Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2003, Page 35
LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST2003 DV HÉLGAfWLÁB 39
I
Innifalið í verði: Samsettir veggir, einangrun, tollur, virðisauki,
flutningur, vottanir og leyfi, allar fagteikningar frá sökkli og upp úr og fleira.
Gerum tilboð í alla verkþætti hússins.
Við erum sveigjanleg og vinnum eftir þínum þörfum.
Erum að byggja á Egiisstöðum, á Austfjörðum
í Vogum, Vatnsieysu og í Reykjavík,
www.reykjabraut.is s. 595-0102
NAUTIÐ: Ellý, sem er 33 ára, segist í raun hafa komist langt á þrjósku nautsins. Hún er
alin upp í Árbænum en varð snemma sjálfstæð og varfarin að standa á eigin fótum 15
ára. „Ég er stúdent frá Verslunarskóla Islands þar sem ég lagði reyndar meiri metnað í
félagslífið en námið."
„Ég held ég passi vel við hvaða merki sem
er. Er það ekki líka þannig að ef maður er
sjálfur í jafnvægi og búinn að finna sitt
sanna sjálf þá er maður fær um að eiga góð
samskipti við hvern sem er?" segir Ellý, að-
spurð hvaða elskhugi passi best við hana
samkvæmt bókinni „Spáðu í mig“ þar sem
hægt er að sjá hvernig ákveðin stjörnumerki
passa við manns eigið út frá ástinni. Sjálf er
Ellý naut en eins og er
er elskhuginn enginn.
- Eftir að hafa flett
þessari bók þá er ég
sjálf engu nær varð-
andi það hvaða merki
passar best við mig,
mér finnst öll merkin
vera svo jákvæð?
„Já, er það ekki frá-
bært! Varla ertu óá-
nægð með það, það
gefur þér þá bara enn
meiri möguleika," seg-
ir Ellý og sendir eitt af
sínum sjarmerandi
brosum yfir borðið til blaðmanns DV sem er
djúpt sokkinn í bókina, vegandi og metandi
hugsanlega elskhuga út frá eigin stjörnu-
merki.
Umrædd bók er gefín út af Sölku en skrá-
sett af Ellýu í nafni dularfulls spámanns sem
einnig birtir stjörnuspár og ýmsa spádóma á
heimasíðunni www.spamadur.is, - heima-
síðu sem fyrirtæki Ellýjar, Ingunn ehf. (skírt
í höfuðið á ömmu Ellýjar), heldur úti.
- Er virkilega um einhvern spámann að
ræða? Er þetta ekki bara eitthvert bull upp
úr þér sjálfri?
„Nei, nei, nei,“ svarar Ellý, hristir lymsku-
lega höfuðið en ég sé samt ekki hvort hún er
með lygaramerki á puttanum. „í fyrsta lagi
þá skulum við átta okkur á því að þetta er
allt saman bara til gamans gert og líta ber á
stjörnuspár sem afþreyingu en ekki ein-
hvem heilagan sannleik. Miðað við heim-
sóknir á vefmn spamadur.is, en um 3000
einstaklingar kíkja þangað inn daglega, hafa
íslendingar mjög gaman af því að spá í þessi
mál. Erum við líka ekki öll að leita að þessu
góða og þessu jákvæða? - en það er einmitt
þess konar ráð og spár sem spámaðurinn
reynir að gefa.“
Ástarspil væntanleg
Landsmenn þekkja flestir Ellýu sem sjón-
varpsþuluna á RÚV en ekki sem konu í at-
vinnurekstri. Hvað þá konu sem á í dular-
fullu sambandi við spámann sem ekki vill
láta nafns síns getið en hefur fyllt vef henn-
ar af efni í þrjú ár. „Þegar ég stofnaði þetta
fyrirtæki f upphafi var vefurinn hugsaður
sem fjölskylduvefur en fljótlega kom hins
vegar í ljós að það var stjörnuspáin sem fólk
sótti hvað mest í og út frá því var vefurinn
spamadur.is þróaður," upplýsir Ellý. Auk
hinnar nýútkomnu bókar, Spáðu í mig, hef-
ur fyrirtækið sent frá sér sérstök spádóms-
spil og einnig eru þar til gerð ástarspil vænt-
anleg á markað fýrir jólin. „Þessi spil virka
þannig að þú spyrð einhverra spurninga
sem hjartað vili fá svar við - en hjartað er
eina líffærið sem heilinn stjórnar ekki. Þú
leggur spilin og þau svara þér varðandi ást-
ina, hvað bíður þín og hvernig þú átt að taka
á málunum."
Fyrir þá sem ekki hafa gaman af svona af-
þreyingu hljómar þessi vefur, bók og spil
sem eitthvert algjört bull - enda segist Ellý
alveg hafa orðið vör við fordóma í garð fyrir-
tækisins þegar hún hefur verið að markaðs-
setja það. „Það er vissulega ekki létt að vera
að byggja upp eigin rekstur innan um alla
þessa jakkafatakarla í samfélaginu sem
hrista hausinn og segja: „Jæja elskan, ertu
bara komin í andlega geirann!" - en ég tek
það fram að ég er alls
ekki í neinu slíku held-
ur flokka fyrirtækið
undir afþreyingu og
skemmtun," segir Eflý
sem er eins og áður
hefur komið fram naut
og er því ekki á því að
gefast upp. „Ég var að
vinna hjá EJS á tíma-
bili og þar kviknaði
eiginlega áhugi minn á
Netinu og möguleik-
um þess. Þessi vefur er
ekki bara fín við-
skiptahugmynd held-
ur hefur hann svo margt jákvætt að gefa
fólki. Mín stjörnuspá er t.d. alltaf mjög já-
kvæð þannig að það er ekki amalegt að byrja
daginn á því að lesa spá dagsins. En auðvit-
að kemur spámaðurinn líka oft með ýmsar
ábendingar sem eiga vel við. Það er eigin-
lega alveg ótrúlegt hvað ráð hans eiga oft vel
við," segir Ellý hlæjandi - og notar tækifærið
til að benda á að spámaðurinn er einnig far-
inn að nýta sér farsímatæknina en í gegnum
Og vodafone er hægt að fá daglega stjörnu-
spá senda frá honum í gegnum sms.
Með 7000 krónur til Portúgals
Ellý, sem er 33 ára, segist í raun hafa kom-
ist langt á þrjósku nautsins. Hún er alin upp
í Árbænum en varð snemma sjálfstæð og var
farin að standa á eigin fótum 15 ára. „Eg er
stúdent frá Verslúnarskóla Islands þar sem
ég lagði reyndar meiri metnað í félagslífið
en námið. Ég var Ijósmyndari Verslunar-
skólablaðsins og Viljans og var bara meira
og minna niðri í ljósmyndaherbergi að
framkalla," minnist Ellý. Eftir að hafa fallið í
þýsku, þá hálfnuð í stúdentinn, dreif óþolin-
mæðina hana sem skiptinema til Þýska-
lands og kom hún til baka fljúgandi fær í
tungumálinu - sem hefur á seinni árum
nýst henni við leiðsögu erlendra ferða-
manna hér heima.
„Eftir stúdentsprófið fór ég ásamt vin-
konu minni til Portúgals að freista gæfunn-
ar, einungis með 7000 krónur í vasanum.
Við vissum ekkert hvað við vorum að fara út
í en okkur langaði til að takast á við eitthvað
annað en skólasetu og próflestur," segir Ellý.
Vinkonurnar voru heppnar, þær fengu fljót-
lega vinnu á veitingahúsi og voru úti í rúmt
ár. „Þetta var mjög skemmtilegur tími. Við
fengum virklega að finna fyrir lífinu, ferðuð-
umst og skemmtum okkur. Svo eitt kvöldið
var ég að labba heim úr vinnunni og lagið
„oh baby baby it’s a wild world its hard to
get by just up on a smile ..." með Cat Stevens
ómaði út á götu og þá vissi ég að það var
kominn tími til þess að fara heim. Maður var
búinn að leika sér í ár og þetta var orðið
gott," segir Ellý sem segist hafa komið heim
tilbúin til þess að festa rætur og eignast fjöl-
skyldu. I dag á hún tvo drengi, 4 og 7 ára
gamla, og 10 ára samband að baki.
„Ég fór í sumar
aftur á gamlar
slóðir í Portúgal
og lagði þar loka-
hönd á bókina.
„Ha, tala ég sexí! Það er þá
ekki meðvitað! Ég reyni hins
vegar alltafað tala skýrt og
skilmerkilega og hugsa þá oft
til eldra fólksins. Þetta fólk er
oft einmana og vill fá
smávegis félagsskap inn í
stofu og því finnst mér að þul-
an eigi að halda velli."
SPÁÐ íÁSTINA: „Hjartað er eina líffærið sem heilinn stjórnar ekki," segir Ellý sem óneitanlega spáir mikið í ástina
þessa dagana, þó hún sé einhleyp. Hún er ekki bara nýbúin að skrásetja bók sem fjallar um stjörnumerkin og ást-
ina heldur eru einnig ástarspil væntanleg á markað frá fýrirtæki hennar fyrir jólin.
Ég lét engan vita af því að ég væri væntanleg
en það var ofsalega gaman að hitta gamla fé-
laga aftur og rifja upp gamla tíma."
Þulan á að halda velii
Fram undan eru miklar annir hjá Ellý en
Salka mun kynna bók-
ina á bókamessu í
Frankfurt í haust. Ást-
arspilin góðu eru
einnig komin í fram-
leiðslu og að hennar
sögn erýmislegt fleira í
bfgerð frá spámannin-
um sem tengist
stjörnumerkjum og
kærleika. Ellý verður
svo að sjálfsögðu
áfram að finna á skján-
um í vetur í sjónvarpi allra landsmanna,
fimm kvöld í mánuði, í um 10 sekúndur í
senn.
- Ekki meira en það, mér finnst þú alltaf
vera á skjánum! En þú verður kannski bara
svona eftirminnileg af því að þú talar svo
sexf...
„Ha, tala ég sexí!" Það er þá ekki meðvit-
að!“ segir Ellý og skellihlær. „Ég reyni hins
vegar alltaf að tala skýrt og skilmerkilega og
hugsa þá oft til eldra fólksins. Þetta fólk er
oft einmana og vill fá smávegis félagsskap
inn í stofu og því finnst mér að þulan eigi að
halda velli. Kynningarnar tengja dagskrána
saman og svo erum við
líka alltaf til staðar ef
eitthvað kemur upp á
og dagskráin raskast."
Ellý segist kunna vel
við sig á RÚV en hún
hafi samt engan sér-
stakan áhuga á þvf að
færa sig út f alvörudag-
skrárgerð. Skriftirnar
fyrir spámanninn, sem
hún sinnir að mestu
eftir miðnætti, gefi
henni mikla ánægju og nóg að sinni.
„Það kom mér skemmtilega á óvart
hversu góður vinnustaður RÚV er. Fólkið,
umhverfið og andinn - það er afskaplega
notalegt að vinna þarna," segir Ellý og bætir
hvíslandi við um leið og hún kímir að spá-
maðurinn hafí reyndar sagt henni að þulu-
klefinn sé fullur af fólki... snaeja@dv.is
„Ég held ég passi vel við
hvaða merki sem er. Er það
ekki líka þannig að efmaður
er sjálfur í jafnvægi og búinn
að finna sitt sanna sjálfþá er
maður fær um að eiga góð
samskipti við hvern sem er?"