Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2003, Side 2
2 FRÉTTIR LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST2003
ÚTGÁFUFÉLAG: Útgáfufélagiö DV ehf.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Örn Valdimarsson
AÐALRfTSTJÓRl: Óli Björn Kárason
AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jónas Haraldsson
DV: Skaftahlíö 24,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Rltstjóm: 550
5020 - AÐRAR DEILDIR' 550 5749
Rltsyóm: ritstjorn@dv.is - Auglýslngar.
auglysingar@dv.is. - Drelfing: dreifmg@dv.is
Akureyrl: Hafnarstræti 94, slmi: 462 5000,
fax: 462 5001
Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf.
Plötugerö og prentun: Árvakur hf.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins f
stafrænu formi og í gagnabönkum án
endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir
viðtöl við þá eða fýrir myndbirtingar af þeim.
Efni blaðsins
Irkið er hættulegt vopn
í höndum níðinga
- frétt bls. 4
Siálfstæði dómara
skiptir öllu máli
- frétt bls. 6
Andarungar í Laugardal
- frétt bls. 8
Lostæti eða helvítis torf
- Helgarblað bls. 20
Kraftur smæðarinnar
- Helgarblað bls. 18-19
Robson á harma að
hefna í enska boltanum
- DV Sport bls. 24
DV Bingó
Það er komið bingó. Á þriðjudag
verður dregið úr nöfnum þeirra
sem fengið hafa bingó og haft
hafa samband við blaðið. Hins
heppna bíður glæsilegur vinning-
ur: Vikuferð til Portúgals með
Terra Nova Sól.
Ahyggjur vegna aðstöðu við Kárahnjúka
Hugbúnaður
fTÆKNI: (slenska hugbúnaðar-
fyrirtækið Sideline Sports hef-
ur á einungis tveimur árum
náð að slá í gegn á erlendri
grund með hugbúnað sem
ætlaðurer þjálfurum hóp-
íþrótta. í viðtali við tímaritið
Tölvuheim segir Brynjar Karl
Sigurðsson, þróunarstjóri og
annar aðaleigandi Sideline
Sports, að gengi fyrirtækisins
slær í gegn
hafi verið ævintýri líkast. Brynj-
ar var áður þjálfari yngri flokka
í körfubolta á Akranesi og seg-
ir upphaflega bara hafa staðið
til að búa til forrit sem létti
honum þjálfarastörfin. Hug-
búnaðurinn erfáanlegur í
nokkrum útgáfum. Sú dýrasta
kostar allt að hálfa aðra milljón
króna en grunnútgáfan tæpar
hundrað þúsund krónur.
VINNUEFTIRLfT: Staða mála
að því er varðar uppsetningu
og frágang starfsmannabúða
við Kárahnjúkavirkjun, holl-
ustuhætti, brunavarnir, lög-
gæslu o.fl. er víða mjög slæm
og sýnu verst er ástand bruna-
varna í starfsmannabúðum.
Þetta kom fram á fundi full-
trúa landssambanda innan
AS( í samráðsnefnd samnings-
aðila og fulltrúa opinberra eft-
irlitsaðila á Austurlandi, þ.á m.
fulltrúa Heilbrigðiseftirlits
Austurlands, Vinnueftirlitsins,
Brunavarna á Héraði, lög-
regluyfirvalda og fulltrúa
sveitarstjórna. Jafnframt kom
fram að menn hafa verulegar
áhyggjur af fráveitu- og vatns-
veitukerfum á komandi vetri
og að opinberir eftirlitsaðilar
telja sig verulega vanbúna að
því er varðar fjármagn og
mannafla til að sinna lög-
boðnum skyldum sínum á
Kárahnjúkasvæðinu. Fulltrúar
landssambanda AS( hafa því
ákveðið að óska eftir fundi
með þeim ráðherrum sem
þessir málaflokkar heyra und-
ir, ásamt fulltrúum sveitarfé-
laga á svæðinu.
Forstöðumaður Barnahúss um barnaklámsmálið og Netið:
Skuggalegt hve aðgangur
barna að klámi er greiður
„Mér finnst skuggalegast í
þessu öllu að börn og unglingar
eiga nú mjög greiðan aðgang
að klámefni - efni sem þau
finna á Netinu. Ungmenni
verða fyrir miklum áhrifum af
því öllu. Það helsta sem foreldr-
ar geta gert er að leiðrétta
linnulaust þær hugmyndir sem
settar eru fram í myndum og
kvikmyndum á Netinu," segir
Vigdís Erlendsdóttir, forstöðu-
maður Barnahúss.
Hún segir að viðhorfin hafi
breyst mjög mikið. Þá breytingu
megi tvímælalaust kenna aðgengi
bama að kiámefni á Netinu og öðr-
um miðlum. Til að spyrna við
fótum geti foreldrar haldið að þeim
heppilegra gildismati en því sem
þau verða vitni að á Internetinu.
„Með því má efla dómgreind barna
í kynf ’rðislegum efnum og kenna
þeim uð draga mörk. Slfkt getur
forðað þeim frá því að verða ger-
endur eða þolendur í slíkum mál-
um. Því má svo ekki gleyma að
ábyrgðin hvílir alltaf á gerandan-
um," segirVigdís.
Borgað með mökum
Eins og DV greindi frá í gær liggja
fyrir framburðir hjá lögreglunni í
Reykjavík um að karlmaður á fer-
tugsaldri hafi þóst vera stúlka á irk-
inu og blekkt þar pilta víða af land-
inu til mismunandi kynferðisat-
hafna, meðal annars til þess að
senda sér myndir af kynfærum
þeirra. Þóttist hann vera stúlka og
gaf fyrirheit um kynferðissamband.
Lögreglan lagði hald á tugi þús-
unda barnaklámsmynda í fórum
brotamannsins.
Vigdís segir að mál barnakláms-
mannsins og nokkurra pilta sem
hann er talinn hafa brotið gegn hafi
ekki verið til meðferðar hjá Barna-
húsi. „Ég þekki þetta mál einungis
af umfjöllun fjölmiðla. En vissulega
hefur verið umræða um breytingar
á gildismati ungmenna í kynferðis-
málum, til dæmis þar sem börn
hreinlega borga sig inn í samkvæmi
á kynferðislegan hátt - stelpa fellst
Rannsókn á barnaklámsmanninum:
Misnotaði
unglings- m
I ______ K«nnvokn j tugum þuvundai
^H H W" w»»k.itl.iði
I hll'kktl l'.iff.th.l
hb m
Frett bh. 6 w. J
blt'kktl l'.i«nvk.i un<jlln«jv|MlKt tii
kynlifvjithdfrwt fyrvt .1 NétidU uy
frett b/s. 6 « i
BARNAKLÁMSMÁUÐ: Frétt DV á forsíðu í gær af rannsókn barnaklámsmálsins þar sem
segir frá viðskiptum meints niðings við unglingspilta á netinu.
Vigdís Erlendsdóttír, forstöðumaður Barna-
húss: Foreldrar geta haldið að börnunum
heppilegra gildismati en þvi sem þau
verða vitni að á Internetinu.
á einhvers konar kynmök og má þá
koma í tiltekið samkvæmi. Þetta er
orðin meiri söluvara að því leyti.
í þessu barnaklámsmáli virðist
hafa verið eitthvað hliðstætt á ferð-
inni - loforð um kynferðissamband
gegn ákveðnum greiða eða skilyrð-
um. Mér finnst það vera ný til-
hneiging að kynferðisathafnir séu
orðnar söluvara. Þarna virðast
strákar hafa verið tældir til að
senda myndir af sér gegn því að
uppskera mök - þetta eru orðin
eins konar viðskipti, greiði gegn
greiða."
Umfangsmikið mál
Vigdís segir að irkið sé nýtt sam-
skiptaform, að tala saman á tölvum
í stað annarra samskipta:
„Mér finnst þetta barnakláms-
mál óvenjulegt af því að umfangið
er svo mikið." Vigdís segist eitt sinn
hafa farið á slóð ákveðinnar barna-
hljómsveitar á Internetinu þegar
hún var að vinna með börnum. „Þá
kom upp klámsíða! En tímarnir
breytast og mennimir með. Það er
erfitt að stjórna þróuninni og því
hve tölvur lifa sjálfstæðu lffi. Ég
held að besta meðalið við þessu sé,
ef svo má að orði komast, að for-
eldrar ali börnin sín upp í guðsótta
og góðum siðum og fylgist með því
hvað þau gera ffá degi til dags.
Langvinnar afleiðingar
- Ef horft er til þeirra pilta sem
hinn meinti barnaklámsmaður
hefur misnotað, hvernig skaðast
þeir eða börn í hliðstæðum mál-
um?
„Sjálfsagt er það mjög misjafnt.
Þar em afleiðingarnar eins marg-
Þarna virðast strákar
hafa verið tældir til að
senda myndir afsér
gegn því að uppskera
mök. Þetta eru orðin
eins konar viðskipti.
víslegar og mennirnir em margir.
Það er mismunandi hvort fólk
skaðast af því að lenda í slíku. Að
verða fyrir kynferðisbroti gerir
þolendur ekki sjálfkrafa að sjúk-
lingum en brot af því tagi geta vit-
anlega haft skaðiegar afleiðingar.
Því þarf ævinlega að kanna hvort sá
sem orðið hefur fyrir kynferðisbroti
þarfnast aðstoðar til að vinna.úr
reynslu sinni. Sumir geta sloppið
betur en aðrir en það er þekkt að
kynferðisbrot getur haft þrálátar af-
leiðingar langt fram eftir aldri."
ottar&dv.is
AFHENDING MEÐ VIÐHÖFN: Tryggvi Jónsson, forstjóri Heklu, afhenti Árna bilinn í gær og
var ekkl annað að sjá en báðir væru sáttir við viðskiptin. DV-myndir Hari
Árni fékk Skodann
Ámi Magnússon heilbrigðisráð-
herra fékk í gær afhentan
nýjasta bílinn í ráðherrabíla-
flota landsmanna, Skoda.
Tryggyi Jónsson, forstjóri Heklu,
afhenti Árna bílinn og lét eigandinn
nýi vel af gripnum. Skoda Superb
heitir ráðherrabíllinn, árgerð 2004.
Árni sagði í samtali við DV fyrir
skömmu að hann hefði löngum
haft tröllatrú á Skódum og ekki
þurft að hugsa sig lengi um hvort
ráðast ætti í kaupin. Sjálfur hefur
hann kynnst mörgum Skódanum í
gegnum tíðina. kja@dv.is