Dagblaðið - 17.01.1977, Qupperneq 2
2
„Húmor erleiðarljósífrásagnargerð Péturs Gunn-
arssonar . . . Það er oft hrein unun að lesa þenn-
an texta . . . hrífandi skemmtileg og umhugsunar-
verð . . . dýrleg lesning."
Árni Þórarinsson, Vísir.
Iðunn,
sími 12923
Punktur punktur
komma strik
fyrsta skáldsaga
Péturs Gunnarssonar
er komin út
i þriðju útgáf u
myndskreytt af Gylfa Gislasyni
/■
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGIIR 17. JANÚAR 1977.
Hræsnin mun sízt
þeim til sóma
Undir þessum orðum Hall-
gríms Péturssonar ritar kona
og ritar nafnnúmer sitt undir,
þar sem henni skilst að það sé
orðið jafn þýðingarmikið og
nafn, eða þýðingarmeira. a.m.k.
þegar kerfið á í hlut.
Það er skemmtilegt að f.vlgj-
ast með hinum líflegu blaða-
skrifum dagblaðanna, daglega.
Ég er fastur lesandi DB og hef
undrazt að fólk skuli skrifa af
fullum krafti um málefni sem
það hefur áhuga fyrir en nota
dulnefni undir. Hversvegna
notar fólk dulnefni? Hefur það
eitthvað að fela?
Eg hef þá skoðun að grein,
skrifuð af manni sem notar sitt
rétta nafn, hafi ef til vill meira
sannleiksgildi og ég tek miklu
meira mark á þeim persónu-
lega. Ég las grein, þann 4. des.
sl., eftir verkamann 1022. Hann
er með dylgjur um Alþýðu-
bankann, spyr m.a. hvort bank-
inn hafi nokkurn tímann gegnt
sínu hlutverki. Hver er tilgang-
urinn með svona ábendingum?
Allir vita að peningar verða að
koma inn í bankana. Ékki eru
allir útvegsmenn sem leggja
inn í Utvegsbankann, né allir
frelsaðir sem skipta við Spari-
sjóðinn Pundið.
Þá var grein í DB 12. jan. sl.
eftir NN. Þetta er greinilega
maður sem hefur kynnt sér
veí hinar dökku hliðar dóm-
kerfisins. Hvað á hann t.d. við
með því að segja að helzt sé að
marka hvað hinn kærði segir.
Þessi maður veit vel að þetta er
ekki algild regla.
Ekki myndi ég t.d. álíta að
mark væri takandi á manni eins
og Batta rauða, sem að mínu
áliti kann sennilega ekki að tala
satt orð. Aftur á móti er
Haukur maður sem vill ekki
halla réttu máli og hefur verið
til fyrirmyndar í starfi sínu í
hvívetna og á þakkir skilið fyrir
að reyna að losa okkur við slík-
an syndasel sem Batti rauði
hefur verið.
En hitt er svo annað mál að
stundum eru ménn kærðir án
þess að hafa til þess unnið. Þeir
eru stundum flæktir inn í mál
og á þá klínt sök, án þess að
þeir fái svo mikið sem að bera
hönd fyrir höfuð sér.
Rannsóknarmenn sakamála
verða að kanna, betur en þeir
gera, sannleiksgildi þeirra upp-
lýsinga sem þeir hafa um þá
ákærðu og fremja ekki,
embættisafglöp. Hér fylgir ein
vísa, sem NN getur hugsað um:
Satt og logið sitt er hvað
sönnu er bezt að trúa
en hvernig á að þekkja það
þegar flestir ljúga?
7286-7769
Popp í klukkutíma
á viku í sjónvarpi
7167-5688 skrifar:
Frægar popphijómsveitir ættu að sjást oftar á skerminum. Hér er
mynd af ABBA.
Hvernig væri nú að koma
aftur með þessa þætti og hafa
þá reglulega, t.d. hálfsmánaðar-
lega og hafa rtokkrar hljóm-
sveitir í hverjum þætti?
Eg held að flestir séu sam-
mála um að það sé algert lág-
mark að hafa u.þ.b. klukkutima
poppefni vikulega í sjónvarp-
inu.
,,Mig langaði bara til að vita
hvers-vegna í ósköpunum sjón-
varpið er hætt að sýna þessa
stuttu poppþætti sem sýndir
voru öðru hverju á síðasta ári.
Þar komu fram og léku frægar
erlendar hljómsveitir. Ég var
farinn að halda að sjónvarpið
ætlaði nú loksins að koma með
eitthvað almennilegt poppefni
og vera ekki svona svakalega á
móti poppi eins og útvarpið. Eg
hef greinilega verið of bjart-
sýnn.
„Einbýlishús og bfll eftir
níu mánuði f Svíþjóð”
Björn Jónsson hringdi:
Ég sá í Dagblaðinu um dag-
inn að verið var að gera saman-
burð á verði á sígarettum hér
og í Danmörku. Sagði í grein-
inni í blaðinu að amerískar
sígarettur í Danmörku kostuðu
370 krónur. Þetta er eins og
hvert annað fleipur. Eg er að
koma frá Danmörku og þar
kostar t.d. Camel-pakki 9 krón-
ur, í Noregi kostar hann 8,15
krónur og í Svíþjóð sjö krónur.
En þar er kaup mörgum sinn-
um meira en hér, svo saman-
burðurinn er ekki raunhæfur.
Hafa stjórnvöld gert sér grein
fyrir því hve margar fjöl-
skyldur eru að fara héðan til
útlanda?
Ég þekki til dæmis ungan
mann, þriggja barna föður, sem
ekki gat fengið húsnæði hér
þrátt fyrir að hann gerði allt í
sínu valdi til þess. Hann fór til
Svíþjóðar í mars og á þar orðið
einbýlishús og bíl. Afkoman er
eitthvað betri þar.