Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2003, Qupperneq 48
52
Helqarhlað H>V
LAUGARDACUR 22. FEBRÚAR 2003
Dalvegur 16a • 201 Kópavogur • Pósthólf 564 • Slmi: 544 4656
Fax: 544 4657 • Netfang: mhg@mhg.is
SNJÓKEÐJUR
Fyrir flestar gerðir vinnuvéla og vörubifreiða
Námssjóður brunamála
í samræmi við j8 gr. laga nr. 75/2000 er hér með auglýst
eftir umsóknum um styrki úr Námssjóði brunamála.
Námssjóður brunamála starfar innan Brunamálastofnunar. Markmið sjóðsins er
að veita þeim sem starfa að brunamálum styrki til náms á sviði brunamála.
Sjóðurinn greiðir styrki til rannsókna- og þróunarverkefna, námskeiðsgjöld,
ferða- og dvalarkostnað, laun á námsleyfistíma og styrki vegna námskeiða og
endurmenntunar.
Brunamálastofnun annast úthlutun styrkja, að fenginni umsögn brunamálaráðs.
Umsóknir um styrki skal senda til Brunamálastofnunar, Skúlagötu 21,101 Reykjavík,
fyrir 10. mars 2003 á eyðublöðum sem þar fást, merkt
"Námssjóður brunamála 2003”.
Eyðublöðin eru einnig á heimasíða Brunamálastofnunar.
Athygli skal vakin á því að ef styrkur er ekki nýttur innan tveggja ára frá veitingu
hans fellur styrkveitingin úr gildi.
Nánari upplýsingar um styrkveitingar og starfsemi sjóðsins veita Elisabet Pálmadóttir
skólastjóri og Pétur Valdimarsson tæknifulltrúi.
Sími Brunamálastofnunar er 591 6000. Fax 591 6001.
Heimasíða www.brunamal.is
Reykjavík 3. febrúar 2003,
Brunamálastjóri
ArmúU 17, IOB ReyHJavá
síml: 533 1334 fax: 5GB D49i
C N Cj H i! ii 11 i h i! k k i i 0 g I r æ s i v r I a r
1 S k á p a r o ij tn r s I n r.
iPalrónur oy bakkar.
Skrutslykki. tessar.
! h r a d s k i |i t i li a I d a 1 a r
j 0«} stálhaldarai-
f r æ s n r. r e n n i s t á I,
s 11 itttappar. borar.
11 m x I i t æ k i. k 11 u a I a r.
ÞARFASH
ÞJÓNNINN!
Skákþátturinn
Fyrsti leikurinn
Stórmót Hróksins liefur farið vel af stað. Myndin var tekin í upphafi mótsins og á henni má meðal annars sjá
Einar S. Einarsson og Hrafn Jökulsson, sem báðir láta sig íslenskt skáklíf iniklu varða.
Moskva:
íslendingar á
öflugu skákmóti
Vel á annan tug íslendinga hefur
verið undanfamar tvær vikur i
Moskvu á hinu mjög svo öfluga
skákmóti Aeroflot open. Þar var við
ramman reip að draga en mikilvæg
reynsla fékkst. Sigurvegararnir
urðu fjórir þó að einn væri úrskurð-
aður efstur að stigum. Þessir fjórir
eru eftir stigaútreikning: 1.-4. Vikt-
or Bologan (2630), Aleksej
Aleksandrov (2633), Alexei Fedorov
(2579) og Peter Svidler (2693), allir
með 7 v. af 9.
Einn íslenskur stórmeistari tefldi
í A-Qokki, Helgi Ólafsson, sem átti
misheppnað mót og fékk aðeins 3 v.
Teflt var í B-flokki og þar voru
einnig margir góðir skákmenn. Jón
Viktor Gunnarsson stóð sig best ís-
lensku skákmannanna en hann
hlaut SÍVinning í 9 skákum eftir sig-
ur i lokaumferðinni. Næstur kom
Ingvar Ásmundsson með 5 vinninga
sem er prýðisárangur hjá elsta
keppanda íslenska hópsins. Þcir á
eftir komu Dagur Amgrímsson og
Guðmundur Kjartansson með 4íl
vinning og frammistaða þeirra var
ágæt. Þeir Bjöm Þorfmnsson,
Snorri G. Bergsson, Bjöm ívar
Karlsson og Páll Þórarinsson fengu
allir 4 v. í C-flokki voru 3 íslending-
ar sem vom allir um miðjan hóp, en
í C-flokki vora tefldar 7 umferðir.
Þeir Birkir Öm Hreinsson og Sigur-
jón Þorkelsson fengu 3‘/2 v. en
Guðni Stefán Pétursson 3 v.
Hróksmótíð
Mótið stendur nú sem hæst en í
dag hefst taflmennskan kl. 14.00. Á
morgun er eini frídagur mótsins en
þá verður skákdagur fjölskyldunnar
á Kjarvalsstöðum og hefst athöfnin
kl. 13.00. í þriðju umferð mótsins
vora þeir félagar Stefán Kristjáns-
son og Hannes H. Stefánsson
óheppnir en þeir glutraðu unnum
stöðum niður i jafntefli, Stefán gegn
sjálfum Kortsnoj en Hannes gegn
Macieja hinum pólska. Aðstæður
allar eru hinar skemmtilegustu og
vel að öllu staðið, sjónvarp um alla
Kjarvalsstaði og mikið í mótið lagt.
Teflt hefur verið þrisvar á Kjarvals-
stöðum, 1974, 1982 og nú 2003, og
hafa alþjóðlegu mótin ávallt heppn-
ast vel þar.
Heppnin fylgir þeim gömlu!
Stefán var nálægt því að leggja
hinn rúmlega sjötuga Kortsnoj að
velli en hann slapp með skrekkinn.
Það er lif í þeim gamla (og hunda-
heppni!?).
Hvítt: Stefán Krisfjánsson
(2432) Svart: Viktor Kortsnoj
(2642)
Skoski leikurinn, Hróksmótið
Kjarvalsstööum (3), 20.02. 2003
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. d4 exd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rxc6 bxc6 6. e5 De7 7.
De2 Rd5 8. c4 Db4+ Skoski leikur-
inn hefur verið ein aðaluppistaðan í
vopnabúri Stefáns og hér er 8. Ba6
venjulega leikið. En Kortsnoj teflir
sin eigin afbrigöi oftast. 9. Rd2 Rf4
10. De3 Rg6 11. Bd3 Db6 12. Rf3
Bb4+ 13. Kfl! Be7 14. h4 Bb7 15.
b4! Dxe3. Hér hefur örugglega farið
aðeins um reflnn gamla og hann
ákveðið að skipta upp á drottning-
um áður en Stefán væri með meira
múður. En stráksi er tilbúinn í læti
í endataflinu líka. 16. Bxe3 f6 17.
exf6 Bxf6 18. Hel 0-0 Hér var
spumingin hvort hvítur hefði ekki
átt að leika 19. Rg5 en eftir Bxg5 20.
hxg5 a5 er staðan óljós.19. h5 Re5 20.
Rxe5 Bxe5 21. c5 a5?
Hér var betra að leika 21. Bf6 eða
21. d6 en hvítur stendur betur. 22.
Hdl? Hér var betra að leika 22.
Bc4+ Kh8 og hvítur gæti hugsanlega
unnið skiptamun með 23. bxa5 Hxa5
24. Bd2 Ha4 25. Bb3 Bd4 26. Bxa4
Hxf2+ 27. Kgl Hxd2+ 28. Kh2 g5 og
stendur mun betur. En e.t.v. gat
svartur leikið 24. - Hxc5 25. Bb4 Bd4
26. f3 og hvítur hefur yfirhöndina.
Eða látið vera að drepa peðið á a5
en þar er auðvitað slæmt líka! 22-
axb4 23. Bc4+ Kh8 24. Hxd7 Ba6
25. Bxa6 Hxa6 26. Hh4.
Stefán kemur mönnum sínum út
og Kortsnoj leikur af sér - betra er
26. Bc3 með um það bil jöfhu tafli.
26. - Hxa2? 27. Hxb4 h6 28. f4 Hc2
29. He4 Bc3?
Hér var nauðsynlegt að leika 29.
Hb8 30. Kgl Bf6 og staðan er óljós.
En nú virðist sem hvítur geti unnið
með því að leika 30. Hxc7 Hb8, ann-
ars fellur c6-peðið líka 31. Kgl Hbb2
32. He8+ Kg7 33. Hcc8
Og hvítur vinnur létt! Þar skall
hurð nærri hælum - nú leysist stað-
an upp í jafntefli því Stefán lék 30.
Hde7? Hf5 31. Hxc7 Hxh5 32. Kgl
He2 33. Hxc6 Hxe3 34. Hxe3 Bd4 35.
Kf2 Bxc5- V2.V2.