Dagblaðið - 17.01.1977, Page 3
DACBLAÐIÐ. MANUDAGUR 17. JANUÁR 1977.
Það vantar ekki
Spurning
dagsins
„Hallærisplan” í Keflavík
Strákur í Keflavík skrifar:
„Alveg var ég ferlega
hneykslaður á því sem einhver
kona í Keflavík lætur fara frá
sér þann 7. þ.m. 1 DB. Fyrst og
fremst er það hvernig hún ataði
hann Flosa Ólafsson út. Hann
er mjög fær grínisti, að mínu
mati. Og hvað viðvíkur Kana-
sjónvarpinu sem hún virðist
sakna svo mjög þá mátti það
fara og það fyrr. Ennfremur
virðist hún haída að við krakk-
arnir hér í Keflavlk höfum
ekkert gert hér áður fyrr annað
en horfa á Kanann. Það er al-
rangt. Þó svo hennar krakkar
hafi kannski ekki gert neitt
annað, þá flokkast þau með ör-
fáum öðrum krökkum hér í
Keflavík sem horfðu eitthvað á
hann. Þegarhún fer að tala um
„Hallæ»-i.splan“ þá hefur hún
Kannski gaman af að vita að það
er þegar komið til Keflavíkur,
það er planið við Aðalstöðina.
Hún ætti að renna við þar um
næstu helgi og gá hvort það er
ekki rétt með farið hjá mér.
Hún segir að við höfum margt
gott lært af Könum en þá spyr
ég: Er það ekki fleira sem við
höfum lært illt af þeim? Loks
kemur það eina sem ég er sam-
mála henni um, það væri óhæfa
að taka Kanaútvarpið af.
Raddir
lesenda
Ætla þessir
spekúlantar
að drepa
alla þjóðina
úr
einberum
leiðindum?
Páll Kristinsson hafði samband
við DB:
Nú held ég að sjónvarpið sé
alveg að spila út. Þessi þáttur
sem sýndur vár sunnudags-
kvöldið 9. jan. er sennilegá
kominn af ruslahaugunum í
henni Ameríku, sem eru ekki
alltof beysnir að ég held. Þessi
þáttur eða show, eins og
Ameríku- og Suðurnesjabúar
kalla það, var framinn af ein-
hverjum tveimur gamal-
raennum, sem kalla sig Lenu og
Tony.
Þau ku hafa átt að syngá
gömul og ný vinsæl lög. Hvar
skyldu þau nú hafa verið
vinsæl? Kannski í sjónvarpinu
íslenzka, meðal forráðamanna
þess? Ef svo er ættu þeir að sjá
sóma sinn í því að láta af
störfum sem fyrst. Ég hef oft
velt því fyrir mér hvort
það sé meiningin hjá þessum
spekúlöntum að drepa alla
þjóðina úr einberum leiðindum
með þessu lélega prógrammi.
Þegar menn hrökkva svo upp
við það að þeir hafa verið að
horfa á 2.-6. flokks sjónvarps-
efni í liðlega tíu ár og það verði
sennilegaekki voná öðru í fram-
tíðinni, eru viðbrögðin þau að
þeir fara að röfla um þetta í
fjölmiðlum. Og svar forráða-
manna sjónvarpsins er alltaf
hið sama ef þeir nenna að svara
vfirleitt. Þeir kenna peninga-
leysi um. Og svo þetta „skot-
helda" svar: „Það er ekki hægt
að gera öllum til geðs“. Þá
halda þeir að nú sé búið að slá
lýðinn út af laginu fyrir fullt og
allt. En alltaf hcyrast ámáttleg
óánægjuvein utan úr kuldanum
um betra efni.
Mín tillaga er þessi: Ef for-
sprakkar sjónvarpsins vilja
ómögulega segja af sér, svo aö
aörir hæfari fáist í stað þeirra,
aflétti alþingi þessari einokun
á sjónvarpi á íslandi og le.vfi
tingum og hæfum mönnum að
spreyta sig.
Á að banna reykingar á
vinnustöðum?
Berit Stefánsson: Já, það á að
banna þær en leyfa þeim sem
vilja re.vkja að gera það t.d. í
sérstöku herbergi.
Þóra Friðgeirsdóttir: Já, og mér
fyndist það tilvalið að hafa sér
herbergi fyrir þá sem reyktu. Ég
held að það sé erfitt að banna það
algjörlega.
Karl Hirst: Ég reyki nú ekki en
mér finnst það tillitslaust að
þvinga fólk til þess að anda ofan í
sig þvi sem allir vita að er skað-
legt.
Dollv Nielsen: Það væri æskilegt
að hafa engan reyk á vinnustað
þar sem fólk er að störfum. Það
mætti hafa sér herbergi fyrir þá
sem vilja reykja.
Pálina Arnarsdóttir: Nei, ég held
að það verði mjög erfitt, það eru
svo margir sem reykja, annars
væri bara tilvalið að hafa reyk-
ingafólkið sér.
Laufey Agnarsdóttir: Nei, mér
finnst ekki hægt að banna það
alveg. Hins vegar verður reyk-
ingadfólk að taka tillit til þeirra
sem ekki reykja.