Dagblaðið - 17.01.1977, Side 17
DACBI.AÐIt). MAXUDAGUR 17. JANUAR 1977.
17
Kaupioekki
köttinn í sekknum
NÚ GILDIR AÐEINS RÖKRÉTT
HUGSUN. LITSJÓNVARP KOSTAR
MARGRA MÁNAÐA LAUN. ÞAÐ
MÁ EKKI RASA AÐ NEINU, EKKI
LÁTA TILFINNINGARNAR RÁÐA,
EKKI LÁJA BERAST MEÐ
STRAUMNUM. NÚ SKAL TEKIN
SJÁLFSTÆÐ, YFIRVEGUÐ
ÁKVÖRÐUN.
Litsjónvarp hefir einn meginkost
umfram þaö svarthvíta. Fyrir þenn-
an eina kost vilja margir greiöa
hátt verö. Of margir, segja sumir.
Þaö metur þú sjálfur hvort rétt sé.
Viö teljum þaö hins vegar í okkar
verkahring aö benda þér á annað
sem athuga þarf ef þú ert aö hug-
leiða Jitsjónvarpskaup.
Litsjónvarpi fylgja vandamál, önnur
og öðruvísi en áöur var aö venjast.
Ef eitthvaö bilar eru t.d. varahlutir
dýrari (myndlampinn einn kostaöi
allt að 100.000 krónur síðast, hver
veit hvaö þaö verður næst?). Öll
stilling er vandasamari þvi litkerfiö
er allt næmara en þaö svarthvíta
(skilyröin hjá næsta nágranna þín-
um geta jafnvel veriö önnur en hjá
þér sjálfum). Og, satt aö segja, vit-
um viö ekki enn hvaöa sérstakir
erfiðleikar kunna aö koma í Ijós viö
margháttaðar íslenskar aðstæður.
ÞAÐ ER AÐEINS TIL EITT RÁÐ
VIÐ ÞESSUM VANDA: AÐ KAUPA
ÖRUGGT MERKI MEÐ LANGRI
ÁBYRGÐ ÞAR SEM ÞJÓNUSTAN
ER GÓÐ.
Viö höfum lagt metnaö okkar í aö
svara þessum kröfum. Nú bjóöum
viö:
TVÖ GÓÐ MERKI:
Þriója hvert litsjónvarp sem nú er
selt í Vestur-Þýskalandi er frá
GRUNDIG. Hvaö segir þaö þér ef
erfiðustu kaupendur heims halla
sér í svo rikum mæli aö einni teg-
und? SABA tækin eru gerö í Svarta-
skógi þar sem menn leggja stolt
sitt í gæöin. SABA útvarpsvörur
hafa aldarfjórðungs reynslu hér-
lendis.
SJÖ DAGA SKILAFRESTUR:
Þú getur keypt hvort merkiö sem
er. Ef þér líkar ekki tækiö máttu
skila þvi til okkar og fá peningana
þina til baka. Þú hefur viku til um-
hugsunar.
ÞRJÁTÍU DAGA RÉTTURINN:
Ef tæki bilar fyrsta mánuöinn tök-
um viö þaö aftur og látum þig hafa
annaö eins i staðinn, (svo fremi
sem þaö er til).
LENGRI ÁBYRGÐ:
Árs ábyrgö er á hverju tæki eins
og lög gera ráö fyrir. Ef þaö bilar
greiðum viö efni og vinnu. Auk
þessa ábyrgjumst viö aö mynd-
lampinn (þessi dýri, muniö þiö?)
endist og starfi eölilega i fimm ár.
Ef hann bilar færöu nýjan.
EINFALT TÆKNIMÁL:
Einingaverk nefnum viö nýja, ein-
faldari samsetningu sjónvarpstækja,
sem bæöi GRUNDIG og SABA nota.
Verkiö er sett saman úr 12-17
einingum. Ef ein þeirra bilar skipt-
um viö um. Svo einfalt er þaö.
Þetta styttir viðgerðartímann, þú
færö örugga þjónustu meðan þú
bíöur.
Fjögur töfraoró látum viö svo fylgja,
þaö er óþarft aö láera þau, nægir
aö vita aö þessi galdratæki eru öll
á sinum staö í GRUNDIG og SABA
sjónvarpstækjunum.
”IN LINE SYSTEM”. Ný, gjörbreytt
gerö myndlampa sem gefur skarp-
ari litmynd og er ekki eins hætt viö
vanstrllingu og eldri geröum, t.d.
viö flutning.
"THYRISTOR” er arftaki smárans
(transistorsins), gegnir sama hlut-
verki en er miklu seigari og endist
betur. Hann er í GRUNDIG tækjum
þar sem mest mæöir á og smárar
hafa enst hvaö skemmst.
"COLOR KILLER" er sjálfvirkur rofi
sem breytir í svarthvita mynd er
óhagstæö skilyröi eöa vanstilling
hindra eölilega birtingu i lit.
"AUTOMATIC VOLTAGE” er spennu-
stillir sem jafnar sveiflurnar sem
veröa tíðum í rafkerfinu og hlifir
tækinu viö því álagi og sliti sem
því fylgir.
ERTU ENN AÐ HUGSA UM
SVARTHVÍTT?
Já, hversvegna ekki? Þaö er marg-
ra mat, miðaö viö hag og horfur,
aö ekki sé tímabært nú aö drifa
sig í "litinn”. Spurningin er aöeins
sú hvort aðstæðurnar breytast
fyrr en varir og þú kunnir aö sjá
eftir öllu saman. Jæja, viö bjóöum
þér þetta: Innan þriggja ára tökum
viö óskemmt svarthvítt tæki, keypt
hjá okkur, upp i viö kaup á nýju lit-
sjónvarpi, aö sjálfsögöu meö eðli-
legri afskrift.
Þetta veröur aö nægja aö sinni um
GRUNDIG, SABA og þjónustuna hjá
okkur. Nú bjóöast þér líklega ein
átján merki önnur, hjá níu verzlun-
um eöa svo, sem þú kannt aö vilja
gera samanburö á. Já, taktu þér
góóan tíma. Kauptu nú ekki köttinn
i sekknum.
Þegar þér hentar erum vió reióu-
búnir aó gangast undir yfirheyrslu
eöa senda þér tæki heim til
reynslu i sjö daga.
Leiðandi fyrirtæki
á sviði sjónvarps
útvarps og hljómtækja
VERZLUN OG SKRIFSTOFA: LAUGAVEGI 10. SÍMAR: 27788.19192,19150.
Þröstur Magnússon