Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2002, Page 8
8
Útlönd
LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002
DV
Sjálfsmorðsárás
er stríðsglæpur
„Þeir sem skipuleggja og standa
vísvitandi fyrir sjálfsmorðsárásum á
óbreytta borgara gerast um leið sekir
um glæpi gegn mannkyninu og ættu
með réttu að vera færðir fyrir dóm-
stóla,“ segir í 170 síðna skýrslu mann-
réttindasamtakanna Mannréttinda-
vaktin, sem birt var í New York í gær.
í skýrslunni segir að leiðtogar sam-
taka sem lýst hafi ábyrgð á sjálfs-
morðsárásum ættu skilyrðislaust að
sæta opinberri glæparannsókn. „Þeir
sem gerast sjálfsmorðsliðar eru engir
píslarvottar heldur aðeins stríðs-
glæpamenn," segir í skýrslunni.
Fjöldi plantna í
útrýmingarhættu
Samkvæmt niðurstöðum nýlegrar
rannsóknar bandarískra vísindamanna
gæti um helmingur plöntutegunda ver-
ið í bráðri útrýmingarhættu. Þetta er
mun alvarlegra ástand en áður hefur
komiö fram í skýrslum Alþjóða nátt-
úruvemdarráðsins, WCU, en þar hafði
því verið haldið fram að ein af hverjum
átta tegundum væri í hættu.
Bandarísku vísindamennimir, sem
byggja niðurstöður sínar á mun viða-
meiri rannsóknum en áður hafa verið
gerðar, telja að í fyrri rannsóknum
hafi ekki verið lögð nægilega mikil
áhersla á rannsóknir í hitabeltinu þar
sem meiri hluti tegundanna vex og
því hafi ástandið verið svo vanmetið.
íraksmálið:
Loksins grundvollur
fyrir samkomulagi
- segir Igor Ivanov, utanríkisráðherra Rússlands
Igor Ivanov, utanrikisráöherra
Rússlands, sagði í gær að samkomu-
lag væri í nánd milli þeirra fimm
ríkja, sem neitunarvald hafa innan
Öryggisráðs SÞ, um efni nýrrar álykt-
unar varðandi vopnaeftirlitið í Irak.
„Við höfum rætt málið fram og til
baka síðustu daga og mér sýnist loks-
ins vera kominn grundvöllur fyrir
samkomulagi," sagði Ivanov án þess
þó að skýra nánar frá innihaldi sam-
komulagsins.
Rússar höfðu auk Frakka og Kín-
veija neitað að styðja drög að nýrri
tillögu Bandaríkjamanna og Breta,
sem lögð voru fram í Öryggisráðinu
þann 23. október sl., en í þeim var
farið fram á skilyrðislausa afvopnun
Iraka og vopnaeftirlit, ellegar tækju
þeir afleiðingunum af beinum hemað-
araðgeröum sem voru óskilgreindar í
drögunum.
Að sögn Ivanovs stendur ágreining-
urinn enn þá um orðalagið varðandi
hemaðaraðgerðir, en Rússar hafa
eins og Frakkar verið mótfallnir því
Igor Ivanov.
að nokkram verði gefið beint leyfi til
aðgerða án þess að málið komi fyrst
fyrir Öryggisráðið.
„Við viljum fyrst láta reyna á það í
alvöru hvort vopnaeftirlitið gengur
eftir og að það verði síðan í höndum
ráðsins að taka ákvörðun um fram-
haldið, verði írakar ekki við kröfun-
um eða trufli störf eftirlitsmannanna
á einhvem hátt,“ sagði Ivanov, sem í
gær fagnaði 200 ára afmæli rússneska
utanríkisráðuneytisins.
„Okkur hefur samt þokað nokkuð
áfram í samkomulagsátt og ég á von á
því að þetta verði afgreitt með mála-
miðlun, sem allir geta sætt sig við, í
næstu viku,“ sagði Ivanov.
Þetta var staðfest af bandarískum
embættismönnum í gær og er vonast
eftir að þeir leggi fram lokadrög á
næsta fundi ráðsins sem væntanlega
verður um miðja vikuna eftir þing-
kosningamar í Bandaríkjunum á
þriðjudaginn.
Vinstri erfðagallar rannsakaðir
í nýlega birtum skjölum frá
Franco-tímanum á Spáni kemur
fram að geðlæknir úr liðssveit ein-
ræðisherrans, Antonio VaUejo Nag-
era, hefði gert mjög svo undarlegar
rannsóknir á félögum úr alþjóðlegu
herdeildunum, sem börðust með
lýðveldissinnum og handteknir
voru í spænsku borgarastyrjöldinni
á fjórða áratugnum.
Nagera hugðist sanna að vinstri-
sinnar væru brjálaðir og með rann-
sóknum sínum fletta hulunni af
erfðagöllum hjá marxistum sem
orsökuðu ofstæki þeirra.
Rannsóknimar fóru fram í San
Pedro -fangelsinu í nágrenni Burgos
á Norður-Spáni og voru gerðar á um
200 fóngum, aöallega breskum og
írskum. Einn fanganna, sem enn er
á lífi, sagði nýlega í viðtali að hann
hefði verið neyddur til þess að taka
þátt í meira en 200 niðurlægjandi
rannsókmnn.
Stuttar fréttir
Fórnarlömbunum fjölgar
■ Tala látinna í jarð-
skjálftanum í bæn-
um San Giuliano di
Puglia á Ítalíu í
fyrradag, þar sem
bamaskóli hrundi til
grunna með skelfi-
legum afleiðingum,
var í gær komin í 27,
þar af 26 böm á aldr-
inum 3 til 10 ára og einn kennari. Litl-
ar líkur vora taldar á að þau tvö börn,
sem enn var saknað í gær, fyndust á
lífi. Ails hafði 35 manns verið bjargað
á lífi úr rústunum í gær, en þá héldu
skjálftar áfram á svæöinu.
49 létust í fangelsisbruna
Að minnsta kosti 49 fangar létu líf-
ið og allt að 40 slösuðust þegar eldur
braust út í Sidi Moussa-fangelsinu í
hafnarbænum E1 Jadida í Marokkó í
gær. Átta hinna slösuðu eru illa
haldnir, en flestir þeirra, þar af tveir
fangaverðir, þjást af reykeitrun.
Burrell sýknaður
Paul Burrell, fyrr-
um einkaþjónn Díönu
prinsessu af Wales,
var í gær sýknaður af
öllum ákærum um
þjófiiað á 310 hlutum
úr eign konungsfjöl-
skyldunnar eftir að
Elisabet drottning hafði vottað að hún
hefði vitað af hlutunum í hans vörslu.
Evran upp og niður
Evran komst i gær í fýrsta skipti í
þrjá mánuði upp fyrir dollarann á
gjaldeyrismörkuðum i Lundúnum í
kjölfar aukinnar umræðu um slæma
efnahagsstöðu og aukið atvinnuleysi í
Bandaríkjunum. Þaö stóð þó ekki
lengi, því um miðjan dag var evran
komin niður í 0,99 miðað við dollar,
en fór hæst upp í 1,0003.
Göneum í máliðl
JAKOB FRÍMANN
Varaþingmadur og tónlistarmadur
Kosningaskrifstofan er að Laugavegi 26, 2. hæó (Grettisgötumegin).
Sími: 575 1560. www.jakobfrimann.is. xjakobfrimann(3>jakobfrimann.is
t.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
Lækkum verð á lífsnauðsynjum. Lækkum matvælaverð og vexti.
Lækkum álögur á lágtekjufólk. Útrýmum fátækt á íslandi.
Sköpum ný verðmæti. Opnum örvandi fjármagni leið inn f íslenskt athafnalff.
Gerum ísland að aðlaðandi kosti fyrir alþjóðlegan Kvikmynda-, tónlistar-
og vitundariðnað með virðisaukandi áhrifum á íslenskt samfélag.
Frelsum íslenskan viðskiptaheim undan óeðlilegum afskiptum stjórnmálamanna.
Stundum nútímalega viðskiptahætti þar sem allir eiga jafna möguleika.
Verndum óspjallaðar náttúruperlur. Nýtum náttúruauðlindir með skynsamlegum
og yfirveguðum hætti, þar sem umhverfisverndarsjónarmiða er gætt.
Könnum óttalaust kosti og galla aðildar að Evrópusambandinu.
Fáum botn í málið og göngum til atkvæða um niðurstöðuna.
Tryggjum raunverulegt málfrelsi á íslandi. Eflum frjálsa, gagnrýna
og óháða fjölmiðlun án handstýringar stjórnmálamanna.