Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2003, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2003, Síða 12
12 LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2003 Helgarblað_________________________________________________________________________________________________DV Haítf Uppþot og óeirDir eru viövarandi á Haítí þar sem stjórnin er spiilt og vanhæf og stjórnarandstaöan sundurlaus og vanmáttug og má ekki á milli sjá hvor er vesælli. Langvarandi helstríð 200 ára lýðveldis Haítí mun á næstunni fagna 200 ára sjálfstæði því að fyrir tveimur öldum unnu þrælar sætan sigur á herliði Napóleons sem gætti þáver- andi nýlendu. Þar var stofnað fyrsta lýðveldi blökkumanna. Það er nú fá- tækasta og aumasta ríki í Vestur- heimi og stefnir í fullkomna óreiðu og hrun. Það er sama hvert litið er í land- inu, stjómendur er spiiltir og úr- ræðalausir og pólitískir flokkar varla annað en glæpasamtök sem eru einskis megnug til að bæta ástandið. Það sem heldur samfélag- inu saman er að óreiðan og stjóm- leysið er sjálfu sér samkvæmt og enginn býst við að þar verði nokkur breyting á. í engu landi í gjörvallri Ameríku er alnæmi útbreiddara, vannæring algengari né barnadauði eins mikill. Á Haítí ríkti löngum gerræðislegt einræði og þeir Duvalier-feðgar, sem öllu réðu, litu á þegna sína sem þræla og ríkissjóðinn sína einka- eign og þar með alla erlenda aðstoð sem landið fékk. Þegar Papa Doc féll frá tók sonur hans, Baby Doc, við og héldu þá sumir að ástandið færi að skána en strákur var enginn föður- betrungur og endaði stjórnarferill hans með því að hann var hrakinn frá völdum með góðri aðstoö Banda- ríkjanna. Hann býr nú í Bandarikjunum og lifir í vellysting- um praktuglega. Einræðið lognaðist út af 1986 og við tóku flokkar sem kenndu sig við alþýðu og verkalýð og séra Jean-Bertrand Aristide gerð- ist leiðtogi landsins. Á sínum tíma var mikið látið með Aristide og fjölmiölar vestra og bandariskir stjórnmálamenn töldu að þama væri kominn hinn mikli frelsari sem leiða myndi þjóðina úr ógöngunum. Fyrrum stjórnarherrar og hershöfðingjar vom gerðir út- lægir og heimspressan lýsti þeim sem hinum verstu úrhrökum. En brátt sótti í gamla horfið; Aistide reyndist álíka vanhæfur til að stjóma og fyrirrennarar hans og spillingin var engu minni en í tíð Duvalier-feðganna. Gekk á ýmsu um stjómarfarið og stjórnarherra. Aristide komst aftur til valda eftir vafasamar kosningar 2000. Þar sem lýöræðið þótti vera fótum troðið var hann ekki viðurkenndur leiðtogi og erlendri aðstoð við þjóðina var hætt. Bandaríkin hafa löngum talið sig eiga einhverjum skyldum að gegna við Haítíbúa og árið 1994 sendu þau 21 þúsund manna herlið til eyjar- innar til að koma þáverandi eftir- læti sínu, Aristite, aftur til valda en þá var búið að hrekja hann frá. Þá átti að endurvekja lýðræðið eftir þriggja ára ógnarstjórn valdaræn- ingja. Einsýn viöhorf Afskipti bandaríska hersins fóra öll i handaskolum og í stað þess að „endurreisa" lýðræðið á Haiti, eins og til stóð, varð ástandið enn rugl- ingslegra og mismunandi flokkar og klikur reyndu að notfæra sér ástandið til að ná einhverjum völd- um og aðstöðu til að taka þátt í spill- ingunni. Þótt áhrif afskipta Bandaríkja- hers væru skammæ var stjórnin í Washington mjög upptekin af þeim. Warren Christopher, sem var utan- ríkisráðherra Bandarikjanna á þeim tíma, skrifaði í New York Times á gamlársdag sl. að stjóm Clintons hefði ekki verið fær um að kljást við hættuástand erlendis nema á einum stað í einu. Á þeim tíma héldu Bandaríkjamenn einmitt úti tveim herleiðöngrum samtímis, i Bosníu og á Haítí. Það varð til þess aö enginn gaumur var gefmn að slátruninni miklu í Rúanda. Af svipaðri ástæöu tekur stjórnin í Washington ekkert eftir því að allt er komið í bál og brand í nágranna- ríkinu Haítí þar sem einsýni henn- ar beinist einvörðungu að írak og einræðisherranum þar. Ekki er dropa af olíu aö fmna í lögsögu Haítís og verðmætasköpun í landinu er nánast engin. Bátsfarm- ar af flóttamönnum frá Haítí koma nær daglega að ströndum Flórída þar sem bróðir Bush forseta, Jeb, ræður ríkjum. Hann reynir að spoma við síauknum flóttamanna- straumi og ekki síður eiturlyfja- smygli frá Kólumbíu en um 15% alls kókaíns sem flutt er út þaðan til Bandarikjanna fer um Haítí. Kóka- Verkföll og uppþot eru tíð og átök milli stjórnar- andstæðinga og stuðn- ingsmanna Aristide stundum blóðug og mannskæð. Hœkkun olíu- verðs, sem var óhjá- kvœmileg þegar stjórnin gat ekki lengur greitt nið- ur eldsneyti, olli miklum óróleika og varð til þess að verðlag á nauðsynjum rauk upp úr öllu valdi og fátæktin er sárari en nokku sinni fyrr. ínsmygl er því einn arðbærasti at- vinnuvegur „lýðveldisins". Stjórnarandstæðingar eru tvístr- aðir í mörgum flokkum og eiga það eitt sameiginlegt að krefjast afsagn- ar Aristide en ekki virðist nokkur leið að fá þá til að sameinast og styrkja lýðræðislegt stjómarfar. Samtök Ameríkuríkja reyna að hafa einhver áhrif á pólitíkusa og efna- hagslega þróun á Haiti en án árang- urs. Vandræðaástandið heldur áfram, eymdin eykst og enginn mannlegur máttur virðist geta breytt nokkru þar um. Verkföll og uppþot eru tíð og átök milli stjómarandstæðinga og stuðn- ingsmanna Aristides eru stundum blóðug og mannskæð. Hækkun olíu- verðs, sem var óhjákvæmileg þegar stjómin gat ekki lengur greitt niður eldsneyti, olli miklum óróleika og varð til þess að verðlag á nauðsynjum rauk upp úr öllu valdi og fátæktin er sárari en nokku sinni fyrr. í lok síðasta árs voru ólæti óvenjumikil í landinu og útlit var fyrir að Aristide hrökklaðist frá völdum og yrði að flýja land eins og Duvalier gerði 1986. En þegar „Baby Doc“ tilkynnti í bandarískri sjónvarpsstöð í desem- ber sl. að hann hygðist snúa aftur til Haití og setjast í forsetastólinn og koma á röð og reglu i landinu ákvað Aristide að sitja sem fastast. Hann sakar nú alþjóðasamfélagið um að hafa sett viðskiptabann á landið en það kallar hann þá ákvörðun Bandaríkjamanna og annarra að hætta efnahagsaðstoð við þessa höktandi ríkismynd í Vestur-Indí- um. Hann þykist nú undirbúa kosn- ingar sem til stendur að halda á þessu ári. En stjómarandstaðan, ef hægt er að kalla sundurleita flokka og klíkur því nafni, er ólíkleg til að sigra í kosningum og ófær um að taka við stjómartaumum þótt for- setinn falli. Allt mistekst Samtök Amerikuríkja efast um að hægt verði að halda kosningar á ár- inu. Ráðamenn á Haítí hafa ekki staðið við neinar skuldbindingar um að virða lýðræði og mannrétt- indi og þeir hópar sem sett hafa sig upp á móti stjórn Aristide þykja ekki líklegir til að koma saman starfhæfri ríkisstjóm eða bæta hag landsmanna né virða lýðræðishefð- ir eöa mannréttindi. Fæstir treysta mannætuher þeirra, sem nú herjar, til að halda uppi lögum og reglu þótt stjómarskipti yrðu. Það eitt að einn af fyrrverandi hershöfðingjum Duvaliers er orðinn einn af leiðtogum þeirra sem steypa vilja forsetanum af stóli setur ugg að þeim fáu erlendu sendiherrum sem enn sitja á Haítí og er ekki síst hrollur í starfsfólki bandaríska sendiráðsins í höfuðborg hrynjandi ríkis. Andstæðingar forsetans gerðu til- raun í síðsta mánuði til að lama allt athafnalíf með áskorunum um alls- herjarvekfall, svipað og var í Venes- úela um svipað leyti. En það rann allt út í sandinn. Opinberir starfs- menn mættu á vinnustað og unnu með hangandi hendi eins og venju- lega og sú starfsemi sem kallast at- vinnuvegir víðast hvar gekk sinn vanagang eins og smyglið og aðrar fjáröflunaraðferðir sem stundaðar eru í landinu, löglegar sem ólögleg- ar. Ef svo heldur sem horfir mun hel- stríð Haítís dragast enn á langinn. Séra Aristide forseti, sem áður var dýrkaður sem frelsari, lofaður há- stöfum í fjölmiðlum um allan heim og studdur með ráöum og dáð af Bandaríkjamönnum, er ekki orðinn annað en valdasjúkur bófi sem mun halda hátíð á árinu til að minnast 200 ára afmælis sjálfstæðs ríkis og frækilegs sigurs á hermönnum Napóleons vestur í Karíbahafi. (Heimild: Le Monde) Erlendar fréttir vikunn; slagínn Donald Rums- feld, landvarna- ráðherra Banda- ríkjanna, lýsti þvi yflr undir viku- lok að undirbún- ingurinn fyrir stríð gegn írak væri kominn svo langt að bandarískir og breskir hermenn væru reiðubúnir til átaka hvenær sem er. Bandaríkjamenn og Bretar eru að undirbúa drög að nýrri ályktun um íraksmálið sem þeir hyggjast leggja fyrir í Öryggis- ráði Sameinuðu þjóðanna i næstu viku, ályktun sem heimilar að grip- ið verði til hemaðaraðgerða. Á sama tíma hefur andstæðingum stríðs bæst liðsauki, leiðtogar lið- lega flmmtíu Afrikuríkja sem sátu fund með Jacques Chirac Frakk- landsforseta í París í vikunni. Dæmdup fyrir aðild Þýskur dómstóll dæmdi í vikunni 28 ára gamlan marokkóskan náms- mann, Mounir al- Motassadeq, til fimmtán ára fang- elsisvistar fyrir að- ild hans að hryðju- verkaárásunum á New York og Washington í september 2001. Dóm- stóllinn í Hamborg komst að þeirri niðurstöðu að al-Motassadeq hefði veitt hryðjuverkaklíku i borginni aðstoð þegar hún lagði á ráðin um að ræna farþegaflugvélum og fljúga þeim á World Trade Center og Pentagon. Sakborningurinn neitaði allri sök og verjendur hans hafa sagst ætla að áfrýja úrskurðinum. Mannfall á Gaza Israelskir her- menn hafa drepið á annan tug Palest- inumanna í átökum á Gaza undanfarna viku. Ellefu Palest- ínumenn féllu í hörðum bardögum á þriðjudag og dag- inn eftir hefndu liðsmenn skæru- liðasamtakanna Hamas félaga sinna með þvi að skjóta heimatil- búnum flugskeytum yfir til ísraels. Hermenn hafa nú skipt Gaza niður í þrjú öryggishólf til að koma í veg fyrir frekari eldflaugaárásir. Þá áforma ísraelar að reisa þriggja kílómetra langan steinmúr í Jer- úsalem til vemdar pílagrímum sem heimsækja gröf Rakelar. Mannskæð slys í Asíu Tvö mjög mannskæð slys urðu í Asíu í vikunni. Austur í Suður- Kóreu fórust á annað hundrað manns, hugsanlega fleiri, þegar geðtruflaður maður kveikti í eld- flmum vökva i mjólkurfemu og kastaði henni síðan inn í jarðlest- arvagn, fullan af fólki. Eldurinn breiddist út um alla lestina og yfir í aðra sem kom inn á annan pall á sömu stöð um svipað leyti. Þá fór- ust um þrjú hundruð manns í íran þegar herflutningavél, sem var að flytja liðsmenn úrvalssveita Bylt- ingarvarða, flaug á flall og sprakk. Talið er hugsanlegt að vont veður hafi átt þátt í slysinu. Snjókoma gerir lífið leitt Gríðarlegt fann- fergi gerði íbúum norðausturstrandar Bandaríkjanna lífið leitt í upphafi vik- unnar. AJlar sam- göngur lömuðust um tíma þegar margra tuga sentí- metra jafnfallinn snjór huldi jörð og þar sem mestur skafrenningurinn var mynduðust skaflar sem voru á annan metra á hæð. Tugir manna týndu lífi af völdum veðursins og varð að loka opinberumstofnunum og fyrir- tækjum, sums staðar í tvo daga. Kanar klarir í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.