Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2002, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2002, Blaðsíða 18
Helqarblað 33V LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2002 I 8 Þótt orðin ljúgi er röddin alltaf sönn Edda Heiðrún Backman hefur leikið ítutt- ugu ár. Hún fer á kostum íhlutverki Donnu íKvetch sem sýnt er í Vesturporti en hún er einnig að leika íBorgarleikhús- inu, Þjóðleikhúsinu, Sjónvarpinu, einni stuttmynd og Kaldaljósi. Hún talar um leiklistina, hláturinn og prímadonnur. Leigubílstjórinn villist á leiðinni í litla Skerja- fjörðinn. „Mér fannst þú ætla í Þorfinnsgötu," seg- ir hann eftir að hafa beygt inn í Þorragötu. „Hvar er þessi gata aftur?“ spyr hann og ranglar aö lok- um rétta leið. Húsið er hátt og rautt og Edda Heiðrún stendur í dyrunum. Hún tekur vel á móti mér, vísar mér inn í eldhús og býður kaffi. Ég þigg- Edda Heiðrún situr ekki auðum höndum frekar en vanalega. Um þessar mundir vinnur hún í þremur leikhúsum, hjá einni sjónvarpsstöð og ein- um kvikmyndagerðarmanni. Hún leikur í Krydd- legnum hjörtum og Honk! í Borgarleikhúsinu og „Ég er ekki leikari til að sanna eina aðferð heldur til þess að skilja aðferðir leikstjór- ans og tileinka mér þær. Þannig verður leikarinn góður efniviður. Leikarinn getur mögulega vísað veginn með góðu fordæmi og orðið prímadonna en í mínum huga hef- ur það orð jákvæða merkingu; prímadonn- ur eru fólk, konur og menn, sem vinnur sitt fag vel og rnaður getur litið upp til og lært af. Þar eru margir kallaðir en fáir útvaldir," segir Edda Heiðrún Baekman. eru það vægast sagt ólíkar rullur. í Vesturporti leikur hún í Kvetch eftir Steven Berkoff með leik- hópnum Á senunni. Kvetch hefur verið lofað af gagnrýnendum en sýningum fer fækkandi þannig að það eru að verða síðustu forvöð að hlæja og finna til í Vesturportinu. „Kvetch er sérstakt verk- efni sem dró mig smám saman að sér. Það var freistandi að reyna þennan leikstil, hann er mjög krefjandi, og ég hugsaöi með mér að ef ég nennti ekki að gera þetta núna væri illa komið fyrir mér. Leikhópurinn er líka skemmtilegur og góður. Samstarfsfólkið skiptir mig sífellt meira máli eftir þvi sem ég er lengur í þessu starfi. Það er ekki ör- uggt aö sýningin veröi góð þótt maöur sé i góðu hlutverki í góðu verki.“ í Þjóðleikhúsinu æfir Edda Heiðrún í jólaverk- efni Þjóðleikhússins, Með fullri reisn. „Ég leik sprellfjöruga forstjórafrú sem siglir seglum þönd- um um flóa og firði íslands en veit ekki að maður- inn hennar hefur verið atvinnulaus í sex mánuði. Það endar með uppgjöri þar sem kemur í ljós hvern mann hún hefur að geyma." í haust var rykið dustað af Hægan Elektra eftir Hrafnhildi Hagalín og farið til Færeyja á norræna leiklistarhátíð. „Mér fannst æðislegt að fá að leika verkið aftur en ég hef geymt það með mér í tvö ár síðan það var sýnt við góðan orðstír í Þjóðleikhús- inu. Mér fannst það miklu betra núna. Ég fann að við höfðum miklu betra vald á verkinu. Það sést á Hægan Elektra hve mikils virði er ef leikritið er búið til af innsæi og listfengi og það hefur Hrafn- hildur Hagalín. Þá er ekki hægt að fá leiða á verk- inu, þá kemst maður alltaf dýpra og dýpra.“ Edda Heiðrún á eitt eftirminnilegasta atriði Áramótaskaupanna sem málfarsráðunauturinn sem gat ekki sagt snjó-tittlingur og sagði snjó- typpi. Hún er komin aftur í skaupið. „Það er gam- an aö taka þátt í skaupinu," segir hún og hellir kaffi í bolla. „Ég er líka að leika í stuttmyndinni Blind Date eftir Huldar Frey, ungan kvikmynda- gerðarmann. Mér leist svo vel á handritið að ég ákvað að leggja þessu lið. Eins er það með Kalda- ljós en þar leik ég spennandi rullu. Hún er ekki stór, svona þriggja-daga-ruila eins og það er kall- að. Ég leik fósturmóður Gríms. Mér fannst hlut- verkið standa mér nærri því að ég á fósturdóttur. Það eru margir að kljást við fósturforeldrahlut- verkið í dag. Þetta hlutverk er með erfiðari og mikilvægari hlutverkum sem fólk tekur að sér. Hlutverkið er vandasamt í meðförum. f Kaldaljósi gefst mér einstakt tækifæri til að sýna þessar ein- lægu og djúpu tilfinningar sem geta myndast milli fósturforeldra og fósturbarna. Ég fæ örfáar setn- ingar til að sýna það.“ Súrefni að rótunum Það er sem sagt nóg að gera, segi ég við Eddu og hún játar þvi. „Ég hef lengst af verið róleg í tíð- inni og haldið mig við eitt leikhús í einu. Öðru hvoru hef ég brotist undan fastráðningum og flutt mig milli húsa, sátt og ósátt. Það er erfið leið en á einhvern hátt hleypir hún súrefni að rótunum." Við tölum um Kvetch og persónuna Donnu sem Edda Heiðrún leikur. „Hún er óörugg og tauga- veikluð, varla burðugri en strá. Það er þó drjúgur styrkur í henni þegar til lengdar lætur; það eru ekki alltaf veikustu plönturnar sem brotna. Ég hef gaman af þessari breidd. Þegar ég útskrif- aðist þá fékk ég þá umsögn frá finnskum leikstjóra sem kenndi mér að ég væri kómísk leikkona. Síð- an hafa hlutirnir æxlast öðruvísi; stundum tekur maður ekki ákvarðanir heldur taka ákvarðanir mann. Ég hef að mestu leyti verið dramatísk leik- kona en með fram því hef ég leitað í barnamenn- ingu sem mér hefur fundist vera ábótavant hérna. Þar fæ ég útrás fyrir sprellið. Þegar ég hef tekið þátt í kómedíum hefur alltaf fylgt mér tragikóm- ískur strengur. Ég hef aðeins einu sinni leikið í farsa og það var í Tveimur tvöföldum í Þjóðleik- húsinu. Það var mjög gaman enda er það hluti af því að vera leikari að fást við gerólík hlutverk. Farsinn virkar eins og fingraæfing; maður þarf ekki beinlínis að kafa djúpt í sjálfan sig. Farsinn snýst um að vera fyndinn án þess að því fylgi mik- il átök. En farsinn er góð þjálfun fyrir utan að það léttir lundina að leika grínhlutverk."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.