Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2003, Side 26
26 ÖV tiÉLGÁfÍBLA§ LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST2003
MARGFÖLD MÓÐIR: “Þetta smáfólk mltt gerir mig einstaklega ríka. Ef þau væru ekki til væri ég einhver allt önnur kona," segir hin 27 ár Inga Lind sem er með fjögur börn á
heimilinu.
Ingibjörg Lind Karlsdóttir mun í vetur hjáipa
landanum að komast í gang á morgnana sem
einn af morgunhönum Stöðvar 2 í morgun-
þættinum ísland í bítið. Inga Lind er áhorfend-
um að góðu kunn því hún hefur í sumar unnið
á fréttastofu stöðvarinnar, jpar sem hún færði
landanum t.d. hina umtöluðu laxafrétt. Hvort
hún plumarsig í dagskrárgerðinni í vetur mun,
að hennar sögn, ekki velta á því hvort hún
vaknar nógu tímanlega því stelpan er algjör
morgunhæna.
„Er ekki alltaf talað um það að fólk sé ann-
að hvort a- eða b-manneskjur. Ég held að
það sé nokkuð ljóst hvoru megin ég er, enda
sprett ég óstúrin upp á morgnana eins og
ekkert sé og hef gert það alveg síðan ég var
krakki," segir sjónvarpskonan Inga Lind þar
sem hún skellir sjóðheitu kaffi á eldhús-
borðið á heimili sínu í Garðabæ. Það er vel
við hæfi að taka viðtal við þennan verðandi
morgunhana Stöðvar tvö snemma dags því
frá og með 1. september mun hún fara á fæt-
ur klukkan hálfsex á morgnana og sjá, ásamt
Eiríki Hjálmarssyni, um Island í bítið, morg-
unþátt sem er í loftinu alla virka daga milli
kl. 7 og 9. „Ég er löngu komin á fætur í dag,
búin að gefa krökkunum morgunmat og
koma miðbarninu á leikskólann," segir Inga
Lind þegar geispandi blaðamaðurinn þiggur
kaffi um níuleytið.
Laxafréttin minnisstæð
Inga Lind yfirgaf fréttastofu Stöðvar 2 í
gær og segist hafa gert það með eftirsjá.
Fréttamennskan hefur, að hennar sögn,
lagst vel í hana, þrátt fyrir að hún hafi upp-
lifað nokkra jarðskjálfta innan fréttastof-
unnar f sumar. Skemmst er að minnast upp-
sagnar sjö kvenna á fréttastofunni, sem og
mikils titrings nýlega meðal starfsmanna
vegna fréttarinnar um laxveiði Geirs Haarde
í boði Kaupþings - Búnaðarbankans. Reynd-
ar var það Inga Lind sem vann þá frétt og
hún segir hana vissulega vera eina af minn-
isstæðustu fréttum sumarsins.
„Það getur vel verið að ég
verði alveg óþolandi á skján-
um en þá verður bara að hafa
það og ég verð að taka því.
Málið er að það er alveg hægt
að vera frábær manneskja þó
að maður virki ekki í sjón-
varpi og efsvo er má maður
ekki álíta sig alveg ómöguleg-
an að öllu leyti fyrir vikið
„Þetta mál varpar einna bestu ljósi á það
hversu fréttamenn Stöðvar 2 eru ofboðslega
samheldinn og öflugur hópur þar sem menn
bakka hver annan upp í blíðu og stríðu. Þó
svo að ég hafi í upphafi fengið því verkefni
úthlutað að vinna þessa frétt fannst mér svo
frábært að finna fyrir stuðningi samstarfs-
manna minna í þessu máli, sem og í raun
starfssystkina minna á öðrum fjölmiðlum
líka,“ segir Inga Lind. Hún bætir við að
vissulega hafi einnig verið erfitt og sorglegt
að horfa upp á það að góðu fólki var sagt
upp fyrr í sumar, en þær uppsagnir hafi
sannarlega þyngt róðurinn hjá þeim frétta-
mönnum sem eftir eru.
- Nú er oft talað um að fjölmiðlafólk hafi
annaðhvort hart fréttanef eða sé meira í
mjúkum málum. Hvar stendur þú?
,Ætli ég sé nokkuð búin að finna mig enn.
Mér líður rosalega vel í báðum þessum geir-
um. Ég væri algjörlega til í að fara aftur í
fréttirnar einhvern tímann en tíminn verður
bara að leiða í ljós hvað verður,“ segir Inga
Lind og ýtir heitri kaffikönnunni frá yngsta
guttanum, Hauki, 16 mánaða. Auk hans á
hún tvö önnur börn, Matthildi Margréti, 3
ára, og Hrafnhildi Helgu, 6 ára, auk þess sem
Arnhildur Anna,ll ára, dóttir eiginmanns
hennar, Árna Haukssonar, forstjóra Húsa-
smiðjunnar, er einnig mikið á heimilinu.
- Fjögur börn og þú bara 27 ára. Það er
vissulega óvenjulegt nú til dags.
„Já, ég veit, en það er ekki þar með sagt að
það sé slæmt. Þvert á móti finnst mér ég
vera heppin og hamingjusöm kona og þetta
smáfólk mitt gerir mig einstaklega ríka. Ef
þau væru ekki til væri ég einhver allt önnur
kona,“ segir Inga Lind og brosir.
Barnmargt heimili
Það hvarflar óneitanlega að manni að
Inga Lind sé ein af þessum ofurkonum sem
eru fallegar, klárar og geta allt. Samhliða
barnauppeldinu kláraði hún hagnýta ís-
lensku í háskólanum, var í spennandi fjöl-
miðlavinnu og á kafi t' stúdentapólitík.
„Nei, ég er engin ofurkona og vil alls ekki
vera það.Ég fæ meira að segja húshjálp
tvisvar í mánuði til að laga til hjá mér en
annars er ég löngu hætt að pirrast yfir
brauðmylsnu hér og þar - svona er þetta
bara þegar maður er með börn," segir Inga
Lind og hlær að þessri ofurkonustaðhæf-
ingu. „Einhvern veginn hef ég verið svo
heppin að rata í vinnu og nám sem hentar
vel með barneignum. Þegar ég var í skólan-
um virkuðu börnin sem aðhald við námið
og maður nýtti kannski betur þann tíma
sem maður hafði lausan fyrir námið þvi'
maður vissi að það var ekki um neitt annað
að ræða. Þannig að það er ekkert svo slæmt
að eiga börn og vera í skóla. „Vinnan í morg-
unsjónvarpinu hentar, að hennar sögn,
einnig mjög vel því hún er komin heim á há-
degi og börnin því bara hálfan dag á leik-
skóla og f skóla.
„Ég legg mikla áherslu á að vera mikið
með börnunum mínum og það hefur gengið
vel hingað til. Auðvitað er margt sem mann
langar til að gera sem maður gerir ekki af því
að maður er vissulega bundinn yfir börnun-
um. En þau eru bara svo frábær að ekkert
: ;;
fn
L $