Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2002, Side 52

Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2002, Side 52
56 Helcfctrhlacjf DV LAUGARDAGUR l&. NÓVEMBER 2002 Bílar Stór og aflmikill jeppi meö mikinn staðalbúnað Kostir: Kraftur, staðalbúnaður, rúmgóður Gallar: Aðkoma að farangursrými, eyðsla P. Samúelsson hefur kynnt til sögunnar nýja útgáfu af Land Cruiser 100 jeppanum. Bíllinn hefur fengið meiri staðalbúnað en áður auk lítils háttar andlitslyftingar. DV- bílar höfðu nýju útgáfuna til umráða á dögunum og við prófuðum hann meðal annars á Djúpavatnsleiðinni. Rúmgóður frammi í Það sem maður rekur fyrst augun í þegar sest er upp í bílinn er nýtt og ferskara mælaborð og eru mælamir sjálfir nú með Optitron bak- lýsingu. Sú lýsing er bæði þægilegri og auðlesanlegri en á hefðbundnum mælum. Inn- réttingin er nýtískulegri og bíllinn er betur búinn en áður, meðal annars eru raf- stillt leðursæti og loftpúða- fjöðrun nú staðalbúnaður. Ökumannssæti er með minn- isstillingum sem færa til sæti, stýri og spegla eftir vali ökumannsins. Ekki verður kvartað yfir plássleysi í þess- um bíl og plássið í aftursæt- um er líka með því besta sem gerist. Á milli framsæta er stór miðjustokkur með fjölda hólfa og er eitt þeirra ísskáp- ur. Aðgengi í bílinn er gott þótt stigbretti vildu flækjast fyrir og gerðu það eitt að skíta út buxnaskálmar. Inn- og útstig í öftustu sætaröðina mætti einnig vera betra en hún er nú einnig staðalbúnaður. Þau sæti sitja nálægt gólíi þannig að illa fer þar um lappalengri menn og henta þau þvi betur yngri aldurshópum. Eins er opnun á tvöföldum afturhlerum þannig að erfitt er að komast í fellingarbúnaðinn fyrir sætin nema með því að klöngrast upp á hlerann og inn í bílinn. Eflaust má rekja það til þess að bíllinn er að mestu hugsaður fyrir Ameríkumarkað þar sem þessi út- færsla á neðri afturhlera sem lengir gólfið er vin- sæl. Skemmtilegur í akstri í akstri virkar bíllinn mjög skemmtilegur í alla staði. Úr nægu afii er að spila og verður þess aldrei vant, ekki einu sinni með þennan þimga bil full- hlaðinn í bröttum brekkum. Eyðslan er nokkuð mikil eins og búast mátti við og fór eyðslutalan í aksturstölvunni aldrei niður fyrir 20 lítra á hundraðið í reynsluakstrinum. Tekið skal þó fram að bíllinn var mest keyrður undir álagi en uppgef- in meðaleyðsla er 16,3 lítrar á hundraðið. Loftpúða- fjöðrunin skilar vel sínu, sérstaklega á grófum vegi. Hægt er að hækka og lækka bílinn með takka úr mælaborði sem kom sér vel í torfærum yfir háan malarkamb á leiðinni. Auk þess er hægt að velja um nokkrar akstursstillingar, til dæmis er hægt að setja bílinn í sportstillingu og heldur þá fjöörunun vel við í kröppum beygjum. Stýrið virkar létt og mætti vera þyngra á meiri ferð en hins vegar er létta stýrið kostur við erfiðari aðstæður. Dýrari en betur búinn Eins og einhverjir hafa eflaust tekið eftir hefur nýja útgáfan hækkað nokkuð mikið, eða sem nem- ur um einni milljón króna. Um leið hefur staöal- búnaður bílsins aukist til muna og má þar nefna auka sætaröð sem kostaði 120.000 kr„ rafstillt leð- ursæti sem kostuðu 405.000 kr. og tölvustýrðan fjöðrunarbúnaöur sem var á 265.000 kr. Samtals er því staðalbúnaður í bílnum í dag sem var ekki í þeim gamla aö verðmæti 790.000 kr. og raunhækk- un því 210.000 kr. Fyrir þann pening fæst að auki sex diska geislaspilara með 9 hátölurum og 17 tommu álfelgur. Aðalkeppinautur Land Cruiser 100 er Range Rover og kostar grunnútgáfa hans 9.900.000 kr. með bensínvélinni. -NG — 1 TOYOTA LAND CRUISER 100 V8 Vél: 4,7 lítra, átta strokka bensínvél Rúmtak: 4664 rúmsentímetrar. Ventlar: 32 Þjöppun: 9,6:1 Gírkassi: 5 þrepa sjálfskiptur UNDIRVAGN: Fjöðrun framan: Loftpúðar Fjöðrun aftan: Loftpúðar Bremsur: Loftkældir diskar/diskar, ABS Dekkjastærð: 275/65 R17 YTRI TÖLUR: Lengd/breidd/hæð: 4890/1940/1880 mm Hjólahaf/veghæð: 2850/220 mm. Beygjuradíus: 12,8 metrar. INNR! TÖLUR: Farþegar m. ökumanni: 7 Fjöldi höfuðpúða/öryggispúða: 7/6 Farangursrými: 830-1370 lítrar HAGKVÆMNI: Eyðsla á 100 km: 16,3 lítrar Eldsneytisgeymir: 96 lítrar Ábyrgð/ryðvörn: 3/12 ár Grunnverð: 6.850.000 kr. Verð prófunarbíls: 7.030.000 kr. Umboð: P. Samúelsson hf. Staðalbúnaður: Rúður og speglar rafdrifin, 6 ör- yggispúðar, 6 diska geislapilari og 6 hátalarar, upp- hitaðir speglar, 17 tommu álfelgur, fjarstýrðar sam- læsingar, armpúði, , hitaeinangrandi gler, kæli- og hitabox, rafdrifin framsæti og stýri með minni. upphituð sæti, skriðstillir SAMANBURÐARTÖLUR: Hestöfl/sn.: 235/4800 Snúningsvægi/sn.: 434 Nm/3400 Hröðun 0-100 km: 11,7 sek. Hámarkshraði: 175 km/klst. Eigin þyngd: 2465 kg l © Þrátt fyrir stórt farangursrými er aðgengi erfitt og hátt og sætið lágt þannig að farþeginn situr því sem næst á hækjum sér. © Pláss í aftursætum er gott á alla kanta og hægt er að stjórna miðstöð þar sérstaklega. 0 V8 bensínvélin er aflmikil enda veitir ekki af í þessum þunga bíl. @ Hægt er að hækka bílinn með loftpúðafjöðrun- inni svo hann sleppi yfir erfiða hjalla.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.