef hún væri ófrísk þá fengi ég fréttimar fyrr en síðar.“ Marsibil Sœmundsdóttir, framkvœmdastjóri Götusmiðjunnar og varaborgarfulltrúi í Rvík. Til hamingju og gaman að sjá þig „Ég á það oft til að tala áður en ég hugsa og því hef ég lent í því að óska kunningjakonu minni til hamingju án þess að hún hafi verið ófrísk - og það nokkrum sinnum. Ég held reyndar að maður sé „save“ ef maður segir bara: „Til hamingju og gaman að sjá þig“ og fer svo ekkert nánar út í það. Annaðhvort tekur viðkomandi þá hamingju- óskimar til sín eða skilur ekkert hvað maður er að fara og þá er hest að vera bara fljótur að kveðja áður en samtalið fer lengra.“ Elísabet Ólafsdóttir, blaóamaður Jarðarberjasalat með gouda ff/rœnt salat • gouda f bitum jarðarber * valhnetukjamar frœlaus jarðarberjasulta • grœn ólífuolía balsamikedik • salt • pipar Linsubaunasalat með feta Soðnar linsubaunir • léttsteikt rauð paprika léttsteiktur rauður laukur • fetaostur • græn ólífuolía eða olfan úr fetakrukkunni • balsamikedik pressaður hvftlaukur • tfmfan saxað og til skrauts ...eitthvað fvrir þig? Berrössuð í sólbaði Eitt best geymda leyndarmál höfuðborgarinnar er án efa svalirnar á Sundhöllinni við Barónsstíginn. Þar er nefnilega að finna kynjaskipta sólbaðsað- stöðu, einar svalir fyrir karlmennina og aðrar fyrir konurnar. Þama getur fólk legið allsnakið og afslappað í sólbaði þegar laugin er opin. Svalirnar eru teppalagðar og því afskaplega mjúkt að spóka sig um á þeim og nóg er til af sólbekkjum. Svalirnar eru vel girtar af og þvf ómögulegt að.nokkur geti kíkt þar inn, nema þá kannski úr flugvél, og því geta gestir óhikað fækkað sundfötunum þarna. Frábær staður til þess að sóla sig berbrjósta án þess að einhverjir karlpungar séu að glápa á mann. Það er því al- veg kjörið að taka með sér góöa bók á svalirnar á góðviðrisdegi. Kraftaverkaltrem Snyrtivöruverslunin Clara í Kringlunni hefur hafið sölu á La Mer snyrtivörulínunni. Þar er m.a að finna allsérstakt krem sem hefur hlotið ótrúlega mikið lof erlendis og verið kallað kraftaverkakrem. Kremið var búið til af eðlis- fræðingnum Max Huber sem starfaði hjá bandarisku geimferðastofnuninni Nasa. Árið 1953 varð hann fyrir hræðilegu slysi þegar efna- tilraun sprakk beint framan í hann. Húð hans fór mjög illa í slysinu og þar sem læknar gátu ekki gefið honum von rnn bata ákvað Huber að hjálpa sér sjálfur. Tólf árum og 6000 tilraunum seinna hafði honum tekist að búa til krem sem átti eftir að gera kraftaverk fyrir húð hans. Vegna þessa hefur kremið oft verið kallað kraftaverkakrem en í því er að finna sjávarþör- unga, vítamín, steinefni og olíur. Max Huber lést árið 1991 en kremið er enn framleitt eftir uppskrift hans. Framleiðsluferlið er afar hægt og eru t.d. krukkurnar handfylltar. „Bragðlaust er ostlaust salat“ Kmfturinn kemur með Gráðaostinum. I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.