Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2003, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2003, Blaðsíða 34
38 DV HELGARBLAO LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST2003 Heimsmet í kynlífi Bestir, flestir, oftast, lengst og mest Þótt flestir stundi kynlíf vita fáir um kynlíf annarra. Líklegt verður að teljast að flestir vilji vita hvernig öðrum geng- ur og hvað er eðlilegt svo Helgarblaðið leit á nokkrar tölur og staðreyndir um kynlíf og skoðaði hvernig heimsmetin standa í algengum greinum. í frægum dægurlagatexta segir: „Allir eru að gera það gott nema ég ... Sannarlega brjóstumkennanleg staða ef satt er en þegar kynlíf er annars vegar er ekki víst að þetta eigi við alla. Þó halda áreiðanlega margir að þeir séu kynsveltir, klaufar sem standast engan samanburð við aðra og luma á djúp- stæðri öfund í garð annarra á þessu sviði. Sérstaklega eru karlmenn grunaðir um þetta og taldir breiða yflr eigin vangetu eða aðgerðaleysi í kynlífi með tröllasögum og ýkjum. Konur virðast mun sfður taka það nærri sér þótt fáir gisti ból þeirra og fer litl- um sögum af því að þær ljúgi upp á sig fjölda rekkjunauta. Fáir bera sig saman við félagana eða fjöl- skyiduna þegar afrek eða frammistaða í kyn- lífi er annars vegar en áreiðanlega langar alla til þess að hafa einhvern óyggjandi sam- anburð við aðra á þessu sviði. í því skyni að svala forvitni lesenda glugg- aði Helgarblað DV í nokkrar tölur um þá þætti kynlífs sem hægt er að mæla. Þarna er einkum stuðst við samantekt tímaritsins FHM og rannsóknir Kinsey-stofnunarinnar í Bandaríkjunum sem hefur rannsakað kyn- hegðun fólks í rúmlega hálfa öld. Einnig er til stofnun sem heitir Centre for Marital and Sexual Studies í Kaliforníu og rannsakar og mælir rúmfarir af ýmsu tagi og finna má á Netinu slóðir á borð við sexualrecords.com. Hvað oft er nógu oft? Hve oft er nógu oft? Þetta er spurning sem eflaust hefur komið upp í huga margra, sér- staklega þeirra sem verið hafa í sambandi lengi. Ef spurningin vaknar aldrei þá er vandamálið ekki vandamálið því líklega er það of li'tið kynlíf að mati einhvers sem vek- ur téða spurningu. Kinsey-stofnunin í Ameríku hefur kannað kynlíf fólks frá 1947 og þar á bæ eiga menn pappíra frá ungum manni sem taldi sig hafa haft samfarir 52 þúsund sinnum á 30 árum sem er rúmlega 33 sinnum í viku. Ein kona sagðist hafa notið kynlifs 91 sinni í einum mánuði en Kinsey vildi ekki taka tölur henn- ar með til að skekkja ekki niðurstöðurnar. Gift hjón sem Kinsey hafði tal af sögðust elskast 29 sinnum í viku. Þetta er frávik en algengt er að hjón Iifi hjónalífi á fjögurra daga fresti. Hvað lengi er nógu iengi? Nú er það alkunna að það er ekki tíðni samfara sem skiptir höfuðmáli heldur hve lengi þær vara og þykir flestum eftirsóknar- vert að þær geti staðið sem lengst. Tii eru sagnir af kínverskum embættismönnum til forna sem eyddu mörgum klukkustundum með hjákonum sínum og héldu jafnvel við- skiptafundi án þess að rjúfa líkamleg tengsl við þær. Kvikmyndaleikkonan Mae West skýrði frá því að hún hefði eitt sinn notið ásta með ungum manni, Ted að nafni, sem vöruðu í fimmtán klukkustundir. Ted var spurður út í málið og hann kvaðst vera: „furðu lostinn en ánægður með frammistöðu sína“. Hve fljótt er of fljótt? Samkvæmt rannsóknum getur einn af hverjum 1.250 karlmönnum haft sáðlát án snertingar aðeins með því að hugsa kynferð- islegar hugsanir. Það kann að þykja heldur fljótt. Rannsóknir Kinseys á ungum karl- mönnum leiddu í ljós að rúmlega 6% þeirra fengu fullnægingu á innan við 10 sekúndum. Konur hafa einnig verið rannsakaðar að þessu leyti og doktor Seymour Fisher, sem reit bókina: The Female Orgasm eða Full- næging konunnar, taldi að það tæki konur að meðaltali átta mínútur að fá fullnægingu. Ein kona sem starfaði með Kinsey-stofnun- inni fékk hins vegar 20 fulinægingar á 20 mínútum. Hún fékk fyrstu fullnæginguna tveimur til fimm sekúndum eftir að samfar- ir hófust. Þetta er ekki auðvelt að toppa. ERTU T IL f TUSKIÐ7 Flest hjón virðast samkvæmt rannsóknum elskast á fjögurra daga fresti en heimsmetið mun vera 33 sinnum í viku aðjafnaði. Ertu tilbúinn aftur? Karlmenn geta ekki staðið konum á sporði þegar kemur að fjölda fullnæginga. Metið á 28 ára gamall maður sem starfsmenn á Centre for Marital and Sexual Studies í Kali- forníu fylgdust með. Steini lostnir rann- sóknarmenn fylgdust með honum fá 16 full- nægingar á einni klukkustund en flestar þeirra án sáðláts. Meðalskammtur afsæði er 3,2 millílítrar og er talið að 0,4 millílítrar bætist við á hverjum degi skírlífis. Stærsti skammtur sem mælst hefur er 15 millílítrar. Þeir fylgdust einnig með methafanum á þessu sviði úr hópi kvenna, en það var ung kona sem leyfði rannsóknarmönnum að fylgjast með sér þar sem hún fékk 134 full- nægingar á einni klukkustund. Er þetta allt og sumt? Venjulega varir fullnæging karlmanns í þrjár til átta sekúndur samkvæmt rannsókn- um amerískra. Það er um það bil tíminn sem það tekur karlmanninn að gleyma nafni konunnar. Konur geta hins vegar náð sér- stæðu stigi sem rannsóknarmenn kalla stat- us orgasmus og mætti kalla samfellda full- nægingu. Það fylgdi sögunni að slíkt ástand væri alltaf afrakstur sjálfsfróunar en árið 1966 fylgdust rannsóknarmenn hjá Masters og Johnson með konu sem fékk samfellda fullnægingu í 43 sekúndur. Hver dregur lengst? Þegar karlmanni verður sáðlát ferðast sæðið á um það bil 45 kílómetra hraða en svífur yfirleitt ekki nema um 20 sentímetra. Á þessu eru nokkrar undantekningar og maður að nafni Horst Schultz er á skrá fyrir að geta spýtt 5,7 metra sem er talsverð vega- lengd. Hann dreif enn fremur í 3,7 metra hæð lóðrétt og geri aðrir betur. Meðalskammtur af sæði er 3,2 millflítrar og er talið að 0,4 millflítrar bætist við á hverjum degi skírlífis. Stærsti skammtur sem mælst hefur er 15 millflítrar. Flestir karlmenn geta haft sáðlát tvisvar sinnum á einum til tveimur klukkustundum en hjá Kinsey mældu vísindamenn 39 ára mann sem hafði sáðlát 8 sinnum á tveimur klukkustundum og stendur það met enn. Við þetta má bæta sögunni af konunni Michelle Monaghan, sem kom á sjúkrahús f Los Angeles árið 1991 og kvartaði undan innantökum, Læknar dældu 800 millflítrum af sæði úr maga hennar og henni varð ekki frekar meint af. Hvað langt er of langt? Eitt af því sem karlmenn virðast bein- tengja við ímynd sína sem karlmenn er vinnulengd jafnaldra þeirra og því lengri sem vinurinn er þvf betra skal það vera. Hér er eflaust rétt hið fornkveðna að meðalhófið er best en meðallengd getnaðarlims fullorð- ins karlmanns (mælt ofan á) er 15,7 sentí- metrar en 15,9 sentímetrar meðal þeldökkra karlmanna. Sumir karlmenn sem hafa státað af verk- færi sem er talsvert fram úr meðallengd þessari hafa haft af því nokkurn starfa og leikið í klámmyndum lungann af ævi sinni og nokkrir þeirra hlotið af allnokkra frægð. Sumir þessara stórleikara hafa haldið fram lengd getnaðarlims síns sem ekki hefur sfð- an reynst rétt við mælingar en þó eru nokkr- ir þeirra vel yfir 20 sentímetrum á lengd. Lengsti getnaðarlimur sem nokkru sinni hefur mælst svo óyggjandi sé var settur á spjöld sögunnar árið 1913, þegar læknirinn Robert L. Dickinson fékk sjúkling til sín sem var óvenjulega vaxinn niður. Hann reyndist vera með lim sem mældist 34,2 sentímetrar í fullri reisn og ummálið var um 15 sentí- metrar. Ekki fer neinum sögum af farsælu eða skrautlegu ástalffi þessa manns en erfitt er að verjast þeim grun að þetta sé ef til vill heldur mikið af því góða. Minnsti limur sem rannsóknarmenn Kinseys hafa rekist á við skoðanir sfnar er tæpir tveir sentímetrar f reisn. í læknisfræð- inni er „míkrópenis" sérstakt fyrirbæri sem nær oft ekki einum sentímetra að lengd. Hér mætti rifja upp hin fornu einkunnar- orð Spartverja: Sé sverð þitt of stutt, gakk þá feti framar. ÞÆR ERU HEPPNAR: Fullnæging karla varir í 3 til 8 sekúndur en rannsóknir hafa sýnt að konur geta fengið samfelldar fullnægingar sem vara í allt að 43 sekúndur. Fljótur á fætur Árið 1948, löngu áður en Viagra kom til sögunnar, rannsökuðu starfsmenn Kinseys nokkra karlmenn og könnuðu hve fljótt þeir næðu fullri reisn. Sá tími sem það tók þann fljótasta að komast úr hvfldarstöðu í fulla reisn var aðeins þrjár sekúndur. Þetta getur maður kallað að vera fljótur á fætur. Hvað eru kúlurnar stórar? Venjulegt eista í fullorðnum karlmanni mun vera 2 til 2,5 sentímetrar á breidd og sjaldan lengra en fimm sentímetrar. Þetta á þó ekki við um þá sem þjást af elefantiasis, sem er skuggalegur sjúkdómur sem leggst á karlmenn í hitabeltinu. Sníkjudýr sem kom- ast inn í sogæðakerfið geta valdið því að eistun stækka og getur pungurinn þá orðið á stærð við fótbolta. Hljómar sannarlega ekki skemmtilega. po///@dv./s
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.