Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2002, Page 41
LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002
4-5
I
•H
Helgctrblaci H>'V"
breitt það er. Þunglyndi
er líka mjög útbreitt og
þekktur fylgifískur alkó-
hólisma og má segja að
þunglyndi sé ekki síður
þjóðarveiki íslendinga en
alkóhólisminn.
Samt er það svo að
eina meðferðarúrræðið
sem er viðurkennt gegn
þunglyndi eru úrræði
geðlækna en sálfræðing-
ar berjast enn fyrir
samningum við Trygg-
ingastofnun."
Karakter í hundana
- Þegar maður horfir á
þessa mynd þá sér maður
glöggt að margt af þessu
ógæfusama fólki hefur
fengið margvíslega hæfi-
leika í vöggugjöf. Upp i
hugann kemur sérís-
lenskt orðatiltæki um að
það þurfi karakter til
þess að fara í hundana.
Ertu sammála því?
„Mér finnst sú undar-
lega speki eiga mjög vel
við marga sem koma
fram í myndinni. Þetta
eru miklir karakterar og
þess utan bráðskemmti-
legt fólk þegar maður
kynnist því betur. Flestir
eru mjög vel máli farnir, jafnvel yfir i það að vera
talandi skáld. Parið þroskahefta, Sigrún og Ragnar,
sem kemur fram í myndinni, eru yndisiegar mann-
eskjur og ég hef sjaldan eða aldrei kynnst fólki sem
er eins bjart og fallegt í kringtun. Þannig er það
langt í frá að dregin sé upp einhver sótsvört mynd af
þessum heimi á Hiemmi. í mínum augum eru þetta
hetjur sem halda áfram að berjast þótt lífið hafi í
mörgum tiivikum leikið það ansi grátt.“
Bókabrenna á fjalli
Ólafur er alinn upp í Hafnarfirði og ætlaði upphaf-
lega að verða rithöfundur og menntaði sig til þess en
kvaddi rithöfundarferil
sinn eftir eina bók með
táknrænni bókabrennu
og gjörningi uppi á fjall-
inu fyrir ofan Hlíð í
Gnúpverjahreppi. Þar
er gömul varða og við
hlið hennar var hlaðin
varða úr 2-3000 bókum
sem síðan var brennd til
grunna í miðnætursól-
inni og höfundurinn
hvarf, líkt og Fönix forð-
um, á vit kvikmynda-
náms í Berlín þar sem
hann hefur verið búsett-
ur síðan.
„Þetta var ógleyman-
leg stund og eftirminni-
leg. Ég gaf út eina bók í
litlu upplagi sem ég held
að sé algerlega ófáanleg í
dag. Ég vildi með þessu
kveðja landið, segja skil-
ið við rithöfundardraum-
inn og byrja upp á nýtt
en Hlíð á sterk ítök í
mér. Ég hálfólst þar upp,
var þar í 17 sumur, og
dvölin þar mótaði mig
heilmikið."
Hlemmur er mynd
númer tvö í trílógíu eða
þríieik sem Ólafur ætl-
ar að gera um Reykja-
vík, en hann hefur jafn-
framt nýlokið tökum
myndar númer tvö i trílógíu heimiidarmynda um líf-
ið í Berlín.
Spurður um viðfangsefni þriðju og síðustu mynd-
arinnar segist hann ekki hafa leitt hugann mjög mik-
ið að því en ýmsar hugmyndir séu í farvatninu.
„Hugmyndir koma til mín eftir ýmsum leiðum. Ég
leita þær ekki uppi heidur bíð eftir að þær komi tii
mín en ég gæti trúað að það væri skemmtilegt að
gera heimildarmynd um íslenskt viðskiptalíf. Ég
held að það sé lokaður heimur sem er knúinn áfram
af draumum og þrám og þar sé sérstæð menning sem
gaman væri að varpa ljósi á í kvikmynd,“ segir Ólaf-
ur að lokum. -PÁÁ
Ólafur ætlaði að verða rithöfundur en lagði feril sinn
formlega á hilluna með virðulegri athöfn uppi á fjalli
þar sem bækur í þúsundatali brunnu til ösku.
Skeifunni 6
Sími: 568 7733
epal@epai.is
www.epal.is
verslun fyrir fagurkera
k