Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2003, Qupperneq 2
2
LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2003
DV
Fréttir
Formaöur Framsóknarflokksins segir aö tími uppskerunnar sé runninn upp:
Vill umlangsmiklar skattalækkanir
- segir þær forsendu fyrir þjóðarsátt um stöðugleika
DV-MYND HARI
Svigrúm til skattalækkana
Halldór Ásgrímsson segir aö nú sé komiö að tíma uppskeru vegna aukins
hagvaxtar og leggur til lækkun tekjuskatts einstaklinga úr 38,55% í 35,20%.
Uppbygging stóriðju á Austur-
landi og á Grundartanga skapar
ekki einungis á þriðja þúsund
nýrra starfa heldur einnig skil-
yrði til mestu skattalækkana um
árabil, sagði Halldór Ásgrímsson,
formaður Framsóknarflokksins, í
setningarræðu sinni á flokksþingi
í Þjóðleikhúsinu í gær. Halldór
mælti þar fyrir hugmynd að
skattalækkunum sem hann sagð-
ist telja aö gæti orðið eitt af lykil-
atriöunum í stefhumótun flokks-
ins fyrir næsta kjörtímabil, þótt
það væri vitaskuld flokksþingsins
aö taka nánari afstöðu til hennar.
Skattar aftur um 15 ár
„Nú er komið að tíma upp-
skeru,“ sagði Halldór eftir að hafa
rifjað upp baráttu flokksins fyrir
stóriðju og einkavæðingu. Hann
sagði að vegna hins aukna hag-
vaxtar sem stóriðjuframkvæmdir
fælu í sér myndi ríkissjóður hafa
úr um 20 til 25 milljörðum krón-
um meira að spila á næsta kjör-
tímabili en ella. Almenningur ætti
að njóta stærsta hluta þessara
auknu tekna.
Því lagði hann til að svigrúmið
yrði notað til þess að lækka tekju-
skatt einstaklinga úr 38,55% í
35,20%, eða sama hlutfaU og tekju-
skatturinn var þegar staðgreiðslu-
kerfi skatta var innleitt.
Jafnframt að dregið yrði veru-
lega úr tekjutengingu barnabóta,
til dæmis með því að ótekjutengd-
ar barnabætur yrðu teknar upp
með öllum börnum en ekki aðeins
sjö ára og yngri.
15 milljarða kaupmáttur
Halldór sagöi að gera mætti ráö
fyrir að tekjur ríkissjóðs myndu
minnka í kjölfarið en kaupmáttar-
aukning almennings yrði um
fimmtán milljarðar króna. Þrátt
fyrir það væri nægilegt svigrúm
til að verja og viðhalda öflugu vel-
ferðarkerfi.
Hagfræðingar hafa varpað fram
efasemdum um réttmæti þess að
lækka skatta í ljósi þess að útlit sé
fyrir vaxandi hagvöxt á næstu
misserum. Halldór segir að um
flókið samspil sé að ræða.
„Þetta fer eftir því hvernig
gengið er og hvernig kjarasamn-
ingar verða, en ég tel að slík
ákvörðun [um skattalækkanir] sé
forsenda skynsamlegra kjara-
samninga og stöðugleika í gengis-
málum, þannig að ég tel að útspil
sem þetta af hálfu ríkisins, hverj-
ir sem verða í ríkisstjórn, sé for-
senda þjóðarsáttar um stöðug-
leika.“
Tækifæri sem aldrei fyrr
Engin leið er að segja til um
tímasetningu slíkra ákvarðana að
sögn Halldórs. „Þetta þarf að vera
samspil við kjarasamninga og
hagsveifhma. Það getur enginn
fullyrt um það nákvæmlega en
mesti uppgangurinn verður á
seinni hluta tímabilsins. Ég tel að
hann verði það mikill að hægt
verði að fullyrða að hann verði
varanlegur. Það er að sjálfsögðu
ekki hægt að lækka skatta ein-
göngu til skamms tíma. Þeir verða
ekki lækkaðir af neinu viti nema
skapast hafi varanlegur grund-
völlur í efnahagslífmu og ég tel að
að allar aðstæður séu til þess að
svo verði."
Halldór segist aldrei hafa verið
sáttur við að skattprósentan
skyldi hafa hækkað frá því að
staðgreiðslukerfið var tekið upp.
„En þetta er í fyrsta skipti sem ég
sé virkilega tækifæri til þess að ná
þessu markmiði og ég tel að við
eigum að grípa það. Ég er þeirrar
skoðunar að það geti skapað mjög
góða sátt um stöðugleikann hér á
næstu árum.“
ESB-ákvöröun ótímabær
Halldór sagðist telja ótímabært
að Framsóknarflokkurinn tæki
endanlega afstöðu til þess á þing-
inu hvort og þá hvenær væri rétt
að sækja um aðild að ESB. Til
þess væru óvissuþættirnir of
margir og umræðan of óþroskuð.
Hins vegar væri nauðsynlegt að
halda umræöunni áfram til þess
að vera við öllu búin.
Halldór nefndi líka að Fram-
sóknarflokkurinn þyrfti að eign-
ast sæti í stjórn Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna. Ólíðandi
væri að LÍN fengi ítrekað yfir sig
áfellisdóma frá Umboðsmanni Al-
þingis og endurskoða þyrfti kröfur
um ábyrgðarmenn.
Halldór ræddi um mikilvægi
eftirlitsstofnana á fjármálamark-
aði og lagði áherslu á að þær væru
ekki undir pólitískri stjóm heldur
tækju sjálfar ákvarðanir um rann-
sókn mála. -ÓTG
Hjón í Hvammi í Skaftártungu áttu fótum fjör aö launa í miklu þrumuveöri:
Neistaflug þegar símiim eyðilagðist
„Við hjónin vöknuðum í morg-
un við þrumur og eldingar og
byrjuðum strax á þvi að taka allt
úr sambandi. Við urðum hrein-
lega of sein að ná í tölvuna og nú
er hún sennilega ónýt. Síðar um
daginn átti maður svo hreinlega
fótum sínum f]ör að launa þegar
síminn eyðilagðist. Þá varð mikið
neistaflug og læti og tilheyrandi
brunalykt fylgdi í kjölfarið," sagði
Jónína Jóhannesdóttir, íbúi á
bænum Hvammi í Skaftártungu, í
samtali við DV í gær. Hvammur
er einn fjölmargra bæja í grennd
við Kirkjubæjarklaustur sem fóru
illa út úr þrumuveðri sem skall á
rétt eftir klukkan sjö í gærmorgun
og gekk síðan með hléum fram eft-
ir degi. Eldingar skullu á jörðinni
og ollu skammhlaupum í raf-
magnskerfum svæðisins. Símalín-
ur á svæðinu urðu verst úti og
óttast er að tölvur með intemet-
tengingar hafi margar skemmdst.
Jónína segir að eldingar séu
Stuttar fréttir
Forvarnarstarf eflt
Embætti ríkislögreglustjóra og
Námsgagnastofnun hafa, í sam-
vinnu við Lögregluskóla ríkisins,
gefið út kennsluefni fyrir lögreglu
til að nota við fræðslu í leikskól-
um, skólum og fyrir foreldra á
landinu öllu.
Tvö innbrot
Lögreglunni í Reykjavík var til-
ekki sjaldgæft fyrirbrigði á þess-
um slóðum og bætir við að mikið
af ómetanlegu efni hafi verið í
tölvunni.
„Þar er allt okkar bókhald og
fleira. Við ætlum að prófa að fara
með hana í viðgerð og sjá hvað
setur. En það er mjög slæmt að
ekki megi koma eldingar án þess
að öll rafmagnstæki hér séu í
hættu," segir Jónína.
Þau hjón hafa áður misst tölvu
vegna eldinga og fengu þau hana
kynnt um tvö innbrot í gær. Farið
var inn í húsnæði við Lækjargötu
þar sem 12 kassar af bjór voru
teknir ófrjálsri hendi. í Breiðholti
var brotist inn í bílskúr og þaðan
stolið logsuðutæki og loftpressu.
Málin eru í rannsókn.
Óhappabylgja
Á annan tug umferðaróhappa
urðu á höfuðborgarsvæðinu í gær
en í öllum tilfellum var um að
ræða smávægileg óhöpp.
Sorp á ferðinni
Fyrsti farmurinn af sjúkra-
hússorpi frá Akureyri er nú kom-
inn til eyðingar í sorpbrennslu-
stöðinni Funa á ísafirði.
ekki greidda í gegnum tryggingar.
Jónína segist þó vona að hún fái
þessa bætta.
Eins og áður segir þurftu fleiri
íbúar á þessu svæði að þola tjón,
en tölvur og faxtæki skemmtudst
á bæjunum Flögu og Hunkubökk-
um. Fleiri tilkynningar bárust til
tryggingafyrirtækja vegna
skemmdra rafmagnstækja og er
tjón af þessu tagi í flestum tilvik-
um tryggt. -vig
Embættum fækkað
Bogi Nilsson
ríkissaksóknari
leggur til að lög-
reglustjóraum-
dæmum verði
fækkað niður í
átta og verði
jafnmörg og hér-
aðsdómstólarnir
í landinu.
Mótmæla gistináttagjaldi
Samtök ferðaþjónustunnar mót-
mæla harðlega hugmynd nefndar
á vegum umhverfisráðuneytisins
um álagningu gistináttagjalds til
uppbyggingar fjölsóttra ferða-
mannastaða á íslandi.
Soöningin ekhi hækkað
Ný verðkönnun Samkeppnis-
stofiiunar sýnir að verð á fiski í
fiskbúðum og matvöruverslunum
á höfuðborgarsvæðinu hefur stað-
ið í stað frá því stofnunin kannaði
verö á fiski í sömu verslunum í
febrúar í fyrra. Þetta er mikil
breyting frá því sem áður var en
á árunum 1998-2002 urðu miklar
verðhækkanir á fiski. Meðalverð á
ýsuflökum hækkaði þá um 70 pró-
sent á meðan vísitala neysluverðs
hækkaði um 21,4 prósent.
Meðalverð á ýsuflökum með
roði í þessari könnun var 946
krónur en var 952 krónur í fyrra.
Ódýrasta ýsuflakið fékkst í Sjávar-
galleríi, Háaleitisbraut, þar sem
það kostaöi 840 krónur en dýrustu
ýsuflökin komu úr fiskborði Nóa-
túnsverslananna og þar kostuðu
þau 1048 krónur. Fiskbúðimar
reyndust selja ódýrari ýsuflök en
matvöruverslanimar.
Mesta breytingin á meðalverði
milli ára var 8 prósent lækkun á
stórlúðu í sneiðum. Mesta hækk-
unin var hins vegar á nýjum
karfaflökum með roði eða 4 pró-
sent. -hlh
Fíkniefnafundur á
Siglufirði
- fjóröa máliö á árinu
Lögreglan á Siglufirði lagði í
gær hald á 2 grömm af kannabis-
efnum sem fundust í pakka sem
ungur maður fékk sendan með
pósti frá Reykjavík. Þetta er fjórða
flkniefnamálið sem kemur upp á
Siglufirði á árinu en áriö 2002
kom einungis upp 1 flkniefnamál.
í tveimur síðustu tilfellunum tókst
lögreglunni að komast inn í send-
ingar. Eitt tilfelli kom upp við
húsleit og hið fjórða þegar lögregl-
an handtók mann sem braust inn í
togara í janúar og var viðkomandi
með hass í fórum sínum. „Við urð-
um varir við i desember að eitt-
hvað væri í gangi og þetta er af-
rakstur þess“ segir Guðgeir Eyj-
ólfsson, sýslumaður á Siglufirði,
en segist ekkert geta sagt um það
hvort þessari hrinu flkniefnamála
á Siglufirði sé lokið. -ÆD
Lýst eftir vitnum
Laugardaginn 15. febrúar sl., á
milli kl. 18.30 og 19.00, varð um-
ferðaróhapp á Vesturlandsvegi,
ofan við gatnamót Vestur- og Suð-
urlandsvegar. Bílar sem voru á
norðurleið lentu þar saman hlið í
hlið. Þetta voru bíll af gerðinni
Hyundai Accent, grár að lit, og
bifreið sem ekki er vitað hver var.
Þeir sem urðu vitni að árekstr-
inum eru vinsamlega beðnir að
hafa samband við rannsóknar-
deild lögreglunnar í Reykjavík.
Ný álma
Skrifað var í gær undir samn-
ing um byggingu nýrrar álmu við
Fjölbrautaskóla Suöurnesja.
Vilja andmælafrest
Skeljungur og Ker hf., eignar-
haldsfélag Olíufélagsins Esso, hafa
óskað eftir fresti til að andmæla
hluta af niðurstöðu Samkeppnis-
stofnunar um meint samráð olíu-
félaganna þriggja.
Óvissa um síld
Allt er óvíst um hlut íslendinga
úr norsk-íslenska síldarstofninum
eftir að Norðmenn, Færeyingar og
ESB sömdu um veiðarnar í gær.
-hlh/vig