Dagblaðið - 17.01.1977, Qupperneq 8
8
dacblaðh). mantd \<;i b 17 j.wtak 1977.
GILMORE
TEKINN
AF LÍFI?
Allt útlit er fyrir að hinn
dæmdi morðingi Gary Gilmore
verði líflátinn klukkan 14.49 i
daK i fangelsisgarðinum i
ríkisfangelsinu í Salt Lake
City í Utah, fyrstur dauða-
dæmra fanga í Bandaríkjunum
í tíu ár.
Ef að líkum lætur, verður
Gilmore því leiddur fyrir af-
tökusveit í dag og skotinn eftir
að hafa verið reyrður niður í
stól, að venju i Utahríki.
★
Gilmore er sagður hafa fagn-
að þeirri ákvörðun tveggja
dómara við hæstarétt Banda-
ríkjanna að hlýða á náðunar-
beiðni tveggja lögfræðinga,
sem kröfðust þess að hætt yrði
við aftökuna vegna þess að hún
kynni að hafa áhrif á íramtíð
annarra dauðada'mdra fanga
sem í haldi eru í Bandaríkjun-
um. Sem kunnugt er krafðist
Gilmore þess að hann yrði líf-
látinn en hann var sekur fund-
inn um að hafa myrt hótel-
starfsmar.n i Salt Lake City sl.
sumar.
Að sögn ættingja Gilmores,
sem fengu að heimsækja hann.
var hann í góðu skapi og gerði
að gamni sínu.
Síðustu fréttir: Skömmu
f.vrir klukkan níu að íslenzkum
tíma var aftöku Gary Gilmores
frestað um a.m.k. 40 daga. Var
ákvörðun um þetta tekin eftir
að hæstaréttardómarinn Ritter
ákvað að kanna nánar hvort af-
takan væri ólögleg, þar eð eng-
in lög heimiluðu að hún færi
fram á kostnað hins almenna
skattborgara í Utah-ríki.
Það voru nokkrir lögmenn
dauðadæmdra fanga sem áfrýj-
uðu málinu á þessum grund-
velli, þar eð þeir telja aftöku
Gilmores geta haft mikil áhrif
á framtíð annarra dauða-
dæmdra fanga í Bandaríkjun-
um.
Erlendar
fréttir
Tveir
teknir
fyrir
njósnir
Tveir- þegnar í Bandarikjun-
um hafa verið handteknir,
sakaðir um að hafa komið hern-
aðarleyndarmálum í hendur
sovezkra sendiráósstarfsmanna
í Mexico City, að sögn tals-
manna bandarísku alríkislög-
reglunnar, FBI.
1 tilkynningu, sem gefin var
út i Washington í gær, sagði að
annar mannanna, Christopher
Boyce, sem er 23 ára, hefði ver-
ið handtekinn í Los Angeles í
gær en hinn, Andrew Lee, sem
cr 25 ára, hefði verið hand-
tekinn sjötta janúar sl. í
Mex ico Cit.v.
Hafa báðir verið sakaðir um
tilraunir til njósna fyrir erlent
ríki og eiga yfir höfði sér
stranga dóma.
Tilkynning til
viðskiptavina
Verzlunin Krómhúsgögn, Grensásvegi 7,
Reykjavík, hefur flutt að Smiöjuvegi 5
Kópavogi.
Símar40260eða 43150
- ........ ..........-..
söfnun A77
A þingi Alþýöuflokksins siðastlibiö haust var gerð itarleg úttekt á eignum, skuldum og
fjárhagslegum rekstri fiokksins. Var þetta gert á opnum fundi, og fengu fjölmiðiar öll
gógn um málið. Hefur enginn stjórnmálaflokkur gert fjárhagslega hreint fyrir sinum
dyrum á þann hátt, sem þarna var gert.
Það kom i Ijós, að Alþýðuflokkurinn ber allþunga byrði gamalla skulda vegna Alþýðu-
blaðsins. Nú um áramótin námu þær 8,4 milljónum króna að meðtöldum vangreiddum
vöxtum.
Happdrætti flokksins hefur varið mestu af ágóða sinum til að greiða af lánunum. Það
hefur hinsvegar valdið þvi, að mjög hefur skort fé til að standa undir eðlilegri starfsemi
flokksins. skrifstofu með þrjá starfsmenn, skipulags- og fræðslustarfi.
Framkvæmdastjórn Alþýðuflokksins hefur samþykkt að hefja söfnun fjár til að greiða
þessar gömlu skuldir að svo mikiu leyti sem framast er únnt. Verður þetta átak nefnt
„Söfnun A 77” og er ætlunin að leita til sem flestra aöila um land allt. Stjórn söfnunar-
innar annast Garðar Sveinn Arnason framkvæmdastjóri flokksins. Má senda framlög
til hans á skrifstofu flokksins i Alþýðuhúsinu, en framlög niá einnig senda til gjaldkera
flokksins, Kristinar Guðmundsdóttur eöa formanns flokksins, Benedikts Gröndal.
Það er von framkvæmdastjórnarinnar. að sem flestir vinir og stuðningsmenn Alþýðu-
flokksins og jafnaðarstefnunnar leggi sinn skerf i þessa söfnun, svo að starfsemi flokks-
ins komist sém fyrst i eölilegt horf.
Alþýðuflokkurinn
Hastings-mótid:
Glæsilegasti
sigurinn í 55 ára
sögu mótsins
— Mótmælaaðgerðir Gyðinga í Hastings
Sovézki stórmeistarinn Oleg
Romanishin sigraði glæsilega á
Hastings-mótinu sem lauk sl.
laugardag. Hlaut Romanishin 1114
vinning af 15 mögulegum, sem er
hæsta hlutfall vinninga sem kepp-
andi hefur hlotið í 55 ára sögu
hins alþjóðlega skákmóts í Hast-
ings. Næstur að vinningum var
Israelsmaðurinn Shimon Kagan,
stórmeistari, með 9V4 vinning.
Fékk hinn 25 ára gamli Roman-
ishin óskipt 700 sterlingspunda
fyrstu verðlaun á mótinu.
Félag Gvðinga í Hastings efndi
til móimælafundar fyrir utan
strandhótelið þar sem skákmótið
fer fram á meðan síðasta umferð-
in var tefld. Hrópuðu göngumenn
mótmæli og veifuðu borðum og
fánum þar sem fordæntd var
stefna sovézkra stjórnvalda í af-
stöðunni til Gyðinga sem óska að
ÚRVRL/ KJÖTVÖRUR
OG ÞJÓnU/Tfi
/i/allteitthvaó
gottímatinn
STIGAHLIÐ 45-47 SÍMI 35645
fíytjast úr landi í Sovétríkjunum.
Mótmælagangan dró sig í hlé
þegar loforð fékkst um það hjá
starfsmönnum mótsins að bréf
skyldi afhent Romanishin og fyrr-
verandi heimsmeistara. Smyslov,
sem einnig var meðal keppenda.
Þessar mótmælaaðgerðir högg-
uðu ekki sigurgöngu Romanishins
og fór hann létt með Júgóslav-
ann Mato Damjanovic í síðustu
umferðinni.
Þriðja sætið á Hastings-mótinu
hlaut glæsilegur, ungur Banda-
ríkjamaður, James Tarjan, 21 árs
gamall. Má segja að Tarjan hafi
staðfest lofsamleg ummæli sem
um hann féllu fyrir mótið. Var
jafnvel kveðið svo sterkt að orði
að Tarjan væri einhver sterkasti
skákntaður heimsins um þessar
mundir.Tarjan hrifsaði til sín
'þriðja sætið í síðustu umferð-
inni.Nýtti hann til þrautar óná-
kvæma taflmennsku Simons
Webb, Englandi.
Mesta athygli i síðustu umferð-
inni vakti skák Vukcevics frá
Bandaríkjunum og Kraidmans
frá Israel. í mun lakari stöðu að
því er talið var. fórnaði Vukeevic
hrók og fvlgdi fórninni eftir með
óverjandi máti.
Lokastaðan i Hastings-m’ótinu
var þessi:
1. Romanishin. Sovétríkjunum. .11 Vz v.
2. Kagan, ísrael .............. 9 Vz v.
3. Tarjan, Bandaríkjunum........ 9 v.
4. -5. Adorjan, Ungverjal. og
Smyslov, Sovétr.............. 8 v.
6. Miles, Bretlandi 7 Vi v.
7. -10. Damjanovic, Jugósl., Farago,
Ungv.l., Vukcevic, Bandar., Swaig,
Noregi......................... 6V2 v.
11.-12. Kaplan, Bandar., Whiteley, Bretl. 5 V;
v.
13.-14. Kraidman, ísrael, Rumens, Bretl. 5 v.
15. Webb, Bretland 4 V2 v.
BS.