Dagblaðið - 17.01.1977, Blaðsíða 9
PA< IBI.AÐH). MAXl'DACI'H 17 J.WI' \K 1 977
9
Jerúsalem:
DAOUD SKAL
FYRIR RÉn
Forsætisráöherra ísraels,
Yitzhak Rabin, sagði á ríkis-
stjórnarfundi þar í gær, að
ísraelsmenn myndu gera allt
sem í þeirra valdi stæði til að
palestínski skxruliðaforinginn
Abu Daoud yrði leiddur fyrir
■rétt.
Mikil reiði ríkir enn í Ísrael
vegna þess, að Frakkar létu
manninn lausan úr haldi i
síðustu viku en hann er talinn
hafa skipulagt árás
palestínskra skæruliða á búðir
ísraelsks íþróttafólks á ólym-
píuleikunum í Munchen árið
1972.
Sagði Rabin að afstaða
Frakka í þessu máli gagnaði
engum nema skæruliðabaráttu
heimsins.
Frakkar losuðu sig fljótlega við „tímasprengjuna" Daoud.
'pOLL
77
Fékk Pulitzer-verðlaunin
fyrir skrif um Watergate:
Bemstein
hætturí
Maðamennsku
Carl Bernstein, blaða-
maðurinn frægi sem ásamt Bob
Woodward fékk Pulitzer-
verðlaunin fyrir frásagnir sínar
af Watergate-hneykslinu er síð-
ar leiddi af sér afsögn Nixons
forseta, hefur sagt starfi sínu
við dagblaðið Washington Post
lausu.
Bernstein, sem er 32 ára
ritaði ásamt Woodward tvær
metsölubækur um atburði
þessa, ,.A1I the Presidents
Men“ og „Final Days“ og mun
ætla sér að beina kröftum sín-
um að skrifum bóka. Hann hef-
ur verið viðriðinn blaða-
mennsku síðan hann var 16 ára
og er hann var spurður hvort
hann myndi veita einhverjar
upplýsingar um það hver
heimildarmaður hans, svo-
nefndur ;,Deep Throat“, væri,
sagði Bernstein: „Það tek ég
með mér í gröfina".
Martin Villahittir
nokkra leiötoga
Baska
Samkvæmt heimildum frá
Baskahéruðum Spánar mun
Martin Villa, innanríkisráð-
herra landsins, hitta nokkra af
borgarstjórum norðurhéraða
landsins að máli á morgun til
þess að hlýða á kröfur þeirra
um aukið sjálfsforræði og
frelsi til handa póiitískum
föngum.
Innanríkisráðherrann föllst
á fund þennan eftir aó til
mikiila mótmæla kom, er borg-
arstjórunum var meinað að
taka þátt í mótmælagöngu þar
sem áherzla var lögð á kröfur
þessar.
UPPREISN
BÆLD NIÐUR
Samkvæmt fréttum ríkisút-
varpsins í Vestur-Afríkuríkinu
Benin hefur hersveitum stjórn-
arinnar tekizt að hrinda af
höndum sér byltingarsinnum
sem nutu aðstoðar erlendra
málaliða.
Forseti landsins, marx-
leninistinn Mathieu Kerekou,
sagði i útvarpsávarpi sínu að
málaliðarnir hefðu verið á mála
hjá „erlendum heimsvaldasinn-
um“ og forseti nágranna-
ríkisins Togo, Gnassingbe
Eyadema, sagði blaðamanni að
þeir hefðu verið hvítir menn.
Er þetta fjórða byltingartil-
raunin í landinu síðan Kerekou
sjálfur komst til valda eftir
byltingu árið 1972 og voru
byltingarmennirnir nú sagðir á
flótta í átt að landamærum
Togo.
Danir banna kvikmynd
um Palestínumenn
Danskir kvikmyndafram-
leiðendur hafa sakað formann
danska kvikmýndaeftirlitsins
um „misskilna og ólögmæta rit-
skoðun", en dreifing á kvik-
mvnd um Palestínumenn hefur
verið bönnuð þar í landi.
Samtök frjálsra kvikmynda-
gerðarmanna og leikstjóra hafa
birt þessar ásakanir. Formaður
kvikm.vndaeftirlitsins kunn-
gerði bannið i fyrradag.
Kvikmyndin sem ber heitið
Ofsóttar þjóðir hafa alltaf rétt
fyrir sér var gerð af dönskum
aðila með styrk frá rik'nu. en
vandamálin sköpuðust er upp-
víst varð um gagnrýni þá er
fram kemur á ísraelsmenn í
mvndinni.
Leikstjórinn, Nils Vest, segir
að myndin eigi að túlka sjónar-
mið Palestínumanna og aldrei
hafi verið dregin dul á það að
þar kæmu einungis fram
skoðanir þeirra.
Samtök listamanna segja að
árásir hins íhaldssama bing-
manns Gerd Möller hafi átt
sinn þátt í ákvörðunartöku
kvikmyndaeftirlitsins og hafa
hvatt Niels Matthiasen
menningarmálaráðherra til
þess að hefjast handa í málinu
og vernda rétt til frjálsra
skoðanaskipta.
Formaður kvikm.vndaeftir-
litsins, Svend Lorenzt, hefur
neitað ásökunum þessum og
segir, að dreifing myndarinnar
hafi verið stöðvuð á meðan mál-
ið er athugað.
NYJAR
FRAMÁ
ÚTSÖLUNA í DAG.
KASTALINN
Scotch
B R A N D
3m
Notið aðeins
fyrsta flokks
pökkunarlímband
Notið „SCOTCH”
3M UMBOÐIÐ Á ÍSLANDI:
G. Þorsteinsson & Johnson h.f.
Ármúla 1 — Sími 8 55 33
4
i
4
4
4
4
i
4
4
4
i
Á
1
<
i
;J