Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2003, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2003, Page 20
20 H&lqa rblctö 13 "V" LAIIGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2003 George Harrison stóð í ströngu í dómsaln- um í átján ár vegna þess að hann var sak- aður um að hafa stolið laglínu My Sweet Lord úr laginu He’s so fine. „Guð minn góður“ Georqe Harrison i/ar árið 1971 sakaður um að hafa stolið laginu He’s so fine sem Chiffons sunqu á sjöunda áratuqnum oq qert úr þuílaq- ið Mq Sweet Lord. „Ég held að fólk sem lifír í tónlist sé að segja við heiminn: Þú mátt fá ást mína, brosin mín. Gleymdu slæmu hlutunum, þú þarft ekki á þeim að halda. Tak- ið bara tónlistina, gæðin, því það er það besta og það er sá hluti sem ég vil helst gefa af mér.“ Þessi orð féllu af vörum George Harrison fyrir margt löngu og voru rifjuð upp þegar hann lést i árslok 2001 á heimili vinar síns í Los Angeles eftir erfiða baráttu við krabbamein. George Harrison var hinn þögli Bítiil, feimni Bítill- The Practice inn, alvörugefni Bítillinn, sorgmæddi Bítillinn, langt frá því að vera Lennon eða McCartney. Þrátt fyrir þessa hófstilltu nærveru verða áhrif hans á tónlist Bítlanna seint ofmetin. Þekktustu lög hans eru While My Guitar Gently Weeps, Here Comes the Sun og Something en hið síðastnefnda sagði Frank Sinatra að væri „besta ástarlag sem samið hefði veriö“. Flestir kannast eflaust við lagiö My Sweet Lord sem fór á topp breska vinsældalistans fyrir rúmlega 30 árum. Þetta lag vakti miklar deilur á sínum tíma en Harrison var sakaður um að hafa stolið laginu en það þótti líkjast mjög laginu He’s so fine sem Chiffons gerðu vinsælt á sjöunda áratugnum. Á miðjum ní- unda áratugnum ræddi Harrison um eitt stærsta höf- undarréttarmál sem farið hefur fyrir dóm í heimin- um. Málið varð mjög flókið þótt það vefðist reyndar ekki fyrir dómara að úrskurða að lögin væru sláandi lík og að Harrison ætti að greiða rétthafa He’s son fine vegna My Sweet Lord. Það sem gerði málið hins vegar flókið var að lögmaður Harrisons, Allan Klein, kom við sögu báðum megin borðsins í málinu. Videysisgangur Það sem gerðist síðan var það að Klein og Harrison hættu samstarfi og Klein keypti fyrirtækið sem átti höfundarrétt að laginu He’s so fine. Hann hélt síðan áfram málarekstri á hendur Harrison og tók málarekst- urinn átján ár. í viðtali við Undercover sagði Ge- orge Harrison að málið hafi ekki haft nein áhrif á tónsmíðar hans. Hann sagðist vera mjög svekktur þegar hann riíjaði upp hvemig hann hefði verið svikinn af manni sem hann treysti. „Allt þetta mál er byggt á Allan Klein sem sá um Bítl- ana á árunum 1968 eða ‘69 til árins 1973. Þegar það var kvartað yfir „My Sweet Lord“ var hann framkvæmda- stjórinn minn. Hann var sá sem gaf lagið út og fékk 20% þóknun af tekj- um plötunnar og það var hann sem réð lögmennina sem vörðu mig og það var hann sem sagði í viðtali við Playboy að þessi tvö lög væru ekkert lík.“ Harrison sagði að dómari hefði talið að hann hefði ekki stolið laginu viljandi og því ætti að semja um það. Harrison rak Klein þegar hann komst að því að hann hafði farið á bak við hann í málinu. Viðbrögð Kleins við því voru þau að hann keypti höfundarréttinn að He’s so fine og hélt áfram málinu gegn Harrison. Málaferlunum lauk átján árum eftir að þau hófust með því að Harrison keypti höfundarréttinn að He’s so fine. „Við héldum mörgum lögmönnum í vinnu árum saman og gerum enn. Það er alltaf einhver vit- leysa í gangi.“ -sm Hallelúja Lagið He’s so fine var tekið upp árið 1962 en það var Ronald Mack sem samdi lagið og hljóðritaði það með Chiffons en árið 1971 eignaðist útgáfufyrirtækið Bright Tunes höfundarrétt að laginu. Lagið My Sweet Lord var samið árið 1969 þegar Harrison hélt ásamt fleirum tónieika í Kaupmannahöfn. Þá brá Harrison sér afsíðis og fór að rjátla við gítarinn og raula með orðin Hallelúja og Hare Krishna. Félagar hans komu síðan tii aðstoðar við að búa til textann. Lagið var klárað og tekið upp í stúdíói viku síðar. Lagið var síð- an gefið út á plötunni All Things Must Pass 28. nóv- ember 1970 og komst fljótlega í efsta sæti vinsælda- lista austan hafs og vestan. Eftir að það hafði verið fjórtán vikur á vinsældalista í Bandaríkjunum höfðaði Bright Tunes mál gegn Harrison og fyrir- tækjum hans fyrir stuid á laginu He’s so fine. Fljótlega hitti lögmaður Harrisons, Allan Klein, eiganda Bright Tunes og gaf þá i skyn að Harrison myndi vilja kaupa fyrir- tækið og þá tónlist sem það átti. Eig- andinn vildi hins vegar að George Harrison myndi gefa eftir höfundar- rétt lagsins og myndi i staðinn fá helminginn af tekjum sem lagið myndi skapa. Menn náðu ekki sam- an um samninga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.