Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2003, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2003, Blaðsíða 28
28 DVHELGARBLAÐ LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST2003 Meira en þúsund orð 1. Sundmaður gengur upp úr flæðarmálinu fram hjá brimbrettamanni sem kannar öldurnar snemma morg- uns í vikunni á hinni heimsfrægu Bondi-strönd í Sydney í Ástralíu. 2. Starfsmaður dýragarðsins í Miinchen sprautar vatni á fíl um síðustu helgi í miðri hitabylgjunni sem ríkir i Evrópu. Hitastigið í Þýskalandi hefur farið reglulega yfir 40 gráður á Celsius í sumar. 3. Heilagir menn og naktir við helga tjörn búa sig undir heilaga baðferð í fyrsta Shahi Snan („mikla baðinu") á helgri hátíð hindúa, Kumbh Mela. Þessi marghelga stund átti sér stað á mánudag í þorpinu Trimbakeshwar, nærri Nasik, sem er um 180 kílómetra norðaustur af Bombay. 4. Námsmaður heldur á fána Chile meðan verkamenn flýja undan háþrýstivatnsbyssum óeirðalögreglu nærri forsetahöllinni í Chile á miðvikudag. Fyrsta almenna verkfallið í Chile síðan 1986, á valdaárum Pinochets, stendur nú yfir en nógu margir verkamenn mættu þrátt fyrir það til vinnu til þess að þjóðlífið lamaðist ekki eins og leiðtogar verkfallsmanna höfðu heitið. 5. Þrjú taívönsk börn renna sér niður vatnsrennibraut í almenningssundlaug í Taipei í síðustu viku. Föstudag- urinn í síðustu viku var heitasti dagur íTaipei síðan 1897, hitinn fór í 38,7 gráður á Celsius. 6. Þyrla losar vatn á skógareld í Sant Llorenc Savall á norðaustanverðum Spáni á mánudag. Þann dag fundust fyrstu fórnarlömb skógareldanna - fimm manns úr sömu fjölskyldu fundust látin eftir að hafa, að því er virtist, reynt að flýja heimili sitt sem umkringt var eldtungum. Um 1300 hektarar skógar f Sant Llorenc hafa orðið eldinum að bráð. 7. Bugey-kjarnorkuverið á bökkum Rónar í Frakklandi. Franska rafmagnsveitan hefur dregið úr orkufram- leiðslu þess um 4.000 megavött á síðustu dögum eftir að hitabylgjan í Evrópu olli vandamálum við kælingu í orkuverum hennar. Franska ríkisstjórnin hefur slakað á ströngum umhverfiskröfum og leyfir nú orkuverum að losa vatn aftur út í árnar við hærra hitastig en venjulega er leyft. 8. Kona gefur þyrstum hundi vatn að drekka við gosbrunn í Pontevedra á Norður-Spáni. Hitabylgjan er talin hafa átt þátt í dauða næstum þrjátíu manns á Spáni. 9. Strákur kælir sig á La Misericordia-ströndinni í Malaga síðustu helgi. Hin steikjandi hitabylgja í Evrópu hélt áfram og á að halda áfram um helgina. Fólk hefur dáið og skógar brunnið í allri álfunni og mörg önnur alvar- leg vandamál hlotistaf hitanum. 10. Meðlimir ungverska landsliðsins í vatna-póló henda þjálfara sínum, Denes Kemeny, út laug eftir að hafa unnið Ítalíu í úrslitum heimsmeistaramótsins í Barcelona i lok júlí. 11. Líbanskur unglingur stekkur af brú yfir Awali-ána í hafnarborginni Sidon. Hitabylgjan hefur látið finna fyrir sér á líbönsku ströndinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.