Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2003, Blaðsíða 42
46 DV HELGARBLAD LAUGARDAGUR 23.ÁGÚST2003
»
^ Nýr umboösmaöur OV í
| Njarövík frá 1. ágúst er
^ Oddný Stefánsdóttir,
Fífumóa 20
^ Nýr umboösmaöur DV í
^ Grindavík frá 1. ágúst er
| Sigbjörn Jóhannsson,
^ Ásbraut 3
g Sími 426 7922 og 693 0375
^ Nýr umboðsmaöur DV í
^ Bolungarvík frá 1. ágúst
| er Signý Ástmundsdóttir,
í Traöarlandi 1
| Sími 456 7035 og 893 7035
Ef þú kaupir smáauglýsingu á
HáPPDRÆTTIS-
Aðalvinningurinn, flugmiði
frá lceland Express er
dreginn út 2. september
Svo er einnig hægt að vinna bíóveislu - miða, gos
snakk og prinsessu-súkkulaðikassa, auk þess sem
að allir vinníngshafar munu fá fría áskrift að DV
www.smaar.is
Stick'n' Sushi
Thorvaldsen
Café Sólon
Galileo
Jóa útherja
Sjónvarpsmiðstöðinni
Heildversluninni
Hvítum stjörnum
r • jMt T MiIMJi
BJI fij iTMifl T| i H%x c g
Skák
Umsjón: Sævar Bjarnason
Spennandi skákþing að hefjast
Það er margt á döfinni í skákheim-
inum sem endranær. Hér heima ber
hæst að Skákþing Islands, landsliðs-
flokkur, hefst á morgun í Hafnarfirði.
Teflt verður í iista- og menningar-
miðstöð bæjarins í Hafnarborg. Um-
ferðirnar heljast kl. 13 um helgar en
kl. 17 á virkum dögum og eru skák-
áhugamenn hvattir til að fjölmenna í
Fjörðinn! Keppendur eru eftirtaldir í
alþjóðlegri Elo-stigaröð: 1. Hannes
Hlífar Stefánsson SM 2.560, 2. Þröst-
ur Þórhallsson SM 2.444, 3. Jón Vikt-
or Gunnarsson AM 2.411, 4. Stefán
Kristjánsson AM 2.404, 5. Bjöm Þor-
fmnsson FM 2.349, 6. Sigurður Daði
Sigfusson FM 2.323, 7. Ingvar Ás-
mundsson FM 2.321, 8. Davíð Kjart-
ansson FM 2.320, 9. Róbert Harðar-
son FM 2.285, 10 Guðmundur Hall-
dórsson 2.282, 11. Sævar Bjarnason
AM 2.269, 12. Ingvar Þór Jóhannes-
son, 2.247. Þrír keppenda hafa orðið
fslandsmeistarar í skák, þeir Hannes
H. Stefánsson, sem er handhafi titils-
ins, Jón Viktor Gunnarsson og Ingvar
Ásmundsson, sem varð Islands-
meistari 1979 og hefur ekki teflt í
landsliðsflokki síðan! En Ingvar hef-
ur, eftir að hann settist í helgan stein
í atvinnuiífinu, sinnt skáklistinni
mikið og vel. Ingvar, sem verður sjö-
tugur á næsta ári, sýnir, eins og
margir aðrir, að það er hægt að tefla
skák á nær öllum aldursstigum. Það
em aðeins böm í vöggu sem vegna
þroska síns geta ekki teflt. Keppnin
kemur væntanlega til með að standa
á milli fjögurra þeirra stigahæstu og
er Hannes Hlífar að sjálfsögðu sigur-
stranglegastur. En allt getur gerst í
skákinni!
Yngsti stórmeistari kvenna
Hin 13 ára Kateryna Lahno varð
efst á stórmeistaramóti í bænum
Kramatorsk í Úkraínu. Hún er yngst
kvenna til að ná stórmeistaraáfanga í
karlaflokki og nær væntanlega titlin-
um innan tíðar. Judit Polgar var að-
eins 16 ára þegar hún náði titlinum
og sló á sínum tíma met Roberts
nokkurs Fischers sem náði einnig
titlinum 16 ára 1958, en hann er eldri
í árinu en Judit.
Yngstur til að ná stórmeistaratitli
er Sergei Karjakin, einnig ffá Úkra-
ínu, sem var aðeins 12 ára þegar titil-
inn var í höfn. Kateryna sigraði á
mótinu í Kramatorsk með 9,5 v. af 13
en annar varð stórmeistarinn Zahar
Efimenko, heilum vinningi á eftir.
Það má mikið vera ef Kateryna á ekki
eftir að láta mikið að sér kveða í fram-
tíðinni en hún þykir mikið efni. Það
er athyglisvert hversu margir góðir
skákmenn spretta upp í Úkraínu.
Þaðan er til dæmis heimsmeistari
FIDE, Ponomariov, en f september
mun hann reyna að verja titil sinn
gegn Kasparov í Jalta á Krímskaga,
þeim sögufræga stað. Pútín Rúss-
landsforseti verður þá í heimsókn í
Úkraínu og mun setja einvígið svo að
næsta víst er að það verði haldið.
Hins vegar er enn allt á huldu um
einvígi þeirra Kramniks og Lekos.
Kramnik krefst a.m.k. milljón dollara
verðlaunasjóðs en þeir kappar þykja
báðir tefla ákaflega traust og gera
mikið af tíðindalitlum jafnteflum
þannig að það gengur illa að fá aðila
til að halda einvígið. Þýska borgin
Dortmund hefur verið nefnd en ekk-
ert hefur enn verið ákveðið. Það get-
ur þvf farið svo að fyrirhugað samein-
ingareinvígi um heimsmeistaratitil-
inn í skák dragist enn um sinn.
Einvígi Kasparovs
og tölvunnar
Tölvur og tölvuforrit eru að verða
enn meira áberandi í skákinni og
það var í fréttatímaritinu
Newsweek 10. ágúst sl. að tilkynnt
var um fyrirhugað einvígi Garys
Kasparovs og tölvuforritsins Fritz.
Einvígið verður í New York í nóv-
ember, eða skömmu eftir einvígi
Kasparovs og Ponomariovs á Krím-
skaga. Kasparov tefldi á sfðasta ári
einvígi við tölvuforritið Deep Junior
Þeir voru þungbúnir stórmeistararnir
sem urðu að lúta í lægra haldi fyrir hinni
þrettán ára
Katerynu Lahno.
Kateryna Lahno er eitt af undrabörnun-
um (skákinni.
sem mun vera skilgetið afkvæmi
Dimmblárrar (Deep Blue) sem
Kasparov tapaði fyrir í sögulegu
einvígi 1997 í Tvíburaturnunum
sálugu í New York. Hann gerði jafn-
tefli við Deep Junior í fýrra eftir að
hafa náð frumkvæðinu. Það sem er
athyglisvert við þetta einvígi er að
Fritz mun koma mönnum fýrir
sjónir í sýndarveruleika og þrívídd.
Skákborðið sem teflt verður á mun
fljóta um í loftinu en að vísu skilst
mér að menn verði að nota sérstök
gleraugu! Ekki er að efa að þarna
verður merkur atburður á ferðinni
sem e.t.v. mun valda straumhvörf-
um í framtíðarsýn mannsins.
Tölvusviðið er í stöðugri þróun þó
að ekki hafi enn verið þróað skák-
tölvuforrit sem tæmir leyndardóma
skáldistarinnar endanlega.
Lítum aðeins á hvemig þrettán
ára stúlkubarn mátar reyndan skák-
meistara!
Hvftt: Kateryna Lahno (2439).
Svart: CHeg Kulicov (2460).
Nimzowitsch-byijun.
Kramatorsk (2), 30. júlí 2003.
1. e4 Rc6 2. Rf3 d5 3. exd5 Dxd5 4.
Rc3 Da5 5. d4 Bg4 6. Bb5 0-0-0 7.
Bxc6 bxc6 Ekki kann ég mikil skil á
þessari byrjun, veit aðeins að hún er
kennd við skákhugsuðinn mikla Aron
Nimzowitsch og að Tony heitinn
Miles tefldi þessa byrjun oft. En
stúlkan þekkti þessa stöðu og byrjun-
ina vel og vissi að það hefði teflst skák
eins og þessi. Hún mundi eftir skák á
milli þjálfara síns, Sulypa, og skák-
mannsins Zajamyi frá árinu 2000 og
hafði skoðað hana rækilega með
honum. Sulypa, sem hefur til dæmis
þjálfað Vassilij Ivanchuk, Úkraínu-
manninn snjalla, vann eiginlega
þessa skák fyrir mig, sagði stúlkan
hæversklega eftir skákina! 8. h3 Dh5
9. De2 Bxf310. gxf3 e611. Be3 Bb412.
0-0-0 Bxc3 13. Da6+ Kd7 14. bxc3
Dxf3 Þessi staða er um það bil í jafn-
vægi. En hvítur kemur hrókum sín-
um í spilið! 15. Hhgl Re7 16. c4 g6
Svartur virðist vera með teflan-
/t/:____________________‘ÆL____
lega stöðu en stúlkan lumar á
„klassísku" gegnumbroti. 17. d5!
exd5 18. cxd5 cxd5 Svo mikið
mundi Kateryna af rannsóknum
sínum! Nú þurfti hún að styðjast við
hyggjuvitið. 19. Db5+ Kc8 20. Da6+
Kd7 21. Da4+ Kc8 22. Bg5 Hhe8??
Síðasti leikur svarts var ómögu-
legur, eftir 22. -f6 getur svartur e.t.v.
varist en staðan er erfið eftir 23.
Da6+ Kd7 24. Bxf6 Df4+ 25. Hd2. Nú
finnur Kateryna þvingaða vinnings-
leið. 23. Hgel! f6 24. Da6+ Kd7??
Styttir skáJdna og kvölina en eftir
24. -Kb8 25. He3 er öll nótt senn úti.
Hún verður mörgum skákmannin-
um erfið í framtíðinni, hún Ka-
teryna! 25. De6+ og mát!
Islandsvinurinn mikli, Ivan
Hún eryngst kvenna til
að ná stórmeistara-
áfanga í karlaflokki og
nær væntanlega titlinum
innan tíðar.
Sokolov, var grimmur við Svíþjóð-
armeistarann í ár og núverandi
Norðurlandameistara á opna skák-
mótinu í Mainz. Ivan deildi þar
öðru sæti en sigurvegari mótsins
var Alexander Grischuk.
Hvítt: Ivan Sokolov (2693).
Svart: Evgenij Agrest (2605).
Nimzo-indversk vöm.
Mainz (7), 17. ágúst 2003.
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4.
Dc2 d6 5. e3 c5 6. Bd3 Rc6 7. Rge2 0-
0 8. Bd2 cxd4 9. exd4 d5 10. cxd5
exd511.0-0 h612. a3 Bd613. fi He8
14. Hael a6 Ivan teflir byrjunina
nokkuð hægfara og svartur jafnar
taflið auðveldlega. 15. Dcl Be6 16.
Khl Rh517. g3 Df618. Be3 Had819.
H£2Ra5??
Þeir leika sem betur fer stundum
af sér Svíarnir ... Nauðsynlegt var
20. -De7 og staðan hefði verið
nokkum veginn í jafnvægi. Nú veg-
ur Ivan mann og annan! 20. g4! Dh4
21. gxh5 Bf5 22. Bxfi Rb3 23. Ddl
Hxe3 24. Hg2 Hxfi 25. Hfl Rd2 26.
Hfgl Rc4 27. Hxg7+ KfB
En nú mátar hvítur í 2. leik! 28.
Hg8+ 1-0 Eftir 28. -Ke7 er mát eftir
29. Rxd5+