Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2002, Side 45
LAUCARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002
Helcjarblacf
49 .
Þinghúsið
séð frá Kastalahæð
Útsýni af Kastalahæð er
stórkostlegt því þaðan er
liægt að sjá vfir alla borg-
ina í góðu skyggni.
Keðjubrúin yfir Dóná
Bygging brúarinnar liófst 1839 og
tók tíu ár. Almenningssamgöngur
eru góðar í Búdapest og far með
strætivagni eða neðanjarðarlest
ódýrt.
Skynsemin ræður
Trabant er erin í
fullu fjöri í Ung-
verjalandi. Bílafloti
landsmanna er í
hraðri endurnýjun
og rússneskir bílar á
undanhaldi.
Kyndilberinn
Þessi stytta er á Sigurhæð en rétt
utan við borgina er að finna garð
þar sem búið er að koma fyrir
gömlum minnismerkjum frá
valdatíð kommúnista.
Hjálplegi fombókasalinn
Könuvek Vétele Gladása fornbóka-
sali við Lónyay-götu. Ilann var
áhugasamur um ísland og fullur af
alls konar gagnlegum fróðleik uni
Búdapest.
það sem ekki var sprengt í stríðinu.
Þegar komið er í miðborgina er ekki að sjá að hún
hafi orðið fyrir miklum loftárásum því flest hús eru
meira en hundrað ára gömul og gríðarlega tilkomu-
mikil. Adrássy-breiðstrætið er tveir og hálfur kíló-
metri á lengd og liggur frá miðbænum að hetjutorg-
inu. Gatan og neðanjarðarlestin sem liggur undir
henni voru byggð 1896 til að minnast þess að þúsund
ár voru liðin frá því að Stefán I stofhaði ungverska
ríkið. Neðanjarðarlestin eða fóllalatti eins og hún
heitir á ungversku er sú næstelsta í Evrópu og alveg
þess virði að skoða fyrir þá sem hafa áhuga á sögu al-
menningssamgangna. Persónulega haíði ég meiri
áhuga á að horfa á failegar ungverskar konur, grann-
ar, spengilegar með langt nef og þann ótrúlega fjölda
Trabanta sem enn var í notkun í borginni þegar ég
var þar fyrir skömmu.
Ungverjar eru hlýlegir í framkomu og vinalegir og
ekki er annað að sjá en að þeim líði vel þrátt fyrir að
sjálfsmorðstíðni í norðurhéruðum landsins sé sú
hæsta í heiminum, þeir segja að það sé í genunum.
Fólk reykir mikið og flestir sem maður mætir á götu
eru með sígarettu og ekki er óalgengt að sjá strætis-
vagnabílstjóra teygja hausinn út um gluggann til að
fá sér smók. Pesónulega finnst mér það vinalegra en
sú haftastefna sem ríkir í reykingarmálum hér á
landi.
Bæjarrölt
Markthalle eru eins konar Kolaport þeirra Búda-
pestbúa nema hvað það er stærra og á sér lengri sögu,
byggt rétt fyrir þar síðustu aldamót, og ég er ekki frá
því að byggingin sé glæsilegri en gamli tollurinn við
Reykjavíkurhöfn. í Markthalle er hægt að kaup flest
sem hugurinn gimist og snýr að ungverskri matar-
gerð. Paprikur af öllum stærðum og gerðum, svína-,
fulgla-, nauta- og dádýrakjöt og margskonar viilibráð,
allskonar pylsur, gæsalifur með truffelsveppum,
ávexti og grænmeti. Það er nóg af mat í Ungverja-
landi, enda hefur landið verið kallað matarkista Evr-
ópu og fyrrum Sovétleiðtogum blöskraði oft hvað
Ungverjar höfðu það gott í mat og drykk. Á efri hæð-
inni í Markthalle er hægt að kaupa ýmis konar ung-
versk handverk, fatnað og minjagripi. Þar er einnig
prýðilegur matsölustaður þar sem engu er til sparað
þegar skammtað er á diskinn.
Sem áhugamaður um þjóðfræði fór ég á þjóðminja-
salhið sem stendu Pestar meginn við Dóná. Ferðin
þangað var í sjálfu sér ævintýri því þegar ég var
stöðvaður af miðaverði áður en ég fór inn í lestina
kom í ljós að ég var með vitlausan miða. Verðinum
þótti strax ljóst að ég ætlaði að svindla mér í neðan-
jarðarlestinan og spara mér fargjaldið. Ég reyndi að
útskýra fyrir honum að um misskilning væri að ræða
og spurði hvort ég mætti ekki fara og kaupa réttan
miða en hann hélt ekki. Hann fór fram á að ég greiddi
honum fáránlega háa sekt ef ég vildi ekki lenda í
vandræðum. Þegar ég spurði hvort ég fengi miða eða
kvittun ef ég greiddi honum sektina hristi hann höf-
uðið og sagði nei. I framhaldi af því neitaði ég að
borga og krafðist þess að hann kallaði á lögregluna.
Vörðurinn neitaði í fyrstu og benti í sífellu á gulan
borða sem hann bar á handleggnum og heimtaði að ég
borgaði en að lokum tók hann upp farsíma og hringdi
eitthvað. Eftir nokkurra mínútna bið fór miðavörður-
inn að ókyrrast og að lokum rak hann mig út af stöð-
inni án þess að minnast frekar á sektina. Persónulega
fannst mér maðurinn óþarflega óliðlegur því lítið mál
var að leyfa mér að kaupa annan miða og eftir á að
hyggja get ég ekki annað en ályktað sem svo að hann
hafi ætlað að hafa af mér fé til eigin nota sem granda-
litlum túrista.
Á annarri hæð þjóðminjasafnsins er fastasýning
um sögu alþýðunnar og því ættu þeir sem eingöngu
hafa áhuga á sögu aðalsins að fara annað. Sýningin er
vel uppsett og með góðum skýringartextum á ensku.
Þar er meðal annars hægt að skoða þjóðbúninga fyr-
ir bæði kynin, nytjahluti, verkfæri og amboð og lesa
um lifnaðarhætti fólks í landinu allt ffam á lok síð-
ustu aldar. Vörðurirm á safninu var vinaleg gömul
kona sem sat og prjónaði. Hún hefur líklega verið far-
in að missa heymina því útvarpið við hliðina á henni
var allt of hátt stillt á stöð sem lék amerískt popp.
Þegar ég kom út af safninu rölti ég stefnulaust um
borgina og skoðaði það sem fyrir augu bar; þinghús-
ið, Stefánskirkjuna, og Nyugati-lestarstöðina. Stefáns-
kirkjan var því miður lokuð þvi að fyrir nokkrum
vikum fannst í henni virk sprengja ffá því í seinni
heimsstyijöldinni.
Eftir um það bil tveggja tíma gang kom ég að lítilli
fombókaverslun við Lónyay-götu þar sem ég leit inn
og tók eigandann tali. Fombókasalinn sagði mér eitt
og annað um kosti og galla borgarinnar og sýndi mér
gamlar ungverskar bækur um plöntur og þjóðffæði.
Hann seldi mér enska útgáfu af bók eftir Dezsö
Kosztolányi sem heitir Pacsirta á fmmmálinu en
Skylark á ensku. Kosztolányi þykir víst einn af merk-
ustu rithöfúndum Ungveija og skyldulesning þar í
landi. Bókin fjallar um viku í lífi roskinna hjóna sem
sendu dóttur sína, sem er bæði ljót og leiðinleg, í ffí
út á land. Líf þeirra tekur miklum breytingum í vik-
unni þegar þau átta sig á því að dóttirin er þeim ekk-
ert annað en byrði og þegar líður að heimkomu henn-
ar er faðirinn farinn að óska dóttur sinni alls hins
versta.
Áður en ég yfirgaf fombókabúðina bað ég eigand-
ann að benda mér á verslun þar sem ég gæti skoðað
gott úrval af ungverskri tónlist. Hann sagði mér að
búðin sem hann verslaði í væri rétt hjá Nyugati-lest-
arstöðinni og hún stóð fullkomlega undir væntingum.
Þar hlustaði ég á tóndæmi með þjóðlagasveitmni
Teka og hljómsveitinni Makám sem leikur eins kon-
ar þjóðlagabræðingu frá ýmsum löndum, rokkssveit-
inni Black-Out sem þrátt fyrir naftiið er ungversk og
keypti disk með tónlist eftir nítján ára gamlan tónlist-
armanni sem kallar sig Yonderboi og spilar vísinda-
skáldsögu jass. Síðan settist ég inn á bar og fékk mér
bjór og staup af plómubrandí.
Glæsilegar byggingar og torg
Þeir sem hafa áhuga á byggingarlist hafa úr nógu
að moða því í borginn eru óteljandi falleg hús. Hægt
er að fá sér göngutúr upp á Kastalahæð, skoða fiski-
mannavirkið og njóta útsýnisins yfir borgina, fara
inn í Matthíasarkirkju eða virða fyrir sér arkitektúr-
inn í gömlu konungshöllinni. í borginni er ernnig að
finna íslamska grafhýsið Gul Baba sem stendur í fal-
legum garði í tyrkneskum stíl og heitir í höfuðið í ís-
lömskum píslarvætti. Múslímar telja grafhýsið nyrsta
helgireit Islams í Evrópu og það er mikið sótt af píla-
grímum. Bænhús gyðinga í Búdapest er stærsta sína- ,
góga í Evrópu og tekur þrjú þúsund manns í sæti. Um
miðja síðustu öld var sínagógan gerð upp á kostnað
ungverska gyðingsins og Hollywood-leikarans Tonys
Curtis.
Rétt eftir miðja nítjándu öld var efiit til samkeppni
um teikningu að nýju þinghúsi i borginni og hlaut
arkitektinn Imre Steindl fyrstu verðlaun. Sagan segir
að Steindl hafi ferðast um Evrópu til að skoða bygg-
ingar og að hann hafi sameinað margar steftiur í þing-
húsinu sem stendur á bökkum Dónár. Bygging þing-
húsins hófst 1885 og lauk 1906. Á húsinu eru áttatíu
og átta styttur, þijú hundruð sextíu og fimm tumar
og spírur, ein fyrir hvem dag ársins, og hæsti turn-
inn er níutíu og sex metrar. Teikningamar sem lentu
í öðru og þriðja sæti í samkeppninni þóttu svo góðar
að ákveðið var að reisa þau hús líka. Húsið sem lenti
í öðm sæti hýsir þjóðminjasafnið en í hinu þriðja em '*•
skrifstofur ráðuneyta.
Hetjutorgið, Hösök tere, liggur við endann á
Andrássy en á því miðju er rúmlega þrjátíu
metra há súla og efst á henni trónir Gabríel
erkiengill. Sagan segir að engillinn hafi fært
Stefáni I, stofnanda Ungverjalands, kórónuna
beint frá guði almáttugum en í raun er saga
landsins blóðidrifin og einkennist af langri
sjálfstæðisbaráttu. Á torginu er fjöldinn allur af
styttum af hinum og þessu hetjum sem unnið
hafa þjóðinni heilt í gegnum tíðina en umhverf-
is það eru söfn, skemmtigarðar og skautasvell.
Fyrir fáeinum mánuðum var opnað safn við *“
Andrássy sem er tileinkað sögu Gestapó og
KGB. Safnið er í húsi sem Gestapó hafði til um-
ráða á meðan þeir störfuðu í Búdapest, KGB
flutti síðar í húsið enda búið öllum þeim tækj-
um og tólum sem starfsemi þeirra þarnaðist. Á
hverjum morgni myndast löng röð við safnið
áður en það er opnað, fólk leggur blómsveiga og
kveikir á kertum enda er vitað um rúmlega þrjú
þúsund Ungverja sem aldrei sneru aftur eftir að
þeir voru fluttir i hryllingshúsið til yfirheyrslu.
í Búdapest er einnig að finna frægan styttu-
garð sem geymir gömul minnismerki frá þeim
tíma er kommúnismi réð ríkjum í landinu.
Heit böð
Víða í borginni er að finna heitar uppsprett-
ur sem nýttar eru fyrir baðhús enda þekkjast '
þar heit böð allt frá tímum Rómverja. Frægast
þessara baðhúsa er Gellért-hegy sem kennt er
við heilagan Gellért biskup sem heiðingjar settu
í tunnu og létu rúlla niður samnefnda fjallshlíð
þar til hann endaði úti í Dóná.
Ég fór í sund í Széchemyi-baðhúsinu sem er
rétt hjá hetjutorginu. Baðhúsið er geysilega fal-
legt og þægilegt. Við baðhúsið er stór útilaug og
heitur pottur þar sem menn sitja að tafli og þar
sá ég í fyrsta skiptið fólk lesa dagblöð og bækur
í sundi. Ég reyndi að fá mér sundsprett en var
stoppaður þegar ég var kominn hálfa leið yfir
laugina. í fyrstu áttaði ég mig ekki á hvað var
að en svo skildist mér að það væri bannað að
synda án sundhettu, sinn er siður í landi
hverju.
Fullt hús matar
Ungveijar líta á hádegismatinn sem helstu máltíð
dagsins en matargerðarlist þjóðarinnar hefúr þróast
um aldir og byggist á blöndu af hefðum Ungveija,
Tyrkja og Balkanþjóða. Svínaspik, laukur og paprika
eru mikið notuð til að bragðbæta mat. Þjóðarréttur-
inn er gúllassúpa sem er löguð úr nautakjöti, lauk,
papriku, kartöflum og kryddi. Innyflasúpa þykkir
einnig herramannsmatur en í henni eru kartöflur,
innmatur, hveiti, spik, laukur og paprika. Ungversk
hvít- og rauðvín eru með þeim bestu í Evrópu og
einnig þykja ungverskir aprikósu- og kirsuberja-
snapsar, jurtaiikjörar og plómubrandí mjög góðir
drykkir.
í Búdapest er fjöldi góðra matsölustaða og á sum-
um þeirra er boðið upp á tvenns konar matseðil, ann-
ar er fyrir karlmenn en hinn fyrir konur. Matseðlarn-
ir eru eins að því undanskildu að á kvennaseðlinum
eru ekkert verð þar sem konur eiga að velja sér rétti
óháð verði. Annars ættu ferðamenn ekki að spá mikið
í verð á mat og vínum á veitingahúsum i Búdapest þar
sem það er mjög lágt á íslenskan mælikvarða. -Kip