Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2003, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2003, Síða 23
DV Fókus LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2003 23 0***> V r Q Sígild kort Þessijólakorterufráþvíum 1980-en telja má þó að myndefnið sé sígilt og-.að þessi kort gætu hafa gengið bæði fyrr og siðar. „Áður fyrr tíðkaðist meira en nú er að fólk skrifaði á jólakortin svolít- inn annál ársins. Núna sendir fólk hinsvegar bara tölvupóst og eyðir honum strax eftir lestur. Þannig glatast mikilyægar heimildir og þvíhöfum við skjalaverðir einmitt áhyggjur af?' Kort frá Kjarval Nýárskort Meistara Kjarvals til Guðjóns Samúelssonar húsameistara. Sent ijanúar 1949.„Heilbrigt gott ár,"segir í kortinu sem stílað er á listamann lista- mannanna, það er Guðjón. Flugvélar og Hveradalir Þessi kort gengu um 1950. Á neðra kortinu er mynd afDC-3 flugvél Flugfélags Islands og af Skiðaskálanum í Hveradölum á hinni efri. Ætli nokkur myndi nota þetta myndefni á jóla- kortum idag? Úliklegt. Skrifar á búðakortin í miklum flýti 1 Heimagerð til fjölskyldunnar „Líklega sendi ég um sextíu kort fyrir hver jól, en þarf af teng- ist um það bil helmingurinn rekstri mínum. Þessi þrjátíu kort sem ég sendi persónulega eru að mestu leyti til sama hópsins frá ári til árs. Þeim sem sendu mér kort í fyrra fá frá mér í ár og síðan nokkrir aðrir tilfailandi, svo sem áhugavert fólk sem ég hef kynnst á árinu og finnst vert að senda jólakveðju," segir Jórunn Frí- mannsdóttir hjúkrunarfræðingur og ritstjóri vefsetursins www.doktor.is. Jórunn segir fjarri að einhver sérstök jólakortahefð sé á st'nu heimili. „Flest kortin eru keypt út í búð og á þau skrifað í miklum flýti. Þau sem fara hinsvegar inn- an fjölskyldunnar eru mörg hver heimagerð, í haust fórum við í sumarhús með vinahjónum og þá sat fólk og dundaði sér við að búa til kort. Sumum þeirra látum við fylgja útprentaðar myndir, en annars er nú engin regla á þessu hjá okkur," segir Jórunn. Hún bætir því við að hjá sér og sínum tíðkist að opna kortin jafn- óðum og þau berast og sfðan eru þau fest upp á snúru sem hengd er þvert yfir í eldhúsinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.