Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2002, Qupperneq 14
14
LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002
Aðventan er gengin í garð
og Salka komin í jólaskap.
Nýjar bækur prýða hittumar auk úrvals
kerta og gjafavara fýrír þig og þina.
Við erum á Skóiavörðustíg 4. Alltaf
heitt á könnunni. Verið veikomin.
Salka
Forlag með sál
Innlendar fréttir vikuni
Fréttir
DV
Bókin „Fjandsamleg yfirtaka“ vekur gríöarlega athygli:
Petta snýst um
Storkur með kindum
Hvítstorkur, sem fyrst sást hér-
lendis 25. október, hefur að undan-
fómu haldið sig á túninu á Ásunnar-
stöðum I Breiðdal. Rúnar Ásgeirsson
bóndi sagði í samtali við DV að
storkurinn væri mjög spakur en virt-
ist ekki sækjast eftir félagsskap við
aðra fugla - helst vildi hann vera hjá
kindunum. Rúnar bóndi er ekki trú-
aður á að hægt sé að taka fuglinn í
hús og gefa honum að éta.
Fjöldauppsagnir
Íslandssími sagði í vikunni upp 76
starfsmönnum sem unnu hjá fyrir-
tækinu og Tali, en fyrirtækin hafa
sameinast sem kimnugt er. Óskar
Magnússon, forstjóri Tals, sagði í
samtali við DV að hjá uppsögnunum
hefði ekki verið komist og að frekari
uppsagnir væm ekki fyrirhugaðar.
Stuldur og stuðningur
Þrjú fyrirtæki og fjöldi einstak-
linga höfðu samband við Styrktarfé-
lag krabbameinssjúkra bama á mið-
vikudag og bauð fram aðstoð. Ástæð-
an var sú að brotist var inn á skrif-
stofu samtakanna og þaðan stohð
nýjum tölvum. BT-búðin og Smart-
auglýsingar ákváðu að gefa felaginu
150 þúsund krónur sem er ágóði af
sameiginlegum sms-leik fyrirtækj-
anna. Lögregla hefur enn ekki haft
hendur í hári þjófanna. -aþ
viðskiptasiðferði
- segir Bogi Þór Siguroddsson um uppgjör sitt við Húsasmiðjuna
Jólasteikin ódýr
Hamborgarhryggurinn hefur
lækkað í verði um ailt að 65% á síð-
astliðnum íjórtán árum. Þessi vin-
sælasta jólasteik landsmanna hefur
ekki í annan tíð verið ódýrari. Þegar
við hafa bæst afslættir verslana er
ekki óalgengt að kílóverðið í verslun-
um sé í kringum 600 til 700 krónur.
Bóksölustríð í algleymingi
Bóksölustríðið var hart í vikunni
sem leið og greint var frá því í DV að
stórmarkaðir sem selja bækur greiða
allt að þúsund krónum með hverri
bók. Kaupmenn sem DV ræddi við
viðurkenna að margar bækur séu
seldar undir kostnaöarverði fyrir
þessi jól.
Strengur með risasamning
Upplýsmgatæknifyrirtækið
Strengur hefur gert stórsamning við
breska vamarmálaráðuneytið um
sölu á Infostore-verslunarkerfi fyrir
verslanir breska hersins. Samning-
urinn er að sögn sölustjóra Strengs
sá stærsti í sögu fyrirtækisins.
Formenn í norður
Útlit er fyrir formEumsslag í
Reykjavíkurkjördæmi norður i kom-
andi alþingiskosningum. Ljóst er að
Davíð Oddsson forsætisráðherra
mun leiða lista sjálfstæðismanna í
kjördæminu og
sömu sögu er að
segja um Halldór
Ásgrímsson utan-
ríkisráðherra og
formann Framsókn-
arflokksins. Þá
þykja líkur á að
Össur Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingar, muni leiða lista síns
flokks í kjördæminu.
Hvínandi slagviðri
Björgunarsveitarmenn höfðu í
nógu að snúast á þriðjudag og
fimmtudag þegar allt ætlaði um koll
að keyra í slagviðri sem gekk yfir
landið. Þakplötur fuku víða og tölu-
vert tjón varð þegar hluti þaksins á
Vesturbæjarlauginni sviptist af.
Bogi Þór Siguroddsson
Fyrrverandi forstjóri Húsasmiöjunnar gerir nú upp í bók samskipti sín viö fyrr-
um félaga sem hann segir hafa brugöist algjörlega trausti sínu varöandi hug-
myndir þeirra um aö kaupa fyrirtækiö.
hlutverk sitt sem „sendill Orca-hóps-
ins“. Þar sem mér hafði ekkert orðið
ágengt með að finna rétta manninn,
markaðurinn jafn þröngur og raun
bar vitni, þá var auðvitað sjálfsagt að
hitta manninn og sjá hvort það færi
betur á með okkur en á fyrmefndum
fundi.
Ég hef ailtaf talið innsæi mitt gagn-
vart fólki vera meðal kosta minna.
Reynslan hefúr sagt mér að fyrstu
kynni hafi mikið að segja um hvemig
viðkomandi komi fram, að minnsta
kosti hefur það reynst svo um starfs-
mannaviðtöl. Ég hefði betur látið
þetta innsæi mitt ráða í þessu tilfelli.
- Að sjáifsögðu var framkoma Áma
í starfsviðtölum við mig allt önnur og
fágaðri en á okkar fyrsta fundi. Hann
sýndi mér, að minnsta kosti á yfir-
borðinu, fyllstu kurteisi þaðan í frá,
allt þar til hann hringdi í mig þar sem
ég var á Spánl I sumarfríi til að til-
kynna mér um kaup sín á Húsasmiðj-
unni.“
Nú þekki
ég siðferðisbrestína
í niðurlagi bókarinnar, sem er 250
blaðsíður, vitnar Bogi í fræga prédik-
un sr. Hjálmars Ámasonar um fjár-
málabrask og Matteusarguðspjall þar
sem segir: „Hvað stoðar það manninn
að eignast allan heiminn og fyrirgjöra
sálu sinni?" - Síðan gerir hann upp
samskipti sín og Árna með þessum
orðum:
„Á þessari stundu er ég óendanlega
þakklátur fyrir það að Kaupþings-
verkefni okkar Áma Haukssonar
varð ekki að veruleika því að það
hetði leitt til frekara samstarfs okkar.
Ég gerði mér ekki grein fyrir því þá
hvaða mann Ámi Hauksson hafði að
geyma. Nú þekki ég of vel vinnuað-
ferðimar og siöferðisbrestina"
Snýst um viðskiptasiðferði
„Þetta snýst um viðskiptasiðferði
fyrst og fremst. Eða eigum við
kannski að sætta okkur við að
mönnum leyfist þar að gera nánast
hvað sem er?“ sagði Bogi í samtali
við DV í gær. „Á meðan dómarinn
flautar ekki er leiknum haldið
áfram. Menn hljóta að spyrja sig
hvort það sé eðliíegt að láta hlutina
ganga þannig fyrir sig.“
Bogi tileinkar bókina fyrrverandi
samstarfsfólki sínu í Húsasmiðju-
samsteypunni: Átaki, Blómavali,
HG Guðjónssjmi, Húsasmiðjuversl-
ununum og ískrafti. Hann segir
vissulega leitt að allt það ágæta fólk
dragist inn í þessi átök. Hins vegar
hafi hann velt því mjög fyrir sér
hvort rétt væri að gefa þetta út á
bók. Niðurstaðan hafi verið sú að
ekki væri rétt að hann burðaðist
einn með allar þessar upplýsingar.
Þetta væri sönn frásögn af atburða-
rásinni og þar hefði hann ekkert að
fela.
„Viðbrögðin hafa verið gríðarleg.
Ég hef fengið heillaóskir og símtöl
úr öllum áttum. Ég er því ekki í
nokkrum vafa um það nú aö ég
geröi rétt með því að gefa bókina
út.“
Bogi Þór er rekstrarhagfræðingur
að mennt og með MBA-próf frá Rut-
gers Graduate School of Manage-
ment í New Jersey í Bandaríkjun-
um. Hann var sölu- og markaðs-
stjóri Húsasmiðjunnar frá 1997 og
forstjóri frá 1. apríl 2000 til 9. júni
2002. Saman höfðu þeir Árni unnið
að yfirtöku á Húsasmiðjunni í gegn-
um Kaupþing frá því 29. apríl. Bogi
stóð í þeirri meiningu að verkefnið
væri í eðlilegum farvegi þegar hann
fór í frí til Spánar ásamt fjölskyldu
sinni 1. júní.
Bogi keypti hlut
í Húsasmiðjunni
eftir nokkurra ára
starf fyrlr fyrir-
tækið og tók lán
fyrir því og setti
hlutabréf, m.a. í
deCODE, að veði
fyrir þeim skuld-
bindingum. Þá hafði hann hagnast
ágætlega á hlutabréfaviðskiptum en
óraði ekki frekar en fiesta aðra fyrir
því hvað í vændum var.
Það er kaldhæðnislegt að hluta-
bréfamarkaðurinn fór að falla nánast
sama dag og hann hóf störf sem for-
stjóri í Húsasmiðjunni og héldu áfram
að falla fram að þeim tíma sem kaup-
in voru frágengin.
Þetta haíði auðvitað áhrif á trygg-
ingar á bak við kaup hans í Húsa-
smiðjunni. Þegar ljóst var að Árni
Hauksson væri að kaupa Húsasmiðj-
una, 1 samstarfi við Hallbjörn Karls-
son, Baug og í samvinnu við Búnaðar-
bankann, var ljóst að við Boga og fjöl-
skyldu hans blasti persónulegt gjald-
þrot. Fyrirætlanir hans um frágang
sinna persónulegu skuldamála hékk
saman við hugmyndir þeirra Áma
um yfirtöku á Húsasmiðjunni. Allt
þetta fór í uppnám við sunnudagssím-
talið í júní.
Bogi segist nú vera búinn að semja
við bankana á viðunandi hátt um
þessar skuldir sínar. Nú sé hann því
tilbúinn að takast á við næsta verk-
efni. Bogi segist ekki hafa áhyggjur af
verkefnaskorti.
Einföld afgreiðsla
á risaviðskiptum
Bogi segir í raun furðulegt að svo
stór bankaviðskipti eins og kaupin á
Húsasmiðjunni eru, fyrirtæki með tíu
milljarða efnahagsreikning, skuli
ekki hafa farið fyrir bankaráð. Sölu
Jóns Snorrasonar, stjómarformanns
Húsasmiðjunnar, og systkina á hlut
þeirra á genginu 19 segir Bogi líka
vera athyglisverða. Þar líti út fyrir aö
eitthvað annað hafi hangið á spýt-
unni. Þegar Bogi hafi viðrað hug-
myndir sínar um kaup á fyrirtækinu
í gegnum Kaupþing hafi hann spurt
Jón um verðhugmyndir. Jón hafi þá
gert sér vonir um að geta selt á gengi
ekki undir 22. Sjálfur taldi Bogi fyrir-
tækið hins vegar mun meira virði.
Bogi gefur í skyn í bók sinni að
með sölunni hafi Jón Snorrason því
hugsanlega veriö að fá hærra gengi en
öðrum hluthöfum hafi verið boðið. í
bók sinni nefnir Bogi að „pakkinn“
sem Ámi hafi boðið Jóni í „kaupbæti“
hafi hugsanlega verið hlutur Húsa-
smiðjunnar í timbursmiðjunni
Natural í Eistlandi. Með því væri Jón
að fá raunverð fyrir sinn hlut sem
gæti samsvarað genginu 25-30.
Er það reyndar gríðarlega stórt at-
riði og spuming sem hluthafar hljóta
nú að velta fyrir sér.
Var hans hægri hönd
í bókinni lýsir Bogi m.a. aðdrag-
anda ráðningar Áma, sem var hans
hægri hönd, en hann sér nú greinilega
eftir að hafa ráðið hann:
„Sameiginlegur kunningi benti mér
á að Ámi Hauksson, fjármálastjóri og
aðstoðarframkvæmdastjóri Frjálsrar
fjölmiðlunar, hefði áhuga á að fara frá
fyrirtækinu og var það skiljanlegt í
ljósi þess sem síðar gerðist.
Ég hafði einu sinni hitt Áma og
það var ekki fundur sem var þess eðl-
is að ég drægist sérstaklega að persón-
unni, nema síður væri. Kunningi okk-
ar sagði að þar hefði hann verið í um-
boði síns fyrirtækis og að gæta hags-
muna þess og því gæti ég ekki dæmt
hann út frá þeim kynnum.
- Ég hafði heyrt mikið talað um
Áma og að þar færi mikill talnakall
og slyngur fjármálamaður, enda
menntaður í bestu háskólum vestan
hafs. Ámi var mest þekktur fyrir
Bogi Þór Siguroddsson, fyrrver-
andi forstjóri Húsasmiðjunnar, hef-
ur opinberað átök sín við helsta
samstarfsmann sinn, Áma Hauks-
son, núverandi forstjóra, um kaupin
á fyrirtækinu á liðnu sumri. Hefur
Bogi gefið út bókina Fjandsamleg
yfirtaka þar sem öllum aðdraganda
að þessum kaupum er lýst ásamt
samskiptum við fyrri eigendur og
starfsmenn Húsasmiðjunnar. Hefur
þessi útgáfa vakið mikla athygli
enda mjög óvenju-
legt aö menn viðri
svo opinskátt Hörður
baksvið við- Kristjánsson
skiptalífsins og blaðamaöur
gefi út í bókar-
formi. Hann segist
skrifa bókina ekki
síst sem svar við
spumingu Árna Haukssonar í
sunnudagssímtali við sig úti á
Spáni þar sem Ámi tilkynnir hon-
um að hann hafi persónulega geng-
ið sjálfur frá kaupunum á Húsa-
smiðjunni sem þeir ætluðu að fram-
kvæma í sameiningu. Þá spurði
Ámi: „...hvað hefðir þú gert?“