Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2002, Side 14
14
LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002
Fréttir
DV
Netinu tókst ekki
að drepa dagblöðin
Tilkoma Netsins fyrir nokkrum
árum olli miklum breytingum á
högum fólks. Skyndilega snerist allt
um að koma fréttum og fróðleik inn
á Intemetið og fyrir framan tölv-
urnar sat fólk löngum stundum,
vafraði um Netið, innanlands og
utan, og drakk í sig ýmsan fróðleik.
Hugmyndaríkir og framsýnir pen-
ingamenn víða um lönd sáu í net-
miölunum leið til aö auðgast enn
frekar. Sumir þeirra töldu ljóst að
prentfjölmiðlar heyrðu senn sög-
unni til, fréttir og upplýsingar
mundi fólk lesa á Netinu í framtíð-
inni. Sama gerðist í verslunargeir-
anum: Fólk átti að versla á Netinu
en reyndist fremur tregt til þess.
Miklu fé var varið til uppbyggingar
frétta- og þjónustuvefja af ýmsu
tagi. En árin liðu og nú virðist sem
spár stofnenda ýmissa netfyrirtækja
hafl ekki gengið eftir. Staða þessara
fyrirtækja er almennt afleit - um
það bil fimm árum eftir að hasarinn
byrjaði.
Steypan harðnar
Ásgeir Friðgeirsson, ritstjóri Vís-
is.is á velmektardögum þess vefs og
síðar hjá Striki.is, er ekki á því að
veffréttir og vefupplýsingar séu með
öllu að leggja upp laupana. „Steyp-
an er að harðna í mótunum, þetta
eru ekki mörg ár sem liðin eru frá
því þetta ævintýri hófst,“ segir Ás-
geir sem rak líklega fyrsta íslenska
fréttavefínn á Netinu, Daily News
from Iceland, sem hóf göngu sína í
apríl 1995 á vegum Iceland Review.
„Þetta er fyrst og fremst spumingin
um úthald. Ég tel að netfjölmiölar
nái sér aftur á strik þegar hraðari
vöxtur verður í efnahagslífmu.
Menn eiga eftir að skilja betur aug-
lýsingagildi netfjölmiðlanna," sagði
Ásgeir.
Spennandi samkeppni mbl.is
og visir.is
Frægastir netfjölmiðla og eitraðir
keppinautar um hríð voru Vísir.is
Nýtt fyrlrtæki opnað
Umhverfisráðherra opnareitt af nýju netíyrirtækjunum. Þessi miöill á aö
DV-MYND PJETUR SIGURÐSSON
útrýma gluggapóstinum óvinsæla.
og Mbl.is; sá fyrmefndi upphaflega í
eigu Frjálsrar fjölmiðlunar og hinn
Morgunblaðsins. Netfjölmiölar út-
varps- og sjónvarpsstöðva nutu ekki
mikilla vinsælda. Svo virtist sem
Vísir.is hefði meira sjálfstæði í
rekstri og þar mátti fmna fjörtök
stinn. Þar var starfandi sjálfstæð
ritstjórn sem aflaði frétta, auk þess
sem vefurinn birti fréttir úr DV,
Degi og Viðskiptablaðinu. í flestum
tilvikum var Vísir fyrstur með frétt-
imar og mælingar sýndu um tíma
fleiri heimsóknir og lengri á Vísi en
Mbl.is. Mikil stemning var ríkjandi
hjá þessum vaxtarbroddum nýrrar
fjölmiðlunar og kannski eyddu út-
gefendur blaðanna of miklu púðri i
ókeypis þjónustu og þá minna í
blaðið sjálft.
Strik.is hefur notið vinsælda og
gestagangur mikill á vefnum sem
hefur birt fréttir og eigiö efni sem
lausráðnir starfsmenn önnuðust.
Líklega var mesti gusturinn í Strik-
inu þegar Hrafn Jökulsson var að
störfum með Pressuna. Óragur
kleip hann í skottið á mönnum sem
aðrir fjölmiðlar kinokuðu sér við að
koma nálægt. Því miður hefur
nokkuð dregið af Strikinu í seinni
tíö, eins og öðrum netfjölmiðlum, og
Ingvar Helgason - notaðir bllar, bjóða í fyrsta sinn rekstrarleigu til einstaklinga.*
Nú getur þú leigt góðan notaðan bíl á hagstæðum kjörum. Engin útborgun,
ekkert mál. Neðangreint dæmi er alls ekki tæmandi fyrir þá blla sem við
bjóðum. Ef þig vantar stærri bíl eða jeppa þá eigum við hann tii.
Dasml
Opel Corsa Comfort
árgerð 200I
24 mánaða rekstrarleiga
17.900 kr.ámán.
-Umsxkjandl þarf að vera 30 in e&t eldri oj akrfður fa.teijoaeipndi
Umtatkjandl tem er 25 til 30 ára þarf elnn ibyrjðarmann tem er tkriður
fasteignaeigandi.
Ingvar Helgason
notaðir bílar
Sxvarhöfða 2 • Sfmi 525 8020 • www.lh.is/notadir
búið að skera niður störf lausa-
manna. Þar kemur til að samvinna
við Skjá einn brást vegna fjárskorts.
Læknar og lögfræðingar á
Netinu
Meðal þjónustumiðla sem komu
fram á Netinu voru islaug.is, sem er
lögmannavefur þar sem fyrirspum-
um um lögfræðileg atriði var svarað
og lögmenn og aðrir ræddu nýupp-
kveðna dóma. Doktor.is flytur frétt-
ir sem koma vel þeim sem huga að
heilsunni, en vefurinn var líflegri í
byrjun. Á torg.is var hægt aö verða
sér úti um ýmiss konar netgræjur.
Þetta var dótturfyrirtæki Símans og
var siðar selt fyrirtæki sem virðist
einnig í eigu Símans, en sala á net-
miðlum hefur verið talsvert lífleg
þann stutta tíma sem netáhugi fólks
stóð. Reykjavík.is átti að sinna
skemmtanalífi borgarinnar en gekk
ekki sem skyldi.
Það er ljóst að netfjölmiðlar hafa
sprottið upp án þess að hugað væri
nægilega að undirstöðunni: öflun
fjármagns. Sum netfyrirtæki hafa
kostaö miklu til. Mbl.is er til dæmis
með besta fáanlegan búnað til starf-
seminnar. Vísir.is kostaði líka
miklu til á sínum tíma en féleysi
háði vefnum undir lokin og fyrir-
tækiö Vísir ehf. varð að lokum
gjaldþrota. Femin.is keypti Vísi.is
en konumar sem að honum standa
hafa flutti inn vörur og selja á Net-
inu og hefur vegnað ágætlega að
sögn. Femin mun vera einn fárra
miöla á Netinu sem hafa hagnast
eitthvaö af starfseminni til þessa.
Þá mun Morgunblaöiö fariö aö sjá
peninga úr sínum netrekstri og upp-
sker eins og til var sáð. Sífellt meira
er selt af upplýsingum af vefnum
hjá mbl.is.
Niðurstaðan er að eftir mikinn
áhuga almennings á efni sem fram
var reitt á Netinu hafi margir oröið
leiðir á því að lesa af tölvuskjá.
Vissulega er fjölmiðill sem prentaö-
ur er eftir aldagamalli hefö og út-
rýmir skógunum mun fýsilegri kost-
ur. Fólk kýs aö kaupa sér það dag-
blað eða tímarit sem það gimist
mest. Eftir allt bramboltið á Netinu,
sem hófst fyrir 5 árum, virðist hafa
dregið úr netsókninni en heíðbund-
inn dagblaðalestur enn sá hinn sami
eða meiri en áður var. Netið og upp-
lýsingar þess munu hins vegar nýt-
ast til hliðar við fréttamiðlana. -JBP
Innlendar fréttir vikunm
Átök í Norðvesturkjördæmi
Hörð átök urðu
á kjördæmisþingi
Samfylkingarinn-
ar í Norðvestur-
kjördæmi sem
haldið var á
Hólmavík um síð-
ustu helgi. Gísli S.
Einarsson þing-
maður sagöist vera
maður lýðræðisins
og vilja við val á
framboöslista að farin væri leið próf-
kjörs eða flokksvals. Með naumum
meirihluta var leið uppstillingar valin,
eftir að nokkrir fúlltrúar Vestlendinga
höfðu gengið af fundi eftir að tillögu
þeirra um fundarhlé hafði verið stung-
ið undir stól. Gísli sagði eftir það að
þama hefði gamla klíkan í Alþýðu-
bandalaginu verið að verki og að verja
sína pósta.
Samfylkingin stefnir að ESB
Össur Skarphéð-
insson, formaður
Samfylkingarinn-
ar, sagði það
stefnu flokksins að
sækja um aðild að
Evrópusamband-
inu. í póstkosn-
ingu ljáði yfirgnæf-
andi meirihluti
þátttakenda því at-
kvæði sitt að aðild-
arviðræður yrðu hafnar, en þátttaka í
kosningunum var mjög dræm. For-
menn og varaformenn þingflokka ann-
arra stjómmálaflokka drógu í efa að
Össur gæti túlkað niðurstöðu póstkosn-
inganna með þessum hætti. Össur vill
þó ekki knýja fram aðildarumsókn
nema fyrir liggi klár og drjúgur stuðn-
ingur meirihluta þjóðarinnar.
Ólöglegur aðalfundur
Aðalfundur Félags ungra framsókn-
armanna var dæmdur ólöglegur og því
fóm fulltrúar kjömir 2001 með atkvæð-
isrétt fyrir félagið á kjördæmisþingum
framsóknarmanna í Reykjavíkurkjör-
dæmunum. Jónína Bjartmarz, þing-
maður flokksins í Reykjavik, sagði um-
ræðuna leiðinlega og hættu á að hún
skaðaði flokkinn. Þetta væri eins og
hnífstunga í bakið. Valin var leið upp-
stillingar í báðum kjördæmunum og
báðir formennimir endurkjömir, Guð-
jón Ólafúr Jónsson og Þorlákur Bjöms-
son.
Össur
Skarphéöinsson.
Ekki ráðandi markaðshlutdeild
Samkeppn-
isráð sýknaði
Sementsverk-
smiðjuna af
kæra Aalborg
Portland ís-
landi mn mis-
notkun á að-
stöðu sinni í skjóli markaðsráðandi
stöðu. Úrskurðurinn var þvert á fýrri
niðurstöðu Samkeppnisstofiiunar frá 3.
júní sl. Sementsverksmiðjan, sem er
talin vera með um 80% markaðshlut-
deild, var ekki talin vera markaðsráð-
andi fyrirtæki. Samkeppnisstofhun
mun ekki aðhafast frekar í málinu.
Meirihluti Atlanta seldur
Magnús Þorsteinsson, viðskiptafé-
lagi Björgólfsfeðga, hefur keypt meiri-
hlutann 1 flugfélaginu Atlanta fyrir 2,5
milljaröa króna. Flugfélagið er með 22
breiöþotur í rekstri um víða veröld.
Magnús segist vona að frumkvöðlar
Atlanta, hjónin Amgrimur Jóhannsson
og Þóra Guðmundsdóttir, verði áfram
við stjóm þess. Hann hafi ekki í hyggju
að taka við starfi í fyrirtækinu.
Dró sér 80 milljónir
Fasteignasali í fasteignasölunni Holti
í Kópavogi viðurkenndi að hafa dregið
sér 80 milljónir króna á tveimur árum
frá um 15 viðskiptavinum fyrirtækisins.
Samningi sagt upp
íslensk stjómvöld hafa sagt upp
samningi milli Islands, Grænlands og
Jan Mayen um loðnustofninn í hafmu.
Uppsögnin kemur til framkvæmda 1.
maí 2003. Norðmenn era ekki tilbúnir
að ganga frá samningi á sama grund-
velli og á undanfómum árum. Sjávar-
útvegsráðherra segist ekki geta beðið
eftir nýjum kröfúm frá Norðmönnum í
síldinni á hverju ári. -GG