Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2002, Síða 55
LAUGARDACUR 16. NÓVEMBER 2002
H<3lQarblað JOV
57
V'
Frægasta hjól mótorhjólasögunnar
aftur á markað
Eitt frægasta merkið i sögu mót-
orhjólsins er án efa Vincent HRD
Black Lightning. Það nafn var
skráð gullnu letri í söguna þegar
slíkt hjól ók fyrst hraðar en 150 míl-
ur (240 km) á saltsléttunum í Utah.
Þetta gerðist 13. september árið
1948 og ökumaðurinn var Rollie
Free, gott nafn fyrir mann með
hraðamet. í fyrstu tilraunum náði
hann aðeins 147 mílum og reif þá
leðurgallann 'sinn en þá greip hann
til þess ráðs að aka metferðina í
sundskýlu einni fata. Af því náðist
mynd og er hún ein sú frægasta í
mótorhjólasögunni.
Vincent-merkið gengur nú í end-
urnýjun lífdaga en á dögunum var
frumsýnd frumgerð nýs hjóls sem
brátt kemur aftur á markað. Hjólið
sækir útlit sitt í gamla hjólið en
notast við nýjustu tækni og er bens-
íntankur og bretti meðal annars úr
koltrefjum. Líkt og í gamla hjólinu
fær það nýja aðeins það besta og má
þar nefna Brembo bremsur og USD
framgafíla. Vélin er samt ekki frá
Vincent heldur frá Honda en það
þykir merkilegt fyrir þær sakir að
Rollie Free á Vincent HRD Blaek
Lightning hjólinu sínu þegar hann
setti hraðametið sem komst á
spjöld sögunnar.
Honda lánar vélar sínar ekki svo
glatt öðrum framleiðendum. Hjólið
er ekki fullbúið og er enn verið að
prófa það. Búast má við að það fari
á markað eftir tvö ár. -NG
Nýr Mitsubishi Colt
árið 2004 í Evrópu
Mitsubishi frumsýndi þann 11.
nóvember nýjan og mikið breyttan
Colt sem til að byrja með verður að-
eins seldur í Japan. Bíllinn er sam-
eiginleg afurð DaimlerChrysler og
Mitsubishi sem hönnuðu í samein-
ingu undirvagninn. Mun Daim-
lerChrysler líklega nota hann sem
grunn fyrir nýjan smábíl frá Smart
í Evrópu. Coltinn er lykilbíll fyrir
Mitsubishi sem nú reynir að koma
sér aftur á kortið eftir erfiðleika síð-
ustu ára. Bfílinn kemur á markað
árið 2004 í Evrópu og verða fram-
leidd um 100.000 eintök á ári. Bílinn
verður hægt að sérútbúa fyrir
hvem og einn og þar á meðal sæti.
Verður hægt að velja um stök sæti
eða bekki í báðar sætaraðir sem er
nokkuð óvenjulegt og er þá hand-
bremsan fótstýrð. BUlinn verður fá-
anlegur með tveimur gerðum véla,
1,3 og 1,5 lítra, 90 og 98 hestafla.
Einnig verur hægt að fá hann í
Ralliart útgáfu með lægri fjöðrun og
einnig svokallaða „Hearty Run“ út-
gáfu sem er með sæti sem hægt er
að snúa 90" sem rennur síöan 23 sm
út úr bílnum, en það ætti að henta
vel öllum þeim sem eiga erfitt með
hreyfingar. -NG
Heimsmet í sparakstri
hjá Peugeot
Nýtt útlit Nubira
Fyrstu myndir af nýjum GM Da-
ewoo Nubira hafa nú birst, en sá bfíl
er mjög mikilvægur fyrir framleið-
andann eftir endurfjármögnun fyrir-
tækisins. Bíllinn verður frumsýnd-
ur á bílasýningunni í Seoul í mán-
uðinum og fer strax 1 sölu í Kóreu.
Búast má við að sjá bílinn fyrst í
Evrópu á bfíasýningunni í Genf í
mars á næsta ári. Bíllinn er svipað-
ur af stærð og Skoda Oktavía og
verður eflaust á sambærilegu verði.
Hönnun á ytra útliti kemur frá Pin-
infarina hönnunarhúsinu sem er
helst þekkt fyrir útlitið á Ferrari bíl-
um. Vélamar verða 1,6 og 1,8 lítra
endurhannaðar útgáfur sömu véla
og notaðar eru í dag. Vænta má
tveggja lítra langbaks seinna á ár:
inu. Daewoo lagði mikið í endur-
hönnun yfirbyggingar og undir-
vagns og vonast til að bíllinn nái
fjórum stjömum í árekstrarprófi
NCAP. Von er einnig á Matiz með
stærri eins lítra vél á næsta ári til
viðbótar við 0,8 lítra vélina. -NG
Roger Söderberg er fatlaður og með lítinn mátt í hægri hluta líkanians
og hann elskar að keyra. Hann segir að undir stýri geti hann gert það
sama og næsti maður og fötlunin hverfi.
Peugeot 406 hefúr slegið heims-
metið í lengstri vegalengd á tank-
fylli. Methafinn heitir John Taylor
og er margfaldur methafi í
sparakstri á löngum leiðum. Hann
ók heila 2348,3 kílómetra á tankin-
um og eyddi að meðaltali 2,88 lítmm
á hverja 100 km. Það þýðir að hann
hafi ekið hefía 34,69 km á hverjum
lítra eldsneytis. Metbíllinn var Peu-
geot 406 HDI sem sló eldra met sett
af Audi en sá bíll ók 2153,5 km árið
1992.
Valið auðvelt
Fyrir John Taylor var valið á
Peugeot 406 auövelt, „Peugeot 406
HDI er bíll í algerum sérflokki.
Hann er sá spameytnasti og kraft-
mesti af þeim bílum sem ég hef haft
tækifæri til að aka,“ segir John og
tekur fram að metaksturinn fór
fram við algerlega eðlilegar aðstæð-
ur á þjóðvegum Ástralíu. „Við
ókum með þrjá fullorðna og farang-
ur í bílnum og leið okkar lá um
venjulega þjóðvegi, öfugt viö marg-
ar aörar tilraunir tfí sparaksturs
sem fara fram á lokuðum brautum
eða á algerlaga beinum vegum"
sagði John ennfremur. Heimsmeta-
bók Guiness hefur viðurkennt hið
nýja heimsmet, sem var sett á 36
tíma langri keyrslu milli Melboume
og Rockhamton í Ástralíu. Fulltrúar
þeirra fylgdust með allan tímann og
gættu þess að farið væri að settum
reglum. Áður en tankurinn var
fylltur með 70 lítrum eldsneytis var
bfílinn gaumgæfilega skoðaður og
nákvæmni kílómetrateljara hans
staðfest. Að endingu var elds-
neytistankurinn innsiglaður. Sam-
rásarinnsprautun Peugeot 406 HDI
státar af nýjustu einbunutækninni
sem vakið hefur hrifningu fyrir
hljóðlátar, aflmiklar og spameytnar
vélar eins og heimsmetið er til vitn-
is um.
Hálf milljón kílómetra á
Subaru Outback 1999
Það var
nokkuð skrýtið
upplitið á
mönnum þjón-
ustuverkstæðis
Subaru í Karl-
stad í Svíþjóð
þegar Roger
Söderberg kom
með bílinn sinn
í 500.000 km skoðun á dögunum.
Bíllinn sem um ræðir er Subaru
Outback af árgerðinni 1999 svo að
allur þessi akstur hefur farið fram á
tveimur og hálfu ári. Það segir hins
vegar ekki alla söguna því að Roger
vinnur við að draga hjólhýsi til
væntanlegra eigenda sinna og notar
Subara bílinn til þess. Áður átti
Roger Subaru Legacy sem hann ók
670.000 km á
fjórum árum
við sama starfa.
Starfsmenn
þjónustuverk-
stæðisins eru
famir að
þekkja Roger
vel sem er einn
þeirra regluleg-
asti kúnni. Við síðustu skoðun
ákváðu þeir að skipta um drifsköft-
in að framan þar sem komið var lít-
ils háttar aukahljóð í þau. Þegar
þau vora komin úr kom í ljós að
þau voru ennþá í góðu lagi en samt
var ákveðið að setja þau nýju í, með
500.000 km á kílómetrateljaranum
er nú betra að vera viss. -NG
Notaðir bílar hjá
Suzuki bílum hf.
Suzuki Baleno Gl, 4 dr., bsk.
Skr. 5/99, ek. 38 þús.
Verð kr. 890 þus.
Suzuki Vitara JLX, 3dr., bsk.
Skr. 7/98, ek. 75 þús.
Verð kr. 970 þus.
Suzuki Vitara V-6, sjsk.
Skr. 10/97, ek. 85 þús.
Verð kr. 1290 þus.
Suzuki Jimny JLX, bsk.
Skr. 6/02, ek. 15 þús.
Verð kr. 1480 þús.
Galoper 2,5, disil, sjsk.
Skr. 9/99, ek. 78 þús.
Verð kr. 1490 þús.
Renault Mégane RT, bsk.
Skr. 3/99, ek. 47 þus.
Verð kr. 1090 þús.
Ford Fiesta Flair, bsk.
Skr. 11/96, ek. 85 þús.
Verð kr. 590 þus.
Hyundai Accent GLS, bsk.
Skr. 7/98, ek. 45 þus.
Verð kr. 750 þus.
TILBOÐ kr. 600 þús.
Sjáðu fleiri á suzukibilar.is
$ SUZUKI
---////--------------'
SUZUKI BÍLAR HF.
Skeifunni 17, sími 568-5100
Baleno Wagon 4x4
5/98, ek. 51 þús.
5 kr. 1050 þús.
Suzuki Swift GLS, 3 d., bsk.
Skr. 9/99, ek. 23 þús.
Verð kr. 750 þus.
C
A
f
4i