Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2003, Side 2
2 FRÉTTIR LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2003
ÚTGÁFUFÉLAG: Útgáfufélagið DV ehf.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Öm Valdimarsson
AÐALRfTSTJÓRI: Óli Björn Kárason
AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jónas Haraldsson
DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, simi: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjóm: 550
5020 - AÐRAR DEILDIR: 550 5749
Ritstjóm: ritstjorn@dvJs - Auglýsingan auglys-
ingar@dvJs, - Dreifing: dreifing@dv.is
Akureyri: Hafnarstræti 94, sími: 462 5000,
fax: 462 5001
Setning og umbrot Útgáfufélagið DV ehf.
Plötugerö og prentun: Árvakur hf.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins I
stafrænu formi og I gagnabönkum án endur-
gjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl
við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Efni blaðsins
Hóteistjóri segir fréttir
um vændi ógnvænlegar
- frétt bls.4
4 VM
í JS y
Varnarliðsmaðurinn
dæmdur í fangelsi
- frétt bls. 6
Frábær árangur
íslenskra kylfinga
- frétt bls. 6
Hafnar tvískinnungi í
kvótamálum
- frétt bls. 8
Alþjóðlegur barna-
klámhringur upprættur
- frétt bls. 12
Vændi bannað í
skólastofunum
Menntamálayfirvöld f Úkraínu
hafa bannað að skólastofur í
landinu verði notaðar sem vænd-
ishús eða nektarbúllur.
Það ku víst ekki vera óalgengt á
þessum slóðum að yfirkennarar
leigi út laust húsnæði til að afla
skólunum sértekna.
Embættismönnum í mennta-
málaráðuneytinu var svo nóg
boðið þegar upp komst að hóru-
hús var starfrækt við leikvöll
skólabarnanna og fyrirskipuðu
rannsókn á málinu.
Mannréttindasamtökin sem
fyrst vöktu athygli á þessari
óvenjulegu notkun skólahús-
næðis segja að stærsta hóruhúsið
hafi verið starfrækt í kjallara
skóla númer fimm í Odessa. Þar
er meðal annars gufúbað og bar
sem selur áfengi.
Katla skelfur enn
Kærði nauðgun sem ekki átti sér stað
MÝRDALSJÖKULL Nokkrir
skjálftar hafa mælst í og við
Kötlu í Mýrdalsjökli síðust
daga og þeir stærstu upp
undir 3 á Richterskvarða. Varð
skjálfta áfram vart þar í gær
og áttu flestir upptök sín í
Goðaþungu að þar vestur af.
Engin hrina skjálfta hefur þó
komið í líkingu við þá sem
varð um níuleytið á sunnu-
dagskvöld í Kötluöskjunni
sjálfri. Þótti sú hrina óvenju
snörp og vakti staðsetning
skjálftanna á tiltölulega litlu
svæði í Kötluöskjunni sér-
staka athygli.Vel erfylgst
með öllum hreyfingum undir
Mýrdalsjökli, enda Katla kom-
in á tíma eins og jarðfræðing-
ar orða það.
ÁKÆRA: Tæplega þrítug
kona í Reykjavík hefur verið
ákærð fyrir að hafa sagt lög-
reglu ranglega frá því að fjór-
ir menn hefðu nauðgað
henni rétt fyrir jólin árið
2002. Konan hefur viður-
kennt að framburður hennar
um tiltekna nauðgun, sem
aldrei átti sér stað, væri rang-
ur. Hann varð hins vegar til
þess að einn maður, sem er af
erlendum uppruna, var hand-
tekinn og úrskurðaður í
gæsluvarðhald. Hann var síð-
an látinn laus þegar málið fór
að skýrast. Varð þá Ijóst að
konan fór ekki með rétt mál.
Lögreglan ákvað síðan að
kæra konuna fyrir ranga upp-
Ijóstrun. Málið fór til ríkissak-
sóknara en nú liggurfýrir
ákæra og málið er þegar farið
í meðferð fyrir dómi.
Samkvæmt upplýsingum DV
er ekki deilt um háttsemi
konunnar sem er ekki talin
heil á geðsmunum.
Ungur maður fluttur á sjúkrahús eftir átök fyrir utan
skemmtistaðinn Broadway:
Stunginn í fjór-
gang á busaballi
Nemendur Menntaskólans við
Sund héldu sitt árlega busaball
á skemmtistaðnum Broadway á
fimmtudagskvöld. Gleðin
breyttist þó fljótlega í martröð
þegar til átaka kom á milli
tveggja hópa sem enduðu með
því að ungur maður var stung-
inn fjórum sinnum í síðuna.
Rannsókn lögreglu á málinu er
þegar lokið og játning liggur
fyrir.
Fjöldi manns var samankominn
á skemmtistaðnum Broadway við
Ármúla á fimmtudagskvöldið, þar
sem hið árlega busaball Mennta-
skólans við Sund fór fram. Upp úr
klukkan eitt barst lögreglu svo til-
Slagsmálin enduðu
með því að einn drengj-
anna lagði til annars í
fjórgang með hnífi.
Rannsókn lögreglu á
málinu er lokið og ligg-
ur játning þess er
framdi verknaðinn fyrir.
kynning um að til ryskinga hefði
komið á milli nokkurra pilta fyrir ut-
an skemmtistaðinn sem hafði end-
að með því að einn piltanna stakk
annan í fjórgang með hníf í síðuna.
Fórnarlambið var þegar flutt til að-
hlynningar á sjúkrahús en pilturinn
mun ekki hafa hlotið mikinn skaða
af árásinni. Hann er nú á batavegi.
Aðdragandi hnífstungunnar mun
hafa verið með þeim hætti að til
smávægilegra ryskinga kom á milli
tveggja drengja, líkt og oft vill verða
þar sem fjöldi fólks er samankom-
inn og áfengi hefur verið haft um
hönd. Eitt mun hins vegar hafa leitt
af öðru í hita leiksins sem endaði
með því að einn drengjanna stakk
til annars í fjórgang með litlum hnff.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu er rannsókn málsins þegar
lokið og liggur játning þess sem
framdi verknaðinn fyrir. Málið telst
því upplýst.
Þegar lögregla var innt eftir því
hvort hugsanleg tengsl væru á milli
atviksins á fimmtudagskvöldið og
þess sem gerðist uppi í Breiðholti
um síðustu helgi sagði lögregla
málin alls óskyld. Atvikið í Ármúl-
anum hefði ekki verið „gengjaslags-
mál", líkt og þau sem mikið hefur
verið rætt um síðustu daga, heldur
leiðinlegar afleiðingar átaka sem að
mestu má rekja til óhóflegrar áfeng-
isneyslu. agust@dv.is
VETTVANGUR GLÆPSINS: Ungur piltur var
stunginn í fjórgang í síðuna eftir átök fyrir
framan skemmtistaðinn Broadway í Ár-
múla. Hann mun ekki hafa hlotið mikinn
skaða af árásinni og er hann nú á batavegi.
Játning þess er framdi glæpinn liggur fýrir
og telst málið upplýst af hálfu lögreglu.
DV-Mynd ÞÖK
Krafist úrbóta
Félag foreldra og áhugafólks
um geðraskanir barna og ung-
linga ætlar að hrinda af stað
undirskriftasöfnun til að krefj-
ast úrbóta í heilbrigðisþjónustu
þeim til handa.
Þann 10. október nk. er alþjóð-
legi geðheilbrigðisdagurinn og í ár
er hann tileinkaður börnum og
unglingum með tilfinninga- og
hegðunarraskanir, að því er segir í
tilkynningu frá Geðhjálp. Enn
fremur segir að samkvæmt skýrslu
starfshóps um stefnumótun í mál-
efnum geðsjúkra, sem afhent var
heilbrigðisráðherra þann 10. októ-
ber 1998, komi fram að 20% barna
á íslandi eigi við geðheilsuvanda-
mál að stríða og talið er að 7-10%
barna í þeim hópi þurfi á geðrænni
meðferð að halda.
„í skýrslunni kemur fram að inn-
an við 0,5% barna á íslandi með
geðheilsuvandamál fái viðunandi
þjónustu. Viðmiðun í Noregi er að
veita 2% barna þessa þjónustu en
til þess að ná þeim viðmiðum hér á
landi þarf að þrefalda mannafla
Bama- og unglingageðdeildar
Landspítalans," segir í tilkynning-
unni. Vísað er í skýrslu ofannefnds
starfshóps þar sem segi: „Það er
ekki nóg að finna þau börn sem
eiga rétt á aðstoð samkvæmt lögum
heldur þurfa líka að vera til staðar
úrræði sem veita þeim aðstoð sam-
kvæmt lögum."
Undirskriftum verður safnað á
netinu á slóðinni http://barna-
ged.is og á undirskriftalistum um
allan bæ. Ætlunin er að afhenda
ríkisstjórn íslands undirskrifta-
listana 10. október. jss@dv.is