Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2003, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2003, Side 27
LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2003 HelQarblað H>'Vr 27 Ég boröa talsvert mikið úti á kvöldin og fæ mér þá stundum í staupinu. Ég er sammála Tómasi Guðmundssyni um að það megi brennivínið eiga að það hefur ekki gert neinum manni mein að fyrra bragði. Ég er oft boðinn til vina minna í kvöldverðarboð og sit með þeim að spjalli yfir góð- um mat. Það sem ég sé helst eftir síðustu árin er að ég er ekki nógu duglegur við líkamsræktina sem ég stundaði í gamla daga. Nú eru aukakílóin að setjast á mig og ég verð að taka mér tak.“ Hvaöa manneskja helduröu aö hafi haft mest áhrif á þig um œv- ina? „Einna helst Fridrich Von Hayek og Karl Popper. Ég kynnt- ist ritum þeirra ungur að árum og hreifst af þeim þegar ég kynnt- ist þeim persónulega. Þeir mót- uðu mjög minn hugmyndaheim. Þeir eru eins og allir vita ein- hverjir merkustu hugsuðir tutt- ugustu aldar. Þú hefur kannski gaman af að heyra að ég flutti er- indi í Sydney í Ástralíu í desem- ber síðastliðnum um persónuleg kynni mín af þeim.“ En fyrir utan frœöimenn? „Ætli ég hafi ekki verið einna nánastur móður minni. Við höfð- um ólíkar stjórnmálaskoðanir því hún var óforbetranlegur framsóknarmaður en hún var af- skaplega heiðarleg og góð kona og fyrirtaks móðir sem bjó okkur sannkallað menningarheimili. Ég get sagt eins og Einar gamli Guð- finnsson: „Ég erfði ekki auð, ég erfði dygðir" - án þess ég ætli nú að telja mig sérstaklega dygðug- an.“ Tíminn er naumur Nú er ekki langt síöan móöir þín lést úr krabbameini. Hvernig er aö missa sína nánustu og breyt- ir þaö manni? „Það er dálítið til í því sem sagt er að enginn maður verði fullorðinn fyrr en hann missi báða foreldra sína. Sá missir verður manni umhugsunarefni vegna þess að þá áttar maður sig á því að maður sjálfur er dauð- legur. Maður gerir sér grein fyr- ir því að tíminn er naumur, þannig að það þarf að nýta hann vel. Þegar menn eru ungir finnst þeim að tíminn sé óendanlegur en hann er í rauninni það eina í lífinu sem er af skornum skammti. Allt annað geta menn útvegað sér. Menn geta öðlast peninga og efnisleg gæði en þeir geta ekki keypt sér mjög mikinn tíma í viðbót. Svo er annað sem menn sjá með því að stara fram- an í dauðann og sjúkdómana og það er hvérsu mikils virði heils- an er. Ég er við bærilega heilsu og þarf ekki að kvarta. Enn eitt sem menn gera sér grein fyrir þegar þeir missa sína nánustu er hvað það skiptir miklu máli að eiga góða fjölskyldu og eiga góða vini. Verðmætamat manna breyt- ist nokkuð.“ Mœtti ekki öörum þrœöi skil- greina þig sem fagurkera, alla- vega vita þeir sem þekkja þig að þú hefur yndi af fögrum hlutum. „Ég hef mjög gaman af ljóðum og vel orðaðri setningu, fögrum bókmenntum og listum. Ég hef gaman af því að ferðast. Ég hef gaman af góðu víni og góðum mat. Ég tel að það þurfi að vera ákveðið jafnvægi milli þessara þriggja höfuðgreina sem Jónas Hallgrímsson nefndi í kvæði sínu: „Hvað er langlífi? Lífs- nautnin frjóa, alefling andans og athöfn þörf‘. Ég skal fúslega játa það að ég hef ræktað lífsnautnina frjóu en ég hef líka reynt að van- rækja ekki aleflingu andans og athöfn þarfa.“ -KB bestu afsl. af pottasettum 30% afsl. af stökum pottum og ponnum Verð sem þú sérð aðeins hjá okkur! afsláttur Blástursofn með stálútliti, grillteini.hreinsi plötum o.fl Keramik helluborð með stálramma og snertitökkum. 4 hellur þar af ein stækkanleg Þú sparar kr. 51.000.- Verð áður kn 19.900, Listaverð kr. 134.900 Tilboðsverð aðeins kr. Stærð kælis/frystis: 205L/73L Litur: Hvítt - Fjögurra stjörnu frystir og stjornu trystir og sjalfvirk afþýðing á kælí Verð aðeins kr. Barkalaus þéttiþrurrkari CS9 m/rakaskynjara. Tekur 6 kg. Krumpuvörn, 2 hitastillingar, veltir í báðar áttir o.fl. Verð nú aðeins kr. 5 kg. þurrkari m/barka tímastilltur með krumöuvörn, Verð áður kr. 28.900,- Verð nú aðeins kr. @edesa Vinsæla ódýra uppþvotta venn með rafmagnsofni á frábæru verði Þetta er gaseldavél fýrirfólk sem elskar að vera f eldhúsinu. 4 eöa 5 gashellur. Fjölkerfa rafmagnsofn o.m.fl. Breidd 60 eða 90 cm Haeð: 93 cm - Dýpt: 60 cm Verð frá kr. Frábær uppþvottavél með 5 þvottakerfum (sparnaðarkerfi) 2 hitastillingar o.m.fl. - ANNO 1 929 - Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776 Fyrirspurnir: karl@ri.is virka daga kl. 9-18 Laugardaga kl. 11-16 Verð miðast við staðgr. afsláttur af öllum vöskum bæði úr stáli og graníti LV2393 Z-J EDESA ofn 2H175I EDESA hellub. 3VET132X Creda þurrkari NARDI gaseldavél Miðast við að greitt sé með Visa- eða Euroraðgreiðslum Vertu í beinu sambandi við þjónustudeildir DV - * * 'V jÞWr •St.-- V . ER AÐALNÚMERIÐ i n ,' jHr i Smáauglýsingar Auglýsingadeild Dreifing Þjónustudeild Ljósmyndadeild íþróttadeild 550 5700 550 5720 550 5740 550 5780 550 5840 550 5880

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.