Dagblaðið - 17.01.1977, Blaðsíða 21
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGÚR 17. JANIJAR 1977.
Loks ákváðu þau að fremja
sameiginlegt sjálfsmorð til þess
að sálir þeirra mættu sameinast
á nýjan leik.
„Við erum sannfærð um að
við þekktumst í fyrra tilveru-
stigi okkar,“ sagði Nicole með
tárin í augunum við þlaða-
manninn. „Eftir dauðann þurf-
um við aldrei að skilja framar.“
Jeremy litli hnipraði sig að
móður sinni þegar hún var að
ræða við blaðamanninn. „Ég tel
að ég muni nú hafa kjark til
þess að fremja sjálfsmorð,"
sagði Nicole. „Ég veit að ég get
ekki lifað án ástar Garys. Ég
hef einu sinni reynt að fremja
sjálfsmorð. Þá skar ég mig á
púlsinn en það var komið að
mér og mér komið undir
læknishendur áður en ég dó. Ég
gerði þetta vegna þess að ég
taldi að ég fengi að vera með
Gary eftir dauðann.“
Nicole og Gary hittust í maí sl.
„Eg varð ástfangin af honum
við fyrstu sýn,“ sagði hún.
„Gary er dásamlegasta og
heiðarlegasta manneskja sem
ég þekki,“ sagði þessi unga
kona um þennan umtalaða
morðingja, sem verður tekinn
af lífi nú sautjánda janúar.
Ekki var Nicole þó á þeirri
skoðun, til að byrja með, að
Gary væri algóður.
Það var eitt sem skyggði á að
samband okkar væri eins og
bezt væri á kosið. Gary var
alltof vínhneigður. Hann var
drukkinn frá morgni til kvölds
og það var ástæðan fyrir því að
við slitum samvistum. Það var
rétt áður en hann framdi
morðin.“
Nicole stendur í þeirri trú að
Gary hafi orðið morðingi vegna
þess að hún sagði upp
sambandi sínu við hann. „Ég
hitti hann rétt áður en hann
mýrti þessa menn og ég verð að
viðurkenna að ég var dauð-
hrædd við hann og þorði ekki
að vera með honum."
I bréfum sem Gary skrifaði
Nicole úr fangelsinu sagðist
hann vera ákaflega leiður yfir
Gary Gilmore hafði tekið milli 10 og 20 svefntöflur og fannst,
meðvitundarlaus í klefa sinum. Móðir unnustu hans heldur þvi
fram að hann hafi bara verið að sýnast og aldrei ætlað sér að fremja
sjálfsmoró.
aðeins þrettán ára gömul en
það stóð ekki nema skamma
hríð. í seinna hjónabandi sínu
eignaðist hún tvo syni, Sunny
sem nú er fjögurra ára og
Jeremy aðeins þriggja ára.
Nicole sagðist hafa orðið ást-
fangin af Gary er hún sá hann í
fyrsta sinn. Samband þeirra
stóð þó ekki mjög lengi vegna
þess að henni féll ekki hve vín-
hneigður hann var, hann lagði
hendur á hana. Sleit hún þá
sambandinu við hann — og
skömmu síðar varð hann tveim-
ur mönnum að bana. Eftir að
hann var kominn á bak við lás
og slá fór hún í heimsókn til
hans og þau tóku upp þráðinn
þar sem frá var horfið.
Þegar Nicole kom í heim-
sóknir sínar í fangelsið til Gary
töluðust þau lengi við. Þau
komust að raun um að þau
höfðu sameiginlegar skoðanir á
mörgum málum. M.a. trúðu þau
bæði á endurholdgun og að þau
hefðu þekkzt á fyrra tilveru-
stigi.
Morðinginn Gary Gilmore
hefur reynt að vekja samúð
allra.
Nicole Barret er tvígift. í
fyrra hjónabandið gekk hún
21
\
því að hafa orðið þessum mönn-
um að bana að ástæðulausu.
„Hann ætlaði sér ekki að drepa
þá. Hann ætlaði aðeins að ná
sér í peninga. Hann missti
stjórn á skapi sínu — og þá
gerðist þetta,“ sagði Nicole.
Gary Gilmore var sakaður
um að hafa myrt tvo menn í lok
júlímánaðar. Annar þeirra var
starfsmaður á móteli, Bennie
Bushnell og hinn á bensínstöð.
David Jensen. Hinn 7. október
var hann sekur fundinn og
dæmdur til dauða.
Skömmu síðar var dómnum
breytt I ævilangt fangelsi. Gary
gerði þá mikið veður út af þvi,
vegna þess að hann vildi ekki
vera i ævilöngu fangelsi og ætti
rétt á því að dauðadómnum yrði
fullnægt, eins og getið hefur
verið í fréttum.
„Eftir réttarhöldin sagði
hann mér að hann hefði sætt
sig við dauðadóminn. Hann
sagði: „Ég veit að ég verð að
greiða fyrir gerðir mínar dýru
verði. Ég sé innilega eftir því
að ég skuli hafa orðið þessum
mönnum að bana.“
Síðar sagði hann mér að hann
ætlaði að krefjast þess að
dauðadómnum yrði fullnægt.
Hann myndi aldrei verða í ævi-
löngu fangelsi,“ sagði Nicole.
„Við kynntumst í rauninni
aldrei almennilega fyrr en
Gary var kominn í fangelsið.
Hann skrifaði mér á hverjum
degi og stundum oftar en einu
sinni á dag. Ég varð enn ást-
fangnari af honum en fyrr.“
Nicole heimsótti hann nærri
því daglega í fangelsið þar sem
hún gat dvalið hjá honum í
tvær klukkustundir.
„Mér fannst dásamlegt að
hlusta á hann þegar hann söng
fyrir mig. Hann söng mörg lög
sem Johnny Cash hefur
sungið,“ sagði Nicole.
„Um leið og hann hefur verið
tekinn af lífi hverfur sál hans
beint til mín og ég finn það á
mér. Þá getur enginn tekið
hann frá mér framar.
Fólk hefur spurt mig hvernig
ég geti hugsað mér að láta hann
deyja fyrst ég elski hann svona
heitt. En mér finnst að hann sé
ekki að deyja. Hann er aðeins
að óska eftir því að vérða frjáls,
þannig að hann geti bætt sig og
það getur hann ekki gert á
meðan hann lifir I þessum
heimi.
Hann er allsendis óhræddur
við að deyja. Hann talar um
aftöku sína eins og sjálfsagðan
hlut. Hann hefur óskað eftir
því að mega falla fyrir aftöku-
>veit og hann vill fá að ganga
fyrir sveitina án þess að hafa
hauspoka. Gary mun deyja með
sóma eins og þeim heiðurs-
manni sem hann er, sæmir,“
sagði Nicole.
„Við getum tekizt á við dauð-
ann vegna þess að við lítum svo
á að hann sé aðeins liður I
þeirri þróun sem við göngum í
gegnum. Sálir okkar fara úr
líkamanum og það er aðeins
líkaminn sem deyr. Við eigum
engra kosta völ. Fyrst við
getum ekki verið saman hér I
lifanda lífi þá verðum við að
vera saman á öðru tilverustigi.“
Blaðamaðurinn gat þess að
Nicole hefði litið illa út og virzt
miklu eldri en hún væri,
tuttugu ára. Hann spurði hvort
hann gæti fengið annað viðtal
við hana daginn eftir, en þá
svaraði hún:
„Ég er hrædd um að það
verði ekki hægt. Það er ákveðin
ástæða fyrir því að ég get ekki
lofað þér öðru viðtali. Astæða,
sem ég vil ekki skýra þér frá
núna.“
Nokkrum klukkutímum síðar
var farið í miklu hasti með
Nicole á sjúkrahús þar sem
naumlega tókst að bjarga lífi
hennar. Hún hafði tekið alltof
stóran skammt af svefntöflum.
Nicole skildi eftir sig sjálfs-
morðsbréf svohljóðandi:
„Elsku Gary minn. Eg ætla
að gera það núna og mér er full
alvara. Mig langar aðeins til
þess að sofa og vera hjá þér um
alla eilífð.“
A.Bj.
Tékkneska
bifreiöaumbodid
á íslandi hf.
Um leió og við óskum öllum landsmönnum
farsœldar á nýbyrjuóu ári, tilkynnum við
nafnabreytingu. Framvegis veróur heiti
fyrirtœkisins JÖFUR HF
JÖFUR HF
Tékkneska bifreióaunnbcxíiió á Islandi
AUOBREKKU 44-46 - KÓPAVOGI - SÍMI 42600