Dagblaðið - 17.01.1977, Side 6
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 1977.
Rafsuðuneistamirffreifö-
Hafnarfjörður:
Tvö böm
ustyfir einangrunarbirgðir
Af varð reykur og kóf og einangrunin eyðilagðist
Eldur varð laus i allmikilli
byggingu sem verið er að reisa
við Smiðjuveg 1 í Kópavogi.
Var slökkviliðið kvatt þangað
kl. 15.30. Húsið er enn opið en
verið var að vinna við rafsuðu á
þaki þess. Þakið er enn opið
niður á efri hæðina og þangað
flugu neistar frá rafsuðunni.
Á hæðinni fyrir neðan voru
nokkrir tugir balla af einangr-
unarefni og kom í þá eldur frá
rafsuðunni. Taldi slökkviliðið
að þarna hefði verið mjög óvar-
lega að farið við rafsuðuna.
Ekki varð af mikið bál, þvi
einangrun sem þessi logar ekki
en hún sviðnar og gefur frá sér
mikinn reyk. Húsið var svo opið
og aðgengilegt fyrir slökkvilið-
ið að slökkvistarf var fljót-
unnið.
Ekki er talið að húsbyggingin
sjálf hafi orðið fyrir skemmd-
um en nokkurt tjón varð á ein-
angrunarefninu.
Er slökkviliðið var langt
komið með slökkvistarf á
Smiðjuveginurh barst kall frá
skúr í Sundahöfn. Þar var áður
útgerðarbækistöð fyrir grá-
sleppuveiðar, eða allt þangað til
i fyrra. Ekki voru umtalsverð
verðmæti í skúrnum. Er talið Var eldur kominn milli þilja er Kópavogi. Slökkvistarf gekk
vist að um íkveikju sé að ræða. bílar slökkviliðsins komu úr greiðlega. -ASt.
Unnið að slökkvistarfi að Smiðjuvegi 1. Mikinn reyk lagði af sviðnu einangrunarefninu. Böllunum var
varpað út um óbyrgða glugga byggingarinnar — DB-mynd Sv. Þorm.
fyrirbíl
á Reykja-
víkurvegi
Sluppu óbrotin en
telpan ermeð sárá
höfði
Tvö börn, drengur og telpa,
sjö og átta ára, urðu fyrir bif-
reið á Reykjavíkurvegi, móts
við húsið nr. 68, á sjötta tíman-
um á laugardag. Bifreiðin var á;
leið til Reykjavikur er börnin
hlupu út á veginn og lentu á
bílnum.
Slysið. varð skammt frá
gatnamótum Hjallabrautar og
Reykjavíkurvegar og sagði
Sveinn Björnsson rannsóknar-
lögreglumaður í Hafnarfirði að
aðstæður væru þarna hættuleg-
ar og þyrfti að koma þarna
upp gangbraut með umferðar-
ljósum ef vel ætti að vera.
Börnin virtust sleppa furðu-
vel frá slysinu. Telpan er þó
meira slösuð en drengurinn.
Hlaut hún sár á höfði og verða
meiðsli hennar könnuð nánar.
Bæði voru börnin óbrotin.
-ASt.
Grimudansleiksgestir
fengu klefavist
á Litla-Hrauni
—og þrír ökumenn
viðakstur
Mikið annríki var hjá Sel-
fosslögreglunni aðfaranótt
sunnudagsins. Grímudansleik-
ur var haldinn í Þjórsárveri og
um kl. 1.30 í nótt báðu lögreglu-
menn þar um aðstoð lögreglu-
manna á vakt vegna ölvunar á
dansleiknum. Varð að flytja þó
nokkra þaðan og fá þá vistaða í
klefurn að Litla-Hrauni I nótt.
Þrír ökumenn voru teknir
ölvaðir við akstur og munu
ferðir þeirra hafa verið tengdar
dansleiknum í Þjórsárveri.
Þá fór rafmagn að Laugar-
vatni svo og á Skeiðum og sveit-
um þar fyrir ofan. Innanfélags-
skemmtun var í skóla að Laug-
voruteknirölvaðir
arvatni og voru lögreglumenn
sendir þangað í öryggisskyni
vegna rafmagnsleysisins. Ekk-
ert bar þó til tiðinda og allt fór
vel fram.
Á Selfossi er aðeins fimm
manna lögreglusveit á vakt á
laugardagskvöldum en auk
þess gæta aukamenn dans-
leikja. Nóttin varð því annasöm
hjá hinni fámennu Selfosssveit
þegar drykkjuskapurinn tók að
keyra um þverbak í Þjórsár-
veri. Vegakerfi umdæmis Sel-
fosslögreglunnar mun á þriðja
hundrað kílómetrar og því get-
ur verið tafsamt að fara í útköll
í uppsveitum. -ASt.
Tvennt íslysadeild
eftir umferðarslys
Að minnsta kosti tvö umferð-
arslys urðu í Reykjavík á föstu-
daginn. Hið fyrra varð á tíunda
tímanum um morguninn er
maður sem var að koma hjól-
andi frá Sundlaug Vesturbæjar
varð f.vrir bíl á Hofsvallagötu.
Maðurinn var fluttur í slysa-
deild en meiðsli hans voru ekki
lalin alvarleg, að sögn lögregl-
unnar.
Kl. 18.39 um kvöldið var til-
kynnt um bifreiðarslys í Heið-
argerði. Þar varð kona f.vrir bíl.
Hún skarst illa í andliti og
hlaut fleiri áverka.
Myndina tók Sveinn Þor-
móðsson á sl.vsstað á Hofsvalla-
götunni.
-ASt.
Unglingar óðu um íBreið-
holti, ölvaðir með hávaða
Mikil ólæti urðu í Breiðholti
af völdum unglinga aðfaranótt
laugardagsins. Komu kvartanir
frá mörgum húsum varðandi
ólæti og ónæði af völdum ungl-
inganna. Fór flokkur þeirra um
íbúðarhverfin með hávaða og
látum.
Um þverbak keyrði klukkan
langt gengin 4 um nóttina. Þá
voru unglingarnir í Jórufelli og
varð þar ekki svefnsamt. Lög-
reglan kom á staðinn og stugg-
aði 16 unglingum frá húsinu og
reyndi að fá þá til að koma sér
heim. Voru ýmsir þeirra illa á
sig komnir, undir áhrifum.
áfengis, höfðu kastað upp og
yoru iUa til reika.
Það varð því kvabbsamt hjá
lögregluliði þarna efra um
helgina þó að stórslys yrðu
ekki.
Ein móðir varð að biðja um
aðstoð lögreglu vegna 14 ára
sonar síns sem hafði tekið frá
henni ávísanahefti en mun þó
ekki hafa notað það að talið er.
Annar unglingspiltur var stað-
inn að hnupli í verzlun við Arn-
arbakka í hádeginu á föstudag-
inn. -ASt.
16 ÁRA BÍLÞJÓFUR Á
RÚMLEGA100 KM HRAÐA
Umfangsmikill eltingaleikur á götum Reykjavíkur
Mikill eltingaleikur varð er
lögreglubílar eltu Mercedes
Benz bifreið vítt og breytt um
Reykjavíkurborg aðfaranótt
sunnudagsins. Veitti iögreglan
athygli ógætilegum akstri Benz-
bifreiðarinnar og hóf eftirför.
Ekki varð hún auðveldlega
stöðvuð og voru sendir aðstoð-
arbílar á vettvang.
ökuhraðinn mældist á stund-
um nokkuð á annað hundrað
kílómetrar á klukkustund og
urðu margir varir við eltinga-
leikinn, því lögreglubílar settu
sírenur á við gatnamót og
hættulega staði.
Eltingaleiknum lauk á Kára-
stíg þar sem ökuníðingurinn
var stöðvaður. Hafði hann lent
á einhverju af umferðarmerkj-
um en að öðru leyti var ekki
vitað um tjón er hann olli.
ökuníðingurinn reyndist
réttindalaus enda ekki nema
sextán og hálfs árs. Með honum
var félagi hans á 13. aldursári.
Bílnum höfðu þeir stolið. Var
bíllinn í eigu Reykjavíkurborg-
ar, pallbifreið af Mercedes
Benz gerð sem fyrr segir.
-ASt.
Konur barðar og böm
tekin af heimilum
Annasamt hjá lögreglu vegna drykkju á heimilum
Óvenju annasamt varð hjá
lögregluliði borgarinnar um
helgina. Ríkti vandræðaástand
á nokkrum heimilum vegna
drykkjuskapar og kom til átaka
og óláta og kærumála út af
slíku.
Kona kom í lögregluvarðstöð-
ina með slæma áverka í andliti.
Hafði skorizt í brýnu milli
hennar og manns hennar og
lauk þeim skiptum svo að eigin-
maðurinn lamdi hana með fyrr-
greindum afleiðingum. Hún
fékk fyrirgreiðslu lögreglu.
Þá kom sjómaður einn að
máli við lögregluna snemma í
morgun og sagði óvenjulega
sögu. Kvað hann konu sína hafa
náð úri sínu af sér, en úrið taldi
hann 60 þúsund króna virði.
Hafði hún skellt þvf í klósett-
skál heimilisins og pumpað nið-
ur. Vildi maðurinn fá aðstoð
lögreglu til að reyna að finna
úrið er það bærizt í sjó fram við
Skúlagötu. Ekki var hægt að
verða við beiðni þessa manns.
Þá kærði ung kona sambýlis-
mann sinn fyrir að hafa tekið
barn þeirra af henni með valdi
og farið með það á braut eftir
misklíð þeirra á milli. Barnið er
mjög ungt og varð konan að
vonum skelkuð. Rannsóknar-
lögreglan fékk málið til með-
ferðar og mun síðar hafa haft
upp á barninu.
Annað barn var fært af heim-
ili sínu vegna drykkjuskapar
móður þess og félaga hennar
sem var í heimsókn.
Þetta eru nokkru dæmi um
viðfangsefni lögreglunnar að
næturlagi í höfuðborginni. Er
þá engan veginn allt upp talið.
-ASt.