Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2003, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2003, Síða 32
36 DVHELGARBLAÐ LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST2003 FRANSKT-ÍSLENSKT LEIKHÚS: Sólveig Simha, sem er hálfur Frakki og hálfur Is- lendingur, leikur Ferðir Guðríðar á frönsku í Skemmtihúsinu við Laufásveg. horfa á leikritið Ástarsorg bresku læðunnar í leikstjórn Alfredos Arias. Ég varð svo heilluð að á þeirri stundu ákvað ég að leggja leiklist- ina fyrir mig,“ segir Sólveig og bætir við: „Þá var bara eitt eftir - að fá forelda mína til að samþykkja ákvörðun mína - og það voru mikil forréttindi að geta gert það sem mig langaði mest til, að verða leikari." Að loknu menntaskólanámi las Sólveig franskar bókmenntir við Sorbonne, eða Svartaskóla, í París en sótti síðan um inn- göngu £ Ríkisleiklistarskólann í París sem er gríðarlega eftirsóttur skóli. Umsækjendur voru 1200 og þar'af 850 stúlkur. Sólveig var ein af þeim 15 sem fengu inngöngu og lauk _ . ,, . , þaðan prófi þremur árum „En mnst i hjarta mmu seinna, árið 1996. „Námið var mjög strangt og þarna kenndu bestu leika íslenskt verk, ann- leikstjórar og höfundar - aðhvort á frönsku eða íslensku. legt að njóta kunnáttu þeirra og þekkingar og ég mun búa að því um ókomin ár,“ sagði Sól- veig. bærðist alltafsú þrá að Sólveig Slmha fékk leiklistarbakteríuna sem barn og lærðileiklistí Frakklandi. Hún kemurnú heim til íslands með leikritið Ferðir Guðríðar, sem hún þýddi sjálf, og leikurþað á frönsku fyr- ir íslendinga. Ferðir Guðríðar er leikgerð Brynju Bene- diktsdóttur sem árum saman hefur verið sýnd í Skemmtihúsinu við Laufásveg. Leikrit þetta hefur notið allmikilia vinsælda og ver- ið sýnt hér og þar um heiminn. Nú eru þau nýmæli að leikritið verður sýnt á frönsku í Skemmtihúsinu og mun þetta vera í fyrsta sinn sem íslenskt leikrit er flutt á frönsku á íslandi. Það er einnig sérstætt að það var íslensk stúlka sem þýddi verkið úr íslensku yfír á frönsku og kom því á fjalirnar í París þar sem hún stóð ein á sviðinu. Það er Sólveig Simha sem þýddi verkið og leikur öll hlutverkin og ætlar að brjóta þetta sérstæða blað í fslenskri leiklistarsögu. Tíðindamaður DV náði tali af Sólveigu í miðborg Reykjavíkur þar sem hún var í óðaönn að búa sig undir að dreifa aug- lýsingaspjöldum og kortum á hina ýmsu staði sem erlendir ferðamenn leita upplýs- inga á um hvað sé í boði fyrir þá á íslandinu góða. Frönsk-íslensk - Hvernig stendur á þessu ferðalagi Sól- veigar? „Skýringuna er víst að ftnna langt aftur í tímanum - eða þegar ég smitaðist af leiklist- arbakteríunni aðeins 9 ára gömul við að Þráin eftir íslandi Að loknu námi hélt Sólveig út á leiklistar- brautina í Frakklandi, þar sem hörð sam- keppni ríkir og fékk nokkur lítil hlutverk. Einnig dvaldi hún um hríð í Englandi og lék á ensku með þarlendum leikflokki sem fór meðal annars í leikför til Chicago við góðan orðstír. „En innst í hjarta mfnu bærðist alltaf sú þrá að leika íslenskt verk, annaðhvort á frönsku eða íslensku. Þetta vissu vinir mínir á íslandi, þar á meðal Þór Tulinius sem fyrir rúmum þremur árum benti mér á Ferðir Guðríðar. Eftir að hafa lesið leikritið ákvað ég að láta slag standa og hafði samband við Brynju Benediktsdóttur til að fá hennar samþykki fyrir að flytja það í Frakklandi og varð hún góðfúslega við ósk minni og bauð alla þá aðstoð sem hún gæti veitt og við það hefur hún svo sannarlega staðið," sagði Sól- veig. „ Það sem meira er um vert er að hún bauð mér hingað til íslands að sýna í Skemmtihúsinu og það fæ ég seint fullþakk- að." Franskan varð eftir á flugvellinum En björninn var ekki unninn og mörg ljón voru í veginum til þess að gera hugmyndina að veruleika. Fyrst varð að þýða leikritið á franska tungu og það verk annað- ist Sólveig sjálf því að þótt hún sé fædd og uppalin í Frakklandi þá nam hún íslensku samhliða frönskunni. Foreldrar hennar, Anna Sólveig sendiráðsritari og Claude Simha, læknir í París, réðu alltaf íslenskar au pair stúlkur sem töluðu alltaf íslensku við Sólveigu og Snorra bróður hennar. Auk þess dvöldu systkinin á fslandi, nánar tiltekið í Garðinum hjá Hólmfríði Sólveigu, móður- systur sinni, á hverju sumri uppvaxtarárin og þar var alltaf töluð íslenska. „Við skildum frönskuna alltaf eftir á flug- vellinum," segir Sólveig. „Ég eignaðist marga góða vini í Garðinum og aðra seinna þegar ég vann m.a. í Hag- kaupi." Eitt er að hafa leikrit í höndunum og ann- að að hafa aðgang að leikhúsi sem ekki eru á hverju strái í Parísarborg. „En það var eins og góðar vættir fylgdu mér og af hreinni tilviljun hitti ég leikhúseig- anda sem bauð mér að sýna Ferðir Guðríðar einu sinni í viku í litla leildiúsinu sínu Aktéon í 11. hverfi sem er mjög góður staður í borg- inni. Við sömdum upp á helming af innkom- unni svo fjárhagnum var ekki teflt í tvísýnu og síðan hófust æfingar þar sem margir voru mér hjálplegir en mest þó Clara Le Picard aðstoðarleikstjóri sem sá um margt sem að upp- færslunni laut, enda fjöl- hæf listakona og góðhjört- uð. Brynja kom síðan til okkar skömmu fyrir frum- sýningu og dvaldi í eina viku og lagði lokahönd á uppfærsluna. Án þessa góða fólks hefði ég aldrei komið Ferðum Guðríðar á svið um seinustu áramót í París, en það tókst og hingað er ég komin," segir Sólveig. Dreymir um ísland Sólveig segir að aðsóknin í París hafi verið það góð að ætlunin sé að hefja sýningar þar að nýju í haust eftir íslandsförina, svo tími verður lítill til hvíldar. Sólveig þykir túlka hina þróttmiklu og djörfu Guðríði vel en sýn- ingar í Skemmtihúsinu eiga að standa út ágúst svo þar geta menn séð þær með eigin augum. Sólveig hefur í gegnum árin ferðast nokk- uð um ísland og segist elska ísland og þykja það fegurra eftir því sem hún sér meira af {)ví. En hver skyldi vera hennar stærsti draumur á leiklistarbrautinni? „Það er að fá að leika á íslensku í íslensku leikhúsi." Magnús Gíslason -DV „Námið varmjög strangt og þarna kenndu bestu leikstjórar og höfundar - allir þekkt nöfn í Frakklandi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.