Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2002, Síða 53
r
LAUG ARDAGU R 7. DESEMBER 2002
57
Honda FXC er fjögurra sæta smábíll sem kynntur var á bflasýningunni í Tokyo.
Fyrstu vetnisbílamir
á markað í Japan
Stórt skref var stigið í þróun vetn-
isbilsins á mánudag þegar Honda og
Toyota settu á markað fyrstu bíla
sína. Bílaframleiðendumir hafa látið
japönsk stjómvöld, auk nokkurra al-
menningsfyrirtækja í Bandaríkjun-
um, hafa fyrstu bílana sem nokkurs
konar tilraunaverkefni. Þetta skref
þeirra er það stærsta í fjöldafram-
leiðslu og sölu vetnisbíla fyrir al-
menning hingað til.
Dýr þróunarkostnaður
Fyrsta vetnisbíllinn kannast flestir
við en það var tunglbíllinn í Apollo-
áætluninni. Vetnisbílar ganga á efn-
arafali sem gengur fyrir vetni og súr-
efni og útblásturinn er aðeins vatns-
gufa og vatn, svo hreint að tunglfar-
amir drukku þáð. Margir bílafram-
leiðendur vilja koma vetnisbílum á
markað og miðast áætlanir við að þeir
byrji að leysa bensinbílinn af hólmi á
næsta áratugi. Aðalvandamálin við
markaðssetningu þeirra er hátt fram-
leiðsluverð og smíða þarf stöðvar
utan um vetnið. Sem dæmi um þetta
er hátt leiguverð þessara bíla til
japönsku stjómarinnar. Kaupleigan
mun kosta ráðuneytin 850.000 kr. á
mánuði fyrir fimm sæta Toyota
FCHV og 560.000 kr. fyrir fjögurra
sæta Honda FXC. Vetnisbílar eins og
þessir komast um 300 km á hverri
áfyllingu og ná allt að 150 km hraða.
Áætlað er að heimsframleiðsla á oliu
nái hámarki árið 2Ö20 og fari niður á
við eftir það. Það sem rekur þó frekar
á eftir mönnum með aö koma vetnis-
bílum á markað er sú staðreynd að
bílar em ábyrgir fyrir um þriðjungi
gróðurhúsaáhrifanna. Eitt besta dæm-
ið um að vetnið muni einhvem tím-
ann alveg taka við af olíunni eru þó
líklega miklar fjarfestingar arabískra
olíufúrsta í vetnisþróuninni. -NG
tuh ii i A ú Zhlonjdi
Svo sem fram hefur komið er
nú unnið að sögu bílsins á ís-
landi, en senn er öld liðin frá því
aö fyrsti bíllinn kom hingað til
lands. DV-bílar mun á næstimni
leggja hönd að þessu verki með
því að leita eftir upplýsingum.
Þeir sem vilja leggja hönd á plóg-
inn eru beðnir að hafa samband
við söguritara, Sigurð Hreiðar, í
síma 893 3272 eða senda honum
tölvupóst á netfangið
auto@simnet.is.
Fordson
Frá árinu 1935 og eitthvað
fram yfir síðari heimsstyrjöld
framleiddi Ford í Englandi vöru-
og sendibíla undir nafninu Ford-
son. Sendibílamir voru algengir
fiér á landi eftir stríð og gjaman
gerðir að hlýlegum heimilisbíl-
um með því að setja hliðarglugga
á farmrýmið og koma þar fyrir
sæti fyrir tvo til þrjá farþega.
Lítið hefur varðveist af góðum
myndum af þessum bílum, en
væru vel þegnar, ef einhver
kynni að eiga þannig myndir í
fjölskyldualbúminu.
Minna var um vörubílana, en
þó komu nokkrir þeirra hingað,
bæði fyrir og eftir stríð. Elstu
Fordson vörubílamir hér voru
með svipuðu sniði og aðrir Ford
vörubílar síns tima en síðar
komu frambyggðir Fordson vöru-
bílar. Vitaö er um hús af einum
slíkum á Austurlandi, sem þó
vantar á aðra hurðina.
Áhúgavert væri að fá góðar
myndir af Fordson vörubílum
eins og þeir voru meðan þeir
voru í fullu fjöri. Ennfremur
væri froðiegt að vita hvort nokk-
urs staðar eru til heillegri minjar
um þennan bíl heldur en hér er
sagt frá og birt mynd af. -SHH
Þetta hús af Fordson vörubíl stendur skammt frá þjóðvegi 1 á
Austurlandi, en þó þar sem lítið ber á. f þessum minjum mun vera
vél og gírkassi en grindin hefur verið skorin um þvert skammt aft-
an við húsið. Veit einhver urn heillegra eintak af svona bíl?
Helgo rbloö J3V
Mini sem hverfur
á sex sekúndum
I Bretlandi er væntanleg enn
„heitari" útgáfa Mini Cooper S sem
er hvorki meira né minna en 200
hestöfl. Það er mikið i bíl sem er
rétt um tonn að þyngd. Það er hið
þekkta tjúningarverkstæði John
Cooper Works sem mun sjá um
breytinguna og allt með samþykki
BMW. Cooper hefur smíðað
kappakstursbíla síöan 1940 og fyrir-
tækið á heiðurinn af því að breyta
venjulegum Mini-bilum í alvöru-
kappakstursbíla á sjöunda áratugn-
um, en þaðan kemur einmitt
Cooper-nafnið. Vélin fær nýtt hedd
og stærri forþjöppu og togið eykst
líka upp úr 210 Nm í 253 Nm. Bíll-
inn, sem verður sex sekúndur í
hundraðið, kemur á markað á
næsta ári.
Fimm dyra Mini?
BMW er einnig að hanna fimm
dyra Mini, segja kjaftasögumar, en
mikil leynd hvílir yfir þeim áform-
um. Nýja útgáfan gæti komið á
markað eftir tvö ár en hann verður
líklega á lengdum undirvagni til aö
koma fyrir aukahurðunum. Aukið
rými myndi þýða að hægt væri að
koma fyrir betri aftursætum í stað
bekkjarins sem er þar í dag og
einnig myndi farangursrými aukast
til muna. Mini var upphaflega
hannaður aftur til að koma í fjöl-
mörgum útgáfum, meðal annars
blæjuútgáfu, og hugsanlega þessum
funm dyra bíl sem myndi minna á
hiirn vinsæla Traveller af gömlu
gerðinni. -NG
Breyttur Suzuki fyrir
hreyfihamlaða
Suzuki hefur alltaf haft nokkra
sérstöðu á bílamarkaði sem fram-
leiðandi lítilla og traustra smábUa,
þótt þeir framleiði reyndar lika
jeppa í fullri stærð. Nýjasta sérstað-
an hjá Suzuki er þó Life bíllinn sem
er sérhannaður utan um þarfir
hreyfihamlaðra en hann er sam-
vinnuverkefni Suzuki og bUahönn-
uðarins Mike HoUand. Hann var
fljótur að sjá þennan mögiUeika í
bílnum þegar kassalaga smábUar
Suzuki fóru að koma á markað. „Það
er mikið um stóra og dýra sendibUa
sem breytt hefur verið fyrir hreyfi-
hamlaða en enginn þeirra býður upp
á jafn mikla hagkvæmni og þessi,“
segir HoUand. BUlinn er handstýrð-
ur og með fjarstýrðri opnun á aftur-
hlera sem jafnframt er rampur. Það
er meira að segja pláss fyrir tvo far-
þega og varadekk inni í bílnum. Þeg-
ar hafa verið pantaðir yfir 100 bUar
en frekari upplýsingar má finna á
www.jubUeeauto.co.uk. -NG
Audi TT með nýrri vél
og skiptingu
Audi hefur lyfí hulunni af fyrstu
gerð TT Coupé sem verður með 6
strokka 3,2 lítra vél. Sjálfskiptingin í
bílnum er byggð á nýjustu tækni og
sameinar Audi þar þægindi hefð-
bundinnar sjálfskiptingar og eigin-
leika 6 gira beinskiptingar. Skipting-
in byggist á tölvustýrðu kúplings-
kerfi og er henni skipt í tvö svæöi.
Fyrsti, þriðji, fimmti og bakkgír eru
á „innra svæði" og annar, fjóröi og
sjötti á „ytra svæði“. Skiptingin á
sér stað í tveimur þrepum. Þegar nýr
gír er valinn velur skiptingin nýjan
gír en kúplar ekki frá. Þegar bestu
aðstæður fyrir skiptingu nást sér
kúplingin um að skipta um gir. Það
gerist undir miklum þrýstingi og
heldur vélin stöðugu afli allan tim-
ann. Sjálfskiptingin byggist á tækni
sem þróuð hefur verið í mótorsporti
og var fyrst prófuð af Walter Röhrl í
Audi Sport Quattro Sl árið 1985.
Skiptingin hefur verið hönnuð til að
þola allt að 350 Nm snúningsvægi.
Nýja 3,2 lítra vélin skilar um 250
hestöflum og hámarkstogi 320 Nm
við 2.800-3.200 sn./mín. Hröðunin frá
1-100 km/klst. er 6,4 sekúndur og há-
markshraðinn er takmarkaður við
250 km á klst. Að öðru leyti er lítið
um útlitsbreytingar á Audi TT, enda
bíllinn mjög framúrstefnulegur. Loft-
inntök að framan hafa þó aðeins ver-
ið stækkuð og vindskeið á afturenda
til að auka stöðugleika. Bíllinn kem-
ur á markað í Evrópu um miðbik
næsta árs.
Suzuki Ignis GL 4x4
Skr. 11/00, ek. 30 þús.
Verð kr. 1190 þús.
Baleno Wagon 4x4
1/99, ek. 79 þús.
Verðkr. 1170 þús.
Opel Astra GL station, sjsk.
Skr. 4/98, ek. 99 þús.
Verð kr. 750 þús.
isuzu Trooper 3,0, dísil, bsk.
Skr. 4/99, ek. 64 þús., 35” dekk.
Verð kr. 2490 þús.
Nissan Primera Comfort, bsk.
Skr. 7/01, ek. 25 þús.
Verð kr. 1490 þús.
Sjáðu fleiri á suzukibilar.is
$ SUZUKI
---////---------——
SUZUKI BÍLAR HF.
Skeífunni 17, sími 568-5100
Suzuki Baleno GLX, 4dr., bsk.
Skr. 8/99, ek. 39 þús.
Verð kr. 1150 þús.
-í -«
Suzuki Vitara V-6, sjsk.
Skr. 10/97, ek. 85 þús.
Verð kr. 1290 þús.
Suzuki Grand Vrtara 2,0, bsk.
Skr. 11/98, ek. 87 þús.
Verð kr. 1490 þús.
Suzuki Grand Vrtara 2,7 XL-7
33" breyttur, Skr. 9/01, ek. 4 þús.
Verð kr. 3690 þús.
Suzuki Jimny JLX, bsk.
Skr. 6/02, ek. 15 þús.
Verð kr. 1480 þús.