Dagblaðið - 17.01.1977, Side 20
20
DACBLAÐIÐ. MÁNUDAGUH 17. JANÚAR 1977.
Við ætlum að vera saman
eftir dauðann og aldrei að
eilífu að skiljast Garý Gilmore
Aðeins þrettán klukkutímum
áður en Gary Gilmore, einn af
þekktustu morðingjum Banda-
ríkjanna um þessar mundir og
vinkona hans, Nicole Barrett,
gerðu sjálfsmorðstilraunir
sinar í nóvember sl. átti Nicole
viðtal við bandarískt blað.
Þar skýrði hún frá því að þau
hefðu ráðgert að fremja sjálfs-
morð, hún heima hjá sér og
hann í fangelsinu, til þess að
þau gætu hitzt handan við gröf
og dauða og þyrftu aldrei að
skilja framar.
„Við Gary ætlum bráðlega að
fremja sjálfsmorð,“ sagði
Nicole. „Hann vill að ég sé með
honum eftir dauðann eins og
við vorum saman áður en
ógæfan dundi yfir hann.“
Morguninn eftir að Nicole
átti þetta viðtal við blaðamann-
inn fannst hún meðvitundar-
laus í íbúð sinni. Hún var rétt
aðeins með lífsmarki. Sama
morgun fannst Gary meðvit-
undarlaus í fangaklefa sínum í
ríkisfangelsinu í Utah aðeins
þrjátíu mílur í burtu. Þau
höfðu bæði tekið of stóran
skammt af svefntöflum.
Nicole Barrett átti viðtal við
bandariskan blaðamann nokkr-
um kiukkustundum áður en
hún gerði tilraun til þess að
svipta sig lífi með of stórum
skammti af svefntöfium.
Hann vélaði dóttur mína til sjálfsmorðs
—segir móðir unnustu Gary Gilmore
„Hann er ekkert annað en
handbendi þess illa. Hann
vildi bara að Nicole fremdi
sjálfsmorð til þess að enginn
annar fengi að njóta'hennar,"
sagði frú Kathryn Baker,
móðir hinnar ógæfusömu
Nicole Barrett, sem gert hefur
ítrekaðar tilraunir ti! sjálfs-
morðs vegna morðingjans
Gary Gilmore.
Frú Baker heldur því fram
að sjálfsmorðstilraunin sem
Gary gerði í fangelsinu í
nóvember hafi aðeins verið
gerð til þess að sýnast.
„Gary tók alls ekki banvæn-
an skammt af seconali. Hann
veit alltof vel um áhrif slíkra
lyfja og veit hvaða skammtur
er banvænn,“ sagði hún.
Fangelsislæknarnir áætla að
Gary hafi tekið eitthvað á milli
tíu og tuttugu töflur af
seconali.
„Gar.v hefur slegið ryki í
augu fjölda fólks en ég þekki
hann og hans líka. Hann kann:
tökin á hlutunum og hefur
reiknað þetta allt út. Nú þykist
hann þess fullviss að fólk sé:
farið að fá samúð rneð'
honum,“ sagði Kathryn.
„Honum tókst að telja fólki trú
um að hann vildi, í alvöru, ekki
lifa lengur.“
Frú Baker segir að hræðileg
breyting hefði orðið á dóttur
hennar eftir að hún fór að fara
í heimsóknir til Garys í fang-
elsið.
„Dóttir mín varð skyndilega
mjög undarleg. Hún varð
þögul og þunglynd. Stundum
virtist eins og hún væri utan
við sig og vissi ekki hvað væri
að gerast í kringum hana. Að
því kom að engu var líkara en
hún lifði einungis fyrir þessar
heimsóknir til Garys.
Ég reyndi að tala um fyrir.
henni og leiða henni fyrir
sjónir að börnin hennar þörfn-
uðust hennar. Hún sagði að
börnin hennar væru betur sett
án hennar. Þunglyndi hennar,
sem hún réði ekki við, hefði
einungis slæm áhrif á þau.“
Kathryn hugsaði um dóttur-
börn sín á meðan Nicole var á
sjúkrahúsinu. Hún sagði að
það þefói verið átakanlegt að
heyra hvernig Jeremy litli
hefði hrópað á móður sína og
grátið .sig í svefn á hverju
kvöldi.
V
Réttfyririnnan
Klapparstfg
Grettisgötu 12-18
Opiðalla daga 8,30-7
nema sunnudaga
Opið íhádeginu
Landsins
mesta úrval
af notuðum
bifreiðum
íhjarta
Reykjavíkur
ALUR BÍLAR í HÚSI
TRYGGÐIR
Æ f 1 Æ! jrn rj
.