Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2003, Side 21
LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2003 DV HELGARBLAÐ 21
að velta alvarlega fyrir mér að reyna
að fá hann hingað til Islands þegar
hann dó, blessaður karlinn."
Þórshamar:
Ekki bara karate
Það er ekki bara í dag sem ís-
lenskar hljómsveitir herja á erlend-
an markað og reyna fyrir sér á er-
lendri grund. Hljómar komu sér
upp hinu þjóðlega nafni Thor’s
Hammer á ensku og voru með ein-
hverjar þreifmgar í útlöndum. Þó
að hinir svokölluðu íslensku bítlar
hafí kannski aldrei lagt undir sig
metsölulistana eins og ensku fyrir-
myndirnar skal það tekið fram að
meðal grúskara og költ-áhuga-
manna um tónlist er Thor’s
Hammer í nokkrum hávegum höfð.
Lög eftir sveitina má finna á stöku
safnplötu og í plötubúðum sem
höndla með gamlar plötur er sums
staðar hægt að finna plötur þeirra,
oft ansi hátt prísaðar.
„Það má segja að ég sé
búinn að taka næturlíf-
ið frá öllum hliðum;
uppi á sviði, úti í sal og
svo keyrandi fólkið
heim á eftir. Enda er ég
búinn að fá mig
fullsaddan á því."
Til að mynda segir Erlingur mér
að safnarar í Svíþjóð hafi valið
Thor’s Hammer bestu óþekktu
hljómsveit sjöunda áratugarins.
„Rúnar fylgist dálítið með þessu
og hann sýndi mér þetta. Eftir
þessu að dæma höfum við verið
eitthvað yfir meðallagi.”
Að sögn Erlings var hljómsveitin
þó alltaf frekar heimakær.
„Alla vega ég, ég vil helst ekki fara
neitt,” segir hann kíminn. „Og
þetta Thor’s Hammer dæmi, við
fylgdum því ekkert eftir að ráði.
Hefðum kannski komist lengra þá.
Við vorum aldrei neitt sérstaklega
samtaka. Við vorum mjög samtaka
á sviðinu en þegar komið var ofan
af því vorum við allir tvist og bast.
Við erum ólíkir og lítið samrýndir
nema á sviðinu. Eigum ekkert sér-
staldega mikið sameiginlegt en
þegar komið er á svið erum við sem
ein heild.“
Eins og lesendur taka eftir erum
við skyndilega komnir yfir í nútíð-
ina og fullkomnum þar með tíma-
flakkið, fram og til baka. Hljómar
eiga fertugsafmæli 3. október, þ.e. í
næstu viku, og ætla að gefa út plötu
og spila stíft næstu vikur til að
fagna þeim merka áfanga, sem
fáum hljómsveitum auðnast að ná.
Afmælið er miðað við fyrstu tón-
leika Hljóma, sem haldnir voru í
Krossinum í Njarðvík 3. október
1963. Hljómsveitin hljóp í skarðið
fyrir band úr Reykjavík sem forfall-
aðist á síðustu stundu og síðan hafa
menn ekki litið til baka. Fyrr en nú,
og þeim og samtímafólki er vor-
kunn þótt það fyrsta sem upp í
hugann kemur sé: Vá, maður! Er
virkilega svona langt síðan? fin@dv.is
KIAJ^ rekstrarleigu
*
M
Erlingur aftur á sviö: Erlingur Björnsson
stígur aftur á svið með Hljómum á næst-
unni þegar hljómsveitin verður 40 ára.
Hann vék úr hljómsveitinni fyrir 35 árum
og segist ekki sjá eftir neinu.
DV mynd: Hari
ar hættu og hvað Erlingur tók sér
fyrir hendur, vindum við talinu aft-
ur í tímann og ég spyr Erling um
dálítið sem ég hjó eftir í Hljómabók-
inni: Þegar hann og Engilbert Jen-
sen hittu Paul McCartney á nætur-
klúbbi í London.
„Þetta var í einni af upptökuferð-
um okkar til London. Við vorum á
klúbbi þegar hann kom inn með
hópi af fólki og lífvörðum, minnir
mig, og settist við borð. Engilbert
vatt sér yfir til hans og spurði hvort
við mættum tylla okkur og spjalla
við hann. Hann féllst á það og við
spjölluðum smástund. Hann bauð
okkur reyndar að koma í Apple-
studios en við gátum því miður ekki
þegið það boð. Vorum á leið heim
daginn eftir, áttum pantað flugfar
svo það varð ekkert af því. Það hefði
kannski breytt einhverju fyrir
Hljóma að geta þegið þetta boð
Pauls," segir Erlingur og glottir í
kampinn.
Þetta kvöld varð Erlingi eftir-
minnilegt því auk McCartneys hitti
hann í sama klúbbnum gítargoðið
Jimi Hendrix og Bill Wyman, þá
bassaleikara Rolling Stones.
„Það vantaði eiginlega bara
Lennon. Ég hitti hann kannski bara
hinum megin," segir Erlingur og
hlær.
„En ég spjallaði heillengi við
Hendrix. Það var alger tilviljun,
maður var nú ekkert að ofsækja
þessa kalla. Ég fór á snyrtinguna,
niðri í kjallara, og rakst eiginlega á
hann í röðinni. Hann stóð við hlið-
ina á mér og við tókum tal saman.
Eftir að ég sagði honum að ég væri
frá Islandi og væri í hljómsveit réð
hann eiginlega ferðinni og ég komst
varla að. Hann sagði að sig langaði
að koma til íslands, vinur sinn hefði
verið hér í hernum og hann hefði
sagt sér að það væru svo sætar steip-
ur á íslandi. Svo við töluðum um Is-
land, stelpur og tónlist. Ég spurði
hvort honum væri alvara með að
koma til Islands og hann játaði því,
bað mig bara að hringja í umboðs-
manninn sinn og koma því í kring ef
ég hefði áhuga á að hafa milligöngu
um það. Satt að segja var ég farinn
KIA RIO
Rekstrarleiga kr. 24.800*
Á mán. í 3 ár
Verð frá kr. 1.325.000
KIA CARNIVAL
Rekstraleiga kr. 39.000*
Á mán. í 3 ár
Verð frá kr. 2.490.000
*Smur, og þjónustuskoðanir eru innifaldar
í verði rekstrarleigunnar.
‘Rekstrarleiga er háð breytingum á gengi
erlendra mynta og vöxtum.
Kynntu þér nánari skilmála hjá sölumönnum KIA
KIA ísland ehf.
Flatahrauni 31, Hafnarfirði.
Sími 555 6025.
www.kia.is
KIA SORENTO
Rekstrarleiga kr. 49.500*
Á mán. í 3 ár
Verð frá kr. 3.190.000