Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2002, Page 29
LAUGARDACUR 2. NÓVEMBER 2002
Helgorhlaö DV
20
Vor ástsæli leiðtogi Davíð Odds-
son á tvo alnafna en aðeins annar
þeirra býr á íslandi.
Grettir og Gróa
Um þessar mundir heita allmarg-
ir karlmenn á íslandi Grettir en að-
eins einn ungur drengur á Hólmavík
ber nafn Grettis Ásmundarsonar
sem var sterkasti maður á íslandi og
barðist viö forynjur.
Annað dæmi um slíkt nafn sem
datt úr tísku vegna frægrar sögu er
kvenmannsnafnið Gróa sem lengi
naut talsverðra vinsælda en eftir að
skáldsaga Jón Thoroddsen, Maður
og kona, kom út í lok nítjándu aldar
datt nafnið mikið til úr móð enda
afar ógeðfelld persóna, Gróa á Leiti,
sem þar kemur fyrir og hefur orðið
að táknmynd í vitund þjóðarinnar.
Tinna Gunnlaugsdóttir leikkona
mun deila því hlutskipti með Merði
Ámasyni að ryðja brautina í nafngift-
um en hún mim hafa orðið fyrsta
Tinnan sem ber þetta nafn en í dag
nýtur þetta nafh slíkra vinsælda að
ekki verður tölu komið á Tinnumar.
Óinar og Davíð
Það getur áreiðanlega verið þreyt-
andi að vera alnafni einhvers sem er
óskaplega frægur og þurfa að rétt-
læta það eða útskýra í hvert einasta
sinn sem maður kynnir sig. Það eru
fáir í þjóðskránni sem heita Ómar
Ragnarsson svo dæmi sé tekið og að-
eins fjórir þeirra búa á íslandi.
Davíð Oddsson á tvo alnafna í þjóð-
skrá og annar þeirra er bamungur í
útlöndum en hinn er miðaldra pípu-
lagningarmaður sem oft hefur verið
spurður hvemig tilfmning að sé að
bera þetta nafn.
í höfuðið á forsetanum
Það eru 26 karlmenn í þjóðskrá
sem heita Ólafur Ragnar að fornafni
Hilmir Snær Guðnason er einn
vinsælasti leikari þjóðarinnar á
vorum dögum og margstimplað
kyntákn. Ifann sat lengi einn að
nafni sínu en nú eru nokkrir litlir
snáðar að va.xa upp sem bera nafn
hans.
en enginn þeirra er alnafni forseta
vors. Enginn þeirra er skírður eftir
að Ólafur Ragnar tók við embætti
1996.
Fyrirrennari Ólafs, Vigdís Finn-
bogadóttir á tvær alnöfnur og önnur
þeirra er skírð þremur árum eftir að
Vigdís varð forseti.
Svo haldið sé áfram með þekkta
stjórnmálamenn á Steingrímur Her-
mannsson einn alnafna sem gæti
verið barnabarn hans. Það eru tveir
í þjóðskrá sem heita Ólafur Thors og
þeir búa báðir við sömu götuna.
Þrír heita Héðinn Valdimarsson,
eins og þekktur verkalýðsleiðtogi
um miðja 20 öld, en tveir heita Ein-
ar Olgeirsson sem var einn helsti
boðberi kommúnista á sömu öld.
Hilinir og Baltasar
Hilmir Snær Guðnason er einn
vinsælasti leikari þjóðarinnar á
seinni árum. Ails eru fimm sem
bera þessi tvö nöfn í þjóðskránni og
það vekur athygli að fjórir þeirra
eru skírðir eftir að Hilmir Snær
verður vinsæll leikari. Annar vin-
sæll leikari og ekki minna kyntákn
en Hilmir er Baltasar Kormákur
leikari og leikstjóri. Hann á sjö
nafna í þjóðskránni en þegar horft
er á listann fer ekki h'já því að mann
gruni að flestir þeirra séu afkomend-
ur hans eða frændur og nákomnir
ættingjar.
Skírt eftir bóldnni
Enginn heitir Halldór Laxness
siöan hinn eini sanni dó en sögu-
hetjur hans hafa orðið til þess að
skrá nýjan kafla í nafngiftir. Þeir
skipta tugum í þjóðskránni sem bera
nafn Bjarts i Sumarhúsum í ýmsum
samsetningum. Dóttir Sumarhúsa-
bóndans, Ásta Sólliija á níu alnöfn-
ur, allar skírðar eftir að bókin kom
út. Þær eru einnig afar margar sem
heita Salka þótt engin heiti Salka
Valka eftir söguhetjunni en enginn
vafi er á að hún er fyrirmyndin.
Einn íslendingur heitir Ólafur Kára-
son eins og hið lánlausa skáld í
Heimsljósi. Snæfríðar eru taldar í
tugum með Snæfríði íslandssól með
fyrirmynd en aðeins einn heitir Jón
Hreggviðsson eftir þeim umdeilda
skúrki. Sá hefur yfirgefið landið
eins og nafni hans og býr i Svíþjóð.
Fimm íslendingar heita í höfuðið á
alheimssöngvaranum Garðari Hólm
sem er ein höfuðpersóna Brekku-
kotsannáls en aðeins þrir heita Álf-
grímur eftir drengnum í sömu bók.
Þórbergur Þórðarson á engan al-
nafna en sextán talsins heita Davíð
Stefánsson eins og þjóðskáldið ást-
sæla og Tómas Guðmundsson er
Ólafur Ragnar Grímsson forseti
vor deilir skírnarnafni sínu með
nokkrum tugum Islendinga. Það
hefur hins vegar enginn piltur
verið skírður Ólafur Ragnar síð-
an 1996.
afar algengt nafn enda sennilega
ekki allt innblásið af Reykjavíkur-
skáldinu.
Aðeins fjórir heita Stefán Hilm-
arsson en það vekur athygli að sex
bera nafnið Hreimur og fjórir þeirra
eru tveggja ára og yngri. Af þessu
mætti draga þá ályktun að vinsæld-
ir Hreims söngvara í Landi og son-
um hefði kveikt hugmyndir ungra
foreldra.
Hvað á bamið að heita og af
hverju?
Stundum geta gerst atburðir sem
koma óorði á nöfn sem annars eru
meinleysi uppmálað. Allir muna eft-
ir Geirfinnsmálinu sem enn vakir í
vitund landsmanna. Það eru nokkrir
í þjóðskránni sem bera þetta nafn en
aðeins einn þeirra er skírður eftir
1974 þegar sá frægasti þeirra hvarf
sporlaust.
Það er aðeins tveir menn í þjóð-
skrá sem heita Steingrímur Njálsson
og annar þeirra býr í útlöndum.
Svo eru til nöfn sem eru þess eðl-
is að maður veltir því fyrir sér hvað
foreldrum barnsins hafi verið mikil
alvara umfram það að tryggja að
barn þeirra sæti eitt að nafni sínu.
Það er t.d. einn ungur drengur í
þjóðskrá sem heitir Bjartur Dagur.
Þar eru nokkrar ungar stúlkur sem
heita Nótt sem varla getur farið vel
í ávörpum eins og góða Nótt. Tveir
fullorðnir menn í skránni heita Ljót-
ur og hafa án efa fengið sinn
skammt af stríðni. Hrafnsnafnið hef-
ur verið mjög vinsælt og Hrafnar
eru margir í þjóðskrá en nú hefur
bæst við einn sem heitir Krummi.
Ætli hann verði kallaður Hrafn?
-PÁÁ
Hreimur heitir ungur niaður sem
syngur með vinsælum hljóinsveit-
unt. Hann var eins og Ililmir Snær
lengi einn um þetta sérstæða nafn
en svo er ekki lengur.
Þótt okkur finnist Ómar Ragn-
arsson vera cinstakur í sinni röð
þá á hann nokkra alnafna. Það er
áreiðanlega erfiðara fyrir þá
heldur en hann.
ÚTBOÐ
F.h. Bláfjallanefndar er óskað eftir tilboðum í snjómokstur
í Bláfjöllum.
Um er að ræða:
1. Plan við Framskála.
2. Stórt plan við Bláfjallaskála og annað minna þar
rétt fyrir ofan.
3. Plan við Breiðabliksskála, gönguplan og
Ármannsplan við Suðurgil.Þegar þessi plön eru
fullhreinsuð eru þau vel á þriðja hektara.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar.
Opnun tilboða: 12. nóvember 2002, kl. 11.00, á sama
stað.
BLÁ81/2
Ífl INNKAUPASTOFNUN
jl REYKJA VÍKURBORGAR
M/ Frikirkjuvegi 3 - 101 Reykjavik-Sími 570 5800
Fax 582 2616 - Netfang: Isri&rhus.rvk.is
Staður:
Utankjörfundaatkvæðagreiðsla vegna
prófkjörs Sjálfstæðisflokksins f
Norðvesturkjördæmi þann 9. nóvember
2002 fer fram hjá eftirtöldum aðilum:
Umsjón:
Reykjavík Valhöll (virka daga kl. 9—17) 515-1700
Akranes Sigurður Sigurðsson 696-9492
Benedikt Jónmundsson 897-3043
Borgarfjörður Snorri Sigurðsson 896-1995
Borgarnes Ingi Tryggvason 860-2181
Ingibjörg Hargrave 862-1399
Hjörtur Arnason 892-1884
Snæfellsbær Helgi Kristjánsson 863-1153
Grundarfj örður Sóley Soffaníasdóttir 892-4695
Ásgeir Valdimarsson 892-9360
Stykkishólmur Gunnlaugur Árnason 894-4664
Dalasýsla Jóhann Sæmundsson 434-1272
Kristján Sæmundsson 434-1540
T álknafj örður Jörgína Jónsdóttir 456-2538
Reykhólar Guðjón D. Gunnarsson 866-9386
Patreksfj örður Ari Hafliðason 456-1500
Súðavík Björn Jóhannesson 456-4577
Sigríður Hrönn Elíasdóttir 456-4964
Isafjörður Björn Jóhannesson 456-4577
Bolungarvík Björn Jóhannesson 456-4577
Strandasýsla Engilbert Ingvarsson 893-3213
V-liúnavatnssýsla Karl Sigurgeirsson 895-0039
Blönduós Sigurður Kr. Jónsson 452-4173
Agúst I>ór Bragason 899-0895
Skagaströnd Lárus Ægir Guðmundsson 892-5499
Adolf Hjörvar Berndsen 892-5089
Skagafjarðarsýsla Brynjar Pálsson (Bókabúð Brynjars) 453-5950
CARNEGIE
A RT
AWA R D
2 0 0 2
LISTASAFN REYKJAVÍKUR
HAFNARHÚS, TRYGGVAGÖTU 17, REYKJAVÍK
19. OKTÓBER - IO. NÓVEMBER 2002
OPNUNARTÍMi:
DAGLEGA II-18, FIMMTUDAGA II-I9
I.EIÐSÖGN:
FIMMTUDAGA, I.AUGARDAGA
OG SUNNUDAGA KI.. 16
AÐGANGUR ÓKEYPIS
www.carnegieartaward.com
HU
MSTASAFK BFYKT.WfKl’R
_ Handveriísmarkaður
miðbce Haftiarfjarðar í dag laugafdag kl. 11-16 LÍttU'W'!