Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2003, Side 41
LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2003
Helqarblctð X>V
45
■■■ -
i
£
Frægir grútarháleistar
og nískupúkar
Níska er eiginleiki sem flestir þola illa í
öðrum en sjá yfirleitt ekki ísjálfum sér.
Sumir eru svo nískir að þeir tíma ekki
í bókmenntum er aö fmna nokkra fræga nískupúka eins
og Scrooge í Jólaævintýri Charles Dickens og Jóakim von
And í Andrésblöðunum, sem heitir reyndar líka Scrooge á
ensku, svo tveir séu neíndir. Það eru þó ekki þess konar
nískupúkar sem fjallað verður um að þessu sinni því ætlun-
in er að líta á nokkra annálaða nískupúka af holdi og blóði.
Svelti sig til dauða
Englendingurinn John Elwes var alræmdur nirfill. Hann
var áberandi í opinberu lífi sem varð til þess að níska hans
vakti meiri athygli en ella. Elwes fæddist árið 1714 og hlaut
góða menntun. Fjögurra ára gamall erfði hann verulega
fjárhæð eftir fóður sinn. Móðir hans erfði lika verulega upp-
hæð en hún svelti sig til dauða vegna nisku.
Helsti áhrifavaldurinn í lifi Elwes var féfastur frændi
hans sem drengurinn reyndi að herma eftir í einu og öllu til
að öðlast viðurkenningu. Eftir að frændinn lést erfði Elwes
auðæfi hans og tók upp lífshætti níska frændans.
Þrátt fyrir ríkidæmið gekk Elwes einungis í lörfúm og
bar hárkollu sem hann hafði fúndið úti á götu. Til að losna
við að borga fyrir hestvagn gekk hann allra sinna ferða í
hvemig veðri sem var og ef það rigndi fór hann ekki úr
blautum fótum þegar heim var komið til að losna við að
kveikja upp í aminum og eyða eldiviði. Elwes var ótrúlega
nýtinn og fullnýtti allt. Hann át jafnvel úldnar matarleifar í
stað þess að fleygja þeim. Þetta gekk svo
langt að einu sinn át hann hálfrotnaða
ijúpu sem rotta hafði dregið upp úr for-
arpytti. Elwes vantreysti læknum og notaði
eigin ráð í stað þess að eyða peningum í
læknishjálp.
Elwes var kosinn á þing og sat þrjú kjör-
timabil án þess nokkum tíma að halda
ræðu. Eftir tólf ár sagði hann af sér þing-
mennsku til að þurfa ekki að standa undir
kostnaði við að halda sætinu. Eins og gefur
að skilja lagði hann ekki í neinn kostnað
við endurbætur á húsnæði og sat í eldhús-
inu með vinnufólki sínu til að spara hita-
kostnað í öðrum herbergjum. Ef hesta-
sveinn hans lagði hey hjá hesti einhvers
gestkomandi læddist Elwes út til að taka
það burt.
John Elwes átti tvo syni utan hjónabands
sem honum þótti afskaplega vænt um, en
tímdi þó ekki að senda þá í skóla, hann
sagði að menntun væri ekkl kostnaðarins
virði. Elwes lést 75 ára gamall og skildi eft-
ir sig væna summu sem synir hans notuðu
til að njóta lífsins.
Fötin duttu utan af honuni
Samtímamaður Elwes, sem hét Daniel
Dancer, gekk mun lengra í nísku en hann.
Faðir Dancers og afi vom aldræmdir nísku-
púkar og systir hans og tveir bræður vora
næstum því eins nísk. Dancer erfði sæmi-
Nomin á Wall Street
Þegar yngri sonur Hetty Green var
fjórtán ára slasaðist liann illa á
hné. Hetty reyndi fyrst að lijúkra
honuin sjálf en þegar það tókst
ekki klæddi hún hann í larfa og
fór með hann til læknis.
að kaupa sér mat og heimsækja ætt- m.
ingja og vini á matmálstímum ívon um
að fá ókegpis að borða. Aðrir tíma ekki
að gefa gjafir og koma sér undan því
með alls kyns afsökunum eins og tíma-
leysi eða að það sé of erfitt að velja
gjafirnar. Og svo eru þeirsem fara í
veislur með gjafir en eru búnir að
reikna fyrir fram hvað þeir ætla að
borða fyrir mikið og velja gjöfina með
það íhuga að koma út ígróða.
lega upphæð eftir fóður sinn en sá enga ástæðu til að eyða
henni. Systir Dancer var ráðskona hjá honum í þrjátíu ár
og á sunnudögum borðuðu þau einungis harðar hveitiboll-
ur sem entust oft út vikuna. Stundum lék þó lánið við
Dancer og systur hans, eins og þegar hann fann dauða rollu
í vegkantinum og systir hans gat nýtt hana í kjötbökur sem
entust þeim í tæpan mánuð.
Dance fór aldrei í bað, neitaði að láta þrífa húsið og þvoði
ekki fot sín, hann gekk í þeim í þar til þau duttu utan af
honum. Hann sinnti ekkert um að rækta akur sinn heldur
gekk um sveitina í leit að eldivið, beinum og kúaskít. Hann
forðaðist allan mögulegan kostnað.
Einu sinni sendi vinur Dancer honum mat sem var orð-
in kaldur þegar hann komst á leiðarenda. Eftir talsverðar
vangaveltur um hvemig hann gæti hitað matinn án þess að
kveikja eld setti Dancer matinn milli tveggja málmdiska og
sat á þeim eins og hæna, þannig hitaði hann matinn.
Dancer átti hund sem hann hélt mikið upp á en óttaöist
að verða fyrir fjárhagstjóni ef hundurinn réðist á nágranna.
Hann leysti vandann með því að láta rífa tennumar úr hon-
um. Dancer lifði í stöðugri hræðslu um að verða rændur og
brást við því með að fela peninga á ólíklegustu stöðum. Eft-
ir dauða hans voru menn öðm hvom að finna fé eftir hann
á undarlegum stöðum, til dæmist fannst væn summa í sorp-
haug við heimili hans.
Sníkti mat hjá leigjendunum
John Camden Neild fæddist árið 1780 og var sonur efhaðs
gullsmiðs. Hann erfði auðæfi foður síns þijátíu og fjögurra
ára gamall. Eina áhugamál Neilds var að auka við auðæfi
sín og honum tókst að tvöfolda þau áður en hann lést.
Neild gerði allt sem hugsast gat til að þurfa ekki að eyða
peningum. Hann bjó í stóm húsi, sem hann erfði eftir fóður
sinn, en húsgögnin vora úr sér gengin en hann tímdi ekki
að kaupa ný þannig að húsið stóð næstum autt. Um tíma
átti hann ekki einu sinni rúm. Hann klæddist lörfum og
tímdi ekki að kaupa sér hlý fot til að ganga í í köldustu veðr-
um og sníkti hann mat hjá leigjendum sínum.
Grútarháttur Neild var svo mikill að hann lét gera við
hriplekt þak kirkju á landareign sinni með ódýru bómullar-
efrii til að spara. Áður en hann lést ánafnaði hann Viktoríu
drottningu allar eigur sínar. Drottningin lét gera við kirkj-
una á viðeigandi hátt og setja í hana steindan glerglugga tO
minningar um Neild.
Nomin á Wall Street
Hetty Green fæddist árið 1834 og var dóttir auðmanns,
þrítug að aldri erfði hún foður sinn og varð vellauðug.
Tveimur árum síðar giftist hún milljónamæringi sem var
fjórtán árum eldri en hún. Þau eignuðust tvö böm.
Hetty var snjöll í viðskiptum og fjárfesti arðvænlega og
náði að tvöfalda auð sinn á skömmum tíma. Þegar best lét
græddi hún á einni klukkustund fjárhæð sem hefði nægt til
að framfleyta henni í heilt ár. Hetty var um tíma talin auð-
ugasta kona í heimi. Uppskrift hennar að auðæfum var ein-
fold: „Það sem maður þarf að kaupa - kaupir maður ódýrt.“
Hún þoldi ekki að eyða peningum i óþarfa. Þegar apótekar-
inn sagði henni að flaska af meðali kostaði tíu sent vegna
þess að flaskan kostaði fimm fór hún heim og náði í sína
eigin flösku. Eftir að hafa lesið dagblaðið sendi hún son sinn
út til að selja það.
Þegar yngri sonur hennar var fjórtán ára slasaðist hann
illa á hné. Green reyndi fyrst að hjúkra honum sjálf en þeg-
ar það tókst ekki klæddi hún hann í larfa og fór með hann
til læknis. Hún lét eins og drengurinn væri úr fátækra-
hverfi til að komast hjá því að borga fýrir læknishjálpina.
Nánasarhátturinn reyndist henni dýr því taka þurfti fótinn
af drengnum. Læknirinn sagði að auðveldlega hefði mátt
komast hjá því ef hjálpar hefði verið leitað strax.
Eins og aurasálum er tamt lifði Hetty í miklum ótta um
líf sitt og hafði sífelldar áhyggjur af því að einhveijum tæk-
ist aö hreinsa út af bankareikningi hennar. Hún grunaði
alla sem hún umgekkst um græsku og að vilja græða á sér.
Þess vegna hegðaði hún sér oft eins og fátæklingur og fékk
kunningja til að fara út í búð fyrir sig svo að kaupmennirn-
ir snuðuðu hana ekki. Þegar hún þurfti aðstoð fagfólks eins
og lögfræðinga fór hún aldrei á skrifstofuna til þeirra held-
ur stoppaði þá á götu og bað um ráð til að losna við kostn-
að.
Hetty skildi við eiginmanninn eftir að hann tapaði aleig-
unni og tók lán sem hann ætlaðist til að hún greiddi. Hún
sagði að hann væri sér tóm byrði og einskis nýtur en samt (-
syrgði hún dauða hans sautján árum síðar og gekk eftir það
eingöngu í svörtu og fékk viðumefnið Nomin á Wall Street.
Þegar Hetty var áttræð var hún gestur á heimili vinar sín
og gagnrýndi hann stanslaust fyrir eyðslusemi. Vinurinn
þóttist ekki taka eftir aðfinnslum hennar en þjónustufólkið
varð öskureitt, kokkurinn drakk sig fullan og hellti skömm-
um yfir frú Green. Hetty brá svo að hún fékk hjartaáfall og
lést nokkram mánuðum síðar. -KB/Kip