Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2003, Side 4
4 FRÉTTIR LAUGARDAOUR 23. ÁGÚST2003
Fyrsta kornið slegið
HAUSTVERKIN: Fyrsta
kornið var slegið á
Eystra-Seljalandi undir
Eyjafjöllum á fimmtudag.
Óli Kristinn Ottóson,
bóndi á bænum, sagðist
núna ætla að slá sex raða
byggið sem orðið er full-
þroskað. Hann segir aðr-
ar tegundir þurfa aðeins
lengri tíma, ef til vill viku
til hálfan mánuð. Óli
Kristinn er með fjórar
gerðir af byggi í tíu hekt-
ara landi. Kornsláttur er
víða að hefjast nú, hófst
t.d. einnig á Þorvaldseyri
á fimmtudag. Á mynd-
inni hér til hliðar má sjá
Sigurgeir L. Ingólfsson á
fullu við að slá korn.
Sveiflur í gengi deCODE
BETRISTAÐ: Gengi hlutabréfa
í deCODE stendur nú heldur
hærra en á sama tíma í fyrra.
Töluverðar sveiflur hafa verið á
gengi hlutabréfa í félaginu á
markaði í Bandaríkjunum á
undanförnum vikum en það
komst hæst í júní í rúmlega 3,8
dollara á hlut. Á hádegi í gær
var gengið 2,85 dollarar á hlut
eftir viðskipti með 84.218 hluti.
Hafði gengið þá lækkað fyrri
part dags um 2% frá deginum
áður. Gengið nú er hins vegar
talsvert hærra en á sama tíma
á síðasta ári þegar gengi bréfa
í deCODE var komið niður fyrir
2.5 dollara. Það fór lægst í um
1.6 dollara á hlut undir lok
september 2002.
Eru öflugt vopn
fyrir níðinga
(því barnaklámsmáli sem nú er
til rannsóknar hefur komið
fram að hinn grunaði hafi notað
Netið til að tæla unga pilta til
fylgilags við sig. Eins og al-
kunna er eru Netið og Vefurinn
stórkostleg samskiptatæki sem
geta nýst til fjölmargra góðra
hluta. Hins vegar má einnig
nýta þau í þágu ills eins og fjöl-
mörg dæmi eru því miður um.
Á Netinu er mjög auðvelt að
komast í samband við aðra, sér-
staklega unglinga sem nýta sér
þennan miðil mjög mikið. Á IRC-
rásum, sem oft eru einnig kallaðar
spjallrásir, spjalla oft margir ein-
staklingar saman í gegnum tölvur
sínar hverju sinni. IRC-rásir geta
bæði verið sérhæfðar, þannig að
einungis er ætlast til þess að þátt-
takendur spjaULi um ákveðið efni,
en einnig eru almennar rásir þar
sem umræðuéfnið getur verið hvað
sem fólki dettur í hug.
Dæmin hafa samt
sannað hér á landi og
erlendis að þetta er
einnig byrjunarreitur
afbrotamanna sem
vilja lokka til sín sak-
laus ungmenni.
Notendur koma fram undir
svokölluðu „nick“-nafni en sjaldn-
ast undir eigin nafni. Þannig er
erfitt að átta sig á því hverjir það
eru sem taka þátt í spjallinu hverju
sinni. Þetta fyrirkomulag hefur í
senn verið það sem er hvað mest
heillandi við IRC-ið en jafnframt
það varhugaverðasta. Þarna getur
t.d. fólk sem er að jafnaði feimið
tjáð sig óhindrað í ljósi þess að eng-
inn veit hver það er, en um leið geta
óprúttnir einstaklingar þóst vera
aðrir en þeir raunverulega eru. Oft-
ast er það gert f græskulausu
gamni, enda vita reyndir notendur
betur en að treysta öllum þeim
upplýsingum sem aðrir notendur
veita þeim, t.d. um kyn, aldur eða
annað. Dæmin hafa samt sannað,
hér á landi og erlendis, að þetta er
einnig byrjunarreitur afbrota-
manna sem vilja lokka til sín sak-
iaus ungmenni.
IRC fyrsta skrefið af mörgum
í málinu sem um ræðir virðist
einmitt sem hinn grunaði hafi not-
að IRC-rásir til að komast í sam-
ÓÞEKKTUR Á NETINU: Það er auðvelt fyrir níðinga að nota Netið sem fyrsta tól til að komast í samband við vaentanleg fórnarlömb í Ijósi
þess að þar er auðvelt að viðhalda nafnleynd og sigla undir fölsku flaggi.
spjalla saman á Netinu vegna þess
að fólk þarf að þekkjast áður en
spjall getur hafist. Hins vegar verð-
ur öryggið að engu ef barn eða ung-
lingur hefur kynnst einhverjum á
IRC-inu og samþykkt hann inn í
skyndiskilaboðaforritið án þess að
vita nákvæmlega hver á í hlut.
Skyndiskilaboð eru því
öruggari boðleið en IRC
fyrirþá sem vilja
spjalla saman á Netinu.
Hvað er þá til ráða fyrir foreldra
sem vilja koma í veg fyrir að börn
þeirra láti glepjast af níðingum á
Netinu? í fyrsta lagi þarf að brýna
fyrir börnunum að fara mjög var-
lega í öllum samskiptum við þá
sem þau hafa aldrei hitt og koma
þeim í skilning um að ekki sé hægt
að treysta öllum sem taka þátt í
IRC-spjallrásum. Að auki þarf að
vara þau við því að veita upplýsing-
ar um nafn, heimilisfang, síma-
númer eða netfang til þeirra sem
þau þekkja ekki og biðja þau um að
hleypa ekki ókunnugum inn á vina-
lista skyndiskilaboðaforrita sinna.
kja@dv.is
band við unga drengi og talið þeim
trú um að hann væri stúlka. í fýrstu
hafi spjallið verið almenns eðlis en
síðan hafi það orðið kynferðislegra,
þar sem hinum grunaða tókst með
blekkingum að fá viðmælendur sína
til að taka þátt í athæfi sem þeir
hefðu undir venjulegum kringum-
stæðum ekki samþykkt. Þannig get-
ur Netið, og sérstaklega IRC-rásir,
orðið níðingum að vopni til að kom-
ast í samband við börn og unglinga.
Eftir að það hefur tekist og níð-
ingurinn áunnið sér ákveðið traust
hjá viðmælendum sfnum getur
hann farið að beita öðrum sam-
skiptaháttum á Netinu. Til dæmis
getur hann farið að skiptast á tölvu-
pósti við viðmælendur sína og
tengst þeim í gegnum skyndiskila-
boðaforrit á borð við MSN-
messenger eða ICQ. Slfk
skyndiskilaboðaforrit eru mjög vin-
sæl meðal ungs fólks en eru frá-
brugðin IRC að því leyti að þar
þurfa báðir notendur að samþyldcja
að vera hvor á vinalista annars.
Þegar það hefur svo verið samþykkt
sjá báðir notendur hvenær hinn er
nettengdur og geta spjallað saman í
einrúmi.
Hvað er til ráða?
Skyndiskilaboð eru því öruggari
boðleið en IRC fyrir þá sem vilja
Veðriðídag
VeOríÖ kl. 121 gmr
Árdegisflóö
Rvfk 03.06
Ak. 07.39
Akureyri
Reykjavfk
Bolungarvfk
Egilsstaðir
Stórhöfði
Kaupmannah.
Ósló
Stokkhólmur
Þórshöfn
London
Barcelona
NewYork
París
Winnipeg
skýjað
skýjað 16
léttskýjað 12
súld 12
léttskýjað 16
rigning 17
skýjað 18
skýjað 15
léttskýjað 24
þokumóða 27
léttskýjað 24
heiðskfrt 20
Sólarlag í Sólarupprás á
kvöld morgun
Rvfk21.17 Rvfk 05.45
Ak. 21.14 Ak.05.42
Síðdegisflóð
Rvfk. 15.45
Ak. 20.18