Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2002, Qupperneq 31
LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002
HelQarblað I>V
31
Anelka
í bann
Franska knattspyrnusam-
bandið hefur dæmt Nicolas An-
elka í 2 leikja bann. Bannið er
eingöngu í Frakklandi en hefur
ekki áhrif í Englandi þar sem
Anelka leikur með Man. City.
Ástæða bannsins er sú að An-
elka neitaði að koma til móts
við franska landsliðið fyrir vin-
áttulandsleik gegn Júgóslövum
um daginn en hann var tekinn
inn í hópinn á síðustu stundu er
Sidney Govou forfallaðist vegna
meiðsla. Anelka sagöi þá að
Jacques Santini, þjálfari franska
landsliðsins, hefði engan áhuga
á að nota sig og því væri ekkert
vit í því að koma til móts við
hópinn. Ef Anelka fer aftur í
franska boltann þá kemur hann
til með að fara beint í leikbann.
Dacourt
skýtur fast
Olivier Dacourt vandar Terry
Venables, stjóra sínum hjá
Leeds, ekki kveðjurnar í viðtali
við franska blaðið L'Equipe og
hann segir einnig að frammi-
staða Leeds í ár sé til skammar.
„Við erum í tómu rugli og
frammistaðan er til skammar.
Með þennan mannskap eigum
við að vera á meðal fjögurra
bestu. Meiðslin útskýra ekki allt
og leikmenn verða að fara að
líta í eigin barm. Ég átti gott
samstarf við O'Leary en Vena-
bles er miklu fjarlægari og talar
lítið við mig. Er ég var valinn í
franska landsliðið setti Vena-
bles mig á bekkinn og svo út úr
hópnum án útskýringa," sagði
Dacourt og ljóst aö hann er
fjarri því að vera sáttur með
stöðu sína hjá liðinu. Hann gæti
þó glaðst yfir því að meiri líkur
en minni eru á því að hann fari
frá félaginu í janúar þegar leik-
mannamarkaðurinn opnar á ný
en Leeds verður að selja leik-
menn sem fyrst til að laga bága
fjárhagsstöðu félagsins og er því
spáð að Dacourt verði meðal
þeirra fyrstu sem verða seldir.
Heskey til
Spurs?
Greint var frá því í enskum
fjölmiðlum í gær að Glenn
Hoddle, stjóri Tottenham, væri
að undirbúa tilboð í Emile
Heskey, framherja Liverpool, og
að hann vilji fá hann í janúar
þegar leikmannamarkaðurinn
verður opnaður á nýja leik.
Heskey, sem er dýrasti leikmað-
ur Liverpool, hefur mátt sitja
löngum stundum á bekknum í
vetur þar sem Gerard Houllier,
stjóri Liverpool, hefur oftast
kosið að tefla fram Tékkanum
Milan Baros með Michael Owen
i framlínu liðsins. Hoddle er
greinilega farinn að huga að
framtíðinni því samningur
Teddy Sheringham rennur út
næsta sumar og Les Ferdinand
er einnig á förum frá félaginu.
O'Neil ekki
til Stoke
Ekkert verður af því að Brian
O'Neil, fyrrum landsliðsmaður
Skotlands, gangi til liðs við
Stoke en O'Neil hefur æft með
Stoke undanfarið í von um
samning. Forráðamenn Stoke
buðu O'Neil reyndar skamm-
tímasamning en hann sætti sig
ekki við það og því hefur hann
ákveðið að leita á önnur mið.
-HBG
Ferill Fowler
var í hættu
Þau meiðsli sem Robbie Fowler,
framherji Leeds, hefur verið að
glíma við undanfarna mánuði voru
svo alvarleg að hann þurfti næstum
því að leggja skóna á hilluna að því
er Dave Hancock, sjúkraþjálfari
Leeds, segir. Fowler meiddist upp-
haflega á mjöðm í apríl síðastliðn-
um. Meiðslin versnuðu síðan á HM
í sumar og fór Fowler í uppskurð að
HM loknu. Hann spilaði svo á ný í
október en varð að fara af velli eftir
klukkutíma leik og gat hann ekkert
æft næstu fimm vikurnar. Hancock
segir að ef ekki væri fyrir dugnað
og ákveðni Fowler þá hefði hann
væntanlega þurft að leggja skóna á
hilluna. Fowler hefur leikið tvisvar
með varaliðinu undanfarið og hann
spilaði einnig síðustu tíu mínúturn-
ar gegn Charlton um síðustu helgi
og því stutt í að hann nái fullum
styrk og fari á fullt með félögum
sínum i Leeds sem veitir svo sann-
arlega ekki af aðstoðinni.
-HBG
.^QNC^o
Robbie Fowler hefur verið lengi frá vegna erfiðra meiðsla en nú horfir
allt til betri vegar hjá honum. Reuter
Má bjóda þér sœti
Frábœrtúrvalaf
sófum,
sófaborðum,
bordstofubordum
skápum,
gjafavörum og fl.
3jasœtasófi
Verð áður kr.104.900
Spennandi gjafavörur
Sófaborð
stærðir: 60x60x40/80x80x40
Verð frá stgr. kr.
virka daga kl.10-18
Laugardaga kl. 11-16
Sunnudaga kl. 13-16
V
Bæjarlind 6 - 201 Kópavogi - S. 554 6300
J