Dagblaðið - 17.01.1977, Side 22
22
JDAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 1977.
SVLVANIA
Flúrpípur
fyrirliggjandi íeftirtöldum litum og
stærðum
40 watt W „white“
40 watt WW „warm white“
40 watt WWX „warm white deluxe"
40 watt CW „cool white“
40 watt GRO gróðurpípur
20 watt W „white“
20 watt WW „warm white“
20 watt WWX „warm white deluxe“
20 watt CW „cool white“
20 watt GRO gróðurpípur
15 watt W „white“
Hringpípur:
22 watt W „white“
22 watt WW „warm white“
22 watt WWX „warm white deluxe“
32 watt W „white“
32 watt WW „warm white"
40 watt W „white“
40 watt WW „warm white“
Ræsar:
allar stœrðir
Hið hagstæða SYLVANIU verð
(i. borstein^nn <K: Johnson h.f.
Armúla 1 .
Siriti !á b l' Jí 3
ARNARBORGIR OG
SKÝJAKUÚFAR
—heimatilbúnar eldgildrur
Austurbæjarbio: The Towering Inferno.
A^ðalhlutvork: Steve McQueen, Paul New-
man, Faye Dunaway, William Holden, Fred
Astaire og Richard Chamberlain.
Leikstjori: John Guillermin.
Tonlist: John Williams.
Bandaríkjamenn geröu kvik-
myndina The Towering In-
ferno — um baráttu'slökkvi-
liðsmanna í San Fransisco viö
slökkva í 135 hæða skýja-
kljúf úr gleri. Baráttan við eyð-
andi vítislogana var vonlaus —
undirstrikaði vanmátt manns-
ins í baráttu við höfuðskepn-
una — eldinn — í eldgildru
sem maðurinn sjálfur hafði bú-
ið sér. Rétt eins og Titanic forð-
um átti ekki að geta sokkið átti
hinn 135 hæða glerturn ekki að
geta brunnið. Snilld og hæfni
mannsandans átti að sjá fyrir
því — sjálfumgleði mannsins
taldi sér að minnsta kosti trú
um slíkt.
Skömmu eftir að Austurbæj-
arbíó hóf sýningar á The
Towering Inferno — sem raun-
ar allar götur síðan hefur verið
sýnd við húsfylli — kom upp
reykur allnokkur í stórhýsi í
Reykjavík — Arnarborginni
svonefndu við Æsufell. Þar
háði slökkviliðið grátbroslega
baráttu við höfuðskepn-
una — þó ekki væri eldurinn
magnaður en reykurinn þeim
mun meiri. Fjöldi borgarbúa
fylgdist með starfi slökkviliðs-
ins okkar — þar sem slökkvi-
liðsmenn þvældust hver fyrir^
öðrum eins og höfuðlaus her —
broslegar aðfarir slökkviliðs-
manna við að koma stigabíl fyr-
ir við hlið hússins en bros borg-
aranna stirðnuðu í nepjunni.
Fjöldi fólks var í húsinu en
þrátt fyrir það var tæki nokk-
urt á slökkvistöðinni til áð fylla
súrefnistanka reykgrímanna
ekki sótt — jú, slökkvistjórinn
okkar sagði nefnilega að ekki
Eldurinn fer ekki í manngreinarálit — eyðandi hversem i hlut á.
járnbent steinsteypa í einingum
Traustar sperrur og tréverk, og
traustir menn til að reisa húsin. Ná-
kvæm stöðlun framleióslu okkar þýðir
ekki, að öll húsin verði eins, heldur
það, að allir hlutar framleiðslunnar
falla nákvæmlega inn í þá heild, sem
þið veljið. Það eru margvíslegir mögu-
leikar á fjölbreytni í útliti húsanna og
innréttingum.
Traust og fjölbreytileg
einingahús.
Vió framleiðum bæði stór og smá
hús, atvinnuhúsnæði, bílskúra og ein-
býlishús eða raðhús. Einingabygg-
ing sparar ómetanlegan tíma, fé og
fyrirhöfn, bæði verktökum og atvinnu-
mönnum í byggingariðnaði og öðr-
um húsbyggjendum.
HÚSASMIÐJAN HF
Súðarvogi 3, Reykjavík. Sími 86365.
Kvik
myndir
HALLUR
HALLSSON
vs
hefði verið hægt að hafa tækið
á brunastað vegna flutningaerf-
iðleika, jú, sjáið, ekki er hægt
að færa tækið úr stað nema með
einhvers konar dráttartæki —
t.d. bíl — en slíkt á slökkviliðið
ekki og þykir slökkvisíjóra ekk-
ert tiltökumál.
Já, svör embættismannsins
voru furðuleg í sjónvarpinu. Og
jú, hann sagði meira að segja að
þeir í slökkviliðinu hefðu verið
orðnir uggandi vegna þess að
tjón á árinu voru fyrir neðan
meðallag!
Á milli orða slökkvistjóra
mátti lesa — þeir í útlöndum
ráða ekki við stórbruna — hví
ættum við hér á Islandi að ráða
við bruna í 8 hæða Arnarvirki?
— en það finnst slökkvistjóra
ofureðlilegt — það er ef höfða-
talan margfræga er tekin. I út-
löndum ráða menn ekki við;
stórbruna í 135 hæða blokk — á
íslandi ráðum við ekki við eld í
8 hæða blokk — jafnvel þó að
mestu sé einungis um reyk að
ræða. En sjálfsagt gera þeir
aldrei kvikmynd um frammi-
stöðu Slökkviliðs Reykjavíkur
við Æsufell.
Stórbrunar hafa orðið er-
lendis í skýjakljúfum og fjöl-
býlishúsum, sem hafa reynzt
sannkallaðar eldgildrur, og af-
leiðingarnar hafa verið hroða-
legar. Við hér heima á Fróni
höfum byggt taisvert af háum
fjölbýlishúsum — nái eldurinn
að breiðast út þá er voðinn vís.
Af frammistöðu slökkviliðsins
við Æsufell og í Aðalstræti geta
reykvískir skattgreiðendur ráð-
ið að ekki sé hægt að treysta um
of á Slökkvilið Reykjavíkur —
jú, sko kannski verða ekki nógu
margir á vakt er eldurinn kem-
ur upp!
Þessar hugleiðingar — og
aðrar svipaðar leituðu á hug-
ann eftir að ég sá myndina The
Towering Inferno. Þar endur-
speglaðist vanmáttur mannsins
gegn höfuðskepnunni — eldin-
um.
Endilega, ágæti lesandi —
skrepptu endilega í Austurbæj-
arbíó, þó ekki væri til annars
en að augu þín mættu opnast
fyrir eyðileggingarmætti elds-
ins — ef og þegar hann sleppur
laus — þessi þarfi þjónn sem
stundum tekur húsbóndavaldið
með hroðalegum afleiðingum.
Þar við bætist að myndin er hin
ágætasta skemmtun — spenn-
andi og ,,tragísk“ í senn, en þar
er meira að segja rúm fyrir
rómantíkina.
h. halls.
Arkitektinn, Paul Newman,
og slökkviliðsstjórinn Steve
McQueen.