Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2003, Blaðsíða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2003, Blaðsíða 45
OV Sport LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 2003 45 ’ Nágrannaslagurinn í Manchester er leikur helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Liðin mætast í hádeginu í ^ dag og getur United komist á toppinn með sigri. City hefur ekki unnið á Old Trafford síðan 1974 og í fram- haldi af slæmu gengi liðsins óttast jafnvel bjartsýnustu stuðningsmenn liðsins skell í dag. Stórleikur ensku úrvaisdeildarinnar um helgina er örugglega nágrannaslagur- inn í Manchester þar sem „litla liðið" f borginni reynir að enda 30 ára bið eftir sig- urleik í leikhúsi draumanna, Old Trafford. Manchester City hefur átt í miklum vandræðum að undanförnu og hefur ekki unnið í síðustu sjö leikjum. Markaþurrðin í þessum leikjum hefur ekki orðið til að lífga upp á sálartetfið hjá framvæmda- stjóranum, Kevin Keagan. City-liðið hefur aðeins gert tvö mörk frá því í október og umræða um brotthvarf Keagans, slæmt gengi liðsins og miklar skuldir eru ekki besti nesúspakkinn í heimsókn til stóra bróður og það er hætt við því að jafnvel bjartsýnustu stuðnings- menn liðsins óttist skell gegn nágrönnun- um í dag. Það hefur margt breyst í Manchester á einu ári og í rauninni á síð- ustu tveimur mánuðum því gengi City hef- ur hrunið eftir mjög góða byrjun á tímabil- inu og ágætt gengi í fyrra. Aðeins eitt stig í fyrra í fyrra náði United aðeins einu stigi út úr leikjum liðanna og þótti að margra maú hepp- ið með að fá þetta eina stig þar sem mark var dæmt af City á lokamínútum leiksins á Old Trafford. Fyrri leikinn vann Man. City á sannfær- andi hátt og menn þóttust þó lesa þau skila- boð að City-liðið væri nú loksins að verða al- vöru andstæðingur fyrir United, tilheyrði ekki lengur flokknum yfir lið sem gæfu United sex auðveld stig í baráttunni um enska meistara- titilinn. Það eru ekki breyúngarnar á leikmanna- hópum, sem em þó United í hag í ár; þeir hafa misst bæði David Beckham og Juan Veron á sama tíma og Steve McManaman og Claudia ' Reyna hafa verið keyptir til City. Manchester United á hins vegar harma að hefna eftir ófar- inar gegn nágrönnunum í fyrra og það auð- veldar City ekki verkefni dagsins. Verðum að vera tilbúnir „Ég veit að þeir vilja endurtaka leikinn frá því í fyrra," segir Ruud Van Nistelrooy, framherji Man. Utd., sem hefur skorað 15 mörk í 21 leik á tímabilinu. „Við ætlum að halda uppteknum hætti og halda áfram að spila vel eins og við höfum gert bæði í úr- valsdeildinni og meistaradeildinni. Við megum samt ekki gleyma að derby-slagur er sér á báti og við verðum að mæta tilbún- ir,“ sagði Nistelrooy fyrir leikinn. Það hjálpar City að liðið hefur endur- heimt þrjá sterka miðjumenn í vikunni, Paul Bosvelt, Antoine Sibierski og Eyal Berkovic, en sá síðastnefndi hefur aðeins byrjað einu sinni inná í vetur eftir að hafa lent í deilum við Keagan í sumar. Berkovic lék vel gegn United í fyrra og er líklegur til að spila þennan leik enda þarf City tilfinnanlega meiri ógnun fram á við eins og sést á því að liðið hefur ekki skorað í 365 mfnútur í úrvalsdeildinni. Þegar kemur að United-liðinu vita menn að þeir hafa alla burði til að vinna nágrannana á sannfær andi hátt. Hælspyrna Dennis Law Alex Ferguson hefur fengið Paul Scholes aftur inn eftir meiðsl og það ætti að hjálpa honum til að vinna fyrsta nágrannaslaginn gegn City með Kevin Keagan við stjörnvölinn. City-menn dreymir hins vegar enn um hælspyrnu Dennis Law sem tryggði liöinu sigur á Old Trafford í aprílmán- uði 1974 en síðan hafa 22 ferðir liðsins í leikhús drauma oftast verið matröð ein enda hefur liðið tapað 13 leikjum og að- eins fengið níu stig á Old Trafford á þessum tæpu 29 árum. ooj&dv.is City-liðið hefur aðeins gert tvö mörk frá þvíí október og umræða um brotthvart Keag- an, slæmt gengi og miklár skuldir eru ekki besti nestis- pakkinn í heimsókn til stóra bróðurs. FagnarKeagan lokslns marki? Kevin Keagan, framkvæmdastjóri Manchester City, hefur mátt horfa upp á markaleysi i 365 minútur hjá sinu liði í ensku úrvalsdeildinni. Meiðsl Eiðs Smára koma væntanlega í veg fyrir að hann spili með Chelsea í jólaleikjum ensku úrvalsdeildarinnar. Eiður í jólaköttinn Eiður Smári Guðjohnsen er ekki bjartsýnn á að verða orðinn leikfær fyrir leikjatörn Chelsea um jólin. Eiður Smári meiddist á ökkla á æfingu hjá Chelsea fyrir tveimur vikum eftir viðskipti við Hollendinginn Mario Melchiot og telur sig vera heppinn að hafa ekki farið verr. Lán í óláni „Þetta var mjög slæm tognun þar sem ég sneri ansi illa upp á ökklann. Ég var eiginlega bara heppinn að það var ekki alvarlegra en tognun og því má eiginilega segja að þetta hafi verið lán í óláni," sagði Eiður Smári í samtali við vef Skysports í gær. Hann sagðist ekki vera bjartsýnn á að spila með liðinu fyrir áramót. „Að vera meiddur hefur aldrei verið einn afmínum styrkleikum. í hreinskilni sagt verð ég afskaplega pirraður og erfiður í umgengni þegar ég er meiddur." „Ég er ekki enn búinn að jafna mig en vonast til að geta byrjað að æfa eftir viku eða f' tfu daga. Eins og staðan er í dag lítur út fyrir að ég missi af leikjum liðsins yfir jólahátíðina, sem er mjög leiðinlegt. Að vera meiddur hefur aldrei verið einn af mínum styrkleikum. í hrein- skilni sagt verð ég afskaplega pirraður og erfiður í umgengni þegar ég er meiddur en þetta er víst hluú af knattspyrnunni sem maður verður að sætta sig við," sagði Eiður Smári. oskar@dv.is r Húsbréf Innlausn húsbréfa Frá og með 15. desember 2003 befst innlausn á útdnegnum húsbréfúm í eftirtöldum flokkum: 4. flokki 1992 - 40. útdráttur 4. flokki 1994 - 33. útdfáttur 2. flokki 1995 - 31. ðtdráttur 1. og 2. flokki 1998 - 22. ötdfáttur Innlausnarverðið er að finna i Morgunblaðinu laugardaginn 13. desember. Innlausn husbréfa fer firam hjá íbúðalánasjöði, i bönkum, sparísjóðum og verðbréfafyrírtækjum. íbúðalánasjóöur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.