Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2003, Page 60
64
H t > l c) o rb t a ö X>V LAUGARD AGU R 22. FEBRÚAR 2003
Umsjón
Kjartan Gunnar
Kjartansson
>
Helgi Hallgrímsson
vegamálastjóri er 70 ára í da^
Helgi Hallgrimsson vegamálastjóri, Glaðheimum 18,
Reykjavík, er sjötugur í dag.
Starfsferill
Helgi fæddist á Selsstöðum við Seyðisfjörð og ólst
upp á Seyðisfirði. Hann lauk stúdentsprófi frá MR
1952, fyrrihlutaprófi í verkfræði frá HÍ og verkfræði-
prófi frá Tækniháskólanum í Kaupmannahöfn 1958.
Helgi var verkfræðingur hjá Vegagerðinni 1958-61,
hjá ráðgjafarfyrirtækinu Chr. Ostenfeld og W. Jönson
(nú Cowiconsult) í Kaupmannahöfn 1961-62 og hjá
Vegagerðinni frá 1962. Hann var umdæmisverkfræð-
ingur á Austurlandi til 1965, deildarverkfræðingur í
brúadeild 1965-72, yfirverkfræðingur þar 1972, forstjóri
tæknideildar 1976, aðstoðarvegamálastjóri 1985 og
vegamálastjóri 1992.
Helgi var formaður i Byggingaverkfræðideild Verk-
fræðingafélags íslands 1973-75, sat í stjórn íslands-
deildar Norræna vegtæknisambandsins 1977 og for-
maður hennar 1992 en í aðalstjórn sambandsins frá
1977, í ýmsum nefndum um vegagerð og flutninga á
vegum Norðurlandaráðs 1979-91, í Skipulagsstjórn rík-
isins frá 1992 uns hún var lögð niður og formaður
hennar 1993-94, í Almannavarnaráði frá 1992 og í ýms-
um nefndum um samgöngumál og ofanflóðamál á veg-
um samgöngu- og félagsmálaráðuneyta.
Fjölskylda
Helgi kvæntist 23.8. 1958 Margréti Gunnarsdóttur
Schram, f. 31.12. 1932, leikskólakennara og siðar kenn-
ara við KHÍ. Hún er dóttir Gunnars Schram, símstjóra
á Akureyri og síðar ritsímastjóra í Reykjavík, og k.h.,
Jónínu Jónsdóttur Schram.
Börn Helga og Margrétar eru Hallgrímur, f. 18.2.
1959, rithöfundur og myndlistamaður í Reykjavík, og á
hann eina dóttur; Nína, f. 20.11. 1960, mannfræðingur í
Reykjavík, í sambúð með Kjartani Valgarðssyni og
eiga þau tvö börn; Ásmundur, f. 24.11. 1965, markaðs-
fræðingur í Reykjavík, kvæntur Elínu Guðrúnu Ragn-
arsdóttur og eru börn þeirra fjögur; Gunnar, f. 24.11.
1965, leikari í Hafnarfirði, kvæntur Björk Jakobsdótt-
ur og eiga þau tvo syni.
Bræður Helga eru Þórarinn, f. 28.4. 1928, trésmiður
á Egilsstöðum, kvæntur Björgu Jónasdóttur; Jón Sæ-
björn, f. 25.5. 1930, járnsmiður i Reykjavík, kvæntur
Lilju Guðbjarnadóttur.
Foreldrar Helga: Hallgrímur Helgason, f. 4.10. 1892,
d. 18.12.1940, bóndi á Selsstöðum og víðar, og k.h„ Mál-
fríður Þórarinsdóttir, f. 10.1. 1900, d. 16.7. 1998, hús-
freyja.
Ætt
Bróðir Hallgríms var Gísli, faðir Indriða, fyrrv. pró-
fessors við KHÍ og afi fréttamannanna Ernu Indriða-
dóttur og Gísla Sigurgeirssonar, Páls Pálssonar fræði-
manns á Aðalbóli í Hrafnkelsdal og Helga Ómars
Bragasonar, skólameistara ME. Annar bróðir Hall-
gríms var Indriði, faðir Margrétar, fyrrv. fréttastjóra
Ríkisútvarpsins, móður Örnólfs bókmenntafræðings
og Guömundar Andra rithöfundar, Thorssona. Systir
Hallgríms var Guðrún, amma Hauks tónskálds og Jó-
hannesar blaðamanns Tómassona. Hallgrímur var son-
ur Helga, b. í Skógargerði, bróður Jóhönnu, langömmu
Guðmundar Malmquist, fyrrv. forstjóra Byggðastofn-
unar. Helgi var sonur Indriða Ásmundssonar, Indriða-
sonar á Borg í Skriðdal, Ásmundssonar. Indriði á Borg
var afi skáldanna Páls og Jóns Ólafssona.
Móðir Hallgríms var Ólöf Margrét Helgadóttir, syst-
ir Hallgríms, langafa Helga Hallgrímssonar náttúru-
fræðings. Annar bróðir Ólafar Margrétar var Gisli,
langafi Kolbeins Bjarnasonar flautuleikara og afi Jóns
Sigurðssonar bassa, afa Ólafs Kjartans óperusöngv-
ara. Ólöf Margrét var dóttir Helga, b. á Geirólfsstöð-
um, Hallgrímssonar, b. á Stóra-Sandfelli, bróður Ind-
riða á Borg. Systir Helga á Geirólfsstöðum var Guð-
rún, amma Gunnars skálds Gunnarssonar. Móðir
Ólafar Margrétar var Margrét Sigurðardóttir frá Mýr-
um í Skriödal, af Njarðvíkurætt.
Meðal systkina Málfriðar eru Jón tónskáld, faðir
Þorsteins M„ forstjóra Vífilfells, og Anna, amma Jóns
Ólafs Sigurðssonar, organista í Hjallakirkju. Málfriður
var dóttir Þórarins, hreppstjóra og alþm. í Gilsárteigi,
Benediktssonar, b. á Höfða á Völlum. Meðal systkina
Guðríður Soffía Sigurðardóttir
húsmóðir og fyrrv. kaupkona
Guðríður Soffía Sigurðardóttir, húsmóðir og fyrrv.
kaupkona, Sunnubraut 43, Kópavogi, verður sjötíu og
fimm ára á morgun.
Starfsferill
Guðríður fæddist á Geirseyri við Patreksfjörð og ólst
þar upp. Að loknu barna- og unglinganámi stundaði
hún nám við Húsmæðraskólann á Akureyri.
Guðríður sinnti bústörfum hjá foreldrum sinum á
Geirseyri en stundaði auk þess verslunarstörf og vann
síðan við Sjúkrahúsið á Patreksfirði.
Hún var búsett á Patreksfirði þar til hún gifti sig
1955. Þá flutti hún til Bíldudals. Þau hjónin fluttu síð-
an til Reykjavíkur 1971.
Guðríður festi kaup á versluninni Regnhlífabúðinni,
Laugavegi 11, árið 1971 og starfrækti hana um árabil.
Guðríður starfaði í skátahreyfingunni á Patreksfirði,
í slysavarnafélaginu þar og i kvenfélaginu. Þá tók hún
þátt í félagsstörfum slysavarnadeildar kvenna á Bíldu-
dal og kvenfélagsins þar.
Fjölskylda
Guðríður giftist 17.6. 1955 Jónasi Ásmundssyni, f.
24.9. 1930, deildarstjóra. Hann er sonur Ásmundar Jón-
assonar, sjómanns og verkamanns á Bíldudal, og k.h„
Mörthu Ólafíu Guðmundsdóttur húsmóður.
Börn Guðríðar og Jónasar eru Ásmundur Jónasson,
f. 20.7. 1957, læknir, kvæntur Guðrúnu Vignisdóttur
hjúkrunarfræðingi og eiga þau þrjú börn; Gylfi Jónas-
son, f. 24.6. 1960, viðskiptafræðingur, kvæntur Ásdisi
Kristmundsdóttur, söngkonu, kennara og sérfræðingi
hjá Einkaleyfisstofnuninni, og eiga þau tvö börn; Helgi
Þór Jónasson, f. 20.7. 1964, hagfræðingur, kvæntur
Kristínu Pétursdóttur, löggiltum fasteignasala og eiga
þau tvö börn.
Stjúpdóttir Guðríðar er
Guðrún Jóna Jónasdóttir, f.
31.12. 1952, fulltrúi, maður
hennar er Ingi Halldór og á
hún þrjú börn.
Systkini Guðríðar: Árni, f. 24.10. 1918, nú látinn, vél-
smiður í Reykjavík; Sigurður, f. 3.1. 1919, vélsmiður á
Patreksfirði; Ásta, f. 14.7. 1921, húsmóðir i Borgarnesi;
Þóroddur Thoroddsen, f. 11.10. 1922, d. 14.6. 1996, véla-
verkfræðingur og vatnsveitustjóri í Reykjavik; Ingveld-
ur, f. 14.7. 1923, kaupkona í Reykjavík; Guðmundur, f.
29.1. 1926, nú látinn, verkstjóri hjá Jarðborunum ríkis-
ins; Anna María, f. 25.11. 1929, dó tólf ára; Rögnvaldur
Geir, f. 19.8. 1931, stórkaupmaður í Reykjavik; Svandís,
f. 16.3. 1934, dó í bernsku; Ásgeir Hjálmar, f. 10.12. 1936,
skrifstofumaður í Reykjavík; óskírð stúlka, f. 8.8. 1937,
dó í frumbemsku.
Foreldrar Guðríðar voru Sigurður Andrés Guð-
mundsson, f. 29.11. 1886, d. 23.12. 1948, skipstjóri og
bóndi á Geirseyri við Patreksfjörð, og k.h„ Svandís
Árnadóttir, f. 9.9. 1893, d. 29.2. 1968, húsmóðir.
Ætt
Sigurður Andrés var sonur Guðmundar, hreppstjóra
í Breiðuvík, Sigurðssonar, Breiðvíkings, bátasmiðs.
Móðir Sigurðar Andrésar var Helga Thoroddsen,
dóttir Jóns Thoroddsen, b. í Hvallátrum.
Svandís var dóttir Árna, sjómanns á Akranesi, Guð-
mundssonar, á Seltjarnarnesi, Bjarnasonar. Móðir
Árna var Jóhanna Sigríður Jónsdóttir. Móðir Svandís-
ar var Ingveldur Sveinsdóttir, b. í Innsta-Vogi, Sveins-
sonar og Sigríðar Narfadóttur.
Þórarins voru Jónína, kona Gísla, bróður Ólafar Mar-
grétar í Skógargerði, og Halldór, langafi Páls bók-
menntafræðings og Karls Steinars, aðstoðaryfirlög-
regluþjóns, Valssona. Móðir Málfríðar var Anna Mar-
ía, dóttir Jóns Þorsteinssonar, síðast b. á Seljamýri í
Loðmundarfirði, af Melaætt, og Vilborgar Árnadóttur
af Pamfilsætt. Bróðir Önnu Maríu var Þorsteinn,
langafi Þóru Guðmundsdóttur, arkitekts á Seyðisfirði.
Meðal hálfsystkina Önnu Maríu, samfeðra, voru Guð-
rún, amma Guðrúnar Ágústsdóttur, fyrrum forseta
borgarstjórnar Reykjavíkur, Arnbjörg, amma Sigríðar
Stefánsdóttur, fyrrv. bæjarfulltrúa á Akureyri, ísak,
stofnandi ísaksskóla í Reykjavík, og Sigurður, afi
Gyrðis Elíassonar skálds.
Helgi og Margrét taka á móti gestum í Borgartúni 6
á afmælisdaginn 22.2. kl. 17.00-20.00.
Afmæli
Laugard. 22. febrúar
85 ÁRA
Klemens Jónsson,
Ólafsvegi 7, Ólafsfirði.
Kristinn Karl Jónsson,
Gnoöarvogi 30, Reykjavík.
80 ÁRA
Jón
Guömundson
húsasmíða-
meistari,
Skúlagötu 20,
Reykjavík, áður
Njörvasundi 8, verður 80 ára á
mánudag. Kona hans er Guð-
laug Kristbjörnsdóttir. Þau
bjóöa vinum og vandamönnum
að þiggja veitingar að Borgar-
túni 6, laugard. 22.2. Jón af-
þakkar gjafir og þlóm en þendir
þess í stað á Krabbameinsfé-
lagið, Hjartavernd eöa samtök
lamaðra og fatlaðra.
Aðalsteina Sumarliöadóttir,
Skálholti 17, Ólafsvík.
Eiríkur Jónasson,
Hverafold 25, Reykjavík.
Guöbjörg Bjarnadóttir,
Kársnesbraut 17, Kópavogi.
Óskar Hróbjartsson,
Lyngheiði 3, Selfossi.
70ÁRA
Héöinn Emilsson,
Bröndukvísl 22, Reykjavík.
Margrét Jónsdóttir,
Sóleyjargötu 1, Akranesi.
60ÁRA ____________________
Jón Þórir Óskarsson,
Stóragerði 21, Hvolsvelli.
Karl Guömundsson,
Þórufelli 10, Reykjavík.
Þórarinn Smári Steingrímsson,
Urðarteigi 15, Neskaupstað.
50 ÁRA____________________
Hjörtur Hans Kolsöe,
Mjölnisholti 10, Reykjavik.
Jóhanna Fríöa Róbertsdóttir,
Víðivöllum 1, Selfossi.
Lilja Björk Tómasdóttir,
Fornhaga, Húsavík.
Sumarrós Siguröardóttir,
Lágmóa 11, Njarðvík.
40 ÁRA____________________
Anna Lísa Geirsdóttir,
Starengi 32, Reykjavík.
Álfheiður Ólafsdóttir,
Keilufelli 41, Reykjavík.
Ástþór Sigurösson,
Seljabraut 54, Hafnarfirði.
Eiríkur Hannes Kjerúlf,
Suöurgötu 10, Sandgerði.
Elvar Gottskálksson,
Austurbraut 2, Keflavík.
Guölaug Sólveig Karlsdóttir,
Laufrima 30, Reykjavík.
Halldór Rúnar Vilbergsson,
Furugrund 64, Kópavogi.
Helgi Helgason,
Strandgötu 5, Isafirði.
Ingibjörg Jóhannsdóttir,
Lágmóa 1, Njarðvík.
Izudin Daöi Dervic,
Dvergholti 21, Hafnarfirði.
Kristín H. Þorsteinsdóttir,
Sléttalandi, Hellu.
Óöinn Þórarinsson,
Melgerði 3, Reykjavik.
Sigurður Ólafur Þorvaröarson,
Gröf 1, Grundarfirði.
Sæmundur Þorkelsson,
Sunnubraut 6, Keflavík.
Þröstur Jensson,
Blikahöfða 4, Mosfellsbæ.
Sunnud. 23. febrúar
95 ÁRA
Anna Karlsdóttir,
Mýrarbraut 8, Blönduósi.
90 ÁRA
Þorbergur Jónsson,
Prestsbakkakoti,
Kirkjubæjarklaustri.
85 ÁRA____________________
Ingibjörg Jónína Níelsdóttir,
Hvassaleiti 56, Reykjavík.
Sigrún Eiríksdóttir,
Eiríksgötu 2, Reykjavík.
80 ÁRA
Fanney
Sæbjörnsdóttir,
Suðurgötu
17-19, Sand-
gerði. Hún tekur
á móti vinum og
vandamönnum í Samkomuhús-
inu í Sandgeröi sunnud. 23.2.
frá kl. 15.00.
70 ÁRA____________________
Aðalheiður Alexandersdóttir,
Gullsmára 5, Kópavogi.
60 ÁRA
Astrid K.A. Einarsson,
Breiövangi 71, Hafnarfirði.
Hún er á Möltu hjá syni sínum.
Bára Guöjónsdóttir,
Vesturgötu 98, Akranesi.
Guömundur Hermannsson,
Fjalli, Varmahlíð.
Hrafnhildur Hansdóttir,
Faxatúni 42, Garðabæ.
Margrét Thorsteinson,
Ársölum 1, Kópavogi.
Óttar Guölaugsson,
Huldubraut 26, Kópavogi.
Skúli Ágústsson,
Duggufjöru 6, Akureyri.
Þráinn H. Kristjánsson,
Hátúni lOa, Reykjavík.
50ÁRA____________________
Erlingur Tryggvason,
Aöalstræti 24, Isafirði.
Guðmundur Björgvinsson,
Gónhóli 3, Njarðvík.
Hlynur Möller,
Selholti, Mosfellsbæ.
Margrét Þorvaldsdóttir,
Drekagili 28, Akureyri.
Þórhallur J. Ásmundsson,
Ægisstíg 10, Sauöárkróki.
40 ÁRA____________________
Búi Arnberg Ármannsson,
Huldugili 66, Akureyri.
Hlynur Óskarsson,
Hólastekk 2, Reykjavík.
Hrefna Siguröardóttir,
Skarösbraut 2, Akranesi.
Jónas Erlendsson,
Fagradal, Vík.
Kári Húnfjörö Einarsson,
Vlöimel 57, Reykjavlk.
Magnús Pálmason,
Tómasarhaga 9, Reykjavlk.
Olga Sædís Bjarnadóttir,
Hólagötu 13, Vestmeyjum.
Snorri Gústafsson,
Gautavik 45, Reykjavlk.
Þóra Björg Dagfinnsdóttir,
Kirkjubraut 21, Seltjarnarnesi.