Dagblaðið - 17.01.1977, Blaðsíða 19
DACBLAÐIÐ. MAXUDAGUK 17. JANUAR 1977.
Ct
1«
i
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
KARATE-BÚNINGAR
Sportvöruverzlun
Ingólfs Óskarssonar
Hólagardi Breidholti. sihii 75020
VERÐ
KR. 5790.-
Armann er betri en
við unnum á baráttu
Knötturinn á ieið í körfu Armenninga. DB-mynd Bjarnleifur.
Ármann
ÍR
KR
IS
6 5 1 488-456 10
7 5 2 483-446 10
7 5 2 472-470 10
6 3 3 530-499 6
Valur
Fram
Breiðablik
6 1 5 475-487 2
6 1 5 344-392 2-
6 0 6 301-440 0
h halls
—sagði Vladan Marovic þjálfari Njarðvíkinga
eftir sigur á Ármanni 75-70. KR og ÍR sigruðu
bæði og því baráttan milli þessara f jögurra liða.
— Ármann er betra lið en
okkar þrátt fyrir að við höfum
sigrað Ármann — við sigruðum á
ómældri baráttu. Sigurinn var
kærkominn því undanfarinn
mánuð hefur heizt mátt líkja
ástandinu hjá okkur við sjúkra-
hús — slík hafa meiðsiin verið,
sagði Vladan Marcovic þjálfari
Njarðvíkinga eftir sigur Suður-
nesjaliðsins yfir Islandsmeistur-
um Ármanns 75-70. Verðskuld-
aður sigur sem, eins og Vladan
raunar sagði, vannst fyrst og
siðast á baráttu — ómæidri bar-
áttu.
Með þessum sigri Njarðvíkinga
gegn Ármanni hefur á ný færzt
spenna i íslandsmótið í körfu-
knattleik — nú hafa öll lið tapað
leik — Ármann og UMFN
tveimur stigum — KR og ÍR hafa
tapað f.jórum stigum.
Sá körfuknattleikur, sem
Ármann og Njarðvíkingar sýndu í
gær, var ekki áferðarfallegur —
harkan og baráttan sátu í fyrir-
rúmi en spennan þeim mun meiri.
Bæði lið tjölduðu nýjum leik-
mönnum frá síðustu leikjum lið-
anna— Guðsteinn Ingimarsson lék
sinn fyrsta leik með UMFN og þá
gegn sínum gömlu félögum í Ár-
manni — Símon Ólafsson lék sinn
fyrsta leik með Ármanni en hann
verður með liðinu það sem eftir
er vetrar. Báðir voru liðum sínum
mikill styrkur — en Islandsmeist-
ararnir söknuðu illa Jimmy
Rogers.
Leikurinn var jafn allan
tímann — staðan I leikhléi var
36-35 Ármanni í vil. Ármann varð
fyrir áfalli i byrjun síðari hálf-
ieiks þegar Símon varð að yfir-
gefa völlinn vegna meiðsla en
kom 10 mínútum síðar. Ármanni
tókst að halda forskoti sínu —
mest 5 stig 58-53. En Njarðvíking-
um tókst að sigla framúr með
baráttu sinni — komust í 68-60 og
sigruðu 75-70.
Leikur UMFN byggist fyrst og
fremst á baráttu alls liðsins — og
skorun leikmanna er mjög jöfn.
Hjá Ármanni byggist hins vegar
allt spil í kring um Jón Sigurðs-
son — Jón Björgvinsson og Símon
voru drjúgir við að skora en aðrir
leikmenn utan þessara þriggja
skoruðu sáralítið — veikleiki
vissulega.
Stigahæstur Njarðvíkinga varð
Kári Marísson með 18 stig — Geir
Þorsteinsson skoraði 15 og
Gunnar ‘Þorvarðarson 12. Símon
Ólafsson skoraði flest stig
Ármanns, 20, Jón Björgvinsson
•skoraði 15 og JónSigurðsson 15.
KR — ÍS 90-80
KR hélt meistaravonum sínum
vakandi með sigri á stúdentum.
Leikur liðanna var ekki skemmti-
legur fáum áhorfendum en furðu-
legur var hann. KR var án Einars
Bollasonar — stúdentar án Jóns
Héðinssonar. Varnarleikur lið-
anna var því ekki upp á marga
fiska — og mistök á báða bóga.
Sérst^aklega eru stúdentar furðu-
legir — maður hafði ávallt á til-
finningunni að þeir ættu auðveld-
lega að geta sigrað vængbrotið lið.
KR — og á köflum yfirspiluðu
þeir KR-inga — en þess á milli
datt allur botn úr leik liðsins —
ekki heil brú og stigin sópuðust
inn í körfu stúdenta.
KR hafði yfir eitt stig I leikhléi,
42-41, en hvorki gekk né rak hjá
vesturbæjarliðinu í byrjun slðari
hálfleiks — IS sigldi framúr og
komst í níu stiga forustu, 53-44 —
en þá fór allt I baklás — KR sigldi
framúr og sigraði 90-80.
Bjarni Jóhannesson átti
stjörnuleik með KR — skoraði
grimmt og margar sérlega fall-
egar körfur en samtals urðu stig-
in sem hann skoraði 42. Kolbeinn
Pálsson skoraði 17 og Birgir Guð-
björnsson 16. Bjarni Gunnar
Sveinsson skoraði 29 stig fvrir
stúdenta — Ingi Stefánsson 16 og
Steinn Sveinsson 15.
ÍR — Valur 78-68.
Rétt eins og KR — þá héldu
ÍR-ingar meistaravonum sínum
vakandi þegar IR sigraði Val 78-
68. ÍR hafði yfir í leikhléi 31-30 —
og á 10. mínútu síðari hálfleiks
var staðan 49-49 og síðan 55-55 en
þá skoruðu ÍR-ingar 6 stig í röð og
breyttu stöðunni í 61-55 — eftir
það var sigur liðsins tryggður —
lokatölur urðu 78-68.
Kristinn Jörundsson skoraði 25
stig fyrir IR — Jón Jörundsson 14
og Kolbeinn Kristinsson 13.
Kristján Ágústsson skoraði flest
stig Vals — 24 — Torfi Maghús-
son 13.
Staðan í íslandsmótinu er nú:
Njarðvík 6 5 1 468-351 10
Stefán sigraði
í Amarmótinu
Stefán Konráðsson Gerplu sigr- Sigurvegari í þrið.ja flokki varð/
aði í Arnarmótinu svonefnda en Hiimar Konráðsson úr Víkingi —\
hann sigraði Hjálmtý Hafsteins- hann sigraði Árna Gunnarssonl
son úr KR í úrslitum 21-8, 19-21. UMFK í úrslitum. Gunnlaugur 7
21-12. Gunnar Finnbjörnsson úr Hjartarson og Jónas Kristjáns-1
1 Erninum hafnaði í þriðja sæti í son, báðir úr Erninum, höfnuðu íl
öðrum fiokki. þriðja tii fjórða sæti. /