Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2002, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2002, Qupperneq 40
AA Helgarblctö H>V LAUGARDAGUR V. DESEMBER 2002 ««11 .— Óhreinu • á Hlemmi : Olaíiir S\einssim kvik- niyiulíi!>erOiinn:idiir liefm ijcrt lieiniiÍlIíiriiiyncl 11111 lífirt :i 11 leiniui eu llleiiini- ur er :mn:i(> lieimili fiilks sem íif ýiiisiiin nsliei'iiiin steiulur :í jaiiri íslensks saiiifélaýs. I)\ -uivml I..< >1. Ólafur Sveinsson ætlaði einu sinni að verða rithöfundur en hann gerir heimildar- mgndir. Hann hefur gert umtalaðar kvik- mgndir um líf á bensínstöð íBerlín, líf braggabúa f Regkjavík og 12. desember verður frumsgnd heimildarmgnd eftir Olaf sem heitir Hlemmur og Igsir lífi útigangs- og utangarðsfólks íRegkjavík. þar sem við sitjum inni á kaffihúsi rétt við Hlemm. „íslendingar ganga meö þá imynd að þeir séu ekki bara hamingjusamasta þjóð í heimi heldur séu hér ekki til vandamál eins og þau sem fjallað er um í myndinni og ef þau eru til þá séu þau áreiðanlega ekki eins og í erlendum stórborgum vegna þess að hér komi fjölskyldan alltaf til hjálpar. Þetta er alrangt, og það kemur skýrt fram í mynd- inni, því þó að i sumum tilvikum séu fjölskyldurnar til staðar og allar af vilja gerðar þá ráða þær einfald- lega ekki við aðstæðurnar. Álagið á fjölskylduna verður alltof mikið og þess utan er ekki hægt að þvinga menn til að leita sér hjálpar. Þeir verða að vilja það sjálfir." í kvikmyndinni Hlemmur er fylgst meö lífi nokk- urra persóna sem halda til og lifa sínu lífi að meira eða minna leyti á strætisvagnabiðstöðinni á Hlemmi. Þarna bregður fyrir mörgum litríkum per- sónum sem eiga þó allar það sameiginlegt að standa með einhverjum hætti á jaðri samfélagsins. Kvik- myndin beinir einkum sjónum sínum að tveimur geðsjúklingum, tveimur útigangsmönnum sem drekka og strætisvagnabílstjóra sem hefur náö að endurreisa líf sitt eftir áratuga óreglu og svartnætti. Við fylgjumst með lífí útgangsmannanna sem sofa ýmist undir tré á Klambratúni rétt við vegg lista- safnsins eða á Hótel Hilton eins og þeir kalla Hverf- issteininn, kaupa kardimommudropa í Draumnum á Rauðarárstíg og kúgast á næsta bekk meðan þeir þröngva niður fyrsta sopa dagsins af dropum i app- elsíni eða með kóki. Þeir ganga sina leið eftir Rauðarárstígnum áleiðis niður á Hlemm sem er hjartað í lífi þeirra. Leið þeirra frá náttstað á Klambratúni liggur undir veggjum utanríkisráðuneytisins, Samkeppnisstofn- unar, heilbrigðisráðuneytis, Landlæknisembættis, lögreglustöðvar og eins ríkisbankanna. Skammt ofar í holtinu voru til skamms tíma til húsa tvö dagblöð. Samt er eins og við sjáum ekki þetta fólk fyrr en það birtist okkur á tjaldinu undir tónlist Sigur Rósar i átakanlegri heimildarmynd. Óhreinu bömin Upp í hugann kemur ósjálfrátt gamla þjóðsagan um óhreinu börnin hennar Evu sem ekki voru höfð til sýnis þegar gesti bar að garði. Er þetta útigangs- fólk hliðstæða hinna óhreinu bama okkar daga? „Þetta er ekki bara útigangsfólk því flestir fasta- gestanna á Hlemmi eiga sér fastan samastað en sam- líkingin hittir í mark og mér finnst það segja ansi mikið um samfélag okkar á íslandi," segir Ólafur Manneskjur, ekki vandamál - Ólafur vill samt taka það skýrt fram að kvik- myndin Hlemmur er ekki um vandamál heldur fjall- ar hún um manneskjur og heim sem við höfum fyr- ir augunum dags daglega en sjáum samt ekki. „Þetta ættu blaðamenn sem áður unnu hér uppi í Þverholtinu að vita. Það kannast margir við þessi andlit en í myndinni öðlast þau líf.“ - í myndinni bregður fyrir öllum árstíðum og margvíslegu veðri sem gefur til kynna að vinnsla myndarinnar hafi tekið alilangan tíma en Ólafur segir að tökur hafi alls staðið í fimm vikur sem skiptust milli vetrar og sumars. „Undirbúningur af minni hálfu hér heima stóð í 4-5 vikur og hugmyndina hafði ég fengið 1-2 árum áður.“ Sátum og biðum - Hvernig gekk þér að vinna traust þeirra sem koma fram í myndinni? „Það var mjög misjafnt. Ég þekkti engan fyrir og þegar ég kom heim til íslands 4-5 vikum áður en tökur hófust var ég búinn að tryggja mér leyfi SVR og talaði við starfsmennina á Hlemmi og sagði þeim hvað væri í bígerð. Siðan fór ég einfaldlega að koma þangað á hverjum degi og eyddi nokkrum timum í að fylgjast með. Svo færði ég mig upp á skaftið og fór að tala við einstaka menn og velja úr þá sem vöktu áhuga minn. Fyrst voru menn skeptískir en svo fór þeim að lítast vel á og samþykktu að vera með þang- að til við birtumst með myndavélina og tilheyrandi græjur. Þá hættu menn snarlega við. Þetta átti samt ekki við um útigangsmennina tvo sem eru í mynd- inni. Þeir stóðu við allt sem þeir höfðu sagt. Síðan tók langan tíma að vinna aftur upp traust manna eftir að viö mættum með vélamar. Á stund- um var ég farinn að óttast að okkur tækist ekki að klára myndina. Við sátum stundum dögum saman á Hlemmi með heilt upptökulið án þess að geta gert neitt annað en að bíða og vona. Þetta er annað heimiíi margs fólks og orðspor Hlemms er þannig að menn vilja ekki endilega tengj- ast þessum stað gagnvart samfélaginu þótt þetta sé þeirra annað heimili." Dauðinn býr bka á Hlerami - Ómar og Hannes eru tveir vinir sem eru saman á útigangi í Reykjavík og saga þeirra er sterkasti þráðurinn í myndinni. Þar virðist dauðinn vera sínálægur. „Það sló mig mjög þegar við áttuðum okkur á því hve dauðinn er nálægur þessu samfélagi. Frá júlí fram í febrúar dóu átta af fastagestunum á Hlemmi úr hópi útigangsmannanna og meðan við vorum að taka í þrjár vikur um sumarið dóu tveir þeirra. Þetta fólk deyr úr sjúkdómum sem tengjast neysl- unni. Hjartaáfoll, heilablóðfoll, lifrarsjúkdómar - þetta er algengast. Svo verða menn úti, þeir hverfa eða látast af völdum áverka sem stundum er ekki ljóst af hverju stafa.“ Það er hvergi skjól - Karlmenn virðast vera í miklum meirihluta á Hlemmi og konur sjást varla í myndinni. Ólafur seg- ist vera mjög undrandi á því hvernig búið er að úti- gangsmönnum i Reykjavík. „Þegar þessir kallar eru á því er þeim ekki hleypt inn í Gistiskýlið í Þingholtsstræti, það er ekkert skýli fyrir þá, ekkert athvarf nema lögreglustöðin, og það er ekki beinlínis hlutverk lögreglunnar að reka gistiheimili þó Hverfissteinninn sé kallaður Hótel Hilton á götunni. Það er ekkert nema gatan og sumur og vetur sofa þessir menn undir trjám í Öskjuhlíðinni, á Klambratúni, í bílhræjum eða nið- urníddum húsum í bænum. Það eru ágæt samtök eins og Samhjálp, Byrgið og fleiri sem reyna að hjálpa þessu fólki og það er eins og yflrvöld hafi hreinlega lokað augunum fyrir þessu vandamáli og skUið það eftir hjá lögreglunni. Menn vUja ekki sjá þetta. Það hentar þeim ekki.“ - Við sjáum eymd útigangsmannanna mjög átak- anlega í myndinni og Ólafur segir að þeir geri sér yf- irleitt skýra grein fyrir því að ef þeir haldi áfram þá bíði þeirra ekkert nema dauðinn. Hann líkir Ómari við síðasta geirfuglinn því hann segir að hann sé einn eftirlifandi af sinni kynslóð. „Drykkjumenn eru eitt og geðsjúkir eru annað en þeir eru oft á tíðum ekki síður skUdir eftir á ver- gangi. Það eina sem hefur virkUega verið viður- kennt sem sjúkdómur af þessu tagi á íslandi er drykkjuvandamál - sennUega vegna þess hve út-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.