Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2003, Qupperneq 36
40 DV HELGARBLAD LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST2003
Harma að hefna
Newcastle tekur á móti Manchester United í dag
GAMLIR OG GÓÐIR: Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, og Bobby Robson, knattspyrnustjóri Newcastle, mætast ídag. Reuters
Önnur umferð ensku úrvalsdeildar-
innar í knattspyrnu hefst í dag með
átta leikjum. Ekki er hægt að segja
annað en að deildin hafi farið vel af
stað því að í fyrstu umferðinni voru
skoruð 36 mörk í tíu leikjum.
Fyrsti leikur helgarinnar er sá stærsti en þá
tekur Newcastle á móti Manchester United á
St. James’ Park. Leikmenn Newcastle eiga
ekki góðar minningar frá leikjum liðanna á
síðustu leiktíð þvf að þá vann Manchester
United báða leikina, 5-3 á heimavelli og 6-2 á
útivelli.
„Þessi leikur verður próf á getu okkur. Það
er alltaf erfitt að mæta þeim, hvort heldur sem
er á heimavelli eða útivelli, en það er reyndar
alveg eins gott að mæta þeim núna. Við verð-
um að stoppa sóknarleikinn hjá þeim því að
við fengum of mörg mörk á okkur gegn þeim í
fyrra. Þeir spila mjög hraða knattspyrnu og
eru með marga frábæra leikmenn sem við
berum virðingu fyrir upp að vissu marki en
það má ekki gleyma því að við eigum einnig
marga mjög góða menn," sagði varnarjaxlinn
Andy O’Brien hjá Newcastle.
Franski varnarmaðurinn Mikael Silvestre
hefur mikla trú á liði Manchester United og
segir það vera öílugra en á síðasta tímabili.
„Ef lið á að ná árangri þarf það að hafa
sterka leikmenn í vörn, miðju og sókn. Mér
fmnst liðið sem heild vera sterkara núna sem
heldur en í fyrra því að breiddin er meiri. Við
höfum fengið til okkar marga unga leikmenn
sem eru hæfileikaríkir og það er virkilega
gaman hjá okkur núna,“ sagði Silvestre, sem
mun að öllum líkindum spila sem miðvörður
með Rio Ferdinand í dag.
Augu flestra beinast þó að portúgalska
ungstirninu Cristiano Ronaldo. Hann átti frá-
bæra innkomu gegn Bolton um síðustu helgi
en það þykir ólíklegt að Aiex Ferugson láti
hann byrja.
Spennandi sóknarpar
Southampton tekur á móti Birmingham í
dag. Það verður spennandi að fylgjast með því
hvort Kevin Phillips, sem kom inn á sem vara-
maður í síðasta leik Southampton og skoraði,
verður í framlínunni ásamt James Beattie en
Phillips er sjálfur sannfærður um að sam-
vinna þeirra muni skila miklu fyrir félagið í
vetur.
„Ég er mjög ánægður með að hafa Beattie í
liðinu og vona að við náum að tengjast. Ég er
viss um að við getum náð vel saman en það
gæti tekið tíma. Ég held hins vegar að það sé
vel þess virði að gefa okkur nokkra leiki - liðið
gæti grætt á því þegar til lengri tíma er litið,"
sagði Phillips.
Birmingham varð fyrir miklu áfalli um síð-
ustu helgi þegar í ljós kom að franski fram-
herjinn Cristophe Dugarry verður frá næstu
íjórar vikurnar en þeir sýndu það í fyrsta leik
gegn Tottenham að þeir geta vel bitið frá sér.
Meiðsl á meiðsl ofan
Glenn Hoodle, knattspyrnustjóri Totten-
ham, hefur ekki farið varhluta af meiðslum
síðan hann tók við liðinu og nú í vikunni
missti hann Robbie Keane í meiðsl. Hoodle er
undir mikilli pressu og hann veit að hans
gamli félagi í enska landsliðinu, Peter Reid hjá
Leeds, mun ekki gefa honum nein grið.
„Ég veit að Peter [Reid] og leikmenn hans
munu mæta með hjartað á réttum stað og
mikinn sigurvilja. Þetta verður mjög erfiður
leikur fyrir okkur en við ætlum að gera þeim
erfítt fyrir," sagði Hoodle.
Leeds kom nokkuð á óvart í fyrsta leik og
var óheppið að sigra ekki Newcastle á heima-
velli sínum. Þeir treysta mikið á framherja
sfna, Mark Viduka og Alan Smith, en þeir
skoruðu báðir gegn Newcastle um síðustu
helgi.
Bíða eftir fyrsta sigri
Wolves og Charlton mætast á Molineux-
leikvanginum, heimavelli Wolves. Þau töp-
uðu bæði illa um síðustu helgi. Wolves steinlá
fyrir Blackburn, 5-1, á útivelli en Charlton
tapaði fyrir Manchester City, 3-0, á heima-
velli.
Norski framherjinn Steffen Iverson, sem
skoraði eina mark Wolves gegn Blackburn,
sagði eftir þann leik að þriðja mark Blackburn
hefði dregið allan mátt úr liðinu.
Charlton fór flatt á því um síðustu helgi að
þeir gátu ekki stöðvað Frakkann Nicolas An-
elka hjá Manchester City. Það er þó enginn
framherji hjá Wolves sem kemst með tærnar
þar sem Anelka hefur hælana þannig að þeir
áttu að eiga möguleika.
Ólíku saman að jafna
Bolton og Blackburn áttu ólíku gengi að
fagna í fyrstu umferðinni. Bolton steinlá fyrir
meisturum Manchester United en Blackburn
vann stórsigur á Wolves.
Blackburn ætlar sé stóra hluti í deildinni í
vetur og til þess að það geti orðið að veruleika
þurfa þeir að vinna lið eins og Bolton.
Gary Flitcroft, fyrirliði Blackburn, sagði í
gær að hann hefði ekki áhyggjur af því að leik-
menn Blackburn væru ekki komnir niður á
jörðina eftir stórsigurinn gegn Wolves.
„Það er alltaf erfitt að spila á móti Bolton og
við gerum okkur fyllilega grein fyrir því að við
fáum ekkert fyrir sigurinn gegn Wolves," sagði
Flitcroft, sem hefur búið í úthverfi Bolton frá
því hann fæddist.
Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Bolton,
vonast til að framherjinn Mario Jardel geti
tekið þátt í leiknum en hann er ekki kominn í
fulla leikæfmgu.
Roman mætir á svæðið
Það er mikill munur á Chelsea og Leicester
þegar horft er til þeirra leikmanna sem liðin
hafa keypt í sumar. Leicester hefur fengið til
sín ellefu leikmenn, þar af tíu á frjálsri sölu, en
Chelsea hefur keypt stórstjörnur í unnvörp-
um fyrir peninga Rússans Romans
Abramovich. Hann mun mæta á leikinn á
morgun og bjóst John Terry, fyrirliði Chelsea,
við því að stuðningsmenn liðisns myndu
fagna Abramovich eins og þjóðhetju. Ekkert
annað en sigur kemur til greina hjá stjörnum
prýddu liði Chelsea og vonandi fær Eiður
Smári Guðjohnsen aftur tækifæri í byrjunar-
liðinu.
Eins árs ævintýri?
David Moyes, knattspyrnustjóri Everton, er
staðráðinn í því að sanna fyrir knattspyrnuá-
hugamönnum og spekingum að árangur liðs-
ins hafi ekki verið tilviljun. Til þess að það geti
orðið þarf liðið nauðsynlega á sigri að halda
gegn Fulham í dag.
„Fólk heldur að árið í fyrra hafi verið eins
árs ævintýri en við erum að byggja upp ungt
lið sem á að geta blandað sér í baráttuna um
titilinn á næstu árum. Við töpuðum fyrsta leik
og þurfum að bæta fyrir það í dag,“ sagði
Moyes.
Chris Coleman, knattspyrnustjóri Fulham,
vill fá sömu baráttuna í sína menn og gegn
Middlesbrough um síðustu helgi.
„Við þurfum að koma okkur niður á jörðina
og sýna sömu baráttu og liðsanda og við
sýndum síðast. Ef það gerist hef ég engar
áhyggjur."
Er hægt að stöðva Anelka?
Franski framherjinn Nicolas Anelka var frá-
bær í sigurleik Manchester City gegn Charlton
um síðustu helgi og verður fróðlegt að fylgjast
með því hvernig varnarmönnum Portsmouth
gengur að stöðva hann.
Harry Redknapp, knattspyrnustjóri
Portsmouth, veit að hans menn eiga von á erf-
iðum leik.
„Manches'ter City er með frábært lið eins og
kom í ljós um síðustu helgi. Við eigum erfiðan
leik fyrir höndum en ég vona að sigur okkar
gegn Aston Villa um síðustu helgi hafi sýnt
mínum mönnum að þeir eiga fullt erindi í
deildina," sagði Redknapp.
Kevin Keegan, knattspymustjóri Manchest-
er City, varaði sína menn við vanmati.
„Það gekk vel í fyrsta leik en við fáum lítið
fyrir það gegn Portsmouth. Við ætlum okkur
stóra hluti og þurfum að vinna alla heimaleiki
okkar,” sagði Keegan.
Houllier þarf sigur
Liverpool mætir Aston Villa á Villa Park og
þarf nauðsynlega á sigri að halda eftir tap
gegn Chelsea í fyrstu umferð. Hagur Liverpool
vænkast nokkuð því að Steven Gerrard verður
með á nýjan leik eftir að hafa tekið út leikbann
í fyrsta leiknum. Aston Villa þarf einnig á sigri
að halda eftir hörmulegan leik gegn
Portsmouth um síðustu helgi.
Houllier var ánægður með sína menn í
leiknum gegn Chelsea og sagði eftir leikinn að
ef liðið myndi spila eins það sem eftir lifði
tímabils þá hefði hann engar áhyggjur.
Ætla sér stóra hluti
Arsenal sækir Middlesbrough heim á morg-
un. Arsenal vann báða leikina í fyrra og byrj-
aði tímabilið með sigri gegn Everton.
Middlesbrough tapaði fyrir Fulham, 3-2, og
hélt þar með í hefð þá er skapaðist á síðasta
tímabili, það er að vera skelfilega lélegir á úti-
velli.
Steve McClaren, knattspyrnustjóri Midd-
lesbrough, hefur styrkt lið sitt með spænska
landsliðsmanninum Gaizka Mendieta og er
ekki nokkur vafi á að hann mun styrkja liðið
mikið.
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal,
hrósaði sínum mönnum í hástert eftir sigur-
inn gegn Everton og hefur fulla trú á því að
liðið geti unnið titilinn sem er reyndar ofur-
eðlilegt þegar liðið hefur Patrick Vieira, Thi-
erry Henry og Robert Pires innan sinna raða.
Leikmenn liðsins hafa þó átt í agavandamál-
um og rautt spjald Sols Campbells um síðustu
helgi var það 51. síðan Wenger tók við liðinu.
oskar@dv.is