Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2002, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2002, Síða 8
8 _____________LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2002 Útlönd __________DV Stríö við íraka myndi ekki standa lengi - segir Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna Donald Rumsfeld í stríðsham Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir að stríð gegn írökum gæti staðið í fimm daga, fimm vikur eða í mesta lagi fimm mánuði. Nákvæmari geti hann ekki verið. Það yrði ekki þriöja heimsstyrjöldin. Aftöku Kansis mótmælt. 2000 manna liðs- auki til Quetta Stjórnvöld í Pakistan hafa sent 2000 manna liðsauka lögreglu og hers til borgarinnar Quetta, heimaborgar Aimals Khan Kansi. Kansi var tekinn af lífi í Virginíu í Bandaríkjunum á fimmtudaginn fyrir að myrða tvo starfsmenn bandarísku leyniþjónust- unnar, CIA, en það gerði hann að eigin sögn í bræði vegna andmús- límskrar steftiu Bandaríkjamanna í Mið-Austurlöndum. Þetta var gert af ótta við aukinn óróa í borginni, en mikil reiði greip um sig meðal ibúanna eftir aftökuna í kjölfar mikilla mótmæla síðustu daga. Færðust þau í aukana eftir að beiðni fjölskyldu Kansis um að þyrma lifi hans hafði verið hafhað á síðustu stundu. Engar fréttir höfðu borist af átök- um í gær, en bandaríska utanríkis- ráðuneytið varaði pakistönsk stjóm- völd við því að hótanir hefðu borist um hefndir gegn bandarískum hags- munum og var bandaríska sendiráð- inu í borginni þvi lokað snemma í gær. Donald Rumsfeld, vamarmálaráð- herra Bandaríkjanna, sagði á blaða- mannafundi í gær að ef Bandaríkja- menn leiddu stríð gegn írökum stæði það örugglega ekki lengi. „Það yrði ekki þriðja heimsstyrj- öldin og það byggi ég á því að bandaríski herinn er nú mun tæknivæddari og öflugri en hann hefur nokkru sinni verið. Styrkurinn hefur eflst mjög síð- ustu árin og munurinn er mikill ef við miðum við Persaflóastriðið fyrir tíu árum, en síðan þá hefur máttur iraska hersins minnkað til muna,“ sagöi Rumsfeld. Hann minnti á það að bardagar á landi í Persaflóastríðinu hefðu að- eins staðið í 100 klukkustundir. „Ég get þó ekki sagt nákvæmlega hvað þeir myndu standa lengi í dag. Kannski fimm daga, kannski fimm vikur eða í mesta lagi fimm mán- uði. Nákvæmari get ég ekki verið,“ sagði Rumsfeld. Spurður um hryðjuverkaógnina og hugsanlegan stuðning íraka við hryðjuverkahópa sagðist hann sannfærður um að slíkir hópar studdir af írökum væru til og þeir gætu látið til skarar skríða hvar og hvenær sem væri. „Ég er ekki í nokkrum vafa um það að Saddam líkaði það vel að sjá hryðjuverk sem beint væri gegn Bandaríkjunum á sama tíma og hann beitir öllum brögðum til að fela ógnina sem af honum stafar. Við vitum fuUvel að hann hefur verið að koma sér upp efna- og sýklavopnum og er langt kominn með aö þróa kjarnavopn. Hann myndi ekki hika við að beita efna- og sýklavopnum gegn okkur og þaö hefur hann reyndar gert gegn sínu eigin fólki og einnig gegn írökum og Kúrdum. Við verðum að búa okkur undir það versta því hann tU aUs vís,“ sagði Rumsfeld, sem augljós- lega er kominn í stríðsham. Ég vel glœsileikannl Bergþór Pálsson Söngvari „Margir heillast af útliti og fegurð ROTARY úranna." Established in Switzerland 1895 O CL X Ui Neyðarástand í Austurríki Neyðarástandi var lýst í nokkrum héruðum í suður- og vesturhluta Austurríkis í gær eftir að ofsarok, sem náði aUt að 100 km/klst. gekk yf- ir svæðið með þeim afleiðingum að þök fuku af hundruðum húsa og tré rifnuðu upp með rótum þannig að um 300 ha skóglendis lögðust í auðn. Verst var ástandið í Lungau-héraði í nágrenni Salzburg en þar lék veðrið fimm bæi mjög Ula. Engar staðfestar fréttir höfðu borist um slys á fólki en þó tilkynnt um eitt alvarlegt slys. Mwai Kibaki. Kosningasvik í uppsiglingu Óháöir kosningaeftirlitsaðUar í Afriku-ríkinu Kenía segja að aUt að sextán prósent skráðra kjósenda í landinu séu látin. Þetta kemur fram þegar aðeins sex vikur eru tU aUsherj- arkosninga og eykur áhyggjur kosn- ingaeftirlitsmanna um að víðtækt kosningasvindl sé í undirbúningi, en í síðustu tvennum kosningum mun svipað svindl hafa viðgengist. Aðferðin er að halda þeim látnu áfram inni á kjörskrá og samkvæmt fuUyrðingum eftirlitsmanna hefur lít- ið verið hreinsað út síðan árið 1997. í kosningum, sem fram fara þann 27. desember, verður kosinn nýr for- seti landsins, þar sem sitjandi forseti, Daniel Arap Moi, getur ekki boðið sig fram aftur. Flokkur hans Kanu-flokkurinn, sem farið hefur með völdin í land- inu í fjóra áratugi, mun þess í stað bjóða fram Uhuru Kenyatta, son fyrsta forseta landsins, en hann mun eiga á brattann að sækja gegn Mwai Kibaki, frambjóðanda Narc- flokksins, en nokkrir fyrrum ráð- herrar Kanu-flokksins hafa undan- farið gengið til liðs við Kibaki. Olían ógnar fuglalífi BAlþjóðleg náttúru- verndarsamtök hafa varað við þvi að olía úr olíuflutningaskip- inu sem varð fyrir skemmdum og leki kom að úti fyrir stöndum Galicia-hér- aðs á Spáni sé þegar farin að ógna litríku fuglalífi við ströndina en 32 kilómetra langur olíu- flekkur nálgast nú ströndina óðfluga. Fjölskrúðugt fulgalífið við ströndina sem kallast Costa da Morte, eða dauðaströndin vegna fjölda sjóslysa, er því í mikilli hættu, en auk stað- fugla hefur fjöldi farfugla viðkomu á ströndinni á leið sinni til suðlægari landa. Einnig getur olían drepið fjölda fisktegunda og skelja auk höfrunga og annara smáhvala sem halda sig gjam- an með ströndinni. 100 manns féllu í Nepal Að minnsta kosti hundrað manns féllu í hörðum átökum uppreisnar- manna maóista og öryggissveita stjómarinnar í Nepal sem blossuðu upp vestur af höfuðborginni Kath- mandu í fyrradag og héldu áfram fram eftir morgni í gær. Að sögn stjómvalda höfðu að minnsta kosti 52 liðsmenn öryggissveitanna fallið þeg- ar siðast fréttist auk 55 liðsmanna uppreisnarmanna, en átökin eru þau hörðustu sem orðið hafa milli strið- andi fylkinga í margar vikur. Átökin eru talin minnka verulega líkurnar á því að friður komist á á næstunni, en þau fylgdu í kjölfar alls- herjarverkfalls sem uppreisnarmenn boðuðu fyrr í vikunni. Abdullah Gul líklegastur Ti Éecep Tayyip Er- E dogan, leiðtogi Rétt- 11 lætis- og þróunar- fwf flokksins, sem sigr- r .jfe. wF' aöi með glæsibrag í tyrknesku þingkosn- mf ingunum, var ófáan- „jplglPLA legur tO þess að nefna væntanlegt forsætisráðherraefhi flokks síns eftir fund sem hann átti með Ahmet Necdet Sezer Tyrklandsforseta í gær. Það eina sem hann vildi segja var að forsetinn tilnefndi væntanlegan for- sætisráðherra hugsanlega um helgina en í allra síðasta lagi á mánudag. Sjálfur er Erdogan í banni frá stjórn- málum eftir dóm sem hann hlaut árið 1998, en Abdullah Gul, helsti aðstoðar- maður Erdogans, þykir líklegt forsæt- isráðherraefni. Hann er mikill markaðsmaður og þykir vænlegur til þess að taka á erf- iðri efhahagsuppbyggingu sem stjóm- völd standa frammi fyrir. Olíubann á Noröur-Kóreu Stjómvöld í S.-Kóreu hafa lagt hart að nágrönnum sínum i Norður-Kóreu að hætta þegar við allar áætlanir um uppbyggingu og þróun kjamavopna. Þetta gerist í kjölfar ákvörðunar Bandaríkjastjórnar um aö hætta allri olíuaðstoð við landið á meðan þarlend stjómvöld þráast við að verða við kröfum þeirra um að allri kjarnorku- þróun verði þegar hætt. Stjórnvöld í Suður-Kóreu, Banda- ríkjunum og Japan auk stjómar ESB- landanna hafa komist að samkomu- lagi um að 42 þúsund tonna olíusending sem nú er á leiðinni tft Norður-Kóreu verði sú síðasta meðan norðanmenn láta sér ekki segjast. Leggja til árásarhlé Egypsk stjómvöld hafa lagt Yasser Ara- fat, leiðtoga Palest- ínumanna, lið við að þrýsta á Fatah- og Hamas-hreyfing- arnar um að hætta árásum á óbreytta borgara í ísrael þar tO eftir þingkosningamar sem þar fara fram þann 28. janúnar nk. Helstu leiðtogar Hamas segjast vera að Oiuga málið en á móti verði ísraelar að hætta að drepa foringja þeirra. Omar Suleiman, yfirmaður egypsku leyni- þjónustunnar hitti Ariel Sharon, for- sætisráðherra ísraels á fundi í fyrra- dag, þar sem málið var rætt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.