Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2003, Page 12
12 FRÉTTIR LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST2003
Útlönd
HeimurinnJ finotskurn
Umsjón: Guðlaugur Bergmundsson
Netfang: gube@dv.is
Sími: 550 5829
Berlusconi ekki í óperuna
MILLIRÍKJADEILUR: Ekkertvarð
úr því að þeir Silvio Berlusconi,
forsætisráðherra (talíu, og Ger-
hard Schröder Þýskalands-
kanslari græfu stríðsöxina á óp-
erusýningu í hringleikahúsinu í
Veróna í gærkvöld, eins og til
stóð.
Grunnt hefur verið á því góða
milli þeirra síðan Berlusconi líkti
þýskum Evrópuþingmanni við
nasista í síðasta mánuði. Leið-
togarnir hafa ekkert hist síðan
þá en vonast var til að sættir
myndu nást á sýningu á óper-
unni Carmen sem þeir ætluðu
að horfa á með Romano Prodi,
forseta framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins.
Berlusconi hætti við vegna fyrir-
hugaðra mótmælaaðgerða.
Leiðtogarnir hittast I dag.
Silungur of ódýr
FÆREYJAR: Evrópysambandið heldur
því fram að Færeyingar hafi selt eldis-
silung ínn á markaði ESB fyrir 33 pró-
sent lægra verð en sem nemur fram-
leiðslukostnaðinum. En þar sem lltill
hluti framleiðslunnar fer á markað f
ESB munu refsitollar ekki hafa mikil
áhrif. Finnar höfðu kært Norðmenn til
ESB fyrir undlrboð á silungi og var þá
ákveðið að kanna verðlagningu Fær-
eyinga í leiðinni.
Hamas-leiðtogijarðsetturí Gazaborg:
Syrgjendur
vilja hefnd
Eitt hundrað þúsund Palest-
ínumenn voru við útför Ham-
asleiðtogans Abus Shanabs og
tveggja lífvarða hans í Gaza-
borg í gær. ísraelsmenn felldu
þá í flugskeytaárás á bíl þeirra
á fimmtudag, í hefndarskyni
fyrir sjálfsmorðsárás í strætis-
vagni í Jerúsalem þar sem tutt-
ugu fórust, þar af sex börn.
Skothvellir kváðu við og mann-
fjöldinn hrópaði á hefnd þégar lík-
gangan sniglaðist um götur Gaza-
borgar. Shanab naut mikilla vin-
sælda meðal landa sinna og fékk
hann útför píslarvotts. Sérfræðingar
telja að dauði hans geti orðið til að
auka enn á róttækni Hamas og að
hann geti orðið kveikjan að enn
frekari ofbeldisverkum.
Gegndi lykilhlutverki
„Hann var hófsamur maður,“
sagði Ziad Abu Amr, sérfræðingur í
málefnum íslamskra harðlínu-
manna og helsti samningamaður
palestínsku heimastjórnarinnar við
Hamas, í viðtali við fréttamann
Reuters. „Nú er erfitt að sjá hvar
hrina drápa og hefnda mun enda.“
ísraelsk yfirvöld sögðu að hinn 53
ára gamli Abu Shanab hefði verið í
hópi þeirra sem stjórnuðu hernað-
ararmi Hamas sem ber ábyrgð á
dauða mörg hundruð ísraela í nærri
þriggja ára langri uppreisn Palest-
ínumanna.
Shanab var einn helsti talsmaður
Hamas og gegndi lykilhlutverki í
viðræðum við Mahmoud Abbas,
forsætisráðherra palestínsku
heimastjórnarinnar, um vopnahlé
sem herská samtök Palestínu-
manna lýstu yfir í lok júní, án þess
að á móti kæmi loforð Israela um að
láta af hernaðaraðgerðum sínum.
Hamas og samtökin Heilagt stríð
íslams féllu frá sjö vikna löngu
vopnahléi í baráttunni við ísrael eft-
ir að Shanab hafði verið felldur á
fimmtudag.
Sérfræðingar telja að
dauði Shanabs verði til
að auka enn á róttækni
Hamas og að hann
verði kveikjan að enn
frekari ofbeldisverkum.
Fréttaritari breska ríkisútvarpsins
BBC á Gaza sagði að útlitið í sam-
skiptum Palestínumanna og ísraela
væri dapurlegt.
„Hvorir tveggja vita að erfiðir
tímar em fram undan," sagði frétta-
ritarinn Chris Morris.
Eiga ekki von á góðu
Israelar hafa hótað grimmilegum
hefndum gegn Hamas fyrir sjálfs-
morðsárásina í strætisvagninum í
Jerúsalem og að sögn heimildar-
manna eru nokkrir leiðtoga hreyf-
ingarinnar þegar farnir í felur.
Hamasliðar sögðu að þeir ættu
von á að hart yrði sótt að þeim á
næstu dögum en sérfræðingar
sögðu að samtökin myndu standa
af sér veðrið. ísraelskir ráðamenn
höfðu sakað samtökin um að not-
færa sér vopnahléið til að safna
kröftum og byggja upp einingar á
bæði Vesturbakkanum og Gaza.
ÚTFÖR Á GAZA: Útför Hamasleiðtogans
Abus Shanabs og tveggja lífvarða hans
var gerð í Gazaborg (gær, aö viðstödd-
um hundrað þúsund Palestlnumönn-
um. (sraelar felldu þremenningana (
flugskeytaárás á fimmtudag.
Hinsta ósk Sergios Vieira de Mellos:
SÞ fari ekki frá írak
Sergio Vieira de Mello lýsti
þeirri ósk sinni, þar sem hann
lá í andarslitrunum undir rúst-
um höfuðstöðva Sameinuðu
þjóðanna í Bagdad á þriðju-
dag, að samtökin héldu áfram
starfsemi sinni þar.
„Enda þótt hann liði miklar kval-
ir, þar sem hann var fastur í rústum
skrifstofu sinnar, sagði hann við
Von Zehle, liðþjálfa í sveitum
bandamanna sem voru að reyna að
bjarga honum: Ekki leyfa þeim að
kalla samtökin heim," sagði Benon
Sevan, samstarfsmaður de Mellos,
á flugvellinum í Bagdad í gær þegar
lfk yfirmanns SÞ í Irak var sett um
borð í flugvél sem flutti það áleiðis
til heimalands hans, Brasilíu.
De Mello og að minnsta kosti
HINSTA FERÐIN HEIM: Kista með Ifki
Sergios Vieira de Mellos, yfirmanns SÞ I
(rak, var flutt heim til BrasiKu í gær. De
Mello og rúmlega tuttugu aðrir fórust í
sjálfsmorðsárás á höfuðstöðvar SÞ (
Bagdad á þriðjudag.
tuttugu og þrír aðrir fórust í sjálfs-
morðsárásinni á höfuðstöðvarnar.
Viðtækt umboð til SÞ
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
SÞ, hvatti til þess í gær að samtök-
unum yrði veitt víðtækara umboð
til að vera með í endurreisnarstarf-
inu f írak.
Hann sagði að Bandaríkin
myndu að öðrum kosti eiga „mjög
erfitt" með að fá Öryggisráðið til að
samþykkja nýja ályktun um að fleiri
ríki sendi hermenn til starfa í frak.
Bæði Bandaríkjamenh og Bretar
útiloka að Bandaríkin deili foryst-
unni þar með öðrum löndum.
Dominique de Villepin, utanrík-
isráðherra Frakklands, hafnaði ósk-
um Bandaríkjamanna í gær og
sagði að senda ætti alþjóðalið með
umboð frá SÞ.
Blairkominn heim úrsumarfríi:
Sælan er úti
Þriggja vikna sumarleyfis-
sæla Tonys Blairs, forsætis-
ráðherra Bretlands, í lúx-
usvillu poppsöngvarans
Cliffs Richards á Karíbahafs-
eyjunni Barbados er nú úti.
Blair og fjölskylda komu heim
tii Bretlands í gærmorgun. Strax í
næstu viku þarf hann að svara
erfiðum spurningum fyrir nefnd
Huttons lávarðar sem rannsakar
dauða vopnasérfræðingsins Dav-
ids Kellys sem svipti sig lífi í síð-
asta mánuði.
Kelly var heimildarmaður
fréttar BBC um að stjórnvöld
hefðu ýkt hættuna af gjöreyðing-
arvopnum íraka til að til að afla
stríði gegn þeim stuðnings.
ERFIÐIR TÍMAR: Tony Blair, forsætis-
ráðherra Bretlands, er ekki öfunds-
verður þessa dagana. Næsta vika gæti
skipt sköpum í baráttu hans fyrir því
að endurheimta traust almennings (
kjölfar (raksstríösins og eftirmála þess.