Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2002, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2002, Blaðsíða 36
36 /7 e I q o rb l a ö X>"Vr LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 Stefnir í jarðar Jóhann Friðqeir Valdimarsson tenór er fastráðinn við Is- lensku óperuna. Hann nær endum saman með jarðarfar- arsönq en seqist vilja stefna hærra en það. Hann er einn ís- lensku „tenóranna þriqqja“. Það er ekki auðvelt að eiga hljóðlátt skraf við Jóhann Frið- geir Valdimarsson tenórsöngvara á kaffihúsi. Til þess er hann of stór og of hávær. Rödd sem er vön því að fylla hljómleikasali fer létt með að láta kaffibollana glamra á borðunum þegar eitt- hvað fyndið er sagt og það gerist óhjákvæmilega þegar Jóhann mætir. Jóhann Friðgeir kom heim frá námi á Ítalíu fyrir tveimur árum og má segja að hann hafi komið brunandi með ljósum og sírenum inn i íslenskt tónlistarlíf. Jóhann fer ekki með veggjum og hefur á skömmum tíma náð að verða mjög áberandi og vinsæll söngv- ari sem fæst við að syngja mjög margt. Síðasta lag íyrir fréttir í sumar var Jóhann Friðgeir fastráðinn við íslensku óperuna ásamt þremur öðrum söngvurum og hefur síðan séð um hádegis- tónleika íslensku óperunnar. Það er röö tónleika sem hafa vakið verðskuldaða athygli. Á fyrstu tónleikunum flutti Jóhann Frið- geir ásamt Öldu Ingibergsdóttur þekktustu atriðin úr óperunni La Traviata fyrir fullu húsi. Síðast- liðinn þriðjudag voru síðan tón- leikar undir yfirskriftinni Síð- asta lag fyrir fréttir sem voru nokkuð sérstakir. Útfærslan er hugmynd Jóhanns og byggist á því þekkta og gamalgróna fyrirbæri í Ríkis- útvarpinu að flytja jafnan islenskt sönglag siðast fyr- ir fréttir í hádegi. Það var Pétur Pétursson þulur sem var fenginn til þess að kynna dagskrána og þótt hinn hári öldungur hafi verið studdur inn á sviðið sá eng- in eUimerki á honum eftir aö hann var sestur við borð með hljóðnema. Sá sem þetta ritar minnist þess varla að hafa verið á klassískum tónleikum þar sem salurinn orgaði af hlátri mUli laga undir meinfyndn- um kynningum Péturs. Þar naut sín yfirgripsmikil þekking hans á fortíðinni, tónlistinni og sérstæður frásagnarmáti þar sem söguþráðurinn liggur í alger- lega ófyrirsjáanlegum hlykkjum. Jóhann Friðgeir staðfestir í samtali okkar yfir kaffibollunum að þetta hafi verið nokkurs konar „happening" því á æfingu hafi Pétur talað í helmingi styttri tíma. Næstu hádegistónleikar verða svo 12. nóvember og þá stígur Jóhann Friðgeir á svið með Sesselju Krist- jánsdóttur messósópran og þau flytja klassískt létt- meti, amerísk söngleikjalög og fleira skemmtUegt. „Svo enda ég þetta á þessari önn með ljóðatónleik- um í hádeginu 26. nóvember undir yfirskriftinni Ljón í hádeginu sem vísar tU tónskáldsins Carl Loewe,“ segir Jóhann. Morð og söngur - En hvað með hlutverk í óperum. Eru þau ekkert á döfinni? „Ég mun syngja hlutverk MacDuffs í Machbeth eft- ir Verdi sem verður sýnd eftir áramótin. Þetta er magnaður harmleikur og ég hlakka mikið til aö fá að syngja aðalaríu Macduffs þegar hann stendur yfir m m mmm:- Sili Jóhann Friðgeir Valdimarsson tenórsöngvari hefur náð langt í íslensku tónlistarlífi á skömmum tíma en vill fara enn lengra. DV-mynd GVA fjölskyldu sinni myrtri," segir Jóhann. - Machbeth er ekki í flokki vinsælustu ópera Verdis sem er sagt að skýrist af þeirri ítölsku þjóð- rembu að hún er byggð á enskri sögu. Svo er það líka forn hjátrú að innan veggja leikhússins megi ekki nefna nafn þessarar óperu því þá hrynur sviðsmynd- in eða aðalsöngvarinn fótbrotnar eða eitthvað þvíum- líkt. Vonandi kemst umrædd ópera klakklaust á svið- ið í Gamla bíói þrátt fyrir allt þetta. Jóhann segir að fastráðningarsamningurinn sé ákaflega gott framtak hjá íslensku óperunni. „Bjarni Daníelsson óperustjóri er mjög hvetjandi til þess að við notum þennan tima vel og hvetur til þess að við komum okkur á framfæri erlendis,“ segir Jóhann sem hefur oft farið og sungið á tónleikum á ítaliu þar sem hann lærði. „Ég beini sjónum mínum nú mikið að Þýskalandi og Englandi og hef þegar fengið nokkur tilboð frá Þýskalandi sem ég gat ekki tekið en þetta er allt í uppbyggingu og ég mun fara til Bretlands fyrir ára- mótin til þess að syngja fyrir óperustjóra og umboðs- menn.“ - Eins og aðrir lærðir söngvarar á íslandi sinnir Jóhann alls kyns tækifærissöng og syngur meðal ann- ars mikið við jarðarfarir og brúðkaup og þess háttar atburði. Það gera þeir sem reyná að lifa af þessu en Jóhann segist stefna hærra. „Ég var ekki að mennta mig til þess að syngja við jarðarfarir og skemmtanir á íslandi. Það eru samt oft mjög fallegar athafnir og forréttindi að fá að syngja við stundir eins og þessar." Hef nóg með sjálfan mig - Það hlýtur að vera mikil samkeppni miUi ís- lenskra atvinnusöngvara sem eru allir að berjast um sömu hlutverkin og sömu jarðarfarirnar. Hvernig virkar öfundin? „Ég heyri auðvitað öfundarraddir sem reyni að láta þær sem vind um eyrun þjóta. Ég hef nóg með sjálfan mig þó ég sé ekki að spá í það hvað aðrir segja. Það er alls staöar samkeppni en ég held samt að hún sé meiri hjá stelpunum sem eru í þessu en hjá okkur strákunum. Það eru t.d. ekki margir tenórsöngvarar sem eru virkir á íslandi í dag og við söngfuglarnir erum allir góðir vinir og við vísum hver á annan þeg- ar er beðiö um söng á timum sem við getum ekki sinnt. Hins vegar er hættulegt að segja já við öllum beiðn- um um söng. Maður verður að læra að segja nei og geta sagt nei þegar það á við. Annars endar maður með því að eyðileggja röddina með of miklu álagi.“ Gagnrýnendur og vanþekking - Eins og allir listamenn sem leggja verk sín í dóm áheyrenda fær Jóhann Friðgeir oft dóma fyrir söng sinn. Það er kunnara en frá þurfi að segja að sam- band listamanna við gagnrýnendur er ekki alltaf slétt og fellt og einmitt þess vegna eru listamenn alltaf spurðir í viðtölum hvaö þeim finnist um gagnrýni og gagnrýnendur. „Ég forðast að lesa gagnrýni um sjálfan mig,“ segir Jóhann. „Það eru til gagnrýnendur sem hafa vit á söng en ég vil ekki nefna nein nöfn. Yfirmenn dagblaöanna virðast ekki hafa fengið aðila með sérþekkingu á söng til þess að skrifa um söng. Gagnrýni er því oft skrif- uð af vanþekkingu og verður kjánaleg. Ég hef oft ver-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.