Dagblaðið - 17.01.1977, Qupperneq 4
DAdBLAÐIÐ. MANUDAGUR 17. JANÚAR 1977.
Sigurður RE slær íslandsmet á loðnuveiðunum:
11 hundruð tonn
í einni veiðiferð
— pláss fyrir 200 tonn í viðbót, segir skipst jórinn
„Við fengum þetta í tíu köst-
um og þetta er allt mjög góð
loðna,“ sagði Haraldur Ágústs-
son, skipstjóri á Sigurði RE, er
DB hafði tal af honum í gær en
þá var hann að sigla skipi síntr
fyrir austan land, með 1100
tonna loðnufarm til Vest-
mannaeyja. Þetta er stærsti
loðnufarmur sem hingað til
hefur borizt að landi i einu.
Er Haraldur var spurður
hvort skipið væri ekki alveg
fullt kvað hann það ekki vera,
líklega kæmust um 200 tonn í
viöbót. Eins og DB skýrði frá
fyrir skömmu var byggt yfir
skipið hérlendis í haust og jókst
burðargeta þess þá verulega.
Eftir að byggt var yfir það
getur það einnig siglt hlaðnara
í verri veðrum en áður og t.d. í
gær hélt það 16 mílna hraða
þrátt fyrir þessa hleðslu og að
veður væri ekki sem ákjósan-
legast.
Sigurður á að fá nýja nót í
Vestmannaeyjum, 59 faðma
djúpa og stærri á alla vegu en
50 faðma nótina, sem nú er um
borð. Taldi Haraldur ekki ólík-;
legt að unnt yrði að fylla skipið
jafnvel í þrem köstum með
nýju nótinni, miðað við beztu
aðstæður og mikla loðnu. Har-
aldur verður með skipið fram
að næstu helgi en þá tekur
Kristbjörn Árnason við því.
Skiptast þeir á, á þriggja vikna
fresti, eða þar um bil.
Láta mun nærri að afli Sig-
urðar úr þessari einu ferð sé tíu
milljóna króna virði, miðað við
13% fituinnihald loðnunnar, en
það þýðir að skipstjórahlutur-
inn er eitthvað nálægt hálfri
milljón og hásetahlutur líkleg-
ast á þriðja hundrað þúsunda.
Þetta er þriðja veiðiferð Sig-
urðar á þessari vertíð og hann
er búinn að fiska á þriðja þús-
und tonn.
-G.S.
Haraldur Agústsson í brúnni á
Sigurði RE. Skipshundurinn,
sem Haraldur heidur í ioppuna
á, heitir Bára.
Þóra Grétars, gyðja ieiksins, i
gerfi myndastyttu á safni.
Furðulegar grímur eru notaðar í leiknum.
Innheimtustörf
Selfoss:
Fætur og ást á f jölum biösins
Þegar fréttaritari blaðsins á
Selfossi brá sér á æfingu hjá
Leikfélagi Selfoss eitt kvöldið í
síðustu viku hitti hann fyrir frísk
legan hóp ungs fólks sem engin
þreytumerki sáust á þrátt fyrir
látlausar æfingar siðan í október
síðastliðnum. Leikrit það sem
verið er að æfa er gamanleikur
sem ber nafnið: Sá sem stelur
fæti verður heppinn í ástum og er
eftir kunnan ítalskan leikritahöf-
und, Dario Fo að nafni. Fo þessi
er höfundur leikrits sem Leikfé-
lag Reykjavíkur frumsýndi árið
1965, Þjófar lík og falar konur og
var það sýnt yfir hundrað sinn-
um, við mikinn orðstír, og ætti
það að sýna ágæti höfundarins.
Fót-Ástarleikriti okkar Selfyss-
inga leikstýrir Steinunn Jóhann-
esdóttir við mikinn orðstír. Stein-
unn er ungur leikari hjá Þjóðleik-
húsinu og hefur áður komið við
sögu hjá Leikfélagi Selfoss en
hún sá um uppfærslu á tveimur
síðustu leikritum félagsins 7
stelpum og í Atomstöðinni. Aðal-
hlutverkin í leikriti dagsins eru í
höndum Ketils Högnasonar tann-
læknis og Þóru Grétarsdóttur en
Þóra er eins og kunnugt er orðin
heimsfræg um allt Island eftir
leik sinn í útvarpið hér um árið.
Önnur hlutverk eru sex talsins en
að baki þessarar sýningar standa
una 20 manns og er áhugi og fórn-
fýsi þeirra hreint ótrúlegur.
Frumsýningin verður næstkom-
andi miðvikudag (19. janúar)
kl. 21 og verður án efa góð að-
sókn líkt og á síðasta borgara-
fundi. Er því betra að tryggja sér
miða í tíma en forsala stendur nú
yfir í Radíó- og Sjónvarpsstofunni
Selfossi. Formaður Leikfélags
Selfoss er frú Sigríður Karlsdótt-
ir.
Kristján Einarsson,
fréttaritari.
Bíræfinn þjöfnaður:
TÓK KVIKMYNDASÝNINGARVÉL Á LEIGU
— EN VIRÐIST ÆTLA AÐ STELA HENNI
Maður nokkur kom í Véla- og
kvikmyndaleiguna 9. jan. sl. og
tók á leigu Yasicha sýningarvél til
eins sólarhrings, en vélin er fyrir
8 mm filmu. Ekki hafði hann
nafnskírteini en eigandi leigunn-
ar tók niður bílnúmer hans, af
gömlum vana.
Maðurinn hefur ekki sézt síðan
og ekki hafzt upp á honum né
vélinni en eigandi vélarinnar er,
ekki á þeim buxunum að gefa
manninum 60 þúsund króna vél
og gefur manninum því tveggja
sólarhringa frest til að skila vél-
inni með góðu. Annars verður
númerið að líkindum birt og lög-
reglan fengin í málið. -G.S.
Fólk óskast til innheimtustarfa, ekki
yngra en 20 ára. Aðeins röskt og
ábyggilegt fólk kemur til greina. Til-
boð sendist afgreiðslu blaðsins merkt
„Röskt 6666“.
Klakastífla í Elliðaám—olli flóði á föstudag
Krapastífla myndaðist í Elliða-
ánum á föstudaginn. Sprengdi áin
ekki af sér sjálf og myndaðist
talsvert flóð ofan við Vatnsveitu-
brúna. Borgarstarfsmenn voru
sendir á vettvang og tókst með
sprengingu að losa um stífluna og
koma aftur á eðlilegu rennsli.
Elliðaárnar hafa verið í nokkr-
um klakaböndum í frostunum að
undanförnu. Börn hafa sótt að
stíflunum með skauta og ýmsir
aðrir, meðal annars unglingar á
bílum. Er það hinn hættulegasti
leikur og hefur lögreglan reynt að
stöðva allt slíkt í 'byrjun og vísa
skautafólkinu á Rauðavatn
-ASt.