Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2002, Qupperneq 54

Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2002, Qupperneq 54
56 Helcjarblacf JZ>V LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2002 Bílar Reynsluakstur nr. 718 Volvo XC70 Cross Country Draumur í alls engri dollu Kostir: Þœgindi, vél, fjöðrun Gallar: Verð, hótt gólf í farangursrými Volvo XC70 hefur oft fengið góða dóma bílablaða- manna og var hann meðal annars kosinn langbakur ársins 2002 hjá tímaritinu „What Car“, svo eitthvað sé nefnt. Til að gera gott betra hafa hönnuðir Volvo nú sett nýju 163 hestafla einbunu dísilvélina ofan í húddið á Cross Country en sú vél hefur áður fengið góða dóma á síðum DV-bíIa sem annars staðar. DV-bílar höfðu bílinn til reynsluaksturs í vikunni og létu vel af. Sætið faðmar bílstjórann Þótt hann beri það ekki mikið utan á sér er jafnhátt undir Volvo XC70 og margan jepplinginn og jafnvel jeppann. Fyrir vikið verða innstig og útstig gott, ekki síst vegna þess að hurðir opnast mjög vel, nánast 90°. Innan dyra fer vel um ökumann þar sem stór leðursæt- in faöma hann. Allt í kringum ökumanninn er vel stað- sett og miðjustokkur í mælaborði hallar aðeins í áttina að ökumanni til þægindaauka. Rými í báðum sætaröð- um er gott og þar getur farið vel um fjóra fuliorðna og einn hálfstálpaðan. Staðalbúnaður er góður og má þar nefna sérlega góð hljómtæki með fjarstýringu úr stýri, skrið- stilli, einnig fjarstýrðan úr stýri og hitastýrða miðstöð með loft- kælingu. Öryggi fær alltaf háan sess í Volvo, í bílnum eru minnst sex öryggispúðar fyrir utan höfuðpúða með hnykkvörn, bílbeltastrekkjara og svo mætti lengi telja. Það er helst farangursrými sem veldur vonbrigðum og það eina sem undirritaður gat sett út á í hönnun bílsins en þar er gólflð óvenjuhátt. Draumur í akstri I akstri er bíllinn alger draumur í alls engri dollu. Fjöðrunin er mjúk og þægileg en samt leggst hann lítið til hlið- anna í beygjum. Stýrið er alveg mátulegt, snýst 2,8 hringi enda á milli. Nýja 2,4 lítra dísilvélin, sem við höf- um reyndar áður haft góð kynni af, smellpassar í bílinn enda óvenjulétt sem eflaust á sinn þátt í góðum akst- urseiginleikum bílsins og kemur í veg fyrir undirstýr- ingu eins og svo oft í dísilbílum. Þetta er sama dísilvél- in og er í S80, einbunuvél á annarri kynslóð en með þessari tækni fæst aukið afl, minni eldsneytisnotkun, minni mengun og síðast en ekki sist hljóðlátari vél. Vél- in er óvenjutogmikil og öflug þrátt fyrir stóran og þung- an bíl, nota bene, bíllinn er vel yfir tvö tonn að þyngd en maður verður nánast aldrei var við það í akstri. Ætla mætti að svona öflug vél væri eyðsluhákur en því er ekki að heilsa, uppgeftn eyðsla er aðeins 8,5 lítrar með sjálfskiptingunni. Sjálfskiptingin mildar aðeins togið í vélinni og mýkir bílinn í akstri en fyrir þá sem vilja fullnýta kraftana er beinskiptingin góður kostur. Haldex-fjórhjóladrifið hefur verið endurhannað og nú fylgjast fleiri skynjarar með hraða bílsins, snúningi á stýri og hjólum og fleiru. Tölvan fær þessi skilaboð 500 sinnum á sekúndu og sendir aftur á sama hraða til drifs og fjöðrunar. Óhætt er að segja að kerflð virkaði ein- staklega vel og þurfti meira að segja talsvert til að spól- vömin kæmi inn. Verð í hærri kantinum Volvo XC70 á sér fáa keppinauta þar sem listinn með fjórhjóladrifnum lúxusbílum með langbakslagi er ekki langur. Verðið, 4.590.000 kr., er í hærri kantinum ef miða á við fleiri samkeppnisaðila en bara í lúxusflokki. Til að mynda kostar 130 hestafla disilútgáfa VW Passat 4Motion aðeins 2.850.000 kr., sem er auðvitað talsvert minna, og Subaru Forester kostar 2.949.000 kr., þá reyndar með aflminni bensínvél. Aftur á móti kostar C-lína Mercedes- Benz í langbaksútgáfu með fjórhjóladrifi 5.330.000 kr. sjálfskiptur. Sá sem leggur út fyrir Volvo XC70 getur þó verið viss um að þeim peningum sé vel varið og hann sé að fá skemmtilegan bíl í hendurnar. -NG o Farangursrými gæti verið stærra þar sem gólfið er frekar hátt en það auðveldar hins vegar hleðslu. © Stýrishjólið er þykkt og allt í mælaborði vísar að ökumanni til frekari þæginda. © Höfuðpúðann fyrir miðju má fella niður og fyrir ofan er búið að koma fyrir hundagrind sem má smella upp í loftið. © Þarna er 163 hestafla dísilvélin komin á réttan stað í fjórhjóladrifnum Volvo XC70. VOLVO XC70 2,4 D5 Vél: 2,4 lítra, 5 strokka dísilvél. Rúmtak: 2401 rúmsentímetri Ventlar: 20 Þjöppun: 18:1. Gírkassi: 5 þrepa sjálfskiptur UNDIRVAGN: Fjöðrun framan: Fjöðrun aftan: MacPherson gormafjöðrun Fjölliða gormafjöðrun Bremsur: Loftkældir diskar/diskar, ABS, EBD Dekkjastærð: 215/65 VR16 YTRI TOLUR: Lengd/breidd/hæð: 4730/1860/1560 mm. Hjólahaf/veghæð: 2760/210 mm. Beygjuradíus: 11 metrar INNRI TOLUR: Farþegar m. ökumanni: Fjöldi höfuðpúða/öryggispúða: 5/6 Farangursrými: 485-1641 lítrar HAGKVÆMNI: Eyðsla á 100 km: 8,5 lítrar. Eldsneytisgeymir: 70 lítrar. Ábyrgð/ryðvörn: 3/12 ár. Verð: 4.590.000 kr. Umboð: Brimborg hf. Staðalbúnaður: Spólvörn. 6 öryggispúðar, hitastýrð tvöföld miðstöð með loftkælingu. leðurstýri, hleðslujafnari, fjarstýrðar samlæsingar, Volvo hljómtæki með átta hátölurum og fjarstýringu í stýri, rafdrifnar rúður, rafdrifnir og upphitaðir útispeglar, hlífðarpanna, öryggisgrind í farangurs- rými, hæðarstillanleg upphituð framsæti með mjó- baksstillingu, armpúðar í fram- og aftursæti. 16 SAMANBURÐARTÖLUR: Hestöfl/sn.: 163/4000 Snúningsvægi/sn.: 320 Nm/1500-4500 Hröðun 0-100 km: 11,5 sek. Hámarkshraði: 195 km/klst. Eigin þyngd: 1630 kg. Heildarþyngd: 2210 kg.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.